Morgunblaðið - 28.11.1968, Page 24

Morgunblaðið - 28.11.1968, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBBR 1968 einusinni skein vasaljósið hans á nokkuð sem hann hafði ekki búizt við að rekast á, þarna í stofunni. Hún brosti. — Og hvað gæti það svo sem verið? — Lík af miðaldra konu, sem vel hefði getað verið tengda- dóttir yðar. — Sagði hann yður það? Hann leit á hvíthönskuðu hendumar á henni, og þær skulfu alls ekki. — Hversvegna komið þér ekki með manninn og látið hann endurtaka þessar ákærur á mig? — Hann er ekki í París. — Er ekki hægt að ná í hann hingað? Maigret kaus heldur að svara þessu engu. Hann var ekki allt- of ánægður með sjálfan sig. Hann tók að velta því fyrir sér, hvort hann væri ekki að lúta í lægra haldi fyrir áhrifavaldi þessarar konu, sem var róleg eins og einhver abbadís. Hún stóð ekki upp, iðaði ekk- ert og sýndi heldur ekki af sér neina móðgun. — Ég hef enga hugmynd um hvað þér eruð að fara, og ætla heldur ekki að spyrja um það. Kannski hafið þér einhverja gilda ástæðu til að trúa þessum manni. Hann er innbrotsþjóf- ur, er ekki svo? En ég er hins- vegar bara gömul kona, sjötíu og átta ára, sem hef aldrei gert ketti mein. Leyfið mér nú — þegar við vitum hvernig mál- in standa — að bjóða yður að koma heim til okkar. Ég skal opna fyrir yður allar dyr og sýna ^yður hvað sem þér viljið sjá. Og þegar sonur minn fær Nýkomnir kvenkuldaskór, margar gerðir af kvenskóm, Gód Ijósmynd qfbarnabörnunum e> |"0’ & sem qfi ogamma kunna að meta pantið myndatöku og/eda stœkkanir langavegilS sími 17707 að vita allar kringumstæður, þá mun hann heldur ekki skorast undan að svara spurningum yð- ar. — Hvernær þóknast yður að koma hr. Maigret? Nú hafði hún staðið upp, salla róleg, og það var engin grimmd í framkomu hennar — aðeins vottaði fyrir dálítilli gremju. — Kannski seinnipartinn í dag, annars veit ég það ekki enn. Hefur sonur yðar notað bíl inn sinn síðustu dagana? — Það getið þér spurt hann um, ef þér viljið. — Er hann heima núna? — Það er vel hugsanlegt. Það var hann þegar ég fóp. — Og Eugenie líka? — Já, hún er áreiðanlega heima. — Þakka yt ur fj ir. Hann vísaði heuni fram að dýrum, en þegar hún kom þang- að, sneri hún sér við. — Mig lfjngar. uð biðja yður greiða, sagði hún hóglega. Þegar ég er farin, reyi ið þá að setja ítt yður . min s, ir, og gleyma því, að þér hafið eytt ævinni í að fást við glæpi. Hugsið þér yður, að það séuð þér sjálfur, sem hef- ur verið spurður þessara spurn- inga sem þér hafið lagt fyrir mig, og þér séuð sjálfur grun- aður um að hafa drepið mann með köldi < blóði. Meira var það ekki. — Hún bætti að ins við: — Sjá.umst þá í eftirmiðdag, hr. Maigret. Eftir að hurðin féll að stöf- um, sí óð hann í heila mínútu hreyfi'Agarlaus við dyrnar. Síð- an gekk hann út að glugagnum og eftir andartak sá hann gömlu konu.ia ganga með stuttum en hröð im skrefum út í sólskinið og stefr<a að Mikjálsbrúnni. Hs nn tók upp símann. — Gefið mér lögreglustöðina í Nei illy. Hann bað ekki um samband við yfirmanninn, heldur við lið þjálfa sem hann þekkti. — Vanneau? Þetta er Maigret Jú, þakka þér fyrir, ég er frísk- ur. Hlustaðu nú á. Þetta er dá- lítið vandasamt. Stökktu upp í bíl og farðu að nr. 43. í Bæjar- götu. — Er það húsið tannlæknis- ins? Hann Janvier, sem ég tal- aði við í gær, var eitthvað að minnast á það. Eitthvað í sam- bandi við hollenzkan kvenmann, var það ekki? — Það getur nú verið sama. En tíminn er naumur Og náung- inn er ekki auðveldur viðureign ar, og ég get ekki fengið hand- tökuúrskurð, enn sem komið er. En þú verður að flýta þér og vera kominn þangað á undan henni móður hans. — Er hún langt burtu? — Hún er við Mikjálsbrúna, og ég get búist við, að hún taki bíl. — Hvað á ég að gera við manninn? — Taktu hann á stöðina, á einhverri átyllu. Þú getur sagt, að þú þurfir hans með sem vitn- is. . . . — Og svo? — Ég skal koma þangað. Ég þarf bara að komast út og ná í bíl. En ef tannlæknirinn er ekki heima? — Þá stendurðu á verði og grípur hann áður en hann kemst inn. — Er þetta ekki dálítið óform legt? — Jú mjög svo. Þegar Vanneau ætlaði að fara að leggja símann, bætti Maigret við: — Taktu mann með þér og settu hann á vörð við þessi hest hús, sem hafa verið gerð að bíl- skúrum og eru í sömu götu. Tannlæknirinn hefur einn skúr- inn á leigu. — Allt í lagi. Andartaki síðar var Maigret að hlaupa niður stigann og stökkva upp í einn lögreglubíl- inn, sem stóð í húsagarðinum. Þegar bíllinn beygði að Ný- brúnni kom hann auga á græna hattinn hennar Ernestine. En hann var ekki alveg viss um það, og vildi ekki eyða neinum tíma til ónýtis. Sannast að segja, var hann orðinn hálfgramur í garð Lengjunnar. Þegar hann var kominn yfir brúna, tók hann að iðrast, en þá var það um seinan. Það var ekkert við því að gera. Hún mundi bíða hans. TTS Sigrún. 4. KAFLI. Lögreglustöðin var á neðstu hæð í ráðhúsinu, sem var ljót bygging eins og ferhyrndur kassi við eyðilegt torg, þar sem ekki óx annað en nokkur rytju- leg tré, og óhreint flagg dinglaði á störug. Maigreit hefði getað gengið beint inn í varðstofurn- ar, en ti'l þess að standa ekki augliti tiá auglitis við Guillaume Serre, lagði hann leið sína iim í gang nokkurn og villtist brátt. Einnig hér hvíldi þessi sumar- deyfð yfir öllu. Dyr og gluggar stóðu upp á gátt, og skjöl fuku til á borðunum, en snöggklæddir skrifstofumenn skröfuðu saman um baðstaðina, og einstaka skatt borgari leitaði fyrir sér til þess að fá einhverja uppáskrift. Maigret tókst loks að hitta á einhvern 'lögregluþjón, sem þekkti hann í sjón. — Hvar er Vanneau liðþjálfi? — Aðrar dyr til hægri í gang- k-.um, — Gætuð þér náð í hann fyrir mig? Það á að vera einhver inni hjá horuum, en nefnið þér ekki nafnið mitt upphátt. Rétt á eftir var Vanneau kom- .«n til hans. — Er hann þarna? — Já. — Hvernig fór þetta? — Nokkurnveginn. Ég var svo forsjáll að hafa stefnu með mér. Ég hringdi. Vinnukona kom til dyra og ég bað hana um að fá að tala við húsbónda hennar. Ég varð að bíða nokkra stund í for- stofunni. Þá kom náunginn nið- ur og ég sýndi honum stefnuna. Hann las hana og fékk mér hana aftur án þess að segja orð. Ef þér viljið koma með mér, hef ég bíl hérna úti, sagði ég. — Hann yppti öxlum, tók Pan amahatt ofan af snaga, setti hann upp og gekk svo út með mér. — Nú situr hann á stól og er ekki enn farinn að segja orð. Mínútu seinna gekk Maigret inn í skrifstofu Vanneaus, og fann þar fyrir Serre, sem svældi svartan vindil. Maigret settist í stólinn liðþjálfans. — Mér þykir fyrir því að hafa gert yður ómak, hr. Serre, en mig langaði að biðja yður að svara nokkrum spurningum. Einis og fyrra daginn, leit tann 28. NÓVEMBER Hrúturinn 21 marz — !). apríl Ákvarðanir sem teknar eru núna, munu eiga sér langa ævi. Fólk er fremur ruglað, svo að gott er að hugleiða málin í kvöld. Nautið 20. apríl — 20. maí Þú ert á krossgötum, og það sem þú aðhefst verður lengi haft í minnum. Tvíburarnir 21. maí — 20. júní Þér verður ljóst, að þú hefur sparað þér og öðrum mikið ómak. Einhverjar tafir verða. Krabbinn 21. júní — 2 . júlí Láttu berast með straumnum, og þegar aðrir eru orðnir upp- gefnir, hefur þú meira en nóg þrek. Ljónið 23. júlí — 22. ágúst Þér gengur vel að byggja upp, en allt annað virðist fara úr skorðum. Gerðu ráð fyrir því að fólk sé með mótþróa. Meyjan 23. ágúst — 22. september. Þér býðst eitthvert tækifæri, en þérð þð, að það er ekki mjög glæsilegt. Merkilegar fréttir eru í vændum. Sporðdrekinn 23. október — 21 nóvember í Þér gengur vel að heimsækja og fara í smáferðalög. Þú ert samt alltaf með hugann við rlnisleg málefni. Hafðu augun hjá þér. Bogmaðurinn 2 . nóvember — 21. desember Gerðu ráð fyrir talsverðum veðrabrigðum. Reyndu að hvílast en hlustaðu vel! Steingeitin 22 desember — 19. janúar Óskir þínar kunna að standa þér fyrir þrifum í fjöldkyldumál- efnum. Þar á móti kann það að koma, að fjölskyldan fari að blanda sér I áform þín. Bjargaðu þessu strax með því að gera hreint fyrir þínum dyrum gagnvart fjöldkyldunni. Vatnsberinn 20. janúar — 18. febrúar Fólki leikur forvitni á að vita, hvað þú tekur næst til bragðs. Þú kannt að gera ýmsar skyaeur í dag, og hefur nóg að husga !í kvöld. Fiskarnir 19. febrúar — 20. mafB Enginn virðist valveg viss um, hvenær hlutirnir eiga að ske. Kannski færðu óvænt tækifæri á því að sanna hæfileikana, notaðu það!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.