Morgunblaðið - 01.12.1968, Qupperneq 1
32 síður og Lesbók
. 6*. <*
269. tbl. 55. árg.
SUNNUDAGUR 1. DESEMBER 1968
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Fullveldið fímmtíu ára
J»ESSI mynd var tekin á Austurvelli í gær af Alþingishúsinu og styttu Jóns Sigurðssonar. ióótt kominn sé desember sjást ennþá útsprungin blóm á Austurvelli,
eins og sést í forgrunni myndarinnar. — Ljósmyndari Mbl. ólafur K. Magnússon.
Tító í gœr:
Engin hætta vofir yfir Júgóslavíu
— Telur fréttir um herœfingar
— í Rúmeníu ekki á rökum reistar
BELGRAD 30. nóv. (NTB). —I sagði að ástandið í Evrópu hefði
Tito Júgóslavíuforseti sagði í I versnað, en taldi ekki ástæðu til
dag, að Júgóslavíu væri ekki
ógnað af neinum aðilum og að
landið æskti engrar hjálpar og
alls ekki frá Bandaríkjunum.
Tito kvaðst hafa látið Banda-
ríkjastjóm vita um þessa af-
stöðu sína.
Tito var staddur í borginni
Jajce í Bosníu, en þar lýsti hann
yfir fullveldi landsins fyrir 25
árum, þegar skæruliðasveitir
hans voru umkringdar af tuttugu
þýzkum herfylkjum.
Aðspurður sagði Tito, að hann
sæi ekki að hlutleysi Austurríkis
væri í neinni hættu og hann
lagði áherzlu á, að hann væri
mótfallinn að stórveldin skiptu
heiminum í fáein voldug áhrifa-
svæði I hagsmunaskyni. Tito
svartsýni, þó að andrúmsloftið
væri nú víða lævi blandið og
fráleitt væri að álíta að Sovét-
ríkin né nokkurt annað kommún
istaríki hyrfi aftur til Stalíns-
Framhald á bls. 31.
Bruni í
Madrid
MADRID 30 nóv. (NTB). —
Stórbruni varð í Madrid í nótt
•eftir óeirðir stúdenta við há-
skóla borgarinnar Kvlknaði eld-
ur í nokkur byggingum háskól-
ans, og olli miklum skemmdum.
150 stúdentar voru handteknir, og
þremur deildum háskólans hefur
verið lokað.
Fjölmennt slökkviliðið vann að
því í morgun að kæfa eld-
inn í brunarústunum. Talsverð-
ar skemmdir urðu á einu af eldri
húsum háskólan.s, Eyðilagðist þar
stór fyrirlestrasalur og efri hæð-
ir hússins. Um 300 stúdentar
voru í húsinu þegar eldurinn
kviknaði, og var þeim öilum
bjargað.
Lesbókin
í hátíðabúningi
— á 50 ára afmœli fullveldisins
MORGUNBLAÐIÐ minnist 50 ára fullveldis á Islandi í dag
með sérstakri útgáfu Lesbókar.
Af efni hátíðablaðsins má nefna: Samninganefndimar
kjörnar, kafli úr hinni nýju bók AB, um árið 1918, sem Gísli
Jónsson, menntaskólakennari hefur ritað. Sigurður Nordal
á grein um 1. desember 1918. Rætt er við Guðlaugu Magn-
úsdóttur, ekkju Bjarna frá Vogi, Aðalbjörgu Sigurðardótt-
ur, Halldór Hansen, Önnu Johannessen og Lárus Jóhannes-
son. Grein er um stúdenta og 1. desember, rætt er við Pét-
ur Björnsson skipstjóra og endurtekið samtal er Matthias
Johannessen hefur átt við Þorstein M. Jónsson og birtist í
Morguniblaðinu 1. des. 1958. Þá er annáll ársins 1918 í máli
og myndum og grein um Nýja sáttmála, sambandslaga-
lagasamninginn frá 1918. Þá eru ljóð eftir Matthías Jo-
hannessen, Úlf Ragnarsson og Ingibjörgu Þorgeirsdóttur
frá Höllustöðum.
Forsíðumynd er eftir Einar Hákonarson, listmálara. Ein-
ar hefur lagt sérstaka stund á grafík og notar þá tækni við
gerð forsíðumyndarinnar. Þetta er samsett mynd úr gömlu
og nýju eins og sjá má og unnin í anda nútímans.
Um myndina og efni hennar segir Einar: „Það er ekki
Fjallkonan íslenzka, sem við sjáum þarna, þótt svo gæti
virzt í fljótu bragði. Þetta er frelsisgyðjan úr frönsku bylt-
ingunni, en með þeirri byltingu hófust þær frelsishreyfing-
ar í álfunni, sem m.a. leiddu til fullveldis okkar 1. des. 1918.
Ég hef tekið mér það bessaleyfi a!ð taka byssuna af gyðj-
unni í þetta sinn og þef fengið henni íslenzkan fána. Eg
hugsa mér að frelsishugsjónin, sem gyðj an er tákn fyrir,
hafi verið leiðarljós Jóns Sigurðssonar í baráttu hans. En
auk þesis set ég ýmislegt gamalt og nýtt í myndina; allt frá
þessari öld. Þarna er aidamótakynsióðin og húsakynni
hennar, fyrstu bílarnir, samkoman við Stjórnarráðið 1. des.
1918, mynd frá hernámsárunum, skrúðganga 17. júní í
fyrra og mannfjöldi: Nútíma Íslendingar.
Scranton ier til
Jíusturianda nær
New York, 30. nóv. NTB
RICHABD Nixon hefur ákveðið
að senda William Scranton, fyrr-
um ríkisstjóra í Pennsylvaníu, í
ferðalag til sex landa fyrir
botni Miðjarðarhafs, og leggur
hann upp í ferðina næstkomandi
mánudag að því er NTB frétta-
stofan segir.
Tilkynningin uim væntanlega
ferð Scrantons hefur gefið þeiní
orðrómi byr undir báða vængi,
að Nixon hafi í hyggju að skipa
hann utanríkisráðherra í stjóm
sinni. Einnig hefur flogið fyrir,
að hann hljóti stöðu sendiiherra
Bandaríkjanna í Bretlandi.
Lesendur eru beðnir að athuga að í myndatexta á bls. 14
í fynra blaði á að standa árfalið 1939 en ekki 1919.
Myndin á að vera einskonar vakning þess eðlis, að ís-
lendingar standi vörð um sitt sjálfstæði í anda Jóns Sig-
urðssonar.