Morgunblaðið - 01.12.1968, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 01.12.1968, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. DESEMBBR 1968 Halla Einarsdóttir Minningarorð Fædd 4. júlí 1914 Dáinn 24. nóvember 1968 Kveðja frá fóstursystkinum og f jölskyldum þeirra. Á morgun verður jarðsungin hér í Reykjavík Halla Einars- dóttir frá ísafirði, er andaðist á Landsspítalanum þann 24. þ. m., eftir skamma en erfiða legu. Þannig er gangur lífsins, að þegar kallið kemur, þá yfirgef- um við hið jarðneska líf okkar kveðjum ættingja og ástvini, og kverfum til hins eilífa lífs, sem okkur er gefið í gegn um trú vora á guð og kærleika hans. Á þessum tímamótum minn- umst við elskulegrar systur í barnæsku okkar, sem unglingar og fullvaxta fólk. Halla Einarsdóttir var fædd hinn 4. júlí 1914 og ólst upp hjá móður sinni Guðbjörgu Magn úsdóttur til 4 ára aldurs, en þá giftist Guðbjörg Pétri Sigurðs- Mólðurbróðir okkar Pálmar Finnsson, Stardal, Stokkseyri, andaðist 30. nóv. á sjúkrahús- inu á SelfossL F. h. systkinanna. Sigurfinnur Guðnason. Útför fósturföður míns, Sigurðar Ólafssonar, Suðurgötu 64, Akranesi, fer Érafm frá Akranefskirkju þriðj«daginn 3. des. ki. 2. Guðmundur Þór Sigurbjömsson. Við þökkum innilega auð- sýnda samúð við andlát og jarðarför Jónasar Jónassonar frá Flatey á Skjálfanda. Guríður Kristjánsdóttir, böm, tengdabörn og barnaböm. Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarð- arför móður okkar, tengda- móður, ömmu og fóstursystur Feldísar Felixdóttur Máskeldu, Dalasýslu. Alúðarþakkir sendum við sveitungum hennar fyrir sdlt, læknum og hjúkrunarliði Landspítalans fyrir góða hjúkrun og umhyggju. Einn- ig þökkum við öllum vinum hennar fyrir hlýhug og heim- sóknir í veikindum hennar. Óskar Guðbjömsson Kristín Ólafsdóttir Hulda Guðbjömsdóttir Fjóla Guðbjörnsdóttir Feldís Lilja Óskarsdóttir Jón Helgi Óskarsson og fósturbræður. syni frá Bolungarvík og ólst Halla upp á heimili þeirra sín uppvaxtarár frá því, lengst af í Bolungavík og á ísafirði. Halla stundaði nám á Héraðsskólanum að Núpi og lauk þaðan prófi 1931. Hún var greind kona og víðsýn. f hógværð sinni lagði hún málin niður fyrir sér, og hitti ávallt á rétta lausn. Árið 1938 igiftist Halla eftirlif- andi manni sínum Kristjáni Leós, verzlunarmanni og var heimili þeirra ávallt á ísaiirði. Á heimili Höllu og Kristjáns ríkti ávallt ástúð og vinátta, til allra hinna mörgu vina og skyld menna, er þar komu og dvöldu lengri eða skemmri tíma. Þar ríkti hin rétta heimilisást, sem ekki hvað síst kom fram í u*n- hyggju hjónanna til aldraðrar móður Höllu, og í uppvexti og menntun einkasona þeirra, tví- burabræðranna, Leós Geir jarð- eðlisfræðings og Kristjáns Pét- urs, byggingaverkfræðings. Náms saga þeirra bræðra, sem hefir verið afburða góð, er gleggsti votturinn um æskuheimili þeirra og þá ástúð og umhyggju er for eldrarnir veittu þeim. Halla tók mikinn þátt í félags starfi í kvennfélagssamtökum á ísafirði og sat oft þing Vest- firskra kvennfélaga samtaka. Þessi hógværa en þó skemmti lega, elskulega kona er horfin úr jarðnesku lífi á bezta aldurs skeiði, og manni kemur í hug spakmæli Hávamála: Deyr fé deyja frændur deyr sjalfr et sama. En orðstirr deyr aldrigi hveims sér góðan getr. Þannig var hennar líf, þess minnast allir sem því kynntust. Við fóstursystkini þín Halla, og fjölskyldur okkar færum þér þakkir fyrir liðin ár. Við vitum það sem orðið er, því verður ekki um breytL Við biðjum guð að styrkja aldraða móður þína í þungri raun. Við vitum að þungur harmur er með elskulegum eiginmanni þínum og sonum, og á þessari stundu, og ávallt, vitum við að guðs náðararmur gefur þeim styrk og þrótt, til að skilja at- burðás lífsins og minnast þín sem fagurrar perlu, sem glóir í þessu — og öðru lífi, sem við öll horfum til, og hittumst aft- ur um síðir. Friður guðs og blessun veri með þér í nýju lífi. Á. Nýr skdli Hvítárholti 28. nóvember. BARNASKÓLI hefur verið hér í byggingu undanfarin ár. Bygging hans hófsit árið 1964. Nú í dag voru teknar í notkun 7 skólastof- ur, en þar af eru tvær handa- vinnustofur. Áður var kennt í heimavistarálmu skólans, sem enn hefur ekki verið fullgerð, sem slík. Skólabyggingin öll er um 1800 fermetrar, eða 6000 rúm- metrar. Til samanburðar má geta þess að gamli skólinn er úm 290 fermetrar, byggður 1929. Upphafleg kostnaðaráætlun var tæpar 18 milljónir, en kostn aðaráætlun gerð í apríl 1968 var tæpar 27 milljónir. Samkvæmt þessari áætltm vantar tæpar 6 milljónir til þess að hægt sé áð ljúka byggingunni miðað við verðlag það, sem gilti í apríl 1968. Verður ekki annað sagt, en að það sé allra tap að ljúka efcki jafn nauðsynlegum byggingum ef nokkur kostur er á styttri tíma. Yfirsmiður skólans er nú Guð- mundur Magnússon. Skólastjóri er Gunnar Guðmundsson. Hinn 23. nóvember sl. mættu: Helgi Elíasson, fræðsilumálastjóri, Skúli H. Nordal, arkitekt, og Magnús Blöndal, eftirlitsmaður skóla- bygginga ríkisins. Þarna voru af irinansveitarmönnum ekki aðrir mættir, en hreppsnefnd, skóla- nefnd og nokkrir fréttamenn. S. Sig. SVAR MITT EFTIR BILLY GRAHAM ER Guð svarið við öllum vandamálum okkar eða einungis þeim,. sem eru andiegs eðlis? Mörgum er hulið, á hvaða hátt Guð er svar við vandamálum okkar. Stundum boðar Guð lausnina á vandamálum mannsins í boðskap Biblíunnar. Hann hefur kunngjört svar sitt við vandamáli syndarinnar á þann hátt. En til eru þau svið, þar sem vilji hans og fyrirætlanir eru okkur hulin. Og margir kristnir menn lifa ævi sína á enda, án þess að finna þá lausn á gátum sínum, sem fullnægir þeim. Hér má nefna Pál postula sem dæmi. Hann bað þess þrívegis, að Guð fjarlægði einhvern flein, sem háði honum, en bæn hans var ekki heyrð. Sumir segja, að annað hvort hlusti Guð ekki á bænir þeirra eða hann beri enga umhyggju fyrir þeim, og þeir fyllast beiskju. En Páll uppgötvar andlegan leyndardóm, nefnilega þann, að Guð er þess megnugur að gefa manninum nægan kraft og þolinmæði til þess að standast erfið- leikana. Þér getið uppgötvað sama sannleika varð- andi yðar líf. Guð eyðir ekki alltaf vandamálunum, heldur gefur okkur náð til þess að taka þeim og sætta okkur víð þau. j Ein af myndum Svölu Þórisdóttur: „Snædrottningin‘ Málverkasýning Svölu MÁLVERKASÝNING Svölu Þór- isdóttur í Unuhúsi við Veghúsa- stíg hefur verið mjög vel sótt og 15 myndir af 28 hafa selzt. Sýn- ingin hefur verið opin í eina viku, en henni lýkur þriðjudag- inn 3. desember. Sýningin er opin alla daga frá kl. 2-10 eJi. NÝ SENDING minkahúfur HATTABÚÐ REYKJAVÍKUB Laugavegi 10. Mynda- og verðlisti léttir yður val á jólagjöfinni Til hagræðis fyrir viðskiptavini úti á landi höfum við gefið út mynda- og verðlista yfir úr — klukkur og alls konar gjafavörur. Skrifið eða sírnið og biðjið um mynda- og verðlistann. Laugavegi 12 - Simi 22804

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.