Morgunblaðið - 01.12.1968, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. DESEMBER 1968
7
„Strákunum okkar fannst, að
alltaf væri verið að flagga fyrir
henni mömmu þeirra”,
— segir Sigþrúður Friðriksdóttir, eirsi Reykvíkingurinn,
sem fœddur er I. desember 1918
„Eiginlega er það nokkuð hart
aðgöngu fyrir konu að þurfa að
láta alþjóð vita, hve gömul
hún er orðin, en ég get raunar
ekkert gert að því sjálf að vera
eina konan í Reykjavík sem
fæddist á fullveldisdaginn 1918,
og þá geta allir reiknað á
fingrum sér, hvað ég er gömul“
sagði Sigþrúður Friðriksdóttir,
þegar við hittum hana að máli
á fimmtudaginn í tilefni þess,
að hún er eins og hún sagði,
eini Reykvíkingurinn sem fædd
ur er 1. des 1918, á sjálfan Full-
veldisdaginn.
Úti á landi segir Hagstofan
okkur, að muni vera tvær aðr-
ar konur fæddar þann hinn
sama dag.
Við börðum að dyrum kl. 6
á fimmtudag, hjá frú Sigþrúði
að Hvassaleiti 133. Frú Sig-
þrúður er eiginkona Arinbjörns
Kolbeinssonar læknis, sem þekkt
ur er fyrir læknisstörf og félags
störf, en hann er m.a. formaður
Læknafélags íslands og Félags
íslenzkra bifreiðaeigenda.
„Ég man auðvitað ekkert eft-
ir þessum fyrsta fullveldisdegi",
heldur frú Sigþrúður áfram
brosandi, þegar við erum sezt
við kaffidrykkju og kökuát inni
í vistlegri stofu þeirra hjóna,
þar sem mikið notaður arinn,
er miðpunktur heimilisins, en
veggir stofunnar þaktir mál-
verkum eftir okkar þekktustu
listamenn.
„En hún móðir mín hefur
sagt mér það, að ijósmóðir mín
hafi verið Þórdís Carlquist, en
viðstaddur fæðingu mína hafi
einnig verið Sæmundur Bjarn-
héðinsson læknir en hann og
faðir minn voru kunningjar. í
þá daga var erfitt að fá lækni
1 Reykjavík. Þeir fáu læknar,
sem þá voru, höfðu lagt nótt við
nýtan dag til þess að lækna alla
þá mörgu sem Spánska veikin
lék grátt þessar vikur. Raunar
hef ég heyrt að þau hafi sagt,
að það væri undarlegt, að heil-
brigt barn skyldi fæðast á þess-
um voðatímum, sem þá gengu
yfir ísland. Móðir mín hafði
tekið veikina snemma, og var
aftur orðin frísk, þegar ég fædd
ist“.
★
„Mig langar til að fræðast
um ætt þína og uppruna svona
í upphafi, frú Sigþrúður. Hvað
kanntu að segja mér frá því?“
„Það ætti nú að vera auðgert.
Ég er dóttir Friðriks Jónssonar
guðfræðings og síðar kaupmanns
í Reykjavík. Friðrik var sonur
Jóns háyfirdómara Péturssonar
prófasts á Víðivöllum, en kona
hans var nafna mín, Sigþrúður
Friðriksdóttir Eggerz, prests í
Akureyjum. Faðir minn andað-
ist 1938. Móðir mín er Marta
Maria Bjarnþórsdóttir, systur-
dóttir Haralds prófessors Niels
sonar."
„Þá er nú auðrakið lengra, og
föðursystir þín hefur verið kona
Jóns Magnússonar, sem einmitt
var forsætisráðherra 1. des.
1918, þegar þú fæddist. Póst-
stjórnin heiðrar minningu Jóns
um þessar mundir með útgáfu
frímerkis með mynd af honum.
Segðu mér Sigþrúður, manstu
eftir Jóni Magnússyni?"
„Ég man auðvitað eftir hon-
run sem krakki. Ég kom oft á
heimili hans. Hann var góður
við okkur krakkana. Jón var
hæglátur og dagfarsprúður, hinn
mesti öðlingsmaður. Mér þykir
vænt um, að merkisafmæli mitt
skuli bera upp á sama dag og
hans er minnzt sérstaklega".
„Hvenær gerðirðu þér fyrst
Ijóst, að þú værir jafngömul
fullveldinu, að afmælisdagur
þinn væri um leið einn af helg-
ustu minningardögum þjóðar-
innar?"
„Auðvitað var það ekki fyrr
en ég fór að hafa svolítið vit,
en fljótlega var það ,samt og
sjálfsagt hefur það hjálpað til
hinn náni umgangur heimilis
míns og Jóns Magnússonar Mér
fannst snemma skemmtilegt að
alltaf voru flögg á lofti á af-
mælisdeginum mínum, og nú
finnst Strákunum mínum hið
sama, og -héldu lengi vel, að ver
ið væri að flagga fyrir henni
mömmu þeirra, þegar þeir sjá
Frú Sigþrúður Friðriksdóttir. (Ljósm. Mbl.: Sv. Þorm. tók
myndina á heimili hennar í vikunni).
strætisvagnana með íslenzk
flögg á þessum degi. Þú getur
imyndað þér, að þeir hafa
„lúmskt" gaman af því. Auk
þess hefur mér alltaf þótt gott
að allir skuli eiga frí á afmælis-
deginum mínum. Nei, við höf-
um ekkí sótt nein stúdentahóf
í tilefni dagsins, en hinsvegar
hefir það alltaf viðgengizt, að
vinir okkar óg kunningjar hafa
sótt okkur heim á þessum degi,
og þá er jafnan glatt á hjalla" -
„Fimmtíu ár er sjálfsagt ekki
langur tími í lífi eins Reykvík-
ings, en segðu mér, frú Sig-
þrúður, finnst þér ekki borgin
okkar hafa breyzt?"
„Jú, það má nú segja Þar
sem við búum nú var bara
mýri áður, og ég man það hér
áður að ég fór í gönguferðir
með Friðriki föður minum og
Sturlu föðurbróður mínum og
þetta var eins og að fara upp
í sveit. Við fórum í berjamó í
öskjuhlíð, s'uður undir Bene-
ventum, og upp við Sunnu-
hvol, lékum við okkur stelpur-
nar, en það var þá ógnarlang-
ur gangur yfir Norðurmýrina.
í einni þessari gönguferð lenti
ég í sannkölluðu ævintýri. Þá
vorum við stödd suður í öskju
hlíð. Þá var eina járnbrautin,
sem verið hefur hér á íslandi,
að flytja grjót í hafnargerðina.
Við fengum leyfi til að sitja I.
fá okkur „salíbunu". Það var
mjög spennandi, og ég man
enn, hvað pabba brá þegar eim
pípan flautaði. Hann hrökk í
kút“.
,Hvar fæddist þú í Reykja-
vík, Sigþrúður?"
★
„Ég er fædd í húsinu þar sem
danska sendiráðið er við Hverf-
isgötu. Seinna áttum við heima
við Laufásveg Mér er minnis-
stætt, að beint á móti okkur var
líkkistusmiðja Eyvinds Árna-
sonar. Sífellt var verið að fara
af stað meðj líkvagninn, en
hann drógu tveir svartir hest-
ar klæddir svörtu áklæði. Móð-
ir mín hefur sagt mér, að hún
hafi vitað hvað til stóð, dag-
inn þann, sem ég fæddist, en
þetta hafi verið ömurlegur tími
I Reykjavík. Sýknt og heil-
agt var kirkjuklukkum hringt,
líkaböng heyrðist allan daginn,
þegar jarðarfarir voru, og dag-
blöðin voru þakin dánarauglýs-
ingum.
★
„Sumur komu þó eftir þessa
plágu og hvað manst þú frá
þeirn"?
„Við áttum og eigum enn sum
arbústað við Laxfoss í Borgar-
firði. Ég var ekki orðin eins
árs, þegar við fórum þangað
til sumardvalar. Fórum við með
skipi upp í Borgarnes, en síðan
með kerru dreginni af hesti,
þangað til veginn þraut, en það
an mun móðir mín hafa reitt
mig á hesti. Um haustið hafði
menningin og nútíminn hafið
innreið sína í Borgarfjörð, og
þá sótti okkur bifreið, sem
flutti okkur til Borgarness —
Breytingin á öllu er gífurleg
á ekki lengri tíma.
Þegar ég hugsa til þessa fæð-
ingardags mins, þessa baráttu-
dags, finnst mér stundum, að ég
hefði átt að verða baráttumann
eskja sjálf. Það hef ég ekki
orðið, en ég hef hinsvegar átt
því láni að fagna að eignast
baráttumann fyrir eiginmann,
og nú er það mitt að styðja
við bak hans, og ég held ég
hafi frekar hvatt hann en latt,
að láta ekki deigan síga“, sagði
frú Sigþrúður að lokum, ein-
asti Reykvíkingurinn, sem fædd
ur er á fullveldisdaginn, 1. des.
1918, þegar við þökkuðum fyr-
ir kaffið og héldum leið okkar.
Fr.S.
FRÉTTIR
Húsmæðrafélag Reykjavíkur
Jólafundurinn verður að Hótel
Sögu miðvikudaginn 4. des. kl. 8
Aðgöngumiðar afhentir að Hall-
veigarstöðum mánud. 2. des. kl.
2—5
Prentarakonur
Basarinn verður 2. des. Gjörið
svo vel að skila munum sunnu-
dag 1. des. milli kl. 3—6 1 Félags-
heimili HÍP.
Konur í Styrktarfélagl vangefinna.
Basar og kaffisala verður 8. des.
í Tjarnarbúð. Vinsamlegast skilið
basarmunum sem fyrst á skrifstofu
félagsins, Laugavegi 11
Til leigu stórt kjallaraherb. alveg við Miðbæinn. Vel með far inn barnavagn og kerra til sölu. Sími 11065. Akranes Gólfteppahreinsun. Hreins- um teppi og húsgögn. Verð um á Akranesi næstu daga Upplýsingar í síma 37434.
Til leigu Trésmíðaverkstæði til leigu Nokkuð góður vélakostur. Húsnæði um 80 ferm. Tilb. sent Mbl. sem fyrst merkt: „Verkstæði 6360“. Keflavík — Suðurnes Herrar, dömur. Komin heim. Opið kl. 1—6. Andlits hreinsun, fótasnyrt., mani- cure, augnlitun, Sauna-böð og nuddbelti. S. 2574, 2383
Hafnfirðingar Get bætt við nokkrum nem endum í þýzku og ensku. Hentugt fyrir skólafólk. — Kristján Stefánsson. Sími 52.543. Lítill sendaferðabíll óskast í skiptum fyrir góð- an 6 manna bíl. Uppl. í síma 20517.
Önnumst alls konar ofaníburðar- og fyllingar- verk. Seljum 1. flokks fyll- ingarefni frá Björgun hf. Vörubílastöðin Þróttur Sími 11471 — 114174. Kaupum eir og kopar Járnsteypan hf. Ánanaust. Geymið auglýsinguna.
Þórður Kristófersson úrsm.
Sala og viðgerðaþjónusta
Hrísateig 14 (Hornið við Sundlaugaveg.)
Sími 83616 • Pósthólf 558 - Keykjavík.
Bergsæti
Hið mikla ættfræðirit (3 bindi, 1600 bls.) eftir
Guðna Jónson, prófessor, fæt enn heima hjá
höfundi í Drápuhlíð 5, sími 12912. Ritið
verður sent í póstkröfu þeim sem þess óska.
ÚTGEFANDI.
Góð Ijósmynd af barnabörnunum er
irinr, m ÉrL Énnírsrt&j
sern cf ogamma
kunna aó meta
pantið myndatöku
og/eða stœkkanir
laiigavegi 1S sími 17707
BEZT ab auglýsa i Morgunblaðinu