Morgunblaðið - 22.12.1968, Side 8
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. DESEMBER 1968
Einn tunglfaranna dvald-
ist hér í eitt ár
William Anders var flugmaður á Kefla-
víkurflugvelli 1959 — Kom hér 7965
með öðrum geimförum og renndi þá
fyrir lax
EINN geimfaranna þriggja
sem nú eru á leið til tungls
ins fyrstir manna, er Will-
iam Anders, majór í banda
ríska flughemum- Anders
var meðal þeirra geimfara,
sem hingað komu til jarð-
fræðiathugana og þjálfun-
ar sumarið 1965. Hann
hafði áður verið staðsettur
á Keflavíkurflugvelli í eitt
ár sem flugmaður í Varnar
liðinu, og mun eiga nokkra
kunningja og vini hérlend-
is síðan.
Þegar Williaim Anders var
hér sumarið 1965 eyddi blaða-
maðiur Mbl. og ljósmyndari
háltfuan degi við laxveiðar i
Elliðaánum með hoivufln. Aod-
ers er mjög skemimtilegur og
lipuir maður, þægilegur í við-
mói og snar í snúninigum.
Hann sagðd okkur þennan
júlídag 1965, að hann hefði
löngum verið haldinn þeirri
ólaeknandi veiðideliu. Áður en
hann kom til íslands hafði
hann aldirei dregið lax, en
fyirir bandatríska veiðimenn er
siú atihöfn að draga Atlaníts-
hafslax á stöng nánast há-
punkbuir tilverunnar.
Anders sagði, að er hann
var á Keflavíkunfluigvelili
flugvelli sumarið 1959 hefði
sér gefizt kostur á að komast
í Hbfsá. Reyndi hann þar
mikið með öl'luim hugsanleg-
um veiðiltækjum, flugu spón
og maðki, en al'lt kom fyrir
éfeki. Sem þrautalendingu
beititi hann gerfimaðki úr
gúmimíi sem íslenzkiir veiði-
menn hafa megnustu ótrú á
flestir hverjir. Og viti menn:
Innan skamms lágu tveÍT
laxar á baíkkanum 16 og 18
pund, og þætti það góð veiði
og vænn fiskur í hvaða á sem
vera skyldi.
Ekki tókst Anders að ná
laxi úr Elliðaánum þennan
dag er við voruim þar. Hann
setti hinsvegar í lax fyrir ofan
göngubrúna, sem liggur yfir
árnar fyrir neðan Félagsheim-
ili Rafveitumnar. Ekki var að
sökum að spyrja að laxinn
rauk undir brúna og sleit
línuna á henni. Voiru þá ýmis
orð látin falla, sem naumast
þætti góð á prentL
En svo gerðist ein af þess-
um veiðimanmiasögum, sem
enginn fæst venjwlega til að
að trúa, en við Morgunblaðs-
menn urðu þama vitni að.
Um kiukbustundu síðar var
Andens að veiða nokkru neð-
ar í ánum, og er hann dró
inn færið eftir eitt kastið, var
á önglimuim giirnislana. Er
hann tók línuna, fannst að
fcvikt var á endamum, og var
nú Anders kominn í beint
samband við laximn, sem
hann missti fyrr. Varð nú uppi
fótur og filt á árbakkanum,
og var haifizt handa að hnýta
línuna við þá, sem fyrir var
á stönginni, svo þreyta mætti
laxinm og vöknuðu nú ákafar
vonir um að úr mundi rætast.
En þegar hnýtingunni var
rétt ólokið tók árhöfðinginn
roku og hrisi úr sér hégóm-
ann. Missti Anders laxinm þar
með í annað sinn, og lónbú-
inn varð af þeim vatfasama
heiðni, frá hans bæjairdyr-
um séð að verða veiddiur og
étinn af einum af þremur
fyrstu mönnunum, sem til
tunglsins fara!
Hér er Anders að reyna að hnýta saman línuendana við Elljðaámar í júlí 1965, er
hann missti sama laxinn tvisvar. (Ljósm. Mbl. Sveinn Þormóðsson).
Eigum óvallt til urval
of kven-barna og
herrafatnabi fró þessu
heimsþekkta fyrirtceki
Wím
,'/' * \
Herravesti teg. 3613
Shetlandsull m/kaðlaprjóni
drapp-grænsprengt — brúnt.
IÐUNN
Beitningarmenn
Beitningamenn óskast strax eftir áramót.
SJÖSTJARNAN H/F.,
Keflavík — Sími 92-2020—92-1933.
Telpnapils og vesti
Drengjajakkar
vesti og buxur (samstætt)
(samsett).
Kaupið jólafötin hjá okkur.
ieddy «
U bOidin
Laugavegi 31.
Indversk undraveröld
Jólavörur komnar
Nýkomið mikið úrval af sérkennilegum austurlenzk-
um listmunum.
Veljið smekklega gjöf sem ætíð er augnayndi.
Jólagjöfina fáið þér í
JflSMIN
SNORRABRAUT 22.
MARGAR TEGUNDIR AF REYKELSUM.