Morgunblaðið - 16.01.1969, Page 4

Morgunblaðið - 16.01.1969, Page 4
-e. 4 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 1969 Simi 22-0-22 Rauðarárstig 31 siM' 1-44-44 mfíiF/m Hverfiscötu 103. Siml eftir lokun 31160. MAGIMÚSAR sKiPHout21 símar21190 eftir lokon slmi 40381 BÍLALEIGAN - VAKUR - SundUugavegi 12. Simi 35135. Eftir lokun 34936 of 36217. 350,- kr. ðaggjaið. 3,50 kr. taver kílómetri. Jóhann Ragnarsson hæstaréttarlögmaður. Vonarstræti 4. - Sími 19085. BiLAKAUR^ Vel með farnir bílar til sölu | og sýnis f bílageymslu okkar að Laugavegi 105, Tækifæri til að gera góð bílakaup.. — Hagstæð greiðslukjör. — Bílaskipti koma til greina. Árg. 66 Skoda Combi, 75 þ — 65 Vauxh. Vict. 135 þ. — 63 Dafodil, 60 þús. — 63 Benz 17 farþ. 250 þús. — 65 Ford 500, vörub. 110 þús. — 63 Buick Elecha 250 þ — 62 Transit sendib 80 þ — 68 Cortina 240 þús. — 62 Ren. Dauph. 50 þ. — 59 Plymouth 85 þ. — 63 Volvo Duett, 105 þ. — 66 Saab special 175 þ. — 66 Bronco 250 þús. — 64 Volksw. sendb 55 þ — 63 Volkswagen 75 þ. —. 63 Renault R 8 80 þús — 65 Opel Record 140 þ. — 68 Landrover 265 þ. — 62 Zephyr 4 75 þús. — 62 Willy’s 130 þús. — 67 Volksw 1300, 150 þ — 62 Benz 2205 160 þús. — 68 Trab. Station 100 þ — 64 Landrov, dís. 150 þ Ödýrir bílar, góð greiðslu- kjör. 62 Ren. Dauph. 35 þ. 59 Moskwitoh 20 þús. 61 Skoda Okt. 35 þús. 55 Landrover 50 þús 55 Chevrolet 45 þús. 62 Gipsy 45 þús. 54 Chevrolet 30 þ. — 64 Trabant 25 þús. — 55 Chevrol. stat. 30 þ. Höfum kaupanda að sendib Hanomag, árg. 67, 68, 69. Tökum góða bíla í umboðssölul Höfum rúmgott sýningarsvæði | innanhúss. ] Árg. UMBOÐIÐ SVEINN EGILSSON H.F. LAUGAVEG 105 SiMI 22466 0 Afleit sagnaritun ísfirðingur skrifar: Kæri Velvakandi, Mig langar til að koma smá aithugasemd á framfæri við þir um Ársrit Sögufélags ísfirðimga, sem náð hefur töluverðum vin- sældum undir ritstjóm Jóhanns Gunnars Ólafssonar sýslumanns og fleiri góðra manna. í síðasta hefti ritsins er m.a. lokagrein um ísfirzka blaðamennsku eftir Krist ján Jónsson frá Garðstöðum. Krist ján frá Garðstöðum, sem er mætis maður hefur skrifað margt athygl isvert og fróðlegt 1 ritið, m.a. um ísfirzk blöð og blaðamenn. En þessi síðasta grein hans er afleit sagnfræði. Hún er svo á- berandi hlutdræg að undnin sæt- ir. Hann segir að vísu að Vest- urland hafi orðið „nokkru fjöl- breyttara að efni og fréttir sett- ar með smá letri nokkru ýtar- legri" eftir að Sigurður frá Vig- ur tók við ritstjóm þess í árs- byrjun 1942. En við tsfirðingar munum að blaðið var þá allt annað og efnismeira blað. Krist- ján segir m.a. í grein sinni. „Sigurður Bjarnason skrifar fremur sjaldan verulegar skamm argreinar í blað sitt.“ Þetta er í stórum dráttum rétt. Mjög dró úr persónulegum ádeil- um í Vesturlandi undir ritstjóm Sigurðar Bjarnasonar. En þó kom það fyrir, enda var hann undir stöðugum stórárásum frá mál- gögmum kratanna. Vesturland var á þessum árum einn skelegg asti málsvari Sjálfstæðisstefnun- ar í landinu og hélt uppi harðri gagnrýni á margt, sem aflaga fór í þjóðfélaginu. ísafjörður var þá háborg sósíalismans á íslandi. Sigurður Bjarnason hóf harða sókn gegn krötunum og vann mikinn sigur á þeim, bæði í Norð ur-ísafjarðarsýslu og á ísafirði. Það er eitt dæmi um lélega sagnfræði Kristjáns frá Garðstöð um I fyrrgreindri tímaritsgrein að hann segir að Siguður frá Vigur hafi árið 1942 „náð kosn- ingu með 511 atkvæðum, Barði Guðmundsson (Alþfl.) fékk 432 atkvæði, en Kristján frá Garð- stöðum (Framsóknarfl.) 148“. Sann leikurinn er sá að Sigurður Bjarnason var kjörinn í Norður- ísafjarðansýslu árið 1942, ekki með 511 atkv. heldur 611 atkvæð um þar með hreinum meirihluta atkvæða. Um haustið er kosning- ar fóru fram á ný var Sigurður frá Vigur kjörinn með 672 atkv. en bæði frambjóðendur Jafnaðar manna og Fnamsóknarmanna töp uðu verulega atkvæðum. Á þetta er ekkert minnzt á I greininni í Söguritinu, sem ann- ars segir yfirleitt trúverðuglega frá slíkum atburðum eins og vera ber. Skil ég hreint ekki I höf- undinum að umgangast söguleg- ar staðreyndir þannig. Ársrit Sögufélags ísfirðinga er ekkert áróðursrit. Það á að herma staðreyndir og fólk á að geta treyst upplýsingum í greinum þess. fsfirðingur". Töskuútsnlan hófst í morgun Mikið úrval af alls konar töskum, fallegum og ódýrum. Notið tækifærið nú, þar sem þetta verður sennilegast síðasta „ódýra“ töskuútsalain. TÖSKUBÚÐIN, Laugavegi 73. Simanúmer okkar er 83800 Ármúla 5 Simanúmer okkar er 18252 Bankastræti 9 Simanúmer okkar er 18251 Andrés, Skólavörðustig 22b Q Skjaldborg um stjórn- skipuð réttindi Opið bréf frá „Kærum samborg ara“ til Sigurðar A. Magnússon- ar og dreifibréfsfélaga hains, að Kleppsvegi 2, Rvík. Reykjavík, 11. janúar 1969 Kæri herra SAM: Ég hef móttekið bréf ykkar félaganna (ódagsett), varðandi það sem þér nefnið atlögu Reykja vikurlögreglunnar gegn óbreytt- um borgurum, skort skyldurækni mannvonzku og uppþotahneigð helztu fréttamiðla landsmanna, löggæzlumanna og sundrungar- mögnun Morgunblaðsins í þjóð- félaginu. — Þetta allt hef ég at- hugað og ihugað og einnig á- skorun yðar, að ég hjálpi yður til að slá skjaldborg um stjórn- skipuð réttindi okkar þegnanna til að (orðrétt:) „mótmæla í orði og athöfn hvers kyns tilraunum til að hlaða undir gerræðisfullt lögregluvald, hvort sem slíkar til raunir eiga upptök sln hjá lög- reglunni sjálfri eða leigupennum valdamanna í þjóðfélaginu." Ég hef því miður ekki aðstöðu til að senda yður þetta svar- bréfskom mitt í dreifibréfsformi og hef því beðið Velvakanda, Morgunblaðsins að flytja yður það í dálkum sinum, en niður- staða athugana minna á vand- ræðum yðar er þessi. 0 Á villigötum Þér, kæri herra SAM og dreif- bréfsfélagar yðar eruð á villi- götum, og hef ég þess vegna vissa SAMúð með yður, og þó takmarkaða þar sem ógæfa yðar er að nokkru óheppni en að mestu sjálfskaparvíti, — en vandi ykkar félaganna þó raunar auð leystur. Málið er nefnilega ekki flóknara en svo, að þið hafið lent 1 slæmurn félagsskap og verið óheppnir í yali baráttufélaga. Farið því að ráði mínu og hætt ið SAMvinnu og SAMneyti við rúðubrjóta, eggjakastara og sjón varpsbráða bakfallasparkara. Snú izt í lið með lögreglu og frið- sömum almenningi til að slá iskjaldborg gegn ofbeldl þessa leina og sanna gerræðislýðs. í Ef friðsamleg mótmæli ykkar dreifibréfsfélaganna í orði og at- höfn verða fyrir barðinu á lög- reglunni, eftir væntanlegt einlægt fráhvarf frá þessari villu vegar þá bið ég yður að skrifa mér annað bréf og láta mig vita, því þá ákal ég koma og hjálpa ykk- ur, en ekki fyrr. En fari svo að þér kynnuð að hyggja á framhald SAMvinnu við ofbeldishyskið, þá minnist þess að enginn er óskeikull, og lögregluönnum getur, eins og fleirum i önn dagsins, orðið á I messunni í aðgreiningu hafranna frá sauðunum. Að endingu svo þetta. Gott væri fyrir yður og fleiri að rifja upp ýmsar almennar stjómlaga- verndaðar reglur, sem þjóðfélag- ið hefu komið sér upp i örygg- is Skyni. Mætti nefna skyldu borg arans til að hlýða leiðbeiningum og fyrirmælum lögreglumanna t. d. í umferðarstjórn, án mótþróa í orði eða verki, — að ég tali nú ekki um spörk og svívirðing ar. Ef menn vildu reyna að hafa ýmsar svona þjóðfélagsreglur í huga og heiðri, held ég að ekki ætti að vera svo mikil hætta á að menn lendi í Steininum. Yðar einlægur, „Kær samborgari“. £ Sópranraddir kórsins falla Skrif-Finna segir á þessa leið í bréfi: Akranesi 8. janúar 1969 Kæri Velvakandi! Mig langar til að taka undir orð Guðrúnar Jakobsen hér á dögunum um vissan kirkjukór í höfuðborginni Sá kór hefir þann leiða vana eins og Guðrún Ja- cobsen sagði að syngja í allt ann ari tóntegund en organistinn spil ar í. Þetta er þó að vísu ekki alveg rétt, heldur falla sópran- raddir kórsins (og máske fleiri raddir) svo hressilega að hörm- ung er á að hlýða. Væri nú ekki athugandi fyrir, }a, t.d. söngmála stjóra að reyna að kippa þessu í sæmilegt horf fyrir næstu útvarps messu, því að hún verður eflaust fljótlega það oft syngur þessi kór í útvarp. Ég held að það sé ekki há krafa söngunnanda og fleiri. Annars væri gaman að vita af- hverju útvarpið sér sér ekki fært að útvarpa messum utan af landi það væri tilbreyting fyrir alla aðila. Auk þess held ég að kórar úti á landi tolli ekki síður á segulbandi en aðrir kórar. Með fyrirfram þakklæti ásamt nýárs- óskum til þln Velvakandi góður, og þökk sé þér fyrir dálkana á gamlaárinu. Skrif-Finna. Óskum eftir að ráða rekstrarhagfrœðing fyrir skipulagsskrifstofu vora. Starfssvið: — Hagræðing vanaverka — Skipulagning stjórnunarmála — Aðstoð við að taka upp notkun skýrsliuvéla — Eyðublaðagerð. Kröfur um menntun og reynslu: — Háskólapróf í viðskiptafræði, hagfræði eða stjórnsýslu (business administration) — Nokkurra ára reynsla æskileg — Tungumálakunnátta: enska nauðsynleg, þýzka æskileg. Skriflegar umsóknir sendist til fslenzka Álféliagsins h.f., Straumsvík fyrir 1. febrúar 1969. Munnlegum fyrirspurnum skal beint til Ph. Múller, viðskiptalegs framkvæmdastjóra. íslenzka Álfélagið h.f. Straumsvík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.