Morgunblaðið - 16.01.1969, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 16.01.1969, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 1969 19 LEIDBEININGAR VIÐ SKATTAFRAMTÖL Á fundi með fréttamönn- um í fyrradag, sagði ríkis- skattstjóri, Sigurbjöm Þor- björnsson, að við framtölin sín þyrftu skattgreiðendur að hafa eftirfarandi hugstætt: í fyrsta lagi, að þeir fari nú þegar að huga að því, hvaða gagna eða upplýsinga þeir muni þarfnast í sambandi við framtal sitt og afla þeirra. í öðru lagi, að þeir geymi vandlega öli gögn, sem þeir hafa stuðzt við í gerð framtals síns, þar sem skattyfirvöldin geta krafizt framlagningar þessara gagna, til stuðnings réttmætis framtals. I þriðja iagi, að þeir sann- prófi þær upplýsingar, sem þeir styðjast við í gerð fram- tals. T. d. að þeir, með sam- anburði við launakvittanir, sannprófi þá launaupphæð, sem launagreiðandi telur sig hafa greitt þeim, þvi ávallt geta mistök hent. Framtalin launaupphæð í framtali er á ábyrgð framteljanda sjálfs, en eki launagreiðanda. 1 fjórða lagi, að skil fram- tals á réttum tíma til skatt- yfirvalda, er á ábyrgð fram- teljanda sjálfs, hvort hann hefir gert framtalið sjálfur, eða leitað aðstoðar til þess hjá öðrum. í fimmta lagi, að senda óundirritað framtal jafn- gildir því, að skattþegn hafi eigi talið fram. Sérstök at- hygli skal vakin á þvi, að sameiginleg framtal hjóna ber bæði eiginkonu og eiginmanni að undirrita. í sjötta lagi, og síðast en ekki sízt, að framteljendur vandi allan frágang framtala sinna. Aðalstefna skattyfir- valda er að treysta réttmæti framtala. Hins vegar ber skatt yfirvöldum að kynna sér rétt- mæti þeirra, leiðrétta skekkj ur, hvort heldur það er skatt- þegni í hag eða óhag og gera athugasemdir og/eða breyt- ingar á framtölum Berist at- hugasemd frá skattyfirvöldum, er nauðsyn skjótra svara og að styðja svörin gögnum, ef krafizt er, eða álitið nauðsyn- legt. NOTA skal framtalseyðublaðið, sem áritað er í skýrsluvélum, Sbr. þó 3. mgr. Framteljanda skal bent á að athuga, hvort þar gerð ar áritanir, nöfn, fæðingardagar, — mán. og ár, svo ag heimilis- fang, eru réttar, miðað við 1. des. s. l. Ef svo er ekki, skal leiðrétta það á framtalinu. Einnig skal bæta við uipplýsingum um breyt ingar á fjölskyldu í desember, t. d. giftur (gift), hverri (hverj- um), hvaða dag, nafn barns og fæðingardagur eða óskírður son ur ellegar óskírð dóttur, fædd hvaða dag. Ef áritanir gerðar í skýrslu- vélum eru ekki réttar, miðað við L des., þá skal framteljanda bent á að senda einnig leiðrétt- ingu til Hagstofu fslands (þjóð- skrá) Reykjavik. Ef eyðublað áritað í skýrslu- vélum er ekki fyrir (hendi, þá skal fyrst útfylla þær eyður framtalsins, sem ætlaðar eru fyr- ir nafn og nafnnúmer framtelj- anda, fæðingardag hans, — mán. og — ár, svo og heimilisfang hans I. des. s.l. Einnig nafn eig- in'konu, fæðingardag hennar, — mán. og — ár, svo og nöfn, fæð- ingardag, — mán. og fæðingar- ár barna, sem fædd eru árið 1953 eða síðar, til heimilis hjá framteljanda 31. desember. Fengið meðlag, svo og barna- lífeyrir frá almannatryggingum, sem greiddur er, ef faðir er lát- inn, skal færa í þar til ætlaða eyðu neðan við nöfn barnanna. Barnalífeyrir frá öðrum (úr ýms um lífeyrissjóðum), svo og barna lífeyrir, sem almannatryggingar greiða, vegna elli- eða örorku foreldra (framfæranda) skal hins vagar telja undir tekjulið 13 „Aðrar tekjur". Upplýsingar viðkomandi greidd um meðlögum skal færa í þar til ætlaðan reit á fyrstu síðu fram- talsins. I. EIGNIR 31. DES. 1968. 1. Hrein eign samkvæmt með- fylgjandi efnahagsreikningi. í flestum tilfellum er hér um atvinnurekendur að ræða. Þessi liður er því aðeins útfylltur, að efnahagsreikningur fylgi fram- tali. 2. Bústofn skv. landbúnaðar- skýrslu og eignir skv. sjávar- útvegsskýrslu. Þessi liður er því aðeins út- fyiltur, að landbúnaðar- eða sjáv arútvegsskýrsla fylgi framtali. 3. Fasteignir í lesmálsdálk skal færa nafn og núrner fasteignar eða fast- eigna og fasteignamat skv. gild- andi faeteignamati í kr. dálk. Ef framteljandi á aðeins Ibúð eða hluta af fasteign, skal til- greina, hve eignarhluti hans er mikill, t.d. % eða 20%. Lóð eða land er fasteign. Eignarlóð eða — land færist á sama hátt og önnur fasteign, en fasteignamat leigulóðar ber að færa í les- málsdálk: Ll. kr......... Margföldun fasteignamatsins með 9 eða 4%, eftir því sem við á, verður gerð af skattstjórum. Hafi framteljandi keypt eða selt fasteign á árinu, ber að út- fylla D-lið á bls. 4, eins og þar segir til um. Ef framteljandi á hús eða íbúð í smíðum, ber að útfylla húsbygg ingarskýrslu og færa nafn og númer húss undir eignalið 3 og kostnaðarverð í kr. dálk, hafi húsið ekki verið tekið í faisteigna mat. Sama gildir um bílskúra, sumarbústaði, svo og hverjar aðr ar bygigingar. Bezt er að ganga um leið frá öðrum þeim liðum framtalsins, sem fasteign varða, en þeir eru: Húsaleigutekjur. Tekjuliður 3, bls. 2. í a-lið skal færa til tekna einka afnot af húsi eða íbúð. Sé hús- eignin öll til eigin nota, skal eig- in húsaleiga til tekna reiknast 11% af fasteignamati húss og lóðar, eins þó um leigulóð sé að ræða. Ef húseign er útleigð að hluta, skal reikna eigin leigu kr. 2.064.00 á ári, þ.e. kr. 172.00 á mánuði, fyrir hvert herbergi. Sama gildir um eldhús. Víkja má þó frá herbergja- gjaldi, ef húseign er mjög göm- ul og ófullkomin eða herbergi smá eða húsaleiga í viðkomandi byggðalagi sannanlega lægri. Ennfremur má víkja frá fullu fasteignamati lóðar, þar sem mat lóðar er óeðlilega hátt miðað við mat hússins. Ef þessar heimildir um frávik óskast notaðar, skulu skýringar gefnar t.d. í G-lið fram tals eða á fylgiskjali með því. í ófullgerðum og ómetnum íbúðum, sem teknar hafa verið í notkun, skal eigin leiga reiknuð 1% á ári af kostnaðarverði í árs lok eða hlutfallslega lægri eftir því, hvenær húsið var tekið í not kun á árinu. í b-lið skal færa reiknaða leigu fyrir eigin atvinnurekstur og í c- lið skal færa húsaleiigutekjur fyr- ir útleigu. Tilgreina skal stærð húsnæðisins í fermetrum og her- bergjafjölda. Kostnaður við húseignir. Frá- dráttarliður 1, bls. 2. a. Fasteignagjöld: Hér skal færa fasteignaskatt, brunabóta- gjald, vatnsskatt o.fl., og færa í dálk samanlögð þau gjöld, sem einu nafni eru nefnd fasteigna- gjöld. b. Fyrning: Fyrning reiknast aðeins af fasteignamati hússins eða húshlutans sjálfs samkv. þeim hundraðshluta, sem um get ur í framtali. Af lóð eða landi reiknast ekki fyrning. c. Viðhald: Tilgreina skal hvaða viðhald hefur verið fram- kvæmt á árinu. í liðinn „Vinna skv. launamiðum" skal færa greidd laun, svo og grei-ðslur til verktaka og verkstæða fyrir efni og vinnu skv. launamiðum. í liðinn „E’fni“ færist aðkeypt efni til viðhalds annað en það, sem innifalið er í greiðslum skv. launamiðum. Vinna húseiganda við viðhald fasteignar færist ekki á viðhalds- kostnað, nema hún sé þá jafn- framt færð til tekna. 4. Vélar, verkfæri og áhöld. Hér skal færa land'búnaðar- vélar o.g tæki, þegar frá eru dregnar fyrnin.gar skv. landbún- aðarskýrslu, svo og ýmisar vélar, verkfæri og áhöld annarra aðila. Slíkar eignir keyptar á árinu, að viðbættri fyrri eign, en að frá- dreginni fyrningu, ber að færa hér. Um hámarksfyrningu sjá 28. gr. reglugerðar nr. 245/1963, sbr. reglugerð nr. 79/1966. EÞað athug- ist, að þar greindir fyrningar- hundraðshlutar miðast við kaup- eða kostnaðarverð að frádregnu 10% niðurlagsverði. Sé fyrningin reiknuð að kaup- eða kostnaðarverði, án þess að niðurlagsverðið sé dregið frá, skal reikna með þeim mun lægri hámarksfyrningu. Sé fyrningin t.d. 20% skv. 28. gr. reglugerðar- innar, þá er hámarksfyrning 18% af kaupverði, ef 16% skv. 28. gr. reglugerðar, þá 13%% af kaup- verði o.s.frv. Halda má áfram að afskrifa þar til eftir standa 10% af kaupverðinu. Eftirstöðvarnar skal afskrifa árið, sem eigriin verður ónothæf, þó að frádregnu því, sem fyrir hana kynni að fást. Ef um er að ræða vélar, verk- færi og áhöld, sem notuð eru til tekjuöflunar, þá skal færa fyrn- inguna bæði til lækkunar á eign undir eignarlið 4 og til frádrátt- ar tekjum undix frádráttarlið 15. Sé eignin ekki notuð til tekju- öflunar, þá færist fyrningin að- eins til lækkunar á eign. Hafi framteljandi keypt eða selt vélar, verkfæri og áhöld á ár inu, ber að útfylla D-lið á bls. 4, eins og þar segir til um. 5. Bifreið. Hér skal útfylla eins og eyðu- blaðið segir til um, og færa kaup verð í kr. dálk. Heimilt er þó að lækka einkabifreið um 13% af kaupverði fyrir ársnotkun. Leigu og vörubifreiðir má fyrna um 18% af kaupverði og jeppabif- reiðir um 13 %%. Fyrning kemur aðeins til lækk unar á eignarlið, en dregst ekki frá tekjum nema bifreiðin sé not- uð til tekjuöflunar. Fyming til gjalda skal færð á rekstrarreikn- ing bifreiðarinnar. Sjá nánar um fyrningar í tölulið 4, hér á und- an. Hafi framteljandi keypt eða selt bifreið, ber að útfylla D-lið á bls. 4 eins og þar segir til um. 6. Peningar. Hér á aðeins að færa peninga- eign um áramót, en ekki aðrar eignir, svo sem víxla og verð- bréf. 7. Inneignir. í A-lið framtals, bls. 3, þarf að sundurliða, eins og þar segir til um, inneignir í bönkum, spari- sjóðum og innlánsdeildum, svo og verðbréf, sem skattfrjáls eru á sama hátt skv. sérstökum lög- um. Síðan skal færa samtalstöl- ur skattskyldra inneigna á eign- arlið 7. Undanþegnar framtalsskyldu og eignarskatti eru ofannefndar innstæður og verðbréf, að því leyti sem þær eru umfram skuld- ir. Til skulda í þessu sambandi teljast þó ekki fasteignaveðlán, tekin til 10 ára eða lengri tíma og sannanlega notuð til þess ,.ð afla fasteignanna eða endurbæta þær. Hámark slíkra veðskulda er kr. 200.000.—. Það sem umfram er, telst með öðrum skuldum og skerðist skattfrelsi sparifjár og verðbréfa, sem þvi nemur. Ákvæði um fasteignaverðskuldir nær ekki til félaga, sjóða eða stofnana. Víxlar eða verðbréf, þótt geymt sé í bönkum eða eru þar til innheimtu, teljast ekki hér, heldur undir tölulið 9. 8. Hlutabréf. Rita skal nafn félags i lesmáls- dálk og nafnverð bréfa í kr. dálk, ef hlutafé er óskert, en annars með hlutfallslegri upphæð, mið- að við upphaflegt hlutafé. Hafi framteljandi keypt eða selt hlutabréf á árinu, ber að út- fylla D-lið á bls. 4 eins og þar segir til um. 9. Verðbréf, útlán, stofnsjóðsinn- stæður o.fl. Útfylla skal B-lið bls. 3 eins og eyðublaðið segir til um og færa samtalstölu á eignarlið 9. Hafi framteljandi keypt eða selt verðbréf á árinu, ber að út- .fylla D-lið á bls. 4 eins og þar segir til um. 10. Eignir bama. Útfylla skal E-lið bls. 4 eins og eyðublaðið segir til um og færa samtalstöluna, að frádregn- um skattfrjálsum innstæðum og verðbréfum (sbr. tölulið 7), á eignarlið 10. Ef framteljandi ósk ar þess, að eignir barns séu ekki taldar með sínum eignum, skal ekki færa eignir barnsins í eign arlið 10, og ,geta þess sérstaklega í G-lið bls. 4, að það sé ósk fram- teljanda, að barnið verði sjálf- stæður skattgreiðandL 11. Aðrar eignir. Hér skal færa ýmsar eignir (aðrar en fatnað, bækur, hús- gögn og aðra persónulega muni), svo sem vöru- og efnisbirgðir, þegar ekki fylgir efnahagsreikn- ingur, hesta og annan búpening, sem ekki er talinn á landbúnaðar skýrslu, báta, svo og hverja aðra skattskylda eign, sem ótalin er áður. n. SKULDIR ALLS. Útfylla skal C-lið á bls. 3 eins og eyðublaðið segir til um og færa samtalstölu á þennan lið. in. TEKJUR ÁRIÐ 1968. 1. Hreinar tekjur samk. með- fylgjandi rekstrarreikningi. Liður þessi er því aðeins út- fylltur, að rekstrarreikningur fylgi framtalL 2. Tekjur samkv. landbúnaðar- eða sjávarútvegsskýrslu. Liður þessi er því aðeins út- fylltur, að landbúnaðar- eða sjáv arútvagsskýrsla fylgi framtali. 3. Húsaleigutekjur. Um útfyllingu þessa liðar sjá „Húsaleigutekjur“ í leiðbeining- um um útfyllingu eignarliðar 3. Fasteignir. 4. Vaxtatekjur. Hér skal færa skattskyldar vaxtatekjur samkv. A- og B-lið bls. 3. Það athugist, að undan- þegnir framtalsskyldu og tekju- skatti eru allir vextir af eignar- skattsfrjálsum innstæðum og verðbréfum, Sbr. tölulið 7, I. um eignir. 5. Arður af hlutabréfum. Hér skal færa arð, sem fram- teljandi fékk úthlutaðan á árinu af hlutabréfum sínum. 6. Laun greidd í peningum. í lesmálsdálk skal rita nöfn launagreiðenda og launaupphæð í kr. dálk. Ef vinnutímabil framteljanda er aðeins hluti úr ári eða árslaun óeðlilega lág, skal hann gefa skýr ingar í G-lið, bls. 4, ef ástæður koma ekki fram á annan hátt í framtali, t.d. vegna náms, aldurs, veikinda o.fl. 7. Laun greidd í hlunnindum. a. Fæði: Rita skal dagafjölda, sem framteljandi (og fjölskylda hans) hafði frítt fæði í mötu- neyti, matstofu eða á heimili vinnuveitanda síns og reiknast það til tekna kr. 73,— á dag fyrir karlmann, kr. 58,— fyrir kven- mann og kr. 58,— fyrir börn yngri en 16 ára, margfalda síðan dagafjöldann með 73 eða 58, eft- ir því sem við á, óg færa útkomu í kr. dálk. Frítt fæði sjómanna er undan- þegið skatti og færist því ekki hér. Séu fæðishlunnindi látin end- urgjaldslaust í té á annan hátt, skulu þau teljast til tekna á kostnaðarverði. b. Húsnæði: Hafi framteljandi (og fjölskylda hans) haft afnot af húsnæði hjá vinnuveitanda sínum endurgjaldslaust, skal rita hér fjölda herbergja og mánaða. Afnot húsnæðis í eigu vinnuveit- anda reiknast til tekna kr. 165.— á mánuði fyrir hvert herbergi í kaupstöðum og kauptúnum, en kr. 182,— á mánuði í sveitum. Margfalda skal herbergjafjölda, þar með talið eldhús, með 165 eða 18'2 eftir því sem við á og þá upphæð síðan með mánaðafjölda og færa útkomu í kr. dálk. Sama skal gilda um húsnæði, sem ekki er í eigu vinnuveitanda, en hann lætur framteljanda í té án endurgjalds, ef upplýsingar liggja ekki fyrir um verðmæti hlunnindanna. Sé vitað um kostn aðarverð hlunnindanna skulu þau teljast til tekna á því verði. c. Fatnaður eða önnur hlunn- indi: Til tekna skal færa fatnað, sem vinnuveitandi lætur fram- teljanda í té án endurgjalds, og ekki er reiknað til tekna í öðr- um launum. Tilgreina skal hver fatnaður er og útfæra í kr. dálk, sem hér segir: Einkennisföt kr. 2.900,—. Einkennisfrakki kr. 2.200,—. Annar einkennisfatnað- ur, sem ekki telst einkennisfatn- aður, skal talinn til tekna á kostn aðarverði. Sé greidd ákveðin fjárhæð í stað fatnaðar, ber að telja þá upphæð til tekna. Önnur hlunnindi, sem látin eru 1 té fyrir vinnu, ber að meta til peningaverðs eftir gangverði á hverjum stað og tíma og reikna til tekna. Fæði, húsnæði og annað fram- færi framteljanda, sem býr í foreldrahúsum, telst ekki til tekna og færist því ekki á þenn- an lið, nema foreldri sé atvinnu- rekandi og telji sér nefnda liði til gjalda. 8. Elli- og örorkulífeyrir. 'Hér skal telja elli- og örorku- lífeyri úr almannatryggingum, þar með örorkustyrk og ekkjulíf- eyri. Upphæðir geta verið mismun- andi af ýmsum ástæðum. T.d. greiðist ellilífeyrir í fyrsta lagi fyrir næsta mánuð eftir að líf- eyrisþegi varð fullra 67 ára, Heim ilt er að fresta töku ellilífeyris og fá þá þeir, sem það gera, hækkandi lífeyri, eftir því seni lengur er frestað að taka lífeyr- inn. Almennur ellilífeyrir allt árið 1968 var sem hér segir: Fyrst tekinn frá 67 ára aldri _ 68 — — — 69 — — — 70 — — — 71 — — Einstaklingar kr. 36.880,— — 40.036,— — 44.646,— — 49.256,— — 55.322,— Fr&mhald k bls. 2*

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.