Morgunblaðið - 16.01.1969, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 16.01.1969, Blaðsíða 10
10 MORGUNT3LAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 1969 Richard Nixon þriggja ára Táningurinn Sjóliðsforingi í heimstyrjöld- Frambjóðandi í fyrsta sinn til Frambjóðandi í forsetakosning gamall. inni. fulltrúadeildarinnar 1946. unum 1968. Hinn 20. janúar n.k. tekur nýr maður við forsetaembætti í Bandaríkjunum, Richard M. Nixon. Mikið hefur verið rætt og ritað um þennan mann nú í haust og í vetur, svo mjög sem athyglin hefur beinzt að honum um víða Veröld og þegar hann hefur tekið við forsetaembætti, verð ur hann ekki síður fréttaefni, maðurinn sjálfur, stjórnmála- maðurinn og athafnir hans. Hér fer á eftir fyrsti hluti við- tals lítið eitt stytt, sem Kenneth Harris, blaðainaður við brezka blaðið The Obser- ver, átti við Nixon fyrir nokkru. ar greinir Nixon frá æsku sinni, foreldrum og syst kinum, skólanámi og aðdrag- i anda þess, að hann hóf af- skipti af stjórnmálum. Síðar í þessu viðtali, en sá hluti þess verður birtur hér í hlaðinu á næstunni, skýrir Nixon frá reynslu sinni sem varaíorseti Bandaríkjanna og greinir frá skoðunum sínum varðandi ýms mál, sem mestu máli skipta nú á alþjóðavettvangi, svo sem Atlantshafsbandalag- ið og varnir Vestur-Evrópu, Sovétríkin og Austur-Evrópu, styrjöldina í Vietnam, Kína og ástandið fyrir hotni Mið- jarðarhafsins. Harris: Ég veiit að þér eruð (Erá Kalifomíu og eruð sonur kvekarafjöl3kyldu. Gæfuð þér sagt mér eitthvað frekar um bernsku yðar. ' Nixon: Ég fæddist í litlum land'búnaðarbæ, sem kallaðurer Yorba Linda um 30 mílur frá ILoiS Angeles. Fjölskylda móður minnar var. kvekarar. Nafn henn ar var Milhous og hún var kom- in af kvekaraætt, sem fluttist frá Co. Kildare í írlandi 1729. Faðir minn var líka írskur að ætt. Fjölskylda hans var metho- distar, en þegar hann kvæntist móður minni, gerðist hann kvek ari. | Þegar ég fæddist átti faðir tninn ávaxtabúgarð, þar sem Ihann ræktaði appelsínur og sítr- ónur. Hann hafði áður verið sporvagnsstjóri 1 Columbus í Oh io og fengið kal á höndum fyr- ir að stýra vagninum á þak- lausum palli og fór til Suður- Kaliforníu til þess að gerast sporvagnsstj óri þar, af því að þar var ekkert frost. f>ar kynnt i3t hann móður minni, sem kom- ið hafði þangað sem ung stúlka með foreldrum sínum frá Indi- ana í Miðvesturríkjunum. Föður mínum tókst ekki að láta ávaxtabúgarðinn bera sig, Bvo að árið 1922, er ég var 9 ára, ifcók hann þá litlu peninga, sem hann átti og setti upp benzín- Stöð og nýlenduvöruverzlun í smáborg, sem hét Whittier, og er nú ein af útborgum Los Ang- eles. Whittier er að miklu leyti kvekaraborg og ég gekk í kvek- arakirkjuna þar. Þegar ég var 17 ára, innritaðist ég í Whittier College, sem var Kvekarastofn- un. Harris: Var bernska yðar ham ingjusöm? Nixon: Foreldrar mínir voru mjög gott fólk. Móðir mín var mjög ljúflynd og faðir minn var mjög vænn maður og góður eig- inmaður — þér getið látið yður detta í hug, hvers konar maður hann var, úr því að hann gerð- ist kvekari sökum þess að hann var að kvænast konu sem var kvekari. Amma mín var mjög sér- Stök manneskja og hafði afar ríka tilfinningu fyrir fjölskyldu samheldni. Á afmælisdögum var hún vön að sernja kvæði. Hún og móðir mín voru vanar að segja „thee“ og „thou“ hvor við aðra. Þær höfðu báðar til að bera mjög ákveðnar skoðanir um frið- arstefnu, borgararéttindi og þjóð féalgslega ábyrgð. Þetta var góð bernska í raun og veru. Ég lærði að leika á píanó og lék á orgel í kirkjunni — móðir mín vildi að ég yrði tónlistarmaður eða kennimaður. Faðir minn virtist ekki hafa eins mikinn áhuga á því, hvaða starf ég tæki mér sér staklega fyrir hendur, svo fram- arlega sem ég fengi góða mennt- un. Hann hafði ekki hlotið neina menntun. Hann varð munaðar- laus, þegar hann var 9 ára og málfræði hans var ekki góð allt til dauðadags. Hann var mjög fær og hagleikinn maður og trúði á verk handanna. Hann smíðaði húsið sem ég fæddist í. En hann dáðist alltaf að menntuðu fólki. Hann hafði meiri áhuga á mennt un minni heldur en á því starfi, sem ég tæki mér fyrir hendur. Harris: Hvað vilduð þér verða þegar þér voruð að alaat upp? Nixon: Sem barn? Vélameist- ari við Santa Fé jámbrautina. Árum saman fannst mér mesti maðurinn í borginni vera véla- meistarinn, sem stjórnaði Santa Fé járnbrautarlestinni frá Los Angeles til Needles. Blístrið í lestinni var fegursta tónlistin, sem ég hafði nokkru sinni heyrt. Ekki vegna þess að ég hafði áhuga á vélum, heldur sökum þess að ég hafði áhuga á ferða- lögum. Aðeins ein lest á dagfór I gegnurn Yorba Linda og þegar ég heyrði flautið, var ég vanur að láta mig dreyma dagdrauma um þá staði, sem ég myndi heim- sækja einhvern tímann. Harris: Vomð þið sæmilega efnum búin? Nixon: Nei, okkur gekk erfið- lega. Þegar við vorum börn, var móðir okkar komin á fætur fyr- ir dögun til þess að baka brauð, sem seld voru í verzluninni. Það var rétt svo, að föður okkar tókst að láta verzlunina bera sig, en við strákarnir urðum að hjálpa til. Við aðstoðuðum við að búa til matinn, svo að foreldrar okkar gætu unnið í verzluninni og í frístundum okkar unnum við fyrir bændur í nágrenninu. Þegar við vorum orðnir nógu gamlir, hjálpuðum við til við benzíndælurnar. Þá fékk eldri bróðir minn, Har old, sem mér þótti mjög vænt um, berkla. Ég sagði yður frá þvi að ég hefði átt hamingju- sama bernsku, en ég býst við, að ég hafi fengið minn skerf af því mótlæti, sem verður í lífi næst- um hvers og eins. Móðir min fór með Harold til Arizona, þar sem loftslagið var þurrara og dvaldist þar meira eða minna stöðugt á sjúkrahúsinu í tvö ár og stundaði hann þar, en vann fyrir sér með þvi að vinna með starfsliðinu. Störf hennar þar voru ekki merkileg, því að hún vann við eldamennsku, gólfþvott og annað þess háttar. Faðir minn aflaði fjár til þess að standa straum af sjúkralhúskostnaðinum með því að selja helming þeirr- ar ekru lands, sem verzl- un hans stóð á. Meðan þetta var að gerast, lézt yngri bróðir minn Arthur, sem varð sjö ára gamall, úr heilahimnu- bólgu. Þegar Harold kom til baka, var hann enn sjúkur, en við vor- um enn vongóð varðandi heilsu hans. Dag nokkurn, er honum mig að fara með sér inn í borg- ina til þess að kaupa gjöfhanda móður okkar. Það var rafmagns hrærivél. Ég fór með honum inn til borgarinnar, en síðan keypti hann hrærivélina og ég fór aftur með honum heim. Eftir það fór ég í skólann og varð hugsað um, hve ánægður hann hafði verið með það, sem hann keypti. Stundarfjórðung síðar kom einn kennaranna til mín og sagði mér að fara heim, því að Harold væri dáinn. Þróttur foreldra minna var at- hyglisverður. Þau brugðust full- komlega við eins og trúaðir kvek arar. Ég man eftir því, að móðir mín sagði við jarðarförina, að stundum væri erfitt að skilja vegi guðs, en við vissum, að allt væri fyrir fram ákveðið og að lokum væri það öllum fyrir beztu. Ég hef ekki til að bera þolgæði foreldra minna og ég er ekki alveg sammála þessari lífs- skoðun, en að. sjá þolinmæði þeirra, hugrekki og einbeitni í að gefast ekki upp fyrir neinum erfiðleikum, hvorki líkamlegum eða tilfinningalegum, er á meðal þess mikilfenglegasta, sem ég hef nokkru sinni kynnzt. Og það hef ur vissulega verið mér styrkur, þegar ég hef búið við mikla streitu og verður mér alltaf styrkur. Harris: Þér segið, að þér hafið ekki til að bera þolgæði for- eldra yðar. Nixon: Nánar tiltekið móður minnar. Hún leyndi tilfinningum sínum og réð yfir dásamlegri sjálfsstjórn. Tilfinningar föðm' míns voru meir ólgandi, enda þótt hann væri mjög góðlyndur. Faðir okkar gaf okkur stundum skell, en það gerði móðir okkar aldrei. En einu sinni, er bróðir minn var staðinn að því að gera nofckuð, sem hann mátti ekki gera, kom hann til mín og sagði: „Mamma veit. En segðu henni að gefa mér hirfingu. Láttu hana ekki tala við mig“. Hún var vön að ávíta okkur æsingalaust, en okkur leið illa. Nei, ég er ekki hrifinn af því að bíða aðgerðalaus, þegar ráðist er að mér. Fótboltaþjálfarinn i framhaldsskólanum mínum var vanur að segja: „Þú hlýtur að hata það að tapa“. Maður verð- ur að svara fyrir sig í lífinu, einkum í stjórnmálum og framar öðru, þegar allir eru á móti manni. Harris: Var það í Whittierskól anum, sem þér ákváðuð að ger- ast stjórnmálamaður? Nixon: Nei. Ef þér töluðuð við einhverja vini mína, sem voru félagar mínir á þessum tíma, þá myndu þeir segja yður að ég hafi verið of óframhleyp- inn og innhverfur til þess að unnt væri að hugsa sér mig sem stjórnmálamann í framtíðinni. Nei, ég komst mjög snemma á þá skoðun, að ég myndi vilja verða 'lögfræðingur. Á meðan á stóð skólaveru minni í Whittier á aldrinum 17—20 ára, þá varð ég stöðugt ákveðnari í því að verða lögfræðingur. Harris: Hvað var það, sem hændi yður að lögfræði? Nixon: Mér hafði alltaf þótt i gaman að kappræðum. Jafnvel þegar ég vor lítill drengur, hafði j ég gaman af að tala við fólk, ræða um hluti, koma fram með athugasemdir, deila og ég tók að líta á iögfræðiniginn, sem þann mann í þjóðfélaginu, sem bezt kyinmi að beita mælskulistinni. Ég man eftir því, að hafa heyrt fúllorðið fólk segja, á meðan ég var enn lítill drengur: „Dick er fæddur lögfræðingur". Þetita var sagt á þann hátt eins og fullorð- ið fólk bollaleggur, hvað verði úr börnum, að nokkru leyti í gamni, að nokkru í aJlvöru. Þeg- ar ég varð 10 ára, varð ein frænka mín tia. þess að gefa mér bók um sögu Bandaríkjanna í afmælisgjöf. Sagan var full af bandairískum hetjum. Kannski var það kvekarauppeldi hennar, sem mestu réð um val hennar, en ég komst að raun um, að það voru engar hermannahetjur í þessari bók. Allar retjurnar virt ust vera lögfræðingar. Þegar ég var 12 ára, átti sér stað mikið hneyksli, sem náði til alilra Bandaríkjanna, svonefnt Teapot Dome hneyksli. Ég veit ekki, hversu mikið þér vitið um það, en menn sem sátu í Stjórnar- embættum þá, höfðu hylmt yfir ólöglegri notkun á olíubirgðum stjórnarvaldanna. Ég man eftir því, að ég heyrði föður minn tala i'lla um „spillta stjórnmála- menn“ og „spil’lta lögfræðinga“ vikum saman. Og ég man lítil- lega eftir því, að ég tilkynnti fjölskyldunni þá, að ég ætlaði að verða lögfræðingur, „lögfræð ingur af gamla skólanum, þess konar lögfræðingur, sem ekki er hægt að kaupa“. Það var að minnsta kosti það, sem móðir mín var vön að segja. Árið 1933, þegar ég útskrif- aðist frá Whittier College, komst ég að þeirri ákvörðun, hvað ég skyldi nema og mér tókst að hreppa námsstyrk við Duke Uni versity í Norður-KaroJínuríki. Þetta var á árunum kringum 1935, þegar efnahaguir fólks var enn mjög erfiður. Ég hefði ekki getað farið til Duke-háskó'la, ef ég hefði ekki hlotið námsstyrk. Það opnaði fyrir mér mikla möguleika. Ég var talsvert áhyggjufullur út af því, hvort ég myndi geta náð lögfræðiprófi — ég skil suma vini mína, sem sáu mig vera að lesa langt fram eftir kvöldum og hve önnum kaf inn ég virtisrt vera, að þeir köll uðu mig „daufa Richard". En mér tókst að ljúka prófinu og móðir mín og amma (þá 87 ára gömul) fóru með bifreið 2.600 mílur þvett yfir Bandaríkin tdfl. þess að vera viðstödd, er ég út- skrifaðist. Síðan reyndi ég að komast að hjá stóru lögfræðifirma í New York, en hugur minn stóð til þess þá. Ég reyndi hjá ýms- um sem voru mjög þekkt, en enda þótt ég hefði náð góðu prófi í Duke-háskóla, þá tókst mér það ekki. Ég var ókunnug- ur og þekkti engan í þessum lögfræðifirmum og samkeppnin var að sjálfsögðu mjög hörð. ferill i Þá sótti ég um stöðu sem lög- fræðingur hjá FBI. J. Edgar ; Hoover (þáverandi yfirmaður FBI) skýrði mér frá því mörg- um árum síðar, að ég myndi hafa hlotið þessa stöðu, en stofn un hans hefði fengið fyrirmæli um að diraga úr útgjöldum og að ráða ekki fleira starfsfólk, rétt eftir að fallizt hafði verið á umsókn mína. Því sneri ég aftur til Whittier og byrjaði hjá Wingert og Bew ley, elzta lögfræðifirmanu í þess ari liillu borg, sem þá hafði um 25.000 íbúa. Ég hlaut þar mjög fjölbreytta starfsreyndu. Bráð- lega var ég farinn að vinna í hjónaskilnaðarmálum, sem veitti mér mjög skjóta innsýn í vanda- mál mannlegra samskipta. Harris: Og þér höfðuð enn ekki fengið áhuga á stjórnmál- um? Nixon: Nei, ekki sérstaklega. Einmitrt um þetta leyti var það aðaláhugamál mitt fyrir utan það að vera þessi staðbundni náungi, sem ætlaði að láta sér vegna vel, að telja unga konu, sem hét Pat Ryan, á að giftast mér. Pat hafði komið til Whittier sem skóla- kennari. Mér hafði verið sagt frá því af nokkrum vinum mín- um, hversu afar aðlaðandi hún Framhald á bls. 17 Richard M. Nixon Stjórnmálamaðurinn, æska hans og

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.