Morgunblaðið - 16.01.1969, Síða 14

Morgunblaðið - 16.01.1969, Síða 14
14 MORGUNBL.AÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 1969 Últgleíiaindi H.f. Árváfcuir, JR-eykjavífe. Fnamikivæmdiaisitjóri Haraldur Sveinsacai. 'Ritstjóraí Sig'urður Bjarnason. frá VigW. Mattíhías Johannessten. Eyjólfur Konráð Jónsson. Eitstjómarfulltrúi Þorbjöm Guðmundssoxt, Eréttaiatjóri Björn Jóíhannsson!. Auglýsihgiaistjióiá Árni Garðar Krisfcinsson. Eitstjórn ng afgneiásia Aðalstrætá 6. Sími l'O-löO. Auiglýsingar Aðalistræfci 6. Sími 22-4-ÍSO. Áskxiftargj'ald fcr. 160.00 á miánuði innanilainids. 1 lausasiöiu; fcr. 10.00 eintafcið. GÓÐUR ÁRANGUR Á ALLSHERJARÞINGINU T Ttanríkisþjónusta ^ Vt aÍi i r of okkar hefur oft sætt nokkurri gagnrýni, og jafnan þegar rætt er um nauðsyn á sparn- aði í ríkisrekstrinum er spurt, hvort ekki sé hægt að spara í utanríkisþjónustunni. Ein- *mitt vegna þeirrar gagnrýni, sem utanríkisþjónustan verð- ur oft fyrir er ástæða til þess að vekja athygli á því, sem vel er gert í hennar starfi. í fyrradag birti Morg- unblaðið grein eftir dr. Gunnar G. Schram, ráðu- naut í utanríkisráðuneytinu, þar sem hann fjallar um tvær tillögur, sem ísland lagði fram á Allsherjarþingi Sam- einuðu þjóðanna og hlutu sam þykki. önnur tillagan er þess efnis, að alþjóðareglur verði settar til að koma í veg fyrir tjón á fiskistofnum vegna mengunar í sjónum og hin fjallar um verndun fiskstofna á úthöfum og aukna alþjóða- samvinnu um skynsamlega nýtingu og varðveizlu þeirra. Það er engan veginn auðvelt verk að fá slíkar tillögur sam- þykktar á þingi alþjóðasam- taka á borð við Sameinuðu þjóðirnar. Þar kemur fram urmull tillagna frá þjóðum, sem hafa mun sterkari að- stöðu og meiri áhrif en við. Þess vegna vekur athygli, þegar tvær tillögur frá smá- ríki sem íslandi hljóta sam- þykki Allsherjarþingsins og hafa áður komizt í gegnum hreinsunareld hinna ýmsu nefnda. Samþykki þessara tveggja tillagna á Allsherjarþinginu sýnir einungis, að nýjum vinnubrögðum hefur verið beitt í utanríkisráðuneytinu og hjá sendinefnd íslands hjá Sameinuðu þjóðunum. Að baki samþykkt þessara tveggja tillagna liggur mikil vinna og undirbúningur, sem hefur tekizt með þeim ágæt- utn, að íslendingar geta verið hreyknir af. Báðar tillögurnar fjalla um mál, sem varða fiskveiðiþjóð sem íslendinga miklu. Þess vegna er flutningur þeirra glöggt dæmi um, með hverj- um hætti við eigum að vinna að hagsmunamálum okkar á vettvangi alþjóðlegra stofn- ana. íslendingar geta vissu- lega verið ánægðir með þann árangur, sem fulltrúar þeirra á Allsherjarþingi Samemuðu þjóðanna náðu að þessu sin.ii, og vonandi verður sá árangur starfsfólki utanríkisþjónust- unnar hvöt til þess að halda áfram á sömu braut. FÓLKIÐ í TÉKKÓ- SLÓVAKÍU í síðustu mánuðum hafa ^ þess sést æ fleiri merki, að Sovétríkjunum sé smátt og smátt að takast að beygja helztu leiðtoga kommúnista- flokksins í Tékkóslóvakíu til hlýðni við sig. Frávikning Smrkovskys, sem forseta þjóð þingsins að kröfu Husaks, for ingja kommúnista í Slóvakíu benti til þess, að Sovétríkj- unum hefði tekizt að brjóta skarð í raðir tékkóslóvakískra leiðtoga og að eftirleikurinn mundi þá verða auðveldari. Nú er hins vegar að koma í ljós, að jafnvel þótt Sovét- ríkjunum takist að kúga for- ingja kommúnista í Tékkó- slóvakíu, er engan veginn sýnt, að þeim takist einnig að kúga þjóðina til hlýðni við sig. Mótmælaaldan, sem gengið hefur yfir Tékkósló- vakíu vegna frávikningar Smrkovskys, andstaða verka lýðssamtaka og nú síðast sú ákvörðun prentara að neita að vinna að prentun blaða, sem flytji áróður er ekki samrýmist umbótastefnunni frá því í janúar, sýna svo ekki verður um villzt, að fólkið í Tékkóslóvakíu ber höfuðið hátt, þrátt fyrir inn- rás kommúnistaríkjanna og er staðráðið í að halda sínum hlut hvað sem á gengur. Þessi afstaða almennings í Tékkóslóvakíu gerir það að verkum, að enn geta þeir at- burðir gerzt þar í landi, sem haft geta afgerandi áhrif á þróun mála í A-Evrópu. Ef til vill er það að koma í ljós í Tékkóslóvakíu nú, að til lengdar verða heilar þjóðir ekki sviptar frelsi og kúgað- ar. Hversu sterkt sem her- veldið er, bíður það á endan- um lægri hlut. DREIFINGAR- KOSTNAÐUR T sjónvarpsþætti í fyrrakvöld skýrði Björgvin Schram, formaður Félags íslenzkra stórkaupmanna frá því, að Áfengis- og tóbaksverzlun ríkisins þyrfti 17% álagningu tíl þess að standa undir dreifingarkostnaði í heild- sölu á áfengi og 11,1% til þess || T AM líp IIFIMI \inv U | nli Uli VIlIIVII Ævi tímarits TfMARITIÐ „The Satur- day Evening Post“ er hætt að koma út og af því til- efni birtir Herald Tribune eftirfarandi grein: TÍMARITIÐ „The Saturday Evening Post, sem nú er hætt að koma út hefur þekkt fljótfærni æskunnar, þrótt fullorðinsáranna og kvalir hægrar hnignunar. f byrjun haslaði það sér völl með skáldskap, stundum hrífandi, stundum einföldum og á miðj- um aldri var það mjög íhalds- samt. En nýi lesendahópur- inn sem það reyndi í örvænt- ingu að draga að sér, með bjartara útliti og spennandi greinum, var hvorki nægilega stór né trygglyndur. The Saturday Evening Post, minnti á land sem er óvisst . um örlög heimsins en fullt sjálfstrausts um eigin hag og hæfileika. Skáldsögurnar sem það birti, greinarnar og auglýsing- arnar og jiafnvel útsíðurnar í sínu fallega-hugmyndaauðuga raunsæi voru helgaðar einfald leika lífsánægjunnar. Nær- vera þess á biðstofum tann- lækna, bar vitni róandi ynd- isleik þess. Þegar þeir voru strákar höfðu tannlæknarnir, og líklega margir efnaðir sjúklingar þeirra, að öllum líkindum gengið hús úr húsi til að selj'a áskriftir. Það sem hreif þá var sama trúin og gaf „Póstinum" inn- blástur, að einstaklings'fram- t'akið gleddi hjartað og aflaði fjár. Lesendurnir hópuðust að. Allt fram til 11. apríl 1942 var það selt fyrir fimm sent og upplagið var á fjórðu millj ón. 1959 fór það yfir sex millj- ónir. Rithöfundarnir voru ekki síður heillaðir. Ritstjór- arnir höfðu þá reglu að ákveða hvort taka skyldi handrit innan 72 stunda frá' því það barst, og þeir borg- uðu vel. Á töfravötnum vikuritsins 'gátu rit'höfundarnir ýtt á flot persónum, sem sigldu fyrir blásandi byr í mörgum ein- tökum og vörpuðu loks akk- erum í Hollywood. Þótt það kæmis í tízku að líta með fyr- irlitningu á bl'aðið, sem para- dís lélegra skríbenta . sendu margir fremstu pennar heims- ins því greinar og skáldsögur. Meðal þeirra voru: Edgar All- an Poe, Jarnes Fenimore Coop er, Jack London, Rudyard Kipling, Harriet Beecher Stowe, Stephen Crane, Theo- dore Dreiser, Bret Harte, Frank Norris og Edith Whar- ton. Að Warren G. Hardy undan skildum skrifuðu allir forset- ar Bandaríkjanna, frá McKin- ley, fyrir Póstinn og 1964 birti það greinar eftir fjóra forseta: Harry S. Truman, Dwight D. Eisenhower. John F. Kennedy og Lyndon B. Johnson. Sumir annarra greinarhöf- unda voru ekki eins vel þekkt ir. Gertrude Stein skrifaði um peninga (Eru peningar pen- ingar, eða eru peningar ekki peningar), og Whittaker Cihambers jók upplagið meira en nokkur einn maður hafði gert áður með greinarflokkn- um: „Ég var vitnið“ (gegn Alger Hiss) árið 1952). Það var lenigi vel auðvelt að þekkja blaðið með því að líta augnablik á forsíðu þess. Nor- man Rockwell, sem hafði lítið ímyndunarafl er spilaði á til finningar, málaði hundruð for síðumynda. 1'897, eftir að fyrri eigandi var látinn, eignaðist ihann lítið vikurit. Síðasta tölubl. hafði verið 16 síður að stærð, með fimm litlum auglýsingum og myndum af konu með „pilsa- grind“ og sköllóttum manni. Þegar George Horace Lorri- mer, tók við stöðu ritstjóra árið 1899 tilkynnti hann að: Pósturinn lofaði helmingi meiru en önnur tímarit og ætlaði að reyna að efna helm- ingi meira en loforðin sem gef in væru. Árið 1909 fór upplag ið yfir eina milljón eintaka. Pósturinn var vitni að dauða Colliers, og sá að hans eigið veldi stafaði hætta af sjónvarpinu og myndablöðum eins og Life og Look. Til að lengja eigin lífdaga byrjaði hann að leggja áherzlu á grein T^atuiday ifwenmg Foundod in 1728 by Pósturinn var eitt af fyrstu tímaritunum sem byrjuðu að nota liti á innsíðum ekki síður en á útsíðum, og auglýsingarn ar sögðu oft jafn mikla sögu og greinarnar. í mörg ár hélt blaðið við þeim orðrómi að Benjamin Franklin hefði verið .stofnandi þess árið 1728. En eina sam- bandið milli Benjamins og blaðsins var að „Pennsylvania Gazette" sem hann 'hafði gef- ið út var prentað í sömu smiðj unni og Pósturinn notaði fyr- ir sín fyrstu tölublöð 1821 og að einn af stofnendum Pósts- ins var í félagi við sonarson félaga Franklins. Eftir níu ára útkomu undir nafninu „The Saturday Ev- ening Post“ var fimm sinnum skipt um nafn á árun-um frá 1830 til 1845. Fullyrðingin: Stofnað af Benjamin Frank- lin 1728, hvarf loks af forsíð- unni áriðl942, en það var þó áfram í „ihausrnum". Þegar Cyrus H. K. Curtis, keypti ritið fyrir 1000 dollara árið ar fremur en skáldskap. Þeg- ar upplagið fór að minnka reyndi Curtis útgáfufyrirtæk- ið að „greina sjúkdóminn" og finna lyf við honum. Árið 1962 tók Matthew J. Culligan við útgáfustjórninni, skipaður af nýju stjórninni sem saman- stóð af lánardrottnum og bönk um. Á ritstjórnarskrifstofunni var einnig nýtt andlit, Clay Blair, sem fyrrum vann hjá Time, hafði tekið við ritstjórn inni. Hbnum var falið að bjarga blaðinu og hann til- kynnti mönnum sínum að héð að í frá ætti það að búa til fréttir, ekki bara segja frá þeim, og þetta tókst. Welly Butts, fyrrverandi knattspyrnuþjálfari og íþrótta kennari við Georgíuháskóla krafðist 10 milljóna dollara skaðabóta þegar Pósturinn birti grein árið 1963 þar sem sagði að Butts hefði gefið Paul Bryant, þjálfara Alab- amaháskóla upplýsingar sem urðu til þess að Alabama sigr- Framhald á bls. 21 að standa undir sama kostn- aði við dreifingu tóbaks. Þessar upplýsingar eru mjög athyglisverðar. Þetta ríkisfyrirtæki nýtur algjörr- ar sérstöðu að því leytí, að það getur krafizt staðgreiðslu ef því sýnist svo og hagað viðskiptum sínum að vild en yfirleitt þurfa venjulegar heildverzlanir að láta and- virði seldrar vöru einhvern tíma og hafa að sjálfsögðu kostnað af því. Samt sem áð- ur er verzluninni gert að dreifa mörgum þýðingarmikl um vörutegundum fyrir 5— 7% álagningu. Þetta ættu þeir sem mest tala um „gróða“ verzlunarinnar að hafa í huga.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.