Morgunblaðið - 16.01.1969, Síða 20

Morgunblaðið - 16.01.1969, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 1968 — 72 — — — 61.630,— Hjón kr. 66.384, — þ.e. 90% af lífeyri tveggja einstaklinga, sem bæði tóku lífeyri frá 67 ára aldri. Meðaltalið í framanskráðum ellilífeyri eru hækkanir í des. 1967, sem greiddar voru á árinu 1968. Hækkanirnar námu frá kr. 94.— hjá þeim, sem fyrst tóku lífeyri frá 67 ára aldri, upp í kr. 153,— hjá þeim, sem fyrst tóku lífeyri frá 72 ára aldri. Ef hjón, annað eða bæði, frest- uðu töku lífeyris, hækkaði líf- eyrir þeirra um 90% af aldurs- hækkun einstaklinga. Ef t.d. ann að hjóna frestaði töku lífeyris til 68 ára aldurs, en hitt til 69 'ira aldurs, þá var lífeyrir þeirra ár- ið 1968 90% af kr. 40,036,— + kr. 44.645,— eða kr. 76,212. Öryrkjar, sem hafa örorkustig 75% eða meira, fengu sömu upp- hæð og þeir, sem byrjuðu að taka ellilífeyri strax frá 67 ára aldri. Færa skal í kr. dálk þá upp- hæð, sem framteljandi fékk greidda á árinu. 9. Sjúkra- eða slysabætur (dagpeningar). Hér skal færa ajúkra- og slysa- dagpeninga. Ef þeir eru frá al- mannatryggingum, sjúkrasam- lögum eða úr sjúkrasjóðum stétt arfélaga, þá koma þeir einnig til frádráttar, sbr. frádráttarlið 14. 10. Fjölskyldubætur (og mæðralaun). Greiðslur úr almannatrygging- um vegna barna (aðrar en barna lífeyrir og meðlag) nefnast fjöl- skyldubætur og mæðralaun. Fjöl skyldubætur skulu færðar til tekna undir lið 10. Einnig má færa þar mæðralaun og skal þá bæta við í lesmálsdálk orðunum „og mæðralaun". Annars skulu mæðralaun færð til tekna undir lið 13 „Aðrar tekjur“. Fjölskyldubætur á árinu 1968 voru kr. 3.961,— fyrir hvert barn á framfæri allt árið. Marg- falda skal þá upphæð með barna fjölda og færa heildarupphæð fjölskyldubóta í kr. dálk. Fyrir börn, sem bætast við á árinu, og börn, sem ná 16 ára aldri á árinu, þarf að reikna bæt ur sérstaklega. Fjölskyldubætur fyrir barn, sem fæðist á árinu, eru greiddar frá 1. næsta mán- aðar eftir fæðingu. Fyrir barn, sem verður 16 ára á árinu, eru bætur greiddar fyrir afmælis- mánuðinn. Fjölskyldubætur árið 1968 voru kr. 330,08 á mánuði. Mæðralaun eru greidd ekkj- um, ógiftum mæðrum og fráskild um konum, sem hafa börn undir 16 ára á framfæri sínu. Á árinu 1968 voru mæðralaun sem hér segir: Fyrir 1 barn kr. 3.235,—, 2 börn kr. 17.563,—, 3 börn og fleiri kr. 35,125,—. Meðtaldar eru hækkanir í des. 1967, sem greiddar voru á árinu 1968. Hækkanirnar námu kr. 8,— fyrir 1 barn, kr. 45,— fyrir 2 börn og kr. 90,— fyrir 3 börn eða fleiri. Ef barn bætist við á árinu eða börnum fækkar, verður að reikna sjálfstætt hvert tímabil, sem móðir nýtur bóta fyrir 1 barn, fyrir 2 börn o.s.frv., og leggja saman bætur hvers tíma- bils og færa í einu lagi í kr. dálk. Greiðslur á árinu 1968 voru sem hér segir: Fyrir 1 barn: kr. 268.92 á mán. Fyrir 2 böm: kr. 1.459,75 á mánuði. Fyrr 3 böm og fleiri: kr. 2.919,58 á mánuði. 11. Tekjur barna. Útfylla skal F-lið bls. 4 eins og eyðublaðið segir til um. Samanlagðar tekjur barna, að undanskildum skattfrjálsum vaxtatekjum (sbr. tölulið 4, IH.), skal síðan færa í kr. dálk 11. tekjuliðs. Ef bam (börn) hér tilgreint stundar nám í framhaldsskóla, skal færa námsfrádrátt skv. mati ríkisskattanefndar í kr. dálk frádráttarliðs 15, bls. 2 fær- ist ekki námsfrádráttur, heldur sá mismunur, sem er milli tekna barnsins skv. 11 tölulið og kr. 20.700,—, (þ.e. tekjur að frá- dregnum kr. 20.700,—). 12. Launatekjur konu. Hér skal færa launatekjur eiginkonu. f lesmálsdálk skal rita nafn launagreiðanda og launaupphæð í kr. dálk. Það at- hugist, að þótt helmingur af launatekjum giftrar konu sé skattfrjáls, ber að telja allar tekj urnar hér. 13. Aðrar tekjur. Hér skal tilfæra hverjar þær skattskyldar tekjur, sem áður eru ótaldar, svo sem: 1. Greiðslur úr lífeyrissjóðum (tilgreinið nafn sjóðsins), þar með talinn barnalífeyrir. 2. Greiðslur frá almannatrygg- ingum, svo sem makabætur, ekkjubætur, mæðralaun (ef ekki talin í tekjulið 10) og barnalíf- eyri, greiddur vegna örorku eða elli foreldra (framfæranda). 3. Styrktarfé, gjafir (aðrar en tækifærisgjafir), happdrættis- vinninga (sem ekki eru skatt- frjálsir) og aðra vinninga svip- aðs eðlis. 4. Arð af eignum, töldum und- ir eignarlið 11, skattskyldan sölu hagnað af eignum, sbr. D-lið bls. 4, afföll af keyptum verðbref- um og arð af hlutabréfum vegna félagsslita eða skattskyldra jöfn- unarhlutabréfa. 5. Eigin vinnu við eigið hús eða íbúð, að því leyti, sem hún er skattskyld. 6. Bifreiðastyrki, þar með tal- ið km. gjald og hverja aðra beina eða óbeina þóknun fyrir afnot bif reiðar, risnufé og endurgreidd- an ferðakostnað, þar með taldir dagpeningar. Sjá þó lið IV, tölu- lið 15, um frádrátt IV. FRÁDRÁTTUR. 1. Kostnaður við húseignir. Um útfyllingu þesisa liður sjá „Kostnaður við húseignir" síðast í leiðbeiningum um útfyllingu eignarliðar 3. Fasteignir. 2. Vaxtagjöld. Hér skal færa í kr. dálk sam- talstölu vaxtagjalda skv. C-lið bls. 3. Færa má alla sannanlega greidda vexti af lánum, þar með talda vexti af lánum, sem tekin hafa verið og/eða greidd upp á árinu. 3. Eignarskattur. í kr. dálk skal færa eignar- skatt greiddan á árinu. 4. Eignarútsvar. f kr. dálk skal færa eignarút- svar greitt á árinu. 5. Iðgjald af Iífeyristryggingu. Hér skal aðeins færa framlag framteljanda sjálfs til viður- kenndra lífeyrissjóða eða greidd iðgjöld af lífeyristrygggnu til viðurkenndra vátryggingarfélaga eða stofnana. Reglur hinna ýmsu tryggingar aðila um iðjöld eru mismunandi, og frádráttarhæfni iðgjaldanna því einnig mismunand hjá fram- teljendum. Er því rétt, að fram- teljandi leyti upplýsinga hjá við komandi tryggingaraðila eða skattstjóra, ef honum er ekki fullkomlega ljóst, hvaða upphæð skuli færa hér til frádráttar. 6. Iðgjald af lífsábyrgð. Hér skal færa greitt iðgjald af líftryggingu. Hámarksfrádráttur fyrir þá, er greiða í lífeyrissjóð og njóta frádráttar skv. frádrátt- arlið 5, er kr. 6.000,—, en kr. 9.000,— fyrir aðrar. 7. Sjúkrasamlag. Hér skal færa greitt sjúkrasam lagsgjald fyrir árið 1968, eins og það var á samlagsi?væði framtelj- anda. Sjúkrasamlagsgjald iðln- nema og sjómanna, sem greitt er af vinnuveitanda, færist því ekki á þennan lið. í Reykjavík var gjaldið kr. 1.800.— fyrir einhleypan og kr. 3.600.— fyrir hjón. 8. Alm. tryggingagjald. Hér skal færa almannatrygg- ingagjald álagt 1968. Fullt gjald var: Kr. 4.730.— fyrir hjón, kr. 4.300,— fyrir einhl. karl og kr. 3.225.— fyrir einhl. konu . Innemar greiða ekki sjálfir alm. tryggingagjald. Framtelj- endur yngri en 16 ára og 67 ára og eldri greiða ekki alm. trygg- ingagjald. Þessir aðilar færa því ekkert í þennan frádráttarlið. 9. Stéttarfélagsgjald. Hér skal rita nafn stéttarfélags og ársgjaldið í kr. dálk. 10. Greitt fæði á sjó .... dagar. Hér skal rita dagfjölda, sem framteljandi er skráður á ís- lenzkt fiskiskip og greiðir fæði sitt sjálfur. Síðan skal margfalda dagfjölda með tölunni 64 og færa útkomu í kr. dálk. 11. Slysatr. á íslenzku skipi . . . vikur. Hér skal rita vikufjölda, sem framteljandi er háður sljrsatrygg ingarðjaldi sem lögskráður sjó- maður á íslenzku skipi. Elf fram- teljandi er lögskráður á íslenzkt skip í 26 vikur eða lengur, skal margfalda vikufjöldann með töl- unni 808 og færa útkomu í kr. dálk. Sé framteljandi lögskráður á íslenzkt skip skemur en 26 vik- ur, skal margfalda vikufjöldann með tölunni 116 og færa útkomu í kr. dálk. Hlutaráðnir menn skulu og njóta sama frádráttar, þótt þeir séu eigi lögskráðr, enda geri út- gerðarmaður fulla grein fyrir, hvernig hlutaskiptum er farið og yfir hvaða tímabil launþegi hefir tekið kaup eftir hlutaskipt- um. 12. Skylduspamaður. Hér skal færa þá upphæð, sem framteljanda, á aldrinum 16-25 ára, var skylt að spara og inn- færð er í sparimerkjabók árið 1968. Skyldusparnaður er 15% af launatekjum eða sambærilegum atvinnutekjum, sem unnið er fyr- ir á árinu. Sparimerkjakaup umfram skyldu eru ekki frádráttarbær. 13. a. 50% af launatekjum konu. Hér færist helmingur upphæð- ar, sem talin er í tekjulið 12. Ef teknanna er aflað hjá fyrirtæki, sem hjónin eiga, annað hvort eða bæði, eða ófjárráða börn þeirra, skal frádráttur ekki færður í þennan lið, heldur í b-lið þessa töluliðar. b. Vegna starfa konu við atv.r. hjóna. Hér skal færa frádrátt vegna starfa eiginkonu við atvinnu- rekstur, sem hjónin eiga, annað hvort eða bæði, eða ófjárráða börn þeirra. Meta skal hluta konunnar af sameiginlegum hreinum tekjum hjónanna, miðað við beint vinnu- framlag hennar við öflun tekn- anna. Til frádráttar leyfist 50% af hluta hennar, þó aldrei hærri upphæð en kr. 15.000,—. 14. Sjúkra- eða slysadagpeningar Hér skal færa til frádráttar sjúkra- eða slysadagpeninga úr almannatryggingum, sjúkrasam- lögum og sjúkrasjóðum stéttar- félaga, sem jafnframt ber að telja til tekna undir tekjulið 9. 15. Annar frádráttur. Hér skal færa þá frádráttar- liði, sem áður eru ótaldir og heimilt er að draga frá tekjum. Þar til má nefna: 1. Afföll af seldum verðbréf- um (sbr. A-lið 12. gr. laga). 2. Ferðakostnað vegna lang- ferða (sbr. c-lið 12. gr. laga) 3. Gjafir til menningarmála, vísindalegra rannsóknar- stofnana, viðurkenndrar líknarstarfsemi og kirkjufé- laga (sbr. D-lið 12. gr. laga). Skilyrði fyrir frá- drætti er, að framtali fylgi kvittun frá stofun, sjóði eða félagi, sem ríkisskattstjóri hefur veitt viðurkenningu, skv. 36. gr. reglugerðar nr. 245/1963. 4. Kostnað við öflun bóka, tímarita og áhalda til vísinda- legra og sérfræðilegra starfa, enda sé þessi kostnaðarliður studdur fullnægjandi gögnum (sbr. E-lið 12. gr. laga). 5. Kr. 41.300,— til frádráttar tekjum hjóna, sem gengið hafa í lögmætt hjónaband á árinu. 6. Frádráttur v/björgunar- launa (sbr. B-lið 13. gr. laga). 7. Frádráttur einstæðs foreldr- is, er heimili heldur fyrir börn sín, kr. 20.700,—, að viðbættum kr. 4.140,—, fyrir hvert barn. 8. Námsfrádráttur, meðan á námi stendur, skv. mati ríkis- skattanefndar. Tilgreina skal nafn skóla og bekk. Nemandi, sem náð hefur 20 ára aldri, skal útfylla þar til gert eyðublað um námskostnað, óski hann eftir að njóta réttar til frádráttar náms- kostnaðar að námi loknu, sbr. næsta tölulið. 9. Námskostnað, sem stofnað var til eftir 20 ára aldur og veit- ist til frádráttar að námi loknu, enda hafi framteljandi gert full- nægjandi grein fyrir kostnaðin- um, á þar til gerðum eyðublöð- um (sbr. E-lið 13. gr. laga). 10. Afskrift heimæðargjalds v/hitaveitu í eldri byggingar 10% á ári, næstu 10 árin eftir að hitaveita var innlögð. Heimæðagjald vegna hita- veitu í nýbyggingar telst með byggingakostnaði og má ekki af- skrifa sér í lagi. 11. Sannanlegan risnukostnað, þó eigi hærri upphæð en nemur risnufé til tekna, sbr. lið III, 13. Greinargerð um risnukostnað fylgi framtal, þar með skýringar vinnuveitenda á risnuþörf. 12. Sannanlegan kostnað vegna rekstrar bifreiðar í þágu vinnu- veitenda. Útfylla skal þar til gert eyðublað „Bifreiðastyrkur og bifreiðarekstur", eins og form þess segr til um. Enn frem- ur skal fylgja greinargerð frá vinnuveitanda um ástæður fyrir greiðslu bifreiðastyrksins. Til frádráttar kemur sá hlut heildar rekstrarkostnaðar bifreiðarinnar, er svarar til afnota hennar í þágu vinnuveitanda, þó eigi hærri upphæð en nemur bifreiða styrk til tekna, sbr. lið III, 13. Hafi framteljandi fengið greiðslu frá ríkinu á árinu 1968 fyrir akstur eign bifreiðar sinn- ar í þess þágu og greiðslan var miðuð við gjaldskrá fjármála- ráðuneytisins fyrir ekinn km., er honum heimilt að færa hér til frádráttar sömu upphæð og færð var til tekna vagna þessarar greiðslu, sbr. III, 13., án sérstakr ar greinargerðar. 13.1 Ferðakostnað og annan kostnað, sem framteljandi hefur fengið endurgreiddan vegna fjar veru frá heimili sínu um stund- arsakir vegna starfa í almenn- ingsþarfir. Til frádráttar kemur sama uppæð og talin er til tekna, sbr. ni, 13. 13. 2 Beinan kostnað vegna ferða í annnarra þágu, þó eigi hærri upphæð en endurgreidd hefur verið og til tekna er talin, sbr. III, 13. Aðar liði framtals skal útfylla eins og eyðublaðið segir til um, svo seln: Á bls. 2 færist greidd heimilis- aðstoð, álagður tekjuskattur og tekjuútsvar svo og greidd húsa- leiga. Á bls. 4 í D-lið ber að gera ná- kvæma grein fyrir kaupum og sölum fasteigna, bifreiða, skipa, véla, verðbréfa og hvers konar annarra verðmætra réttinda. Enn fremur ber að tilgreina þár greidd sölulaun, stimpilgjöld og þinglesningarkostnað svo og af- föll af seldum verðbréfum. í G-lið á sömu bls. skulu ‘il- færðar skýringar eða athuga- semdir framteljanda. Ennfremur umsókn um tekjuskattsívilnanir skv. ákvæðum 52. gr. laganna (sbr. 49. gr. reglugerðar nr. 245/ 1963). Umsókn skulu fylgja full- nægjandi upplýsingar og gögn, t.d. læknisvottorð. Að lokum skal framtalið dag- sett og undirritað af framtelj- anda. Ef um sameiginlegt fram tal hjóna er að ræða, skulu þau bæði undirrita það. ATHYGLI skal vakin á því, að sérhverjum framtalsskyldum að- ila ber að gæta þess, að fyrir hendi séu upplýsingar og gögn, er leggja megi til grundvallar framtali hans og sannprófunar þess, ef skattyfirvöld krefjast. Öll slík gögn, sem framtalið varða, skulu geymd a.m.k. í 6. ár, miðað við framlagnignu skatt- skrár. Lagatilvitnanir í leiðbiningum þessum eru í lög nr. 90/1965, sbr. lög nr. 78/1967, um tekjuskatt og eignarskatt. Reykjavík, 10. janúar 1967 Ríkisskattstjóri. HÆTTA Á NÆSTA LEITI eftir John Saunders og Alden McWilliams ,,Velkominn, herra Lake. Herra Raven bíður yðar við barinn. Hann er niður. sokkinn í einhverja bókina, eins og venju lega . . . . . . Mig minnir, að hann segði hana fjalla um hagfræði og alþjóðleg viðskipti." „Sá, sem les slika þvælu, hlýtur að vera drepleiðinlegur!“ „Það leyfi ég mér að efast um, Troy. Þarna er hann. Gott kvöld, Danny!“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.