Morgunblaðið - 27.03.1969, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. MARZ 106»
tJltgelaindl H.f. Árvafcur, Reyfcjaivifc.
FnamlavíBmdjaisfcj órt Hiaraldur Sveinsaon.
‘RitBtgórai' Sigurður Bjamiasoon frá VigutP.
MaiífM:as Joteuiesslen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Ritsitjómarfullbrúi Þorbjöm GuÖmundsson.
Firéttaistjóri Björn Jóhannsson!.
AuglýsingaHtjóri Árni Garðar Kristinsson.
Eitstjórn oig afgreiðsla Aðalstræti 6. Sími KMflO.
Auiglýsdngao? Aðalstræti 0. Sími 22-4-80.
ÁsfcrMtargj'ald fcr. ISO.Oð á nránuði innanilainds.
í lausasoiu: fcr. 10.00 eintafcið.
FRJÁLSLEGRI SAM-
SKIPTI HINS OPIN-
BERA OG AL-
MENNINGS
¥ áratugi hefur sú venja ríkt
*■ hér meðal stjórnmála-
manna og embættismanna að
vera mjög sparir á upplýsing-
ar um opinber málefni gagn-
vart fréttastofnunum og raun
ar öllum almenningi. Vafa-
laust hefur þessi venja, að
einhverju leyti skapast vegna
þess, að fyrr á árum gátu em-
bættismenn og stjórnmála-
menn búist við því að snúið
væri út úr ummælum þeirra
og upplýsingar þeirra rang-
túlkaðar í andstæðingablöð-
um. Nú er þetta breytt. Stjórn
málamenn og embættismenn
geta yfirleitt treyst því að um
mæli þeirra séu rétt eftir höfð
í fréttum blaða, þótt þau
leggi að sjálfsögðu mismun-
andi mat á slík ummæli eða
sjónarmið, sem fram koma, í
ritstjórnargreinum sínum.
En þótt blöðin hafi tekiðupp
ný og betri vinnubrögð er hið
gamla viðhorf furðu lífseigt,
að bezt sé að gefa sem allra
minnstar upplýsingar um
opinber málefni. Þessi gamli
hugsunarháttur kom glögg-
lega fram á fundi borgar-
stjórnar Reykjavíkur í síð-
ustu viku. Einn af borgarfull
trúum Framsóknarflokksins
gerði athugasemd við það að
borgarstjóri hefði á blaða-
mannafundi gefið upplýsing-
ar um mál, sem var og er á
umræðustigi hjá borginni.
Taldi borgarfulltrúinn að
borgarstjóra væri ekki heim-
ilt að gefa upplýsingar um
slík mál fyrr en þau hefðu
verið rædd í borgarráði eða
öðrum stofnunum borgarinn-
ar.
Hér er komið að algjöru
grundvallaratriði í samskipt-
um hins opinbera við almenn
ing. Geir Hallgrímsson, borg-
arstjóri, svaraði þessari at-
hugasemd á þann veg, að
hann teldi sér heimilt að gefa
upplýsingar á blaðamanna-
fundi um mál, sem eru á um-
ræðustigi hjá borginni og
skýra jafnframt frá þeim val-
kostum, sem fyrir hendi væru
til þess að leysa tiltekin verk-
efni, þannig að borgararnir
geti fylgzt betur með því á
hverju ákvarðanir borgaryfir
valda byggjast.
Borgarful’trúi Framsóknar-
flokksins var á þessum borgar
stjórnarfundi málsvari hinna
gömlu úreltu viðhorfa að al-
menningi komi ekki við
hvernig um hans málefni er
fjallað. í gær bregður svo við
að dagblaðið Tíminn tekur
undir þessi gamaldagsviðhorf
borgarfulltrúans og er það
einkennileg afstaða af hálfu
fréttablaðs.
Geir Hallgrímsson hefur
hins vegar með sinni afstöðu
til þessa máls markað nýja
stefnu í samskiptum hins
opinbera við almenning. Með
því að veita fréttastofnunum
upplýsingar um mál, sem eru
til meðferðar hjá opinberum
aðilum, jafnvel þótt ákvörð-
un hafi ekki verið tekin,
stuðla stjórnmálamenn og
embættismenn að opnara
stjórnmálastarfi en krafa
æskunnar um breytingar í
stjórnmálum hefur einmitt
beinzt að því að opna stjórn-
málastarfsemina meir én nú
er.
Vissulega er ástæða til að
harma það, að annar stærsti
stjórnmálaflokkur landsins og
málgagn hans skuli enn hafa
svo úrelt og stöðnuð viðhorf
til þessara þýðingarmiklu
mála. Það sýnir að við ramm-
an reip er að draga. Hin
gömlu sjónarmið eru furðu
lífseig. En þrátt fyrir það, að
Framsónarflokkurinn hafi
tekið upp baráttu fyrir því
að halda í gamlar venjur, sem
ekki eru í neinu samræmi við
hugsunarhátt manna nú á
tímum er enginn vafi á því,
að samskipti hins opinbera
við almenning munu í fram-
tíðinni í vaxandi mæli verða
opnari og frjálslegri.
EFTIRTEKTAR-
VERÐUR
ÁRANGUR
¥Tm þessar mundir stendur
yfir fatakaupstefna í
Kaupmaniiahöfn og taka ís-
lenzk fyrirtæki þátt í henni.
Tilgangur þeirrar þátttöku er
að kanna möguleika á útflutn
ingi þeirra framleiðsluvara,
sem þar eru sýndar.
í gær skýrði Mbl. frá því
að borizt hefði pöntun til ís-
lenzks aðila frá Hollandi en
fyrirtæki þar í landi vill
kaupa 500 pelsa að verðmæti
um 7 milljónir króna. Þetta
litla dæmi sýnir glögglega
hvílík tækifæri eru fyrir
hendi í þessum efnum. Hitt
er svo annað mál, að pöntun-
in er svo stór að hið íslenzka
fyrirtæki getur ekki annað
SÉRFRÆÐINGAR telja að á
næstu 35 árum þurfi heimurinn
að nota jafn mikið magn af alls
konar málmum, og notað hefur
verið síðastliðinn 2000 ár. —
Orkuþörfin á næstu 20 árum
verður þreföld á við það sem
hún hefur verið síðastliðin 100
ár. Matvælaframleiðslan verður
að aukast um helming á næstu
20 árum. Dr. Julius Stratton,
tæknifræðingur, telur að við höf
um nægilegt vatn og annað,
sem þarf til að draga fram lif-
ið, fram til ársins 2000. En það
eru aðeins 31 ár þangað til.
Framsýnir menn í Bandarfkj-
unum leggja nú hart að ríkis-
stjórninni að veita fé til haf-
rannsókna, því hafið er það ein-
asta sem getur bjargað okkur
þegar auðlindir á landi þrjóta.
Þeir vilja fá 20 milljarða dollara
á næstu tíu árum, til að undir-
búa nýtingu hafsins og hafs-
botnsins. Hafið hefur að geyma
nægileg matvæli til að forða
hungri, nægilega málma til að
halda iðnaðinum gangandi og
nægilegt vatn (sem breytt yrði
í ferskvatn) til að sjá fyrir þörf-
um mannkynsins og landbún-
aðarins um ókomna framtíð.
Það er þegar búið að byggja
mikinn fjölda alls konar rann-
sóknarkafbáta, og menn hafa
búið langtímum saman í sér-
stökum húsum á hafsbotni. Þar
er verið að finna haldgóða að-
ferð til að gera mönnum kleift
að nýta hafið eins og bændur
nýta akra í dag. Búgarðar á
hafsbotni verða orðnir að veru-
Nýting auöæva hafsins
-leika áður en langt um líður, í
Bandaríkjunum eru menn þegar
byrjaðir að stunda fiskirækt og
skeldýrarækt þótt í smáum stíl
sé.
Fiskirækt er greinilega nauð-
synleg. Heildarafli í heiminum
er nú um 50 milljón lestir á ári
og innan tíðar mun hann tvö-
falda-st og þrefaldast. Vísinda-
menn óttast þó ekki fiskþurrð
því það er svo auðvellt að koma
í veg fyrir hana. Með sérstökum
aðferðum er hægt að auka fisk-
magnið þannig að aflinn getur
vel orðið 500 milijón lestir á
ári án þess að stofninn bíði
tjón af.
Og það eru ekki bara fiskabú
sem verða reist á hafsbotni, þ.
e. ekki aðeins fyrir algengustu
nytjafiska eins og þorsk, ýsu
og þar fram eftir götunum. Það
verða einnig reistir stórir bú-
garðar sem rækta humar, krækl-
ing, rækjur, krabba, lax, silung,
ostrur og allt sem nöfnum tjáir
að nefna. Þá verður Ifka áreið-
anlega búið að finna einhverjar
leiðir til að nýta ýmis sjávar-
dýr sem menn leggja sér ekki til
munns í dag, og það verður
víðar en í Japan sem menn
fussa ekki við loðnu, og víðar
en í Biafra sem menn borða
skreið.
Olfulindir á hafsbotni verða
líka nýttar enn betur en í dag.
Það eru nú þegar um 12000
olíulindir út af strönd Banda-
ríkjanna, og verkfræðingar telja
sig vera búnir að finna nýja
stórkostlega brunna undan,
ströndum Alaska og Kanada.
Málmar verða einnig unnir i
stórum stíl, og menn eru þegar
byrjaðir að sækja gimsteina nið
ur á hafsbotninn. Sjórinn sjálf-
ur (vatnið) er auðugur af alls
konar málmum og efnablöndum
sem hægðarleikur er að nýta.
Við skulum taka sem dæmi
ferskvatmsvinnslustöðvar sem
ynnu samtals 7 milljarða gall-
óna ferskvatns úr sjónum ár-
lega. I hliðarframleiðslu fengj-
ust m. a. 100 milljón lestir af
pottösku, 250 þúsund lestir af
brómi, 50 þúsund lestir af
strontium og 3 kíló af skíra
gufli.
Það er því engin furða þótt
vísindamenn vilji óðir og upp-
vægir byrja að nýta þessi auð-
ævi að einhverju leyti, þau
gætu stórlega bætt afkomu
heimsins ... og svo eru ekki
nema 31 ár fram til ársins 2000.
® UTANÚRHEIMI
HGH efnir til hungnrvöku
nm bænadngona
henni. Það er einnig vísbend-
ing um að vandamálin í sam-
bandi við útflutning geta
orðið önnur en þau að fram-
leiðsluvörur okkar seljist
ekki.
í viðtali við Mbl. í gær
benti Úlfur Sigurmundsson,
forstöðumaður útflutnings-
skrifstofu iðnrekenda á að
vegna 20% tolls á flestum iðn
áðarvörum væri aðild að
EFTA nánast skilyrði fyrir
því að söluherferð á erlend-
um mörkuðum gæti borið
árangur. Ætti sú staðreynd að
vera nokkurt íhugunarefni
fyrir þá sem nú eru haldnir
efasemdum um aðild íslands
að EFTA.
FRAMKVÆMDANEFND HGH
hefur ákveðið að gangast fyriir
hungurvöku um bænadaga þá,
er í hönd fara 3. og 4. apríl n.k.
Tilgangur hennar er að sýna sam
hug með hinum hrjáðu þjóðum
þróunarlandanna, lýsa samábyrgð
á örlögum þeirra og vilja þeirra,
að sett verði löggjöf hér á landi
um aðstoð af íslands hálfu við
þróunarlöndin. Unnið er nú að
undirbúniingi hennar. Hún mun
standa Skírdag, aðfaranótt föstu
dagsins og föstudaginn langa.
Verður hún haldin í nýbyggingu
Menntaskólans í Reykjaví'k (Casa
Nova). Þar verður fastöndum bú
in svefnaðstaða.
Næring verður aðeins vatn eitt
allan tímann. í því sambandi
skal þess getið að efnt verður
til „Hanastéls í vatni“ og þangað
boðið ýmsum forystumönnum
þjóðarinnar, svo þeir megi af eig
in raun kynna sér hvers vegna
efnt sé til hungurvökunnar.
Dagskrá hungurvökunnar verð
ur margþætt og er nú unnið að
undirbúningi hennar. Meðal dag
skráratriða verða: umræðuihóp-
ar, fræðsluerindi, hugvekja,
kvöldvaka, kvikmyndasýningar,
lestraraðstaða verður fyrir nem-
endur o. fl.
Þess er vænzt að skólafólk úr
hinum æðri skólum borgarinnar
fjolmenni til föstu þessarar.
1 (Fréttatillkynning).