Morgunblaðið - 27.03.1969, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. MARZ 1969
Orðsending til for-
manns stúdentaráðs
1 GREIN sem þú birtir i Morgun-
blaðinu 8. þ.m., segist þú vilja
benda á nokkur atriði, sem varp-
að gætu ljósi á sumt af því, sem
ctendur í grein minni „Heila-
flótti“, sem birtist í Morgunblað-
inu 1. þ.m.
Sem formaður stúdentaráðs
ber þér eflaust að bregða skildi
fyrir þína félaga, ef ómaklega er
að ykkur vegið.
En í þessari grein minni nefni
ég aðeins nokkrar staðreyndir,
sem flestum eru kunnar, en
margir kveinka sér þó við að
ræða, og því síður að nefna rétt-
um nöfnum. Og mér þykir trú-
legt, að það sé vegna þeirrar ein-
urðar, sem þú -snýst svo óburðug-
lega við með þína ljóstýru, sem
frekar er ætlað að varpa skugg-
um en birtu.
Mér gekk aðeins gott til að
benda á það sem betur mætti
fara, og á þær hættur, sem blasa
við. Mér er ekkert síður annt
um Háskóla íslands en þér og
öðrum nemendum skólans, enda
hef ég lagt honum til, lengur en
þú og aðrir á þínum aldri. Há-
skóli íslands er þjóðfélagsstofn-
un, en ekkert einkafyrirtæki
þeirra stúdenta, sem njóta þar
tilsagnar og handleiðslu hverju
sinni.
En það er slæmt fyrir þá stofn-
un Höskuldur, ef þú og aðrir
stúdentar gefið tilefni til, að þjóð
in fái sama álit á háskólastúdent
um, og bóndi, sem ég þekki fyrir
vestan, hafði á Þingeyingum.
Bóndi þessi hafði vinnumann,
sem talinn var fremur fávís.
Stundum fannst bónda að hann
þyrfti að afsaka fávizku vinnu-
mannsins og sagði þá gjarnan:
„Hann er úr Þingeyjarsýslunni,
skinnið, og þekkir því lítið til á
íslandi".
En það er einmitt þetta, sem
einkennir þessa grein þína, og
alltof margt annað, sem stúdent-
ar láta frá sér heyra. Þið virðist
ekki, eða viljið ekki sjá, hve
mörg eru verkefnin, sem þarf að
sinna samtímis, í okkar stóra og
góða landi. Það er kannski ósann
gjarnt að ætlast til þess, að fólk
um tvítugt geri sér grein fyrir
því helzta, sem gerzt hefur á ís-
landi síðastliðin 30 ár, því þar
er í mörg horn að líta. Ég vil
aðeins benda þér á, að í áratugi
hafa skólamenn sent frá sér til-
lögur, og lagt fram kröfur um
lagfæringar og endurbætur á
skólakerfinu, bætta starfsað-
stöðu, launakröfur o.fl. Mörgum
hefur fundizt sá róður ganga
seint, en þó hefur framlag til
menntamála verið aukið frá ári
til árs, og nú á síðasta ári var
varið 1400 millj. króna til
menntamála. En nú viljið þið há-
skólastúdentar innleiða nýja siði,
sem mörgum hrýs hugur við. Sú
kynslóð stúdenta, sem er að vaxa
úr grasi og nýtur meiri og betri
menntunarskilyrða en nokkur
önnur kynslóð hefur áður fengið,
kann svo engin önnur ráð til að
fá málum sínum framgengt en
hóta því að grípa til líkamsmeið-
inga og eyðileggingarstarfsemi.
Ég er svo mikið nátttröll, að mér
finnst eitthvað bogið við, ef slík-
ur er árangur af aukinni og
bættri menntun.
Þú segir: „Stefnt er að því að
tryggja með fjárhagslegum stuðn
ingi, að efnilegir menn geti ekk-
ert siður átt þeas kost að stunda
framhaldsnám, þótt faðir þeirra
sé fátækur verkamaður en þótt
hann væri einhver nýríkur
njóli“.“. (Hugguleg nafngift fyr-
ir þá, sem eiga yfir höfði sér
stóru vinningana í H.H.Í.)
Fræðslulöggjöfin frá 1946 átti
að stuðla að jafnrétti til náms,
og ákvæðin um landspróf mið-
skóla, í þeim lögum, átti að
greina hafrana frá sauðunum.
Um jafnréttið er ekki lengur
deilt, en um landsprófið verða
sennilega alltaf deilur.
Á það hefur verið bent, að auð
velt sé að auka stúdentafjöldann
með því að draga ur námskröf-
um.
Bandaríkjamenn útskrifuðu
73% stúdenta af fæðingarárgangi
1963 og ætla sér að ná 80% mark
inu 1970.
Samskonar tölur: 1963 og 1970
Grikkland 18 % ” 25%
Svíþjóð 14 % ” 30%
ísland 8,8% ” 14%
Danir, Englendingar og Vest-
ur-Þjóðverjar hafa einnig verið
taldir til menningarþjóða, þar
líta tölurnar þannig út:
1963 og 1970
Danmörk 7% ” 9%
England 7% ” 9%
V-Þýzkaland 8% ” 8%
Þess má geta í sambandi við
80% hjá Bandaríkjamönnum, að
þar sem ólæsi þekkist ekki, þar
er talið að 15—20% af hverjum
fæðingarárgang hrökklist út af
eðlilegri námsbraut á skyldu-
námsstiginu. Það þýðir, að í
Bandaríkjunum er verið að af-
nema stúdentspróf í venjulegri
merkingu. 80% markið er aðeins
viðurkenning á því, að sá hundr-
aðshluti nemenda sitji einhvern
ákveðinn árafjölda í skólabekk.
Rannsóknir dr. Matttiíasar Jón
assonar hafa leitt í lójs, að það
er nokkuð stór hópur nemenda
með lága greindarvísitölu, allt
niður í 85 grv. sem getur sloppið
í gegn um landspróf og stúdents-
próf, að vísu með lágar einkunn-
ir ,en þó með fullan rétt til inn-
göngu í háskóla.
Einnig sýna skýrslur Háskóla
íslands, svo ekki verður um deilt,
að óeðlilega stór hópur þeirra,
sem byrja háskólanám gefst þar
upp á miðri leið. Ekki hefur
þó enn verið rannsakað hverj-
ar eru orsakir þess, að allt þetta
fólk dagar uppi á námsbrautinni,
en vafalaust yrði það viðkvæmt
mál hjá mörgum, ef það yrði
með tölum talið, hve mikið þessi
mistök kosta þjóðfélagið.
Ummæli ungu hjónanna í
Morgunblaðinu 8. þ.m., Jóns G.
Stefánssonar og frú, sem bæði
hafa lokið læknanámi við H.Í.,
sýna heldur leiðinlega mynd af
starfsdegi stúdenta. Jón segir:
„Námið verður líklega stytt,
þannig að meðalnámstími verði
6 ár í stað 6% ár, og ég býst við
að í framtíðinni verði stefnt að
því að stytta námið enn meir,
niður i fimm ár“.
„Af hverju verður þá skorið?“
spyr blaðamaðurinn.
Jón svarar: „Fyrst og fremst
þeim tíma, sem hefur farið í
ekki neitt“.
Þegar við tölum um efnilega
menn til framhaldsnáms, þá
meinum við að það sé fólk með
háa greindarvísitölu (1Q).
Nú er það sannað að árangur
í námi sé fyrst og fremst háður
greind nemandans, þó fleira geti
komið þar til. Áðurnefndar rann
sóknir dr. Matthíasar benda til
að greindarvísitala 120 og hærri
sé nauðsynlegt til menntaskóla-
náms á íslandi, með núgildandi
prófkröfum. Þessi atriði eru
sá kjarní málsins, sem ekki verð-
ur komizt framhjá, og því ástæðu
laust fyrir okkur að jagast um.
í okkar fátæka þjóðfélagi verð
ur alltaf takmarkað fjármagn,
sem hægt er að leggja til fræðslu
mála og þá er um það að velja,
að háskólanemar séu takmarkað-
ur úrvalshópur, sem þjóðfélagið
hefur að verulegu leyti á sínu
framfæri, og reynir að gera vel
við, gegn ákveðnum skilyrðum.
Hinn kosturinn er sá, að halda
áfram eins Og horfir, og þynna
enn frekar þann efnivið, sem þið
segið að eigi að ve'ða burðarás-
inn í iílenzku þjóðfélagi.
í niðurlagi greinar þinnar seg-
ir þú:
„Hvað eiga íslenzkir stúdentar
að taka til bragðs, er þeir hafa
um margra ára skeið farið á frið-
samlegan hátt fram á það t.d., að
þegar í stað verði hafizt handa
um að skapa tannlæknadeild há-
íkólans einhverja aðstöðu, ennþá
bólar ekki á neinni lausn. Samt
vita allir um geigvænlegan tann-
læknaskort á íslandi".
Kannski getur K.H. bent á
„friðsamleg úrræði og leyst mál-
ið“.
Það er guðvelkomið.
En fyrst verður að athuga
hvort læknanemar stefni að því,
að vinna samfélaginu verulegt
gagn, eða sjálfum sér eingöngu.
Ef fégræðgi ræður því hvort
ungir menn vilja gerast tann-
læknar að iðn, þá er auðvelt að
stofna hlutafélag eða samvinnu-
félag, t.d. af starfandi tannlækn-
um, sem skilaði góðum arði.
Slíku félagi væri leikur einn, að
kosta allt nám og námsaðstöðu
tannlæknanema, gegn endur-
greiðslu og vöxtum, sem báðir
aðilar gætu vel unað.
Ef hagsmunir samfélagsins eru
látnir ráða að nokkru, væri eðli-
legt að byrja á því að athuga,
hvort námstími tannlækna sé
ekki alltof langur, og hvort til
námsins veljist nemendur með
þá handlægni, sem nauðsynleg
er. Svo mætti skapa tannlækna-
deild háskólans betri aðstöðu
með því að afla fjár með því að
semja við verkalýðsfélögin, þann
ig að félögin legðu tannlækna-
deildinni fé, gegn því að fjöl-
skyldum verkamanna væri 'hlíft
við hinu taumlausa okri tann-
læknanna, þessara ungu og
efnilegu sona fátæku verka-
mannanna og nýríku njólanna",
okri sem útilokar að verkamenn
geti notið þeirrar þjónustu, sem
eðlilegt væri að tannlæknar
veittu.
Ég læt þetta nægja. Og í þeirri
von, að þér og þínum félögum
lærist sem fyrst, að það er þraut-
reyndur gæfuvegur að elska sjálf
an sig í hófi, þá veit ég að þið
eigið eftir að vinna íslandi mikið
gagn.
í guðs friði.
Kristján Haildórsson, kennari.
GfM.DS'UlVE
OPAL SOKKABUXUR
eru framleiddar úr úrvals crepegarni.
OPAL SOKKABUXUR
eru framleiddar af stærstu sokkaverk-
smiðju Vestur-Þýzkalands.
OPAL SOKKABUXUR
eru fallegar og fara sérlega vel á fæti.
OPAL SOKKABUXUR
eru á mjög hagstæðu verði.
OPAL SOKKABUXUR
seljast þess vegna bezt.
Kaupið aðeins það bezta
Kaupið OPAL 80KKA
og SOKKABIJXUR
Einkaumboðsmenn:
Kr. Þorvaldsson & Co. heildverzl.
Grettisgötu 6, símar 24730 og 24478.
HÆTTA Á NÆSTA LEITI eftir John Saunders og Alden McWilliams
Því miður höfum við enga fanga-
geymslu, svo að ég verð að biðja ykkur
að dvelja smástund i lestinni, sem er tóm
{ augnablikinu. Og ég sem bjóst við að fá
fína dagstofu til umráða. (2. mynd).
Hættu að segja brandara, Danny, þessi
vitleysingur ætlar að fleygja okkur fyr-
ir borð. Við erum ekki drukknaðir ennþá
Troy. (3. mynd). En við verðum að finna
einhverja leið til að jafna lcikinn. Ég
er ósköp lítið fyrir að ráðast gegn vél-
byssukjöftum.