Morgunblaðið - 27.03.1969, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FTMMTUDAGUR 27. MARZ 1969
Kay og hvarf inn í hópinn, sem
var að horfa á dansinn.
Ég laut niður til að tala við
Lucy, svo að Don sæi ekki, að
ég hafði heyrt þessi orðaskipti.
og ég vonaði, að Lucy hefði
ekki heyrt þau. Hélt ekki, að
hún hefði gert það. Hún var svo
upptekin að horfa ,á dansinn. Ó,
Kay, hugsaði ég, hvernig get-
urðu verið svona vitlaus? Því
að svona átti hún ekki að haga
sér. Og það mundi henni verða
ljóst, þegar hún yrði svolítið
STUNDID
HÚSMIBRWKIÍIMM
í Danmörku, 3ja eða 5 mánaða
námskeið fyrir ungar stúlkur
með góðum skilmálum. Frá m-aí,
ágúst, okt. eða jan. Skrifið og
við sendum skólaskýrslu.
ALS, Husholdningsskole,
Vollerup St. v. Sönderborg, 6471
Johanne Hausen.
Mjðlkurfélag Reykjavíkur
'm
ÁLFTAMÝBI 7
rLÓMAHUSIÐ}
simi 83070
Opið alla daga, öll kvöld pg
um helgar.
Skrautinnpökkun á fermingar-
1 gjöfum.
Fermingarnellik ur.
eldri, og reyndari. Og mér fannst
að enda þótt hún væri að þykj-
ast vera fullorðin, þá væri hún
raunar ekki annað en krakki enn.
Þegar hún kom aftur, skömmu
seinna, stakk ég upp á því, að
við færum heim. Ég vissi,
að Lucy var orðin þreytt. Hvað
sjálfa mig snerti, þá óskaði ég
þess eins, að þessi dagur væri á
enda, og ég gæti farið í rúmið
og sofið og gleymt ö'llu, sem
gerzt hafði um daginn.
Nei, þó ekki ölTU. Ég vildi ekki
gleyma því, að Bob hafði haldið
mér í faðmi sér og kysst mig.
En hinu öllu langaði mig til að
gleyma.
- Ég er þreytt, sagði ég við
Kay, — og ég er viss um, að
Lucy er það líka.
— Mér hefur þótt gaman,
sagði Lucy, en ég vil nú gjarna
fara heim samt. Við skiluðum
hj^lastólnum aftur í Rauða
Kross-tjaldið, og Lucy háltraði
að bílnum og studdist við hand-
legginn á mér.
— Hvernig er með hann
Mark? spurði hún. — Já, vitan-
lega fór hann á hjólinu sínu,
því var ég alveg búin að gleyma.
Hann er sjálfsagt farinn heim
fyrir löngu. Ég held hann hafi
ekkert sérlega gaman af svona
samkomum. Líklega er hann eitt
hvað að fást við búverkin með
honum Bob.
Það þótti mér trúlegt. Mark
leið aldrei betur en þegar hann
var að vinna með Bob, oft 'langt
fram á kvöld. Að minnsta kosti
hafði ég aldrei neinar áhyggjur
af Mark. Hann var að öllu leyti
vel sjálfbjarga sextán ára ungl-
ingur.
— Nick er sjálfsagt með henni
Debóru, sagði Kay, er við stig-
um upp í bílinn.
— Já, ætli ekki það. Hann
fór heim til hennar og átti víst að
aka henni á skemmtunina í litla
sportbílnum, sem pabbi hennar
gaf henni á afmælisdaginn henn
ar.
Mér var il'la við, að Nick
væri að aka bílnum hennar De-
bóru, en það þýddi nú víst ekki
mikið að nefna það. Þegar Nick
fór út með Debóru, var það venj
an að hann ók heim til hennar í
Ford-skriflinu sínu en síðan í
sportbílnum, sem mér fannst alls
ekki viðeigandi fyrir átján ára
stúlku og var illa við að Nick
æki honum.
Nick hafði komið til mín um
daginn, þegar ég kom frá John
og spurt, hvernig mér hefði geng
ið. Og gleði hans, þegar hann
hafði heyrt um þennan gálga-
frest, sem John hafði gefið, var
ólýsanleg. — Þú heldur þá ekki,
að hann muni kæra mig? hafði
hann spurt með skjálfandi
röddu.
Ég sagði honum, að ég héldi
ekki hann mundi gera það, og
að John yrði burtu í hálfan
mánuð og á meðan skyldi Nick
halda áfrma vinnu sinni, eins og
ekkert hefði í skorizt.
Ég þrýsti á ræsinn og það
kom ofurlítið hljóð, rétt eins og
vélin gerði sitt bezta til þess að
fara í gang, en þvínæst gafst
hún upp.
— Æ, guð minn góður, stundi
Kay. — Þú ætlar þó ekki að
fara að segja mér, að bölvaður
skrjóðurinn ætli ekki að fara í
gang?
— Hann ætti að minnsta kosti
að gera það.
Ég reyndi aftur, en árangurs
laust.
— Það er eins og hann sé orð-
inn rafmagnslaus, sagði Lucy.
— Það er hann likast til.
Og þannig virtist það líka
vera.
— Hvað eigum við þá til
bragðs að taka? sagði Kay.
® Notaðir bílar til sölu
Volkswagen árg. '63 og '67.
Volkswagen 1200 árg. '68.
Volkswagen 1300 árg. '68 og '69.
Volkswagen Fastback árg. '66.
Volkswagen sendibifreiðar árg. '64 og '65.
Land-Rover árg. '62 og '63, bensín og dísil.
S'imi 21240 HEKLA 1 íL Laugavegi 170-17 2
Maðurinn minn er sjaldan heima. Hann hefur ekki neinar
tilfinningar eða skilning á notalegu heimili.
— Eruð þið eitthvað í vandræð
um? sagði John og leit inn um
framgluggann hjá mér.
John hafði komið seint á há-
tíðina. Hann hafði boðið mér upp
í dans en ég neitað. Ég óskaði
þess heitast, að litli bíllinn okk-
ar, sem venjulega mátti treysta
hefði ekki valið einmitt þessa
stund til að svíkja okkur.
— Það er líkast því, að við
verðum að vera hér í nótt, sagði
Kay.
— Nei, vitánlega þurfið þið
þess ekki, sagði John. Ég skal
aka ykkur heim og svo bið ég
hann Bert Draycott að setja ann
an geymi í bílinn ykkar og koma
með hann til ykkar meðan hann
hleður geyminn.
Bert Draycott hafði bílaverk-
stæðið á staðnum en nú var
hann á hátíðinni og verkstæðið
því lokað.
Kay brosti ánægð í fyrsta
sinn það kvöld.
Hrúturinn, 21. marz — 19. apríl
Keyndu aö vinna aftur fyrir J)ig, og Ijíika því, sem þú átt ógert.
Nautið, 20. apríl — 20. maí
Reyndu að sjá þér út þá sem minna liafa, <>g deila bróðurlega.
Tvíburarnir, 21. maí — 20. júní
Ef þú lánar eitthvað í dag er bezt aö afskrifa það aiveg.
Krabbinn, 21. júní — 22. júlí
Allt er hversdagslegt, en reyndu að vinna vel.
Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst
Bíddu með nýjar framkvæmdir, og reyndu að ræða máiin.
Meyjan, 23. ágúst — 22. sept.
Reyndu að hlusta á aðra. i'ú ert í undarlegum hópi fólks.
Vogin, 23. sept. — 22. okt.
Taktu öllu eins létt og kostur er, það er auðveldara en þú heldur.
Sporðdrekinn, 23. okt. — 21. nóv.
Bezt er að vera heima atburðanna vegna, þótt þig langi út.
Bogamaðurinn, 22. nóv. — 21. des.
Eitthvað árar illa í bili, því er bezt að hafa hægl um sig.
Steingeitin, 22. des. — 19. jan.
Erfiður dagur, og allt á eina bók lært. Vertu þolinmóður þar til
þessu linnir.
Vatnsberinn, 20. jan. — 18. febr.
Einhver þarfnast þín, en láttu þá hafa dálítið fyrir lífinu. Hugsaðu
fyrst um sjálfan þig, þá geturðu betur aðstoðað aðra.
Fiskarnir, 19. febr. — 20. marz
Ef þú hefur fé handbært, geturðu gert það sem með þarf. I»ú hefur
nóg ímyndunarafl til að finna réttu leiðina.
Borðskreytingar á fermingar-
borðið. — Pantið tímanlega.
HÁTÍÐARMATUR
VEIZLUM ATUR
HEITUR VEIZLUMATUR SMURT BRAUÐ
KALT BORÐ - KALDIR RÉTTIR KAFFISNITTUR
GRILLRÉTTIR COCTAILSNITTUR
J/r
Utvegum veizlusal fyrir 30-80 manns
SENDUM HEIM E F OSKAÐ ER
HALLARMULA
SÍMI 37737