Morgunblaðið - 27.03.1969, Page 27
MORG-UNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. MARZ H960
27
1 tilefni af 50 ára afmæli Póst mannafélagsins í gær var kaffi-
stofa póstmanna í Pósthúsinu í Reykjavík skreytt með fánum
og blómum, eins og sjá má á þessari mynd, sem Ijósmyndari M
bl. tók í gær.
Líf Pakistana að fær-
ast í eðlilegt horf
Herlög, sem gera ráð fyrir húðstrýkingum
og attökum, þurfti til að koma á kyrrð
KARACHI 26. marz — AP.
Yaya Khan, hershöfðingi, hinn
nýi þjóðarleiðtogi Pakistana,
hélt landinu í viðjirm herlaga í
dajg — og var það fyrsti rólegi
dagurinn hér eftir nærfellt fjög-
urra mánaða óeirðir og deillur.
Hörðum refsingum er hótað
brjóti menn herlögin, þar á
meðal löngum fangelisisdómum,
húðstrýkingum og aftökum ef
ekki dugi minna til þess að
'koma á friði með þessari 120
milljón manna þjóð.
Um gjörvaHt landið virtist
sem ástandið væri loks að fær-
a®t i eðlilegt borf á ný. Reykur-
inn liðaðist upp af verksmiðj-
uim, sem áður voru stöðvaðar
vegna verkíalla.
Tilkynnt var í mörgum borg-
um að skólar yrðu opnaðir á ný
í riæstu viku, en þeir haifa verið
lokaðir allar götur frá því í
nóvermber í fyrra, er stúdentar
gegnu út úr þeim í mótrmæla-
skyni við stjórn Ayub Khans.
Ayub Khan fól Yaya Khan
hershöfðingja öll völd í landlinu
í gær. og hefur nú hafið þriggja
mánaða hvíldarleyfi að heimili
sínu í Rawalpindi, höfuðborg
landsinjs.
Yaya Khan hershöfðingi flutti
útvarpsávarp til þjóðarinnar 16
klst. etftir valdatöku sína, og
sagðist hann þá persónulega
ekki sækjast eftir neinskonar
SpUakeppni hjd
Vörn d Akureyri
HINN 16. marz sl. hófst þriggja
kvölda spilakeppni á vegum
Sjálfstæðiskvennafélagsins Varn-
ar á Akureyri. Annað spilakvöld
ið í röðinni verður 'haldið í Litla
sal Sjálfstæðishússins sunnudag-
inn 30. marz og hefst kl. 8.30. Er
allt sjálfstæðisfólk og gestir
þeirra velkomnir á spilakeppn-
HLJMSVEITIN Júdas frá Kefla-
vík efnir á laugardag til hljóm-
leika í Nýja bíói í Keflavík og
rennur allur ágóði til styrktar
aðstandendum sjómannanna, sem
fórust nú nýverið. Mun hljóm-
sveitin afhenda biskupsskrifstof-
unni upphæðina sem safnast, til
úthlutunar. Hljómleikamir hefj-
ast kl. 17.
Auík hljómsveitarinnar Júdas-
ar munu Ikoma fram á tónleik-
stjórnmálalegum metorðum. —
Ekki gaf hershöfðinginn þess
hve lengi herlögin myndu gilda
í landinu, en hann lét í ljós þá
von, að völdlin í landinu myndu
brátt verða flutt í hendur
þeirra, gem fólkið ákvæði í
frjálsum kosningum.
I>að vekur athygli að hinn nýi
ráðamaður í Pakistan hefur ekki
bannað starfsemi stjórnmála-
flokka, en það gerði Ayub Khan
1'958, er herlög voru sett, sem
giltu í 44 mánuði.
Atlanta, Georgia, 26. marz
(AP) —
FARÞEGAÞOTU frá bandaríska
flugfélaginu Delta Air Lines var
rænt í dag og áhöfnin neydd til
að fijúga þotunni til Kúbu. Með
þotunni voru 114 manns, þeirra
á meðal 26 ungir menn á leið
til San Diego í Kalifomíu, þar
sem þeir eiga að hefja herþjálf-
un.
Einn farþeganna, sem talinn er
vera frá Venezuela, dró upp
skammbyssu stundarfjórðungi
eftir flugtak frá Dallas í Texas
og neyddi eina flugfreyjuna til
að hleypa sér inn í stjórnklefa
þotunnar. Þegar þangað kom
skipaði hann flugstjóranum að
fljúga til Havana. í Havana beið
þotan í átta klukkustundir, en
fékk síðan að fara þaðan. Var
þá flogið til alþjóða flugvallarins
við Miami á Florida-skaga til
eldsneytistöku, en síðan flogið
áfram til San Diego og Los
Angeles. Flugvélarræninginn
varð að sjálfsögðu eftir í Havana.
Er þetta fjórtánda bandaríska
unum Hljómár frá Keflavik,
Keflavíkurkvartettinn, Pónik og
Einar, María Baldursdóttir, þrír
dremgir úr Drengjalúðrasvedt
Keflavíkur og nýstöfmuð hljóm-
sveit, sem nefnir sig Bólu Hjáím-
ar. Kynnir á skemmltun þessari
verður Þorsteinn Eggertsson.
Tekið er á móti miðapöntun-
rim í IIIj óðfæ ra verz lu n Siigríðar
Helgadóttur í Reykjavík, Kyndli
í Keflavík og Fólksbílastöðinni.
- 18 FÖRUST
Framhald af bls. 1.
vörubílár óbreyttra borgara, einn
leigubíll og bíll í eigu hins opin-
bera.
Hussein Jórdaníukonungur er
sagður hafa þegar haldið á stað-
inn til þess að stjórna þar hjálp
arstarfinu. Með honum voru einn
ig heilbrigðismálaráðherrann og
innanríkisráðherrann. Virtist
þetta benda til þess að venuleg-
ar skemmdir hafi orðið í árás-
inni.
SÍÐUSTU FRÉTTIR
í kvöld lagði Jórdaníustjórn
fram formlega kæru á hendur
Israelsmönnum fyrir að hafa
valdið dauða og sært óbreytta
borgara í árásinni í dag, og ósk-
aði Jórdaníustjórn þes'S, að Ör-
yggisráðið yrði kvatt .saman til
skyrudifundar þegar í stað. Sér-
stakur fundur um málið hefur
verið boðaður í ráðinu kl. 15.30
að ísl. tíma í dag.
- FLOTINN
Framhald af bls. 1.
að fara fyrir suðurodda
Afríku og leiðin frá Mur-
mansk til Vladivostok er
16.000 sjómílur. Með í hópn-
um er olíu- og vistaskip, og er
talið, að vistaskipin geti eim-
að vatn úr sjó. Síðustu fregn-
ir frá aðalstöðvum NATO
hermdu, að skipin væru nú
skammt sunnan Færeyja.
Flotadeild þessi er hin
stærsta, sem Rússar hafa sent
fyrir Afríku til Kyrraihafs frá
því á keisaratímanum, er
rússrieskur floti var sjö mán-
uði á leiðinni austur aðeins til
þess að tapa fyrir Japönum
1905.
— ★ —
Mbl. hafði samband við
Commandér Rush, blaðafull-
trúa Bandaríkjamanna á
Keflavíkurflugvelli. Sagði
hann, að varnarliðið hefði
fárþegaflugvélin, sem neydd hef-
ur verið til að fljúga til Kúbu
frá áramótum. Flugstjórinn,
William Wood, segir, að ræning-
inn hafi tjáð áhöfninni að hann
væri á heimleið til Venezuela.
Rétt eftir flugtak frá Dallas átti
flugfreyjan, Donna Oheatham,
leið fram hjá sæti ræningjans,
og dró hann þá upp skammbyssu
sína og neyddi flugfreyjuna til
að fara með sér að hurðinni inn
í stjórnklefann.
„Það var um 15 mínútum eftir
flugtak frá Dallas, að við heyrð-
um að barið var fast að dyrum
hjá okkur“, segir Wood flug-
stjóri. „Flugvélstjórinn opnaði
dyrnar, og þá ýtti þessi maður
Donnu flugfreyju á undan sér
inn í stjórnklefann og hélt
skammbyssunni við bak henn-
ar“.
Flugfreyjan hafði fátt til mál-
anna að leggja. Það eina sem
hún gat sagt lögreglumönnum á
Miami-flugvellinum var: „Ég
vissi það eitt að maðurinn vildi
fara eitthvað“.
Ekið ú
brunahana
ÉKIÐ var á brunahana við hús-
grunn Eimskipafélagsins á aust-
urbakka Reykjavíkurhafnar um
klukkan 07:30 að morgni mið-
vikuðagsins 19. marz sl. Bruna-
haninn brotnaði.
Rannsóknarlögreglan skorar á
ökumanninn, sem þarna vár að
verki, svo og vitni að gefa sig
f ram. ...
orðið vart við þessa rússnesku
flotadeild fyrir 3 dögum og
fylgdist með herini . síðan.
Þetta væru 1.9 skip, 8 kafb.át-
ar og 11 önnur herskip, og
stefndu þáu í suðvestur. Kl.
3 í gær hefðu þau verið um
250 sjómílur suður af íslandi,
og aldrei komið nær íslandi
en 150 mílur. Er haldið áfram
að fylgjast með rússnesku
flotadeildinni. Skyggni er
slæmt, en skipin sjást í radar,
ef ekki með berum augum.
- ÖLI ÞÖRÐARSON
Framhald af bls. 2S
að upphæð 10 þúsund krónui
hver. Fyrstu innkaup hlaut til-
laga Björns Ólafs, arkitekts, önn
ur innkaup hlaut tillaga Garð-
ars Halldórssonar, arkitekts, og
Einars Þ. Ásgeirssonair, cand.
arch. og þriðju innkaup hlaut
tillaga Sigurðar Thoroddsens,
arkitekts.
í alimennri greinargerð um
samkeppnina segir dómnefnd:
„Það er samróma álit dóm-
netfndar, að árangur samkeppni
þessarar sé í heild góður. Fram
hafa komið margar snjallar hug-
myndir um aðstöðu fyrir fjöl-
þætt æskulýðsstörf. Innbyrðis
eru tillögurnar skemmtilega ólík
ar, en þó eru hér margar sjálf-
■stæðar og góðar lausnir, sem
grundvallast á skýrum og
ákveðnum hugmyndum og er
staðið með reisn að baki þeim“
Aðdragandi að samkeppni þess
ari er nokkuð langur. Borgarráð
tók ákvörðun um að efna til
hennar í september 1965 og hef-
ur síðan verið unnið að undir-
búningi hennar, en undirbúnings
störf lögðust að mestu leýti nið-
ur árið 1967 af sérstökum ástæð-
um. Samkeppnin var auglýst í
maí 1908 og skilafrestur var 'hinn
7. janúar sl. Hefur dómnefndin
síðan unnið að athugunum á til-
lögunum.
í æskulýðsheimilinu við Tjarn
argötu er ætlunin að verði aðal-
miðstöðvar fyrir starfsemi Æsku
lýðsráðs Reykjavíkur. Það verð-
ur annað æskulýðsheimilið, sem
Æskulýðsráð fær til umráða, en
svo sem kunnugt er starfrækir
Æskúlýðsráð nú æskulýðsheimili
í Tónabæ og hefur einnig starfs-
aðstöðu að Fríkirkjuvegi 11.
Sýning á tillögunum, sem bár-
ust verður opnuð í dag og verð-
ur opið frá kl. 2—10 í dag og á
morgun, en frá laugardegi til
miðvikudags í næstu viku veTð-
ur opið frá klukkan 1—6.
- ALÞINGI
Framhald af bls. 12
ar til heilbrigðismálaá íslandi að
undanförnu, heldur miklu frem-
ur stjórn á skipulagsmálunum.
Einar Ágústsson sagði að bréf
er þingmönnum hefði borist frá
bandalagi kvenna hefði heldur
betur ýtt við þeim, þar sem nú
lægju fyrir þrjú þingmál um
málefni Fæðingardeildarinnar.
Kvaðst þingmaðurinn vera flutn
ingsmaður eins þeirra. Sagði Ein
ar að ekki væri unnt annað en
að viðurkenna að mikið hefði ver
ið gert í heilbrigðismálum undan
farin ár, en samt væri mikið ó-
gert. Taldi hann að farið væri í
öfugan enda á byggingarmálum
Landsspítalans og sagði að nauð
synlegt væri að hraða mjög upp-
byggingu geislalækningardeildar
byggingu geislalækningardeild-
ar.
Jóhann Hafstein heilbrigðis-
málaráðherra kvaðst vera kon-
um þakklátur fyrir að hafa vak-
ið þingmenn til umhugsunar um
þessi máL Væri áhugi þeirra nú
lofsverður, þótt hann bæri reynd
ar merki um leikaraskap, og
væri að því sniðinn að falla í
geð áíheyranda. Kvaðst ráðherra
ekki muna e ftir því að þingmenn
irnir hefðu fyrr sýnt slíkan áhuga
um þessi mád. Varðandi bréf það
frá starfsfólki Landsspítalans er
lagt var fram á lestrarsal sagði
ráðherra’ að þar væru nok'krar
missagnir og mundi hann koma
athugasemdum á framfæri við
það.
(Hér urðu mistök við umræð-
urnar, sem ráðherra bað blaðið
að leiðrétta. Hann hefði því mið-
ur talað um missagnir í bréfi og
greinargerð Bandalags kvenna,
en þær heifðu engar verið, held-
ur í tilýitnuðu bréfi starfsfóilka
Landspitalans, sem 6. þingmað-
ur Reýkvílkinga hefði lesið upp).
Ráðherra kvaðst fagna þeirri
viðurkenningu sem komið hetfði
fram hjá þingmönnum að heil-
brigðismálunum hefði verið séð
fyrir nægilegu fjármagni á und-
anförnum árum. Mjög kappsam-
lega hefði verið unnið að skipu-
lagsmálunum á undanförnum ár
um. en þau væru erfið viðureign
ar s ökum þess hvernig þau voru
upphaflega úr garði gerð. Hefði
verið lögð á það rík áherzla að
úrlausn á þessum málum fengj-
ust sem allra fyrst.
Þá vék ráðherra einnig að
bráðabirgðabyggingunni fyrir
kobalt-tækið. Sagði hann að ef
beðið hefði verið eftir endanlegu
húsnæði geislalækningadeildar,
hefði það getað tekið fleiri ár, og
hefði hann því tekið þá ákvörð-
un að láta byggja húsnæði þetta,
því þótt sú bygging kæmi ef til
vill að engum notum síðar meir
væri ekki forsvaranlegt annað
en að reyna að koma tækjum
þessum í notkun hið allra fyrsta.
Þessi bygging mundi á engan hátt
tefja framkvæmdir við stækkun
Fæðingardeildarinnar né annarra
framkvæmda við stækkun Lands
spítalans.
Hannibal Valdimarsson sagði
að lýsingar þær sem þingmönn-
um .efðu verið gefnar á ástand-
inu í þessum málum væru ófagr
ar, og ef sannar væru yrði að
grípa til ráðstafana nú þegar til
þess að bæta hér úr.
Einar Ágústsson sagði að vel
gæti verið að hann væri hressi-
legri í málflutningi nú, þar sem
svo margir áheyrendur væru á
þingpöllum. ftrekaði hann síðan
fyrri ummæli sín, að hefja ætti
framkvæmdir við fullnaðarhús-
næði geislalækningardeildarinn-
ar án tafar, og sagði að fyrir
lægi að aðeins einni konu af
hverri þremiur, sem tælkju ill-
kynjaða æxlasjúkdóma væru
bjargað hér, en tveimur af hverj
um þremur í Svíþjóð, þar sem
kobalt tækin væru í notkun.
Jóhann Hafstein sagði að m.a.
með þessa staðreynd í huga, hetfði
hann tekið ákvörðun um að
reisa bráðabirgðahúsnæðið fyrir
tækin. Hins vegar hetfði verið
talið útilokað að leyfa byggingu
geislalæ'kningardeildarinnar fyrr
en gengið hefði verið frá skipu-
lagsmálunum. Um skipulagsmálin
hefðu staðið töluverðar deilur, og
gæti það dregist í tímann að ná
samkomulagi og samningum við
borgaryfirvöldin, en sú töf hefði
getið kostað mannslíf sem hægt
væri að bjarga ef tækin væru
tekin til notkunar hið fyrsta.
Hannibal Valdimarsson sagði
að vitanlega væri það óumdeil-
anleg staðreynd að Alþingi hefði
ekki veitt fé til þess að ráðast í
umræddar framkvæmdir. En það
breytti því ekki að nauðsynlegt
væri að ráðast í umræddar bygg
ingar og að láta bílastæði fyrir
Landsspítalann sitja á hakanum
fyrir þeim.
Lúðrasveitor-
hijómleihar
LTJÐRASVEITIN Svanur mun
efna til sinna árlegu tónleika 1
Austurbæjarbíói laugardaginn
29. þessa mánaðar og hefjast þeir
kl. 2 siðdegis.
Efnisskráin mun verða hin
fjöibreyttasta og við flestra haefi,
þar á meðal lög úr söngleikjum,
léttir marzar, einleiksverk og sí-
gild tónilist.
Lúðrasveitin Svanur er skipuð
28 áhugahljóðfæraleikurum og
er stjórandi hennar Jón Sigúrðs-
son, trompetleikarí. 1 ■■■■-■*.-
ína.
Tónleikor í Keílavík til styrktar
ekkjum sjómonna
„Bariö var að dyrum"
— og flugstjórinn neyddur
til að lenda á Kúbu