Morgunblaðið - 13.08.1969, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST li&6®
8
'&msm
Sár gremja fyllti huga hans, og
rétt sem snöggvast tók hann
ekkert eftir herberginu, sem var
ailt fullt af eldi og reyk. En
hann áttaði sig samt aftur, er
hann fékk ákaft hóstakast.
Þarna gat verið um möguleika
að ræða. Að minnsta kosti var
það eitt víst, að hann varð að
koma Pont út í hreint loft, og
sjálfur var hann nú með stöð-
ugan hósta og honum súrnaði í
augum. Reykurinn þéttist stöð-
ugt og logarnir voru gráðugir
i það litla súrefni, sem eftir var.
Hann dró Pont yfir brennandi
gólfið og að glugganum. Tucker
kom honum þannig fyrir, að
hann gæti gripið til hans fljót-
lega. Honum leið eins í lungun-
uim og væru logarnir komnir nið-
ur í þau og væru að brenna þau,
hægt og bítandi. Hver hósti var
hreinasta kvalræði og hann átti
mjög erfitt með að teygja sig
upp og ná í gluggakrókinn. En
hann gat samt opnað gluggann.
En í verkjandi höfðinu var eitt-
hvað, sem sagði honum, að það
skyldi hann ekki gera. Nú varð
hann að ráða það við sig, hvorn
afarkostinn hann skyldi taka.
Rakt næ’turloftið streymdi inn
og nú fengu logarnir þá nær-
ingu, sem þeir höfðu verið að
bíða eftir. Það varð geysimikill
hvinur, þegatr súrefndð náðd til
þeirra og það sem áður höfðu
ekki verið nema smáblossar,
vatrð nú að eyðandi eldi, sem
gaus gegnium gluggann og kró-
aði Tucker inni í logheitri kró,
HUSEIGENDUR -
ARKITEKTAR -
HÚSASMIÐIR
athugið, að hér er toksins komin
heimsbekkta gæðavaran
VELUX
OFANLJÓSGLUGGINN,
NÝJUNG A ISLANDI
og þakglugginn, sem þér hafið
beðið alltof lengi eftir. —
Velux er glugginn, sem gerir
þakherbergin í húsum yðar vist-
legri og bjartari.
Velux-ofanljósglugginn er hverfi-
gtuggi með tvöföldu gleri, sem
fægist 'mni — er léttur í með-
ferð og varanlegur, gerður úr tré
og hjúpaður sink- eða eirum-
gjörð að utan, sem aldrei ryðgar.
Vandaðar inndekkningar fylgja.
Velux hefur farið sigurför vfða
um K5nd og fæst l mörgum
stærðum — hentar jafnt til nýrra
sem eldri húsa.
Magnús H. Gíslason
Grenimel 14, Rvík, sími 10894,
Gtsökistaðir:
Byggingavörur hf, Laugavegi 178
sfmi 35697,
þar sem gtuggamir eru til sýnis.
sem næstum strax blés burt fyr-
ir vindinum. En það var ekki
nema andartak, og brátt fann
hann aftur, að hörundið á hon-
um skorpnaði, er hann stóð
snöggvast eins og agndofa.
Hann hafði ekki nema sekúnd-
ur til umráða og vissi af því.
Meðan hitinn bakaði hann að aft
an, reif hann upp gluggann og
grindina með kröftum manns,
56
sem á ekki eftir nema nokkur
augnablik ólifuð. Heil skriða af
múrmylsnum hvolfdist yfir hann,
er grindin losnaði. Þetta nægði
til þess að komast út og hann
renndi fætinum fljótt yfir
gluggakistuna, sem nú var tek-
in að brenna.
Þegar hann kom út á þakið
fyrir utan, flýtti hann sér að
rífa utan af sér brennandi skyrt
una og hallaði sér síðan inn í
eldhafið til þess að ná í Pont.
Hann náði góðu taki I rjúkandi
fötin á honum. En þá gusu log-
arnir aftur um hann og sleiktu
á honum andlitið. Hann féll aft-
ur á bak niður í smáhvilft milli
þakanna, og hélt höndum fyrir
andlitið. Hálfblindaður af hit-
aniuim, reyknuim og eigin ör-
væntingartárum, brölti hann
enn áfram en stanzaði þá. Þetta
var orðið um seinan. Logarnir
viku nú ekki einu sinni fyrir gol
unni. Þeir mundu ekki hvílast
fyrr en þeir hefðu fengið nægju
sína, eftir að hafa gleypt húsið
og sennilega þau næstu líka. Og
í augnablikinu nutu þeir sýni-
lega máltíðar sinnar, stórir rauð
gulir blossar höfðu fengið yfir-
höndina og bráðum mundi
kvikna í gasgeymunum, og þeir
springa.
Tucker langaði mest til að
gráta. Þegar hann klifraði nið-
ur, fann hann tárin renna niður
andlitið á sér. Vinur hans var
þarna inni, og nú líklega brunn
inn til ösku. Hamn ásakaði ekki
sjálfan sig, því að hann vissi,
að hann hafði gert það, sem
hann gat. Logamir höfðu borið
af honum, og svo ekki meira um
það. Og sár verkurinn í hans
eigin líkama minnti hann á,
hvernig komið var. Hann lang-
aði ekkert til að hreyfa sig, held-
ur mest til að verða kyrr og
horfa á logana ljúka verki síriu.
öácur, sem heyrðist hinum
megin frá húsinu, vöktu hann af
þessu dái hans. fbúar hinna hús
anna voru komnir út og ekki
mundi líða á löngu áður en
slökkviliðið kæmi á vettvang.
En það gæti ekki bjargað Pont.
Ekkert gat bjargað honum fram
ar. í ringli sínu fann Tucker, að
hann varð að koma sér burt.
Hann langaði ekki neitt til að
láta fyrri hópinn ná í sig. Glugg
ar voru teknir að opnast, er
hainn brölti yfir húsaþökin í
Medina. Fyrir aftan sig heyrði
hann gashylkin springa, en
hann leit ekki um öxl, Loksins
fann hann skarð milli tveggja
þaka og gekk eftir því, rétt eins
og eftir götu. Hann sá ferhyrnt
gat, rétt á síðustu stundu. Sem
snöggvast áttaði hann sig ekki
á því, en þá skildist honum að
þetta var loftræstingargat frá
markaðsskálanum fyrir neðan
hann. Gatið var að vísu þröngt,
en samt tókst honum að smjúga
gegn um það. Hann hékk stund-
arkom á höndunium, en sleppti
síðan takinu og datt niður á
stieimforún. Hvað miunaði hann
svo sem um svolítinn sársauka í
viðbót við þann, sem fyrir var?
Tucker horfði á búðirnar með
byrgðu gluggunum. Horfin voru
teppin og veggtjöldin og tösk-
urnar og sylgjurnar — hann var
þarna einn á þessu eyðilega
markaðstorgi, sem var jafndautt
og hann var sjálfur innvortis.
Hann lagði af stað gangandi eft-
ir eyðilegu götusmugunni, og
heyrði sitt eigið fótatak eins og
í fjarska, en hæst bar þó hatur
hans á tveimur mönnum. Það
brann í huga hans, líkast eld-
inum í húsinu. Gegn um logana,
sem enn brunnu fyrir augum
hans, gat hann séð Gass og Cap-
elli, sem hann hataði svo inni-
lega. Pont var hættur að tína
upp brauðmylsnu, og þeir
skyldu sannarlega fá að borga
fyrir það.
Mörgum klukkustundum síðar
sat Tucker í skrifstofu Khayars
með stóran kaffibolla við um-
bundinn olnbogann. Hann hafði
þverneitað að leggjast inn í
sjúkrahús. Khayar hafði rétt get
að fengið hann til að koma þar
við, þegar hann hafði farið að
hitta hann á stöðinni, en hann
hafði hlustað á aðalatriðin í sögu
hans, hringt í síma, en síðan
neitað að hlusta á meira fyrr en
Tucker hefði fengið gert að sár-
um sínum.
Nú hallaði hann sér aftur í
sætinu og hlustaði á Englend-
inginn, sem var líkastur ein-
hverjum safngrip frá Egypta-
landi. Hendur, handleggir og
önnur höndin voru í umbúðum.
Augabrýrniar og hárið var
sviðið, rétt eins og hvert ein-
stakt hár hefði verið klippt og
síðan hnýtt upp á endann á
því . . . f andlitinu var hann
með plástur á annarri kinninni,
varirnar voru sprungnar, og
undir sloppnum, sem hann hafði
fengið léðan var bakið á honum
sveipað umbúðum. Með annarrar
gráðu brunasár hefði hann átt
að vera í sjúkrahúsi, en það
reyndist ómögulegt að halda
honum þar kyrrum. Það var ein
hver æðisgenginn glampi í aug-
um hans, sem Khayar kunni ekki
við, og hann tók að velta því
fyrir sér, hvort Tucker hefði orð
ið fyrir einhverju sálarlegu á-
falli. En annars talaði hann af
fullu viti.
— Það hefur sennilega bjargað
Norsk lœknastúdína
óskar eftir herbergi strax. Meðmæli fyrir hendi.
G. HAARTVEIT,
Rödsbakken 8,
1750 Halden, Norge.
Lokað
vegna sumarleyfa
frá 20. ágúst til 15. september.
BRIMNES H.F.
Hrúturinn, 21. marz — 19. apríl.
AUt scngur betur í dag, og ljúktu öllu fyrir helgina.
Nautið, 20. apríl — 20. maí.
Gerðu fjárhagsáætlun fyrir helgina.
Tvíburarnir, 21. mai — 20. júní.
Gott er að senija frið í dag.
Krabbinn, 21. júní — 22. júlí
Hiustaðu á allt sem aðrir hata að segja, en farðu síðan þínar götur.
Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst.
Unga fólkið kemur þér á óvart.
Meyjan, 23. ágúst — 22. september.
Reyndu að ganga í bandalag við einhvern, sem er með hugsjónir,
og aðstoðaðu hann vel.
Vogin, 23. september — 22. október.
Farðu og eyddu fé þínu á ódýrari stöðum en þú átt vanda til.
Sporðdrekinn, 23. október. — 21. nóvember.
Athugaðu vel hvað er hagkvæmt, og láttu það ganga fyrir.
Bogmaðurinn, 22. nóvember — 21. desember.
Góður dagur, ef þú getur stillt þig um að striða ættingjum þínum.
Steingeitin, 22. desember — 19. janúar.
Vinir þínir, einkum eldra fólkið, verður þér sérlega hjálplegt i dag.
Vatnsberinn, 20. janúar — 18. febrúar.
Reyndu að fá gagnkvæma samvinnu. Farðu i smáferðir.
Fiskamir, 19. febrúar — 20. marz.
Ef þú ert beöinn að Þegja, skaltu gera það. Reyndu einhverja
tómstundaiðju.
lífi mínu, að lík Ponts datt ofan
á mig. Þeim hlýtur að hafa veitzt
erfitt að komast að mér. En þar
sem þeir ætluðu sér að brenna
okkur báða, skipti það ekki svo
miklu máli. En til hvers að vera
að loka gluggunum? Og hvað
töldu þeir, að við hefðum gert
fyrir okkur?
— Fyrir nokkrum dögum var
talið, að þér hefðuð nauðgað og
myrt tvær innlendar stúlkur.
Það var óhugnanlegur glæpur,
sem Evrópumaður framdi og nú
er hann í fangaklefa hér niðri.
í öðrum klefa er hann kunningi
yðar með rauða vefjarhöttinn.
Það var vitanlega hann, sem
taldi skrílnum trú um, að þið
hefðuð nauðgað stúlkunum. Þær
áttu heima einmitt rétt við horn-
ið á þessari smágötu. Þar sem
æsingur hefur gripið um sig á
einhverjum stað, er auðvelt að
æsa fólk upp til hryðjuverka.
Og þið voruð þarna í felum og
þið voruð Evrópumenn.
- Ég er ekki viss um þennan
glugga. Hefði hann verið skilinn
eftir opinn, jafnvel eftir brun-
ann, þá hefði getað komið í Ijós
aitvik, sem gerði það mögulegt
að halda miálinu áfram, og það
hefði Gass viljað forðast. Hann
vildi sýnilega láta ykkur finna
ykkur einhverja undankomuleið,
en bara ekki láta það líta þannig
út. Þetta er aðeins dæmi um það,
þegair æsrtur skríll fer manmia-
villt.
— Getið þér komið honum í
samband við húsið?
— Yður mundi furða, ef ég
svaraði því játamdi. Húsið
er ekki á nafni Gass. Og Rauð-
hattur heldur því fram, að hann
hafi aldrei hevrt hann nefndan
á nafn, en það er nú ekki að
marka, svona í upphafi málsins.
En til allrar óhamingju var
stúlkunum nauðgað einmitt í
þessu hverfi, og fanginn minn
sást þar skammt frá, ásamt öðr-
um manni. Gass vissi, hvað hann
hafðist að.
Tucker virtist ekki hafa neinn
áhuga á þessum skrílforingja
með rauða vefjarhöttinn. Hon-
um var alveg sama, hvort hann
var í fangelsi eða ekki. Hann var
aðeins að slægjast eftir Gass.
Khayar sagði: — Ég gerðist
svo djarfur að hringja til frú
Vey. Hún er á leiðinni hingað
til að taka móti yður.
Tucker varð bálvondur. Hann
veifaði handleggnum með öllum
umbúðunum á, í mótmælaskyni.
— Hún er í hættu stödd. Svo
leit hann á sjálfan sig — Dugar
yður ekki Pont og svo þessi úr-
gangur af mér? Hvers vegna
viljið þér flækja hemni í þetta
aftur?
— Ég er nú enginn bjáni, hr.
Tucker. Khayar varð ískaldur
og rólegur aftur. Það er komið
í blöðin, að tvö lík hafi fund-
izt í rústunum af húsinu. f
þetta sinn sagði ég svolitla mein-
lausa lygi við þá. Stúlkan er í
engri hættu stödd, meðan þeir
Capelli og Gass halda ykkur
báða vera dauða. Þeir vita, að
hún hefur ekkert raunverulegt
ákæruefni á þá, og þeir hefðu
ekki notað sér hana til annars
en að komast að ykkur.
Tucker hallaði sér aftur í stól
inn og gretti sig, þegar bakið
á honum snerti hann. En svo
breyttist á honum svipurinn.
Hann var enn æðisgenginn í
augunum, en nú var kominn á
andlitið einhver fjarrænn svip-
ur, sem Khayar fannst bæði dul-
arfullur og ógnvekjandi.
— Þér verðið að komast aftur
til Englands, hr. Tucker, meðan
Capelli heldur yður dauðan,
þurfið þér ekkert að óttast.
Tucker heyrði ekki orð af
þessu. — Ætlið þér að vísa Cap-
elli úr landi? spurði hann.
— Vitanlega.
— Gefið þér honum einn sól-
arhring enn.
— Það get ég ekki.
Tucker stóð upp. — Lftið á
mig. Og hugsið þér um Pont. sem
á konu og börn í París. Svo
margt og mikið hefur gerzt, að
ég á fullan rétt á að biðja yður
um þetta, og þér eruð siðferði-
lega skyldugur til að hlusta á
mig.
— Ég hef þegar hlustað, en
ég get ekki látið þetta eftir yð-
ur. Ég verð að fá hann út úr
landinu og þatð fljótt.
—En hvað þá um Gass?
— Þaið er verið að left® að
honum og hann finnst fljótlega.
— Og verður svo sleppt aftur?
— Já, ef við getum ekki sann-
að neitt samband hans við skríl-
inn. Það er enginn glæpur að
kama ykkuir fyrir þarna í hús-
inu. Og að gefa ykkur játningu,
sem sennilega er login, er held-
ur ekki glæpur, þar eð þið hafið
enga embættislega aðstöðu. Og
við getum aldrei sannað, hvort
þetta skjal var pappírsins virði,
sem það var skrifað á, þar sem
það brann engu síður en allt
hitt.
— Gefið þér Capelli einn sól-
arhring í viðbót!
Khayar reyndi eftir föngum
að haga sér eáns ag lögreglu-
maður. Þetta var regla, sem
hann hafði vandlega farið eftir
og hingað til hafði hún komið