Morgunblaðið - 20.09.1969, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. SEPT. 19-69
*
*
-=-25555
14444
WfllFfOIR
BILALEIGÁ
IIVERFISGÖTU 103
VW Sendiferðabifreið-VW 5 manna-VW svefnvagn
VW 9manna-Landrover 7manna
LITLA
BÍLALEIGAN
Bergs-taðastræti 13.
Sím/14970
EftVr lokun 81748 eða 14970.
MAGMÚSAR
iKIPHOLTI 21 5ÍMAR21190
eltir lokun *lmi 40381
BÍLALEIGAN FALIIRH f
carrental service ©
22-0*22-
raudarArstíg 31
bilaleigan
AKBIIA TJT
car rental set'vice
8-23-47
sendum
Rcglusomur
26 ára maður með korvu og eitt
barn óskar eftii v'nwvu. Má vora
hvar sem er á landimi. Margt
kemur tM greina. Uppl. í síma
51261 næstu daga.
f@r@kt toftt
á
augab ragöi
m örpissandi
fyrin heímili,
1 vinnustaói
og t>íla.
HALLDOR JONSSON Hafnarstræli 18
^ Svik og þjófnaður
refsivert
Eldibrandur skrifar:
„Það hefur alltaf þótt minnkun
að því í samskiptum fólks að hafa
ramgt við, að ekki sé talað um
að stela og oft er uppeldi ken-nt
um, ef þessu leiðu einkenni koma
fram hjá einstaklingum.
Við lifum í þjóðfélagi ,þar sem
svik og þjófnaður er refsivert
skv. lögum. Ef einhver þegn þjóð-
félags okkar greiðir ekki skatta
sína og útsvör, þá er gengið að
honum með þeirri hörku, sem lög
segja til um. Og vexti og drátt-
arvexti verður sá hinn sami að
greiða til viðbótar skuld sinni,
auk annars kostnaðar. Skal viðxrr
kennt, að svona verður þetta að
vera. Sá sem ekki greiðir skatta
sína og skyldux, er að hafa rangt
við, s.s. að stela frá ríkinu.
0 Ósamræmi í réttlætinu
En því minnist ég á þetta, að
árið 1967 kærði ég skatta mxna,
vegna þess að ég taldi þá of háa.
Tveimur árum seinna fæ ég til-
kynningu um að ég megi sækja
um 10 þúsund krónxxr. Kæra mín
var tekin til greina. En hvað skeð
ur? Nú eru engir vextir, drátt-
ai-vextir né hirt um þá staðreynd
að kaupmáttur þessara 10 þxís-
und króna er rétt helmingur þess,
sem var, þegar þær voru af mér
teknair. Ég hefi ekki aðstöðu til
þess að reikna út í svipinn hvað
það hefði kostað mig, ef ég hefði
skuldað Gjaldheimtunni 10 þús-
und krónur í tvö ár, í vöxtum,
dráttarvöxtum og öðrum kostn-
aði.
Óréttmæti þessara aðfara er ó-
tvírætt, og það er líka að hafa
rangt við, þegar sjónvarpið
ákveður afnotagjald fyrir árið,
en síðan er ákveðið að fella nið-
ur útsendingar í júlí og svo aftur
eina viku til viðbótar, en afnota-
gjaldið er alltaf óbreytt. Einnig
má nefna afnotagjöld hljóðvarps
í bifreiðum, sem er mjög óréttlátt.
Ef til þess er ætlazt af okkur
þegnunum að við séum löghiýðn
ir, þá er ekki hægt að hlunnfara
okkur, jafnvel þótt í smáu sé.
Við ætlumst til þess sama af rík-
inu og stofnunum þess og það
ætlast til af okkur. Það er vafa-
samt uppeldi hjá þjóf að segja
við son sinn: „Þú skalt ekki
stela.“
0 Einkalán og óprúttið
fólk
Fleiri en Eldibrandur reka sig
á ósamræmið í réttlætinu. „Brún-
eygður maður, ekki lögfræð-
ingui'", skrifar langt bréf, of
langt til að ég geti birt það í
heild, og nefnir það „Þjófar, lög
og falt fé“. Það hefst svo:
„Ég var í kaffidrykkju í gaer,
ásamt nokkrum kunnugum, og
umræðurnar snerust um efni, sem
ég held að engan muni saka að
velta ofurlitið fyrir sér einu
sinni enn. Við ræddum lög, lands-
lög annarra þjóða og okkar eig-
in, meát okkar eigin. Og við
ræddum um það sem hægt eir að
gera í skjóli þessara laga, sem
eiga að veita okkur svo mikla
vemd. Okkur fannst flestum dá-
lítið fátt um þá vernd. Það var
komið inn á svo mörg svið, að
of langt yrði upp að telja hér,
enda aðeins eitt, sem ætlun mín
var að minnast á: einkalán, geng
isfellingar, óprúttið fólk.“
Og bréfritairinn tekur upp
nokkrar setn-ingar úr samtalinu:
„ffltlast maðurinn til, að fólk fari
að borga einkalán með vísitölu-
bóturn". „Það er sko ekki venja.
Enda borgar maður opinber lán
aldrei á þann hátt“. Skyldi ekki
vera nóg að borga lán með út-
lánsvöxtum, eins og banki“. „Það
segir sig nú sjálft að gengisfell-
ingar verða að koma jafnt niður
á öllum".
Og síðar segir í bréfinu: Það
voni einkalánin, sem ég ætlaði að
tala um. Það fólk sem hefur lent
í klónum á vinum sínum og
vandamönnum og lánað þeim,
stundum stórar upphæðir, þ.e.a.s.
stórar upphaflega . . .“
Um þetta kann brúneygi mað-
urinn sögur, um fólk sem hann
þekkir allvel (Við sleppum sögum
an.narra í veizlunmi). Hann segir
tvær þeirra:
0 Svo vandað fólk
„önnur er um mann, sem hafði
unnið hörðum höndum langt líf,
verið sparsamur og gætinn og
átti þess vegna ofurlítinn sjóð fyr
ir elliárin. Hann var ekki illa
gefinn maður og ekki sljór, þótt
tekinn væri að eldast nokkuð. A.
m.k. hafði honum tekizt að koma
peningunum sínum klakklaust í
gegnum hverja gengisfellingu,
þangað til fyrir nokkrum árum.
Þá vom beztu vinir hans svo
illa staddir, „bráðheiðai'legt fólk,
sem vanhagaði um peninga um
stundarsakir". Auðvitað lánaði
hann þeim sína. Og hann gat
ekki móðgað þetta heiðarlega
fólk, „gamla vini, sem hann
þekkti eins og sína eigin vasa“
með þvi að fara að nefna að lán-
ið yrði verðtryggt. Fólkið var,
eins og allir vissu, svo vandað
að svoleiðis þurfti alls ekki að
segja því, og svo var þetta bara
um stundarsakir.
Nú, fyrir hverja gengisfellingu,
sem orðið hefur síðan, hafði hon
um tekizt að festa sér vísitölu-
tryggð verðbréf eða fjárfestingu
á annan hátt, þar sem hann ætl-
aði að koma peningunum svo fyr
ir, að þeir yrðu ekki að engu.
Hefði hanin fengið þá borgaða til
baka. Fyrir hverja gengisfell-
ingu hefur hann gengið þung
spor til „vina“ sinna og spui-t,
niðurlútur af því honum fannst
hann svo vondur félagi, hvort það
væri nokkur leið að borga skuld-
ina núna, ef það kæmi sér ekki
alltof illa. (Því að eftir að ó-
mögulegt var orðið að kalla láns
tímann „um stundarsakir" leng-
ur, var eins og hann yrði svo
skrýtinn og tortrygginn, að hann
gæti ekki einu sinni treyst þessum
vönduðu vinum sínum lengur).
En fram að þessu hefur það allt-
af komið sér alltof illa. Einhvem
tíma í títtnefndu kaffisamkvæmi
var verið að gizka á nýja geng-
isfellingu með haustinu. En það
skiptir ekki miklu máli fyrir
þennan gamla mann lengur. Eig-
ur hans eru fyrir löngu orðnar
harla litlar eða eigum við að
segja ekki neitt. Nema auðvitað
þær verði borgaðar til baka á
sama hátt og allt fólk gerir, að
sögn hinna bjartsýnu £ veizlunni,
með fullum bótum.
0 En því miður
Hin sagan er um konuna, sem
þorði ekki að biðja um að fá það,
sem hún hafði lánað, af ótta við
að fá sömu upphæðina til baka.
Henni hafði láðst að minnast á
vísitölu, mögulegar gengisfelling
ar o.s.frv. Og meðan hún ekki
fékk peningana greidda, hafði
hún þó altént vonina að halda
sér í. Hún hafði ekki svo mikið
amnað handa á milli. „Þetta bjarg
ast ef ég fæ peningana mína —
ef ég fæ sama og ég lánaði, sama
verðgildi", segir hún. Og bréfrit-
arinn kveðst hafa ýtt undir hana,
að trúa því ekki að hún eigi ó-
heiðarlegt fólk að venzlafólki.
En því miður. Hún fékk pen-
ingana sina, á þann hátt sem hún
óttaðist. Hún tók við þeim, án
þess að mæla orð. Því það var
rétt að það bitnaði á hemni. Hún
var að verða gömul og sein að
hugsa.
Hvað á hið heimska, góðtrúa,
gamlaða, fólk, sem trúði því að
það væri að lána eigur sínar, ekki
að gefa, að gera gegn lögtekn-
um þjófum og lögteknxxm ræn-
ingjum? Ekki að lána framar á
svo fávísam hátt, þótt í hlut eigi
vandaðir vildarvinir þeirra? Það
er auðvelt að láta það vera. Það
þarf ekki að segja þeim, sem
orðnir eru gamlir og óvirmufærir
eða hvort tveggja. Þeir eiga
riiefnilega ekki svo mikið eftir að
lána. Það sem einu siinni voru
eigur þeirra, eru nú eigur ann-
arra löghlýðinna, óheimskra
borgara, gjarnan fast í húseign-
um eða föstum innanstokksmun-
um eða skemmtilegum minning-
um um utanlandsferðir.
Og er þá málinu lokið með
því? Eða skyldi vera til svo ólat
ur alþingismaður, að hann nenni
og finnist ómaksins vert að reyna
að bæta um í þessum efnum
einkamála, þótt smávægileg
kunni að virðast í augum stórra
manna óheimskra, ógamlaðra,
reyndra og hraustra?"
FRÁ ÆFIMGA- OG TILRAUNASKÓLA
KENNARASKðLA ÍSLAIUDS
Börn sera eiga að vera í skólanum í vetur,
mætið 2. október.
7 og 8 ára börn kl. 9
9 ára börn kl. 9.30
10 ára böm kl. 10
11 og 12 ára börn kl. 10.30
Skólastjóri.
Volin efni vönduð smíð
Spónlagðar viðarþiljur ún
gullálmi,
eik,
furu,
loftklæðning úr
furu
oregonpine.
Spónaplötur — krossviður —
Spónlagðar innihurðir úr.
eik,
gullálmi,
furu,
mahogni,
oregonpine,
teak o. fl.
harðtex — oliusoðið masonite.
Mótaviður — smíðavörur — gagnvarinn viður.
SKOÐIÐ STÚKU OKKAR A HÚSGAGNASÝNINGUNNI.
LAUGARDALSHÖLLINNI.
Timbnrverzlunin Völundnr hf.
KLAPPARSTlG 1, sími 18430 — SKEIFAN 19, sími 36780.
3jn herb. íbúð í Vesturbæ
Höfum til sölu 3ja herb. íbúð um 90 ferm. á 2. hæð við Selja-
veg. 25 ferm. geymsluherb. í kjallara fylgir. íbúðin er öll
nýmáluð með nýrri eldhúsinnréttingu úr harðplasti, flísalagðir
baðveggir og mósaik á baðgólfi, teppi á stofum og holi.
íbúðin er laus nú þegar. Verður til sýnis sunnudag milli
kl. 1 og 2. Útborgun 400—425 þús. Ekkert áhvílandi, eftir-
stöðvar kaupverðs samkomulag.
TRYGGINGAR OG FASTEIGNIR
Austurstræti 10 A, 5. hæð,
sími 24850, kvöldsími 37272.