Morgunblaðið - 29.10.1969, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGU'R 29. OKTÓBKR 1969
Mj 1 BÍLALEIGAX
ÆjALURf
I
mAlF/O/fí
BILALEIGA
HVERFISGÖTU 103
VW Sendiferðabifreið-VW 5 manna-VWsvefnvagn
VW 9manna-Landrover 7manna
LITLA
BÍLALEIGAN
Bergstaðastræti 13.
Sím/ 14970
Eftir lokun 81748 eða 14370.
MAGIMÚSAR
ÍKIPH0LTI21 SIMAr2H90
•ftirloiiun »lmi 40381
BíLAKAUR^
Vel með farnir bílar til sölu
og sýnis f bílageymslu okkar
| að Laugavegi 105. Tækifæri
til a8 gera góð bílakaup..
Hagstæð greiðslukjör. —
Bílaskipti koma til greina.
| Árgerð, tegund, verð í þús.
'66 Peugeot 240
I '68 Corti'ne 230
[ '67 Cortina 185
’66 Plym. Belvadere 260
'66 Landrover 180
'66 Bronco 245
'69 Volkswagen 1200, 200
'67 Voíkswagen 1300, 135
'68 Ford 17 M 295
'66 73000« 17 M stafk>n 235
’66 Taunos 17 M 235
'67 Volkswagen 1600 T L 235
'66 Ford Custom 300
'68 Ford 12 M 225
'63 Taun us 12 M 85
'62 Land nover 120
'67 Jeepster 295
'68 Moskv. 150
'66 Moskv. 105
'65 Ford Fairtame 210
'65 Gaz '69, 75
'65 Skoda 1000 MB 83
’68 Mosikv. station 170
'59 Fiat 1800, 95
'64 Opel Rekord 145
'64 Skoda Oktavra 65
'59 Gaz '69, 95.
iTökum góða bíla í umboðssölu
| Höfum rúmgott sýningarsvæði
innanhúss.
W’/rrm umboðið
SVEINN EGILSSON H.F.
LAUGAVEG 105 SÍMI 22466
£ Áfengisvandamál
Svavar K ristinn Björnsson
skrifar:
„Velvakandi góður!
Ég get ekki á mér setið að
víkja nokkrum orðum að pistli
er birtist hér ekki alls fyrir
löngu, og langar mig til að biðja
þig að birta eftirfarandi:
Það var ekki að sjá í Vel-
vakanda sl. laugardag 18. okt.,
að þar væri framkvæmdastjóri
Áfengismálafélags íslands að
skrifa um sín áhugamál.
Áður en lengra er haldið, er
ekki nema sanngjarnt að biðja
Steinar Guðmundsson að skrifa
þessa furðulegu grein þannig, að
allir geti lesið hana, án þess að
þurfa að lesa milli allra lina
skammir og svívirðingar á það
fólk, sem að áfengismálum vinn-
ur. Væri ekki hægt að finna ein-
hver orð, sem næðu merkingu og
hugsun greinar þeSsa „fram-
kvæmdastjóra" eins vel og „leka
bytta“, „djúpdæla” og „fúa-kerfi
taðkvarnarinnar"?
En nóg um það. Væri ekki vel
þess virði, aö Steinar Guðmunds
son skýrði frá því, hvað hann
hyggðist gera til bóta í þessu
mikla vandamáli, í stað þess að
raða saman tylftum af fáránleg-
um orðatiltækjum, sem engan til
gang hefur?
Gera verður greinarmun á alkó
hólistum, sem eiga sitt heimili og
sína fjölskyldu, og þeim mönn-
um, sem daglega eru i hæðnis-
tón nefnair „hafnarrónarnir", og
hafa nú unda,nfarin ár hafzt við í
skipum og kofaskriflum, sem
hvorki halda vatni né vindi. Gæti
Steinar Guðmundsson gert grein
fyrir því, hve margir menn hafa
króknað úr kulda og vosbúð inn
an takmarka borgarlandsins á síð
ustu árum? Nei, það getur hann
varla, og það get ég ekki held-
ur, en þeir eru fleiri en flesta
grunar. Náttskýli fyrir heimilis-
leysingja var sett á stofn, til að
láta slíkt ekki koma fyrir oftar.
Það er ábyrgðarhluti fyrir þjóð
félagið að láta þessa menin
krókna úr kulda, þó svo að þeir
hafi orðið undir í baráttunni við
áfengið.
í grein, sem Steinar Guð-
mundsson skrifaði fyrir nokkru
stendur m.a.: „Alkóhólismi sem
ofnæmissjúkdómur er ekkert erf
iðari en sumir aðrir ofnæmissjúk
dómar, nema siður sé. Og sem
smitandi sjúkdómur getur hann
verið allra skemmtilegasta við-
fangsefni. En það gerist ekkert
með því að halda stöðugt í heiðri
hinum rótgróna sið, að sinna of-
drykkjunni ekki fyrr en viðkom-
andi er „kominn í skitinn.” Og
nú er ekki aranað sýnna en að í
Velvakandagrein sinni leggi Stein
ar Guðmundsson á það áherzlu
að maður, sem á annað borð sé
„kominn í skítinn", eigi að vera
þar í friði og ekki undir nokkr-
um kringumstæðum megi skjóta
yfir hann skjólshúsi á kaldri
vetramóttu. Þannig hljóðar það,
og verður sannarlega gaman að
fylgjast með, þegar Áfengismála
félag íslands, eitt af hráskinnum
illra nýttra áfengismálaféiaga á
íslandi, eins og Steinar Guð-
mundsson nefnir það i fyrr-
nefndri grein, fer áf stað undir
forystu fyrrnefnds framkvæmda-
stjóra, og skyldi maður þá ætla
að skammt yrði milli stórafreka.
KAU PM AN N ASAMTÖK
ÍSLANDS
Ungur maður, lipur og áreiðanlegur, getur fengið atvinnu
nú þegar eða síðar, í
karlmannafataverzlun í miðborginni
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu Kaupmannasam
takanna, Marargötu 2.
1 x 2 — 1 x 2
Vinningor í Getrnunum
13. leikvika — leikir 25. október.
Úrslitaröðin: X21 — 112 — XXX — 1
Fram komu 16 seðlar með 10 réttum:
Vinningur kr. 12.000,00.
11205 Reykjavík
16265 Reykjavík
16552 Reykjavík
19848 Reykjavik
20071 Reykjavík
X 1.
5527 Keflavík
5530 Keflavík
5584 Keflavík
7109 Selfoss
7216 Reykjavik
21154 Reykjavík
21392 Reykjavík
22606 Reykjavík
22871 Reykjavi
24759 Reykjavík
27289 Reykjavík
Kærufrestur er til 17. nóvember. Vinningsupphæðir geta lækkað
er kærur reynast á rökum reistar.
Vinningar fyrir 13. leikviku verða greiddir út 18. nóvember.
Getraunir
íþróttamiðstöðin — Reykjavík
En sem sagt, þess er óskað, að
Steinar Guðmundsson geri grein
fyrir hugmyndum sínum í þessu
máli, og eru það vinsamleg til-
mæli, að sú greinargerð verði
skrifuð á sæmilega auðskilinni
íslenzku!
Svavar Kristinn Bjömsson."
0 Gervimjólkurblönd-
unarvandamál
„Reykjavík, 21. okt., 1969.
Herra Velvakandi.
Ég vona, að þú ljáir rúm í
dáikum þínum fyrir þessar lín-
ur mínar eins og svo margra ann-
arra.
Fyrir nokkru birtist í dálkum
þínum bréf frá Steingrími Davíðs
syni. í bréfi þessu ræðir hann
um „væntanlegt mjólkursamsull
eða hristing", eins O’g hann kall-
ar það. Ekki gat blessaður karl-
inn, Steingrímur hellt úr skálum
reiði sinnar vegna þessa máls
nema kasta hnútum að mér í leið
inni, enda veit hann sem er, að
það er ekki óvelkomið í dálkum
Velvakanda. Nú náttúrulega
hafði ég stórlega hneykslað þenn
sm ritglaða mann. Ég hafði néfni
lega dirfzt að hafa skoðun sem,
Steingrími féll ekki í geð.
Steingrímur fyllist forundran
mikilli, vegna þess að ég dirf-
ist að segja mitt persónulega álit
á þeirri mjólkurvöru, sem hér
um ræðir. Þegar blaðamaður
Morgunblaðsins spurði mig, eft-
ir að ég hafði fyrst bragðað á
margnefndri mjólk, hvernig mér
hefði bragðazt mjólkin, svaraði
ég því til, að persónulega fynd-
ist mér mjólkin góð, en stjórn
Neytendasamtakanna hefði ekki
tekið neina afstöðu tl málsins.
Og það ætla ég að segja Stein-
grími Davíðssyni og hverjum
sem er, að þótt ég sé fram-
kvæmdastjóri Neytendasamtak-
anna, tel ég, að mér sé heimilt
að tjá skoðanir minar um hvaða
málefni sém er, hvar sem er, og
mun ég gera það svo oft sem mér
einum líkar.
Steingrími þótti ég taka mér
full mikið vald og ákveða fyrir
hönd íslenzkra neytenda, að um-
rædd mjólk væri góð, og spyr
raunar, hvaðan mér komi slíkt
vald. Þetta vald hef ég ekki og
hef aldrei tekið mér, og ég vona
að það hendi mig aldrei, að taka
mér vald, sem ég hef ekki, en
ég vona jafnframt, að ég verði
alltaf svo frjáls maður, að mér
leyfist að tjá persónulegar skoð-
anir mínar og meðan svo er,
mun ég gera það óhikað.
En nú langar mig til að spyrja
Steingrím, hvaðan honum komi
vald til að ákveða fyrir hönd
allra neytenda, eins og hann ger-
ir í áðurnefndri grein, að „neyt—
endur munu glaðir greiða hærra
verð fyrir mjólkina, ef þeir fá
hana óblandaða". Er Steingrim-
ur viss um, að hann tali þar fyr-
ir munn allra raeytenda? Ég ef-
ast um að svo sé, og ég hygg, að
þar séu fieiri en ég á öndverð-
um meiði við Steingrím.
18. október s.l. skrifar Stein-
grímur Davíðsson aftur í Vel-
vakanda. Er ég þar enn til um-
ræðu og hef nú hækkað nokkuð
í tign hjá Steingrími — orðinn
aðalleikarinn í baráttu Stefáns
mjólkursamsöluforstjóra við að
plata fólk til að drekka þennan
drykk, sem Steingrími er svo ó-
geðfelldur. En ég vona, að þessi
blandaða mjólk verði ekki eini
drykkurinn., sem á boðstólum
verður í landi okkar, svo Stein-
grímur geti fundið sér drykk, sem
honum fellur betur i geð meðan
blandaða mjólkin verður á boð-
stólum, ef hún verður það þá
nokkurn tíma. Ég hefði talið eðli-
legra að Steingrímur hefði
kynnt sér þessa mjólkurblöndun
áður en hann upphefur svo mik-
inn áróður gegn þeim tilraunum,
sem fram hafa farið, og hvort
hér sé um lausn á yfirvofandi
mjólkurskorti að ræða. Alla vega
hefði Steinigrímur getað haft um
mæli þau, sem hann hefur eftir
mér, rétt eftir. Til dæmis hefði
hann getað farið með rétt mál £
bréfi sínu 18. október s.l. — það
er að segja ef hann kærir sig
um að segja það, sem sannara
reynist — um það, sem ég sagði
á fundi, þar sem staddir voru
blaðamenn og fréttamenn frá út-
varpi og sjónvarpi, að mér fynd-
ist mjólkin í hyrnu no. 2 vera
bezt, en í ljós kom, að í þessari
hyrnu var mjólk með 10 prs.
íblöndun, en ekki 20 til 30 prs.
eins og Steingrímur segir. Enn-
fremur sagði ég, að það væri öll
um vorkunoarlaust að drekka
þessa mjólk heldur en að hafa
hér mjólkurskort, þetta er min
skoðun, hvort sem mönnum líkar
hún betur eða verr.
Að lokum lanigar mig til að
skjóta því að Steingrími Davíðs
syni, fyrst hann hefur slíkan
brennandi áhuga á þessu mjólk
urmáli, að hann í fyrsta lagi
bragði á umræddri mjólkur-
blöndu, áður en hamn ríður fram
á ritvöllinn í þriðja sinn.
Væri sannarlega tími tilkominn
að hann ræddi svolítið um þátt
húsbónda forstjóra mjólkursam-
sölunnar, þ.e.a.s. landbúnaðarráð-
herrans, sem óskaði eftir því að
mjólkursamsalan gerði þær athug
anir, sem hún hefur gert í þessu
máli, því mér finnst ómaklegt að
ráðast aðeins á þá, sem fram-
kvæma beiðni hlutaðeigandi ráð-
herra. Ég skýt þessu hér fram
án þess þó að ég ætli mér að
fara að verja starfsmenn Mjólk-
ursamsölunnar, það geta þeir
sjálfir.
Að lokum þetta Steingrímur
Davíðsson. Ég mun ekki taka
þátt í ritdeilum við þig meðan
þú ekki hefur kynnt þér þessi mál
til hlítar og þá einnig hvernig
þessi mjólk er á bragðið.
Virðingarfyllst,
Kristján Þorgeirsson.“
— Er landbúnaðarráðherra
virklega „húsbóndi forstjóra
mjólkursamsölunnar"?
4ra herbergja íbúð
við Fjölnisveg til sölu.
Nánari uppýsingar frá kl. 2—5 I dag og á morgun
í síma 1-99-88.
Harðviðarþiljur
— afsláttur
Seljum næstu daga með afslætti
gullálmsþiljur.
Óðinstorg h.f., Skólavörðustíg 16
sími 14275.