Morgunblaðið - 03.05.1970, Qupperneq 12
\ 12
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. MAÍ 1070
FIMLEIKAR
Rætt við fimleikamenn
og litið inn á æfingu
Fimleikar eru falleg íþrótt og;
aevaforn. Hingað til lands bár-
ust fimleikar fyrst með skozk-
um manni árið 1895 og hafa þeir
verið stundaðir meira og minna
hér á landi síðan. Ýmsir menn,
bæði innlendir og erlendir hafa
lagt fram drjúgan skerf til þess
að efla þessa íþrótt hér og
móta, þó enn vanti mikið á að
Íslendingar standi jafnfætis
þeim þjóðum sem lengst eru
komnar í fimleikum. Meðal
þeirra manna sem þarna hafa
komið við sögu má t.d. nefna
Gunnar Andrew, Vigni Andrés-
son, Vigfús Guðbrandsson,
Benedikt Jakobsson, A. Bertel-
sen, Björn Jakobsson og síðast
en ekki sízt Björn Jónsson.
Hann var í lifanda lífi án efa
einn helzti áhuga- og hvatamað
ur í fimleikum hérlendis og kom
hann því til leiðar að bæði Sigl-
firðingar og Seyðfirðingar fóru
að leggja stund á þessa íþrótta-
grein, sem fram til þess tíma
hafði aðallega verið stunduð í
Reykjavik.
Fimleikar eru stundaðir meðal
margra þjóða, en þeir sem lengst
hafa náð í Evrópu eru Finnar,
Þjóðverjar, Tékkar, Svisslend-
ingar, Ungverjar, og ítalir Auk
þess má nefna Japani og Rússa,
en báðar þessar þjóðir hafa náð
mjög langt í fimleikum.
Guðrún Erlendsdóttir, Islands-
meistari í fimleikum kvenna frá
síðasta ári.
Fyrir skömmu hafði blaðamað
ur Morgunblaðsins tal af nokkr-
um fimleikamönnum, eldri og
yngri, heimsótti fimleikafólk á
æfingu og ræddi við þjálfara.
Fimleikar
á Siglufirði
í 35 ár
Á Siglufirði hafa fimlei'kar
verið stundaðir í 35 ár og eiga
þeir Björn Jónsson og Helgi
Sveinsson heiðurinn af þeim ár-
angri sem þar hefur náðst. Hér
á eftir segir Helgi sem er starf-
andi íþróttakennari á Siglu-
Jón Þorsteinsson
íþróttakennari.
firði, frá kynnum sínum af fim-
leikum:
Kynni mín af áhaldaleikfimi
urðu með þeim hætti, að hingað
til Siglufjarðar kom Björn Jóns
son ættaður frá Seyðisfirði, um
árið 1935. Foreldrar Björns
voru þau sæmdarhjónin Hall
dóra Ágústa Björnsdóttir og
Jón Jónsson bóndi frá Firði,
sem voru annáluð fyrir gjaf-
mildi og gestrisni.
Björn var fæddur 6. ágúst
1909 og mun hann hafa farið til
náms í Þýzkalandi um eða eftir
1930. Dvaldi hann þar um
þriggja ára skeið við verzlunar
nám. Björn hafði mikið dálæti á
öllum íþróttum, þó sérstaklega á
fimleikum, og mun hann hafa
kynnzt áhaldaleikfimi á námsár-
um sínum í Þýzkalandi, enda
Þjóðverjar þá mjög framarlega í
þeim fimleikum.
Það leið ekki langur tími frá
því að Björn kom til okkar
Siglfirðinga að hann var orðinn
mjög virkur í íþróttalífi bæjar-
ins, því maðurinn var góðum
kostum búinn til allra íþrótta og
ekki vantaði áhugann. Þó held
ég að fimleikar á tvíslá, svifrá
og hringjum hafi verið eftirlæt-
isáhöld Björns í fimleikum.
Fljótlega eftir komu sína til
Siglufjarðar hóf hann forgöngu
á því að safna fé til kaupa á fim
leikaáhöldum og slíkur var
áhugi fyrir þessu máli að hann
mun hafa greitt ríflegan hluta í
þessum áhaldakaupum úr sínum
vasa. Hann ánafnaði síðar Knatt
spyrnufélagi Siglufjarðar þess-
um áhöldum ásamt tveimur fán-
um með fjórum F-um í áem voru
tákn allflestra fimleikafélaga og
sambanda er stunduðu þessa
áhaldaleikfimi.
Til gamans má geta þess að
hinn gamalkunni fimleikamaður
Norðmanna, Paal Clasen, segir
að Jóseph Stockinger hafi flutt
þessa fimleika til Noregs frá
Þýzkalandi.
Nú þarf ekki að orðlengja
það, að þegar Björn hafði klifið
þrítugan hamarinn í þessum
áhaidakaupum og þau komin til
Siglufjarðar, hóf hann fimleika-
kennslu með sínum alkunna
dugnaði og það að sjálfsögðu
endurgj aldslaust.
Ég átti því láni að fagna að
vera einn af þeim mörgu ungu
piltum hér á Siglufirði sem nutu
kennslu Bjöms Jónssonar og
þar vaknaði áhugi minn fyrir
áhaldafimleikum og eftir að ég
varð íþróttakennari hvatti hann
mig bæði með ráðum og dáðum
að halda þessari kennslu áfram,
en hann fluttist síðan aftur til
sinnar heimabyggðar árið 1939
og þar endurtók sagan sig frá
dvöl hans á Siglufirði, að hann
kaupir sams konar áhöld frá
Þýzkalandi og gefur seyðfirzk-
um æskulýð þau, síðan kennir
hann þar fimleika má segja, allt
til dauðadags, 20. maí 1965.
Mikið og gott samstarf var á
milli okkar Björns heitins Jóns-
sonar í þessum fimleikamál-
um og lít ég á hann sem vel-
Kristján Astráðsson í hringjunum.
á fimleikum á íslandsmótinu í
fyrra.
Hann segir að sá sem leggur
stund á fimleika geti aldrei orð-
ið leiður á þeim.
— Fimleikum má líkja við
tröppur, segir Kristján, stund-
um fer manni mikið fram og er
eins og þá séu teknar 10 tröpp-
ur í einu stökki, síðan stendur
Þegar leikmaður horfir á fim-
leikamann sýna listir kann hon-
um að virðast undarlegt að
íþróttamaðurinn komist frá æf-
ingunni heill á húfi.
Um þetta atriði segir Kristján
að vissulega sé auðvelt að slasa
sig í fimleikum, ef dirfskan er
meiri en hæfnin, en hins vegar
hafi slys hjá þeim verið afar fá-
Frá hópsýningu kvenna.
gjörðarmann í mörgu sem lýtur
að áhaldafimleikum og við upp-
rifjun þessara mála þá finnst
mér furðulegt að ekki skuli vera
kennt í þeim í okkar ágæta
íþróttakennaraskóla. Það er ekk
ert vafamál að væntanlegir
íþróttakennarar myndu taka því
vel og gætu haft þau átorif að
fimleikair kæmust á hærra stig
en þeir eru nú.
Áhaldafimleikar hafa því
meira og minna verið stundað-
ir hér á Siglufirði um 35 ára
skeið.
Þegar ég lít yfir öll þessi
liðnu ár, þá finn ég það glöggt
að ég hef ekki getað sinnt þeim
eins og hugur hefur staðið til
og sannarlega harma ég það, en
áhugi Björns heitins Jónssonar
lifir hér enn og sú slóð sem
hann hefur skilið eftir sig hér á
Siglufirði og Seyðisfirði í þess-
um málum er efcki horfin.
Langar til að
kenna íþróttir
Kristján Ástráðsson heitir sá
sem varð íslandsmeistari karla
Helgi Sveinsson, frá Siglufirði,
sýnir fimleika á fimmtugsafmæli
Þórir Kjartansson í erfiðri gólfæfingu.
maður í stað. Ef til vill fyllist
maður þá óþolinmæði á meðan,
en áður en varir stekkur mað-
ur aftur upp 5—10 tröppur og
þá verður áhuginn enn meiri en
áður.
Kristján, sem er að verða tví-
tugur hefur iðkað fimleika í 6
ár, en áhugi hams á fimleikum
vaknaði, þeigar hann æfði með
fimleikaflokki drengja hjá
Skúla Magnússyni í Laugarnes-
skóla. Frá Skúla fór Kristján
beint í fimleikafilokk Ármanns og
hefur æft þar síðan. Kristján er
í meistaraflokki og í vetur hef-
ur hann þjálfað II flokk ásamt
félaga sínum sem einnig er í
meistaraflokki.
í framtíðinni langar Kristján
til þess að komast á íþrótta-
skóla og kenna síðan íþróttir og
þá sérstaklega fimleika, en á
þeim segir Kristján að sé hörg-
ull.
tíð, enda reyni þeir að
framfylgja öllum nauðsynlegum
varúðarráðstöfunum. Síðan tek-
ur Kristján sjálfan sig sem dæmi
og segir að á þeim 6 árum sem
hann bafi æfit fimleiikia hafi
hann aldrei silasazt svo mikið að
orð væri ágerandi og það alvar
lega.sita sem fyrir sig hafi kom-
ið sé brákun á tá, en fyrir
því óhappi varð hann fyrir
skömmu.
Dauft yfir
fimleikum
kvenna
Guðrún Erlendsdóttir, sem
hefur lagt stund á fimleika síð-
an árið 1964, segir að dauft sé
yfir fimleikadeild kvenna hjá
Ármanni í vetur, enda hafi ver-
ið hörgull á þjálfurum.
Á síðasta ári keppti Guðrún á
íslandsmótinu í fimleikum ásamt
9 öðrum stúlkum. Náði Guðrún
beztum heildarárangri á mótinu
og hlaut því titilinn íslandsmeist
ari kvenna í fimleikum 1969.
Ingi Sigurðsson, þjálfari
leikadeildar Ármanns.
fim-