Morgunblaðið - 07.05.1970, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 07.05.1970, Blaðsíða 2
2 MORjGLTNIBLAÐIÐ, FTMMTUDAjGUR 7. MAÍ 1970 * r Páll Vígkonarson, forstjóri Myndamóta ásamt teikmirum Matthi asi Astþórssyni og Páli Guð- mundssyni. Sigurður Bjarnason með offsetfilmur í ljósaborðinu. Páll gat þess að lökuim að fleiri nýjungar væru í starf- semi Myndamóta. — Við erum famir að gera filmur O'g plötur fyrir offset, en eins og kunnugt er eru margar prentsmiðjur að fara af stað með offsetpressur eða hyggja á slík kaup. Getur þjónusta sem þessi verið til mikils Ihagræðis fyrir prent- smiðjur og sparað kaup á dýr um tækjum, sem jafnvel væri ekki hægt að nýta til fulls. Meðal þess, sem við erum farn ir að vinna í offset er Æskan og er það gert í góðri sam- vinnu við prentsmiðjuna Odda, sagði Páll að lotoum. Á EFSTU hæð Morgunblaðs- hússirvs var nýlega opnuð aug lýsmgateikniatofa og er hún rekin á vegurn prentmynda- gerðarinnar Myndamót h.f., sem er á sömu hæð. Teikni- stofan er í nýinnréttuðum húsakynnum og þar starfa tveir teiknarar við hin ýmsu störf, sem falla undir það, sem oftast er nefnt auglýsingia teiknun. á vegum Myndamóta h.f., m.a. í því skyni að bæta þjónust- una við viðsfkiptavini prent- myndageirðarinnar, því það er óneitanlega mjög þægilegt að hafa slík fyrirtæki á sama stað. Þó má ekki sfcilja orð mín svo, að teiknistofan geri aðeins auglýsingar, sem siðan eru unnar í Myndamótum. Því fer fjarri. Teiknistofan vinn- ur a'lveg sjálfstætt eins og hver önnur auglýsingastofa, þrátt fyrir tengslin við prent- myndagerðina. XXX sagði hann nokkuð frá starf- seminnL — Auglýsingateifknistofan var stofnuð á vegum Mynda- móta sagði Pálil, m.a. í því Skyni að bæta þjónustuna við viðskiptavinina. Á stofunni starfa tveir teiknarar, Matt- hías Ástþórsson, sem áður starfaði hjá auglýsingastof- unni Argus og Páll H. Guð- mundisson, sem vann hjá Gísla B. BjömssynL — Verkefni teiknistofunnar eru mörg: gerð auglýsinga í blöð og sjónvarp, hönnun um- búða, bóka^kreytingar og káputeikningar, umibrot á blöðum o.fl. f sambandi við auglýsingarnar sér teiknisíof an um dreifinigu þeirra og stkipuleggur birtingu þeirra, ef óskað er. Það færist stöð- ugt í vöxt að fyrirtæki not- færi sér slíka þjónustu faig- manna, því það er ekki nóg að gera svo og svo stóra og dýra auglýsingu — innihald hennar og skipulaig birtinga skipta mestu máli. — Eins og ég minntist á áðan var teiknistofan stofnuð Framkvæmdastjóri Mynda- móta h.f. er Páll Vígkonarson og í stuttu spjalli við Mbl. Skóladag- heimili - fyrir börn einstæðra foreldra - í athugun NÚ er að hefjast athugun á vegum Reykjavíkurborgar á stofnun svonefnds skóladag- heimilis í haust. Hér er um að ræða eins konar dagheim- ili fyrir börn á skólaaldri, þar sem þau geta dvalið að skóla- tíma loknuni, og er starf- ræksla slíks heimilis fyrst og fremst hugsuð sem aðstoð við einstæða foreldra. Borgaryfirvöld hafa óskað eft- ir því við Hagsmunasaimtök ein stæðra foreldra, að þau tilnefni fulltrúa í nefnd ásamit félags- málastjór-a og fræðslu-stjóra borg arinna-r til þess að a-thuga mögu leika á því að koma slítou skóla dagheimili á fót til reynslu. Mun athiugun . nefndarinnar beinast að því, hvort unn-t verði að starfreelcja skóT-ada-gheimili í einu hverfi borga-rinnar í haust og kemur þá bæði til greina, að hú-snæði skólanna verði notað í þessu skyni eða fengið verði sér- stakt húsn-æði til þess. Endan- leg ákvörðu-n hefur efcki verið tekin og ekki Ijóst að öðru leyti í hvaða formi slfk starfræksla yrði. ______ Loftleiðir fá meðmæli TVÖ erlend neytendablöð, brezka blaðið Focus og hollenzka blaðið Consumenten Gids, gerðu nýlega athugun á fargjöldum flugfélaga og voru Loftleiðir það flugfélagið sem kom lang hag- kvæmast frá þeirri athugun. Mæla bæði þessi blöð með Loft- leiðum, en fargjöld Loftleiða voru sérstaklega borin saman við IATA fargjöld annarra flug félaga og eru Loftleiðafargjöld- in mun hagkvæmari fyrir neyt- endur. Einar Ólafsson, Sigsteinn Pálsson, Jóhann Jónasson. ( Ljósm.: P. H.) Góður hagur Búnaðar- samb. Kjalarnesþings Á myndinni sést hvernig tengilínan hefur veriff strengd yfir Hraunsfjörff Tengílína milli Ölafs- víkur og Stykkishólms NÝLEGA hafa Rafmagnsveitur ríkisins lokið viff byggingn tengi línu sem tengir saman orkuverin í Ólafsvík og Stykkishólmi á Snæfellsnesi. Þessi lína er byggð fyrir 30 þúsund kílóvolt og er 35 km aff lengd og nær frá Grafar nesi til Stykkishólms. í Ólafsvik er vatnsaflsvirkjun, Rjúkand-avirkjun (840 kW) og dísilstöð (1200 kW) en í Stykkis hólmi 690 kW dísilstöð. Til-gangur þessarar tengingar er að hagnýta betur, í saimstarfi, raforku hínna tveggja rafstöðva í Ólafsvík og Stykkishólmi og nýta þar með vatnsorkuna í Rjúk andavirkjun sem bezt. Tengingin kom strax að góð- um notum í lok vertíðair. Bilum varð á vél í annarri rafstöðinni, en með samkeyrslu allra véla í báðum rafstöðvu-m tóbst að fram leiða næg-a raforku fyrir svæðið. >riðjudag, 5. maí — AÐALFUNDUR Búnaffarsam- bands Kjalarnesþings var hald- inn aff Hlégarffi, Mosfellssveit í gær. Fundarstjórar voru þeir Sigsteinn Pálsson og Haukur Níelsson. Fundinn sóttu um 30 fulltrúar bænda í Gullbringu- og Kjósarsýslu. Á fuindinum fluttu ráðtumaut- ar búmaðarsambandsins þeir Pét ur Hjálmsson og Ferdinand Ferd inandssom, dkýrslur sinair. Reks-t ur búmaiðarsambandsims gekk vel sl. ár og kom sambandið út með nokkurn rekstrarafgan-g eftir ár ið. Mestur hagnaður vaTð á rekstri dkurðgröfu eð-a 157 þús. krómur. Rekstur kynbótastöðvar innair var erfiSur að vanda og kom hún út með n-okfcrum halla. Áhugi kom fram á þátttöku í djúpfrystinga-rstöð Búnaðarfé- la-gs íslands að Hvanmeyri, og var samþykkt tillaga að fela nautgrip-aræktardeildinni athug- un á því máli. Nythæsta kýr í nautgriparæktardeildinni vair Doppa frá Skálatúni, mjóllkaði húm 6301 kg mjólkur og fituein ingahæst reyndist Gríma frá Minna-Mosfelli með 27664 fitu- einingar. Á fundinum komu fnam ýmisar1 m-erfcar til’Iögur og hliutu þær a-llar jákvæða afgreiðslu. f fund arlofc var lýst eftir listum til bún aðarþingskosninga. Fram kom aðeins einn listi og er hann því sjálfkjörinn. Bú naða rþ in gsf u-iltrú ar sam- bandsins næsrtu 4 árin verða því þeir Einar Ólafsson, frá Lækjar hvammi og Jóhann Jónaason, frá Sveinsköti. Varamenn eru þeir Einar Halldóirsson frá Setbergi og Ólafur Andrésson frá Sogni. Núverandi srtjórn Bsb. Kmiþ. er þannig skiþuð: Jóhann Jón-asson, form-aður, Sigsteinn Pálsson, Ein ar ÓlafJsson, Einar Halldórsson og Ólafur Andrésson. Framkvæmidastjóri sambands- ins er Ferdinand Ferdin-andsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.