Morgunblaðið - 07.05.1970, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 07.05.1970, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. MAÍ 1970 BILAR a Auglýsingatæknin breytist Um nokkurt árabil hafa bandarísku bílaverksmiðjurnar lagt kapp á að auglýsa kraft og hestaflatölu. f samræmi við það hafa bílar verið auglýstir á sérstakan hátt: Ungir fullhugar, sem maður gæti ímyndað sér að væru kapp- akstursmenn eða að minnsta kosti hraðaóðir, voru myndaðir með þessum bíl- um, og eftir þessum auglýsingum að dæma, liefði mátt ætla að hinn venjulegi ameríski bílkaupandi léti sér standa á sama um alla skapaða hluti í bílnum nema það eitt, að hann væri búinn 300 eða 400 hestafla vél, sem kæmi honum á 100 km hraða á minna en 10 sek. Skýrt var frá því í bandarískum blöðum nýlega að forstjóri General Motors hefði kvatt sér hljóðs, og boðað breytingu á auglýsingatækninni. Hann kvað bílaiðnaðinn alltof lengi hafa miðað við unglinga, rétt eins og aðrir bílakaup- endur væru ekki til og væri nú mál að linnti og hætt yrði þessum einhliða kraftaáróðri. Nokkru síðar tóku að birtast í am-erískum blöðum bílaauglýsingar, sem stungu nokkuð í stúf við hinar fyrri; þar mátti sjá virðulega fjölskyldu- feður, gránaða í vöngum og nú var allt í einu farið að tala um vandaðan frá- gang, um þægindi, um hljóðan gang, og fallegt útlit. Á undanförnum árum hafa bílaverksmiðjurnar í Detroit sent á markaðinn allmargar gerðir sportlegra fólks- bíla, líkt og Mustang, sem margir kannast við hér. Allar þessar gerðir eru meira og minna svipaðar, og var einkum ætlað að ná til fólksins. En nú lítur út fyrir að minnkandi áherzla verði aftur lögð á þennan markað og fremur verði tekið mið af þeim, sem komnir eru á virðulegan aldur. Öryggispoki Bílaverksmiðjurnar vinna sífellt að nýjungum í öryggisskyni og hér er mynd af því nýjasta af þeim vettvangi. Það er piastpoki sem fyllist af lofti og sprettur leifturhratt út úr mælaborðinu ef framendi bílsins fær á sig högg við árekstur. Ef allt gengur eins og það á að gera, hljóta farþegar og ökumaður ekki einu sinni skrámu við harðan árekstur, en Ford-verksmiðjurnar viðurkenna, að eitthvað hafi gengið í brösum með þennan útbúnað. Þegar tilraunir voru gerðar með brúður, líkt og sést hér á myndinni, kom það fyrir að pokinn fylltist alls ekki af Iofti við árekstur, en átti hins vegar til að gera það, þegar ekkert tilefni gafst til þess. En það eru byrjunarörðugleikar sem sjálfsagt verða leystir. Rolls Royce Rolls Royce hefur oft verið kallaður bíll bílanna, og í dag ekki síður en fyrir hálfri öld, er hann öruggt merki þess að maður er á toppnum, sem stjórn- málamaður, aðalsmaður, verzlunarjöfur — eða pop-stjama. Rolls Royce ®r framleiddur í mjög takmörkuðu upplagi ár hvert, en þótt fjöldinn sé takmark- aður eru gæðin það ekki. f fyrra var byrjað að framleiða „Silver Shadow, long“ og hann stenzt allar nýjustu öryggiskröfur sem gerðar eru í Banda- ríkjunum, enda er útflutningur þangað nauðsynlegur verksmiðjunum. Það er ekki almennt vitað hversu sterk vélin í honum er, því ef menn spyrja um slíkt hjá verksmiðjunum, er þeim aðeins sagt að hún sé nægilega sterk. Nýr sportbíll frá Opel Um nokkurra ára skeið hafa Opel-verksmiðjurnar í Þýzkalandi haft í smíð- um tveggja sæta sportbíl, og kom hann raunar á markað í fyrra. Hann heitir Opel GT og eru af honum fáanlegar tvær gerðir. Önnur með 63 hestafla vél hin með 103 hestafla vél. Með stærri vélinn er viðbragðið úr kyrrstöðu í 100 km hraða 11,5 sek., en hámarkshraði 185 km á klst. Bíllinn þykir framúrskarandi vel teiknaður, öll innbyrðis hlutföll eru mjög góð, en Opel-verksmiðjurnar sem eru eign Generals Motors í Bandaríkjunum, hafa bæði tekið mið af þeirra eigin sport- bíl Corvette, svo og evrópskri hefð í sportbílum. Samkvæmt upplýsingum frá véladeild SÍS, kostar Opel GT um 520 þúsund krónur. Fíat 128, eftir Bertone Ný útgáfa af Fíat, 128, hefur hlotið góðar viðtökur og sums staðar verið kosinn bíll ársins, t.d. í Svíþjóð. Hér á myndinni eru aftur á móti sérstök útgáfa af Fíat 128, sem hinn frægi ítalski bílahönnuður, Bertone, á heiðurinn af. Þetta lag virðist einna helzt það sem koma skal, a.m.k. á smábílum, og hefur þess víða orðið vart. í þessa áttina er t.d. hinn nýi Renault 12, og margt er skylt þessu í útlitinu á hinum nýja Saab 99, enda er það af ítölsku bergi brotið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.