Morgunblaðið - 07.05.1970, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 07.05.1970, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. MAÍ 1970 11 Evrópskur gæðingur — BMW 2800 CS Bílaverksmiðjurnar í Evrópu hafa ekki staðið í sams konar kapphlaupi um hestöflin og þær amerísku, enda eru flestir Evrópubílar taldir fremur vélarvana þar vestra. Evrópuverksmiðjurnar hafa hins vegar lagt áherzlu á aðra hluti, sem menn hérna megin Atlantshafsins a.m.k. telja mun mikilvægari, þ.e. öryggis- búnað ýmiss konar, vandaðan frágang að utan og innan, þægileg sæti, gott út- sýni o.s.frv. Ein Evrópuverksmiðja hefur þó öðrum fremur lagt áherzlu á kraft- mikla bíla, enda hafa amerískir bílakaupendur tekið þeim tveimur höndum. Það er BMW bílaverksmiðja í Bavaríu í Suður-Þýzkalandi, sem eitt sinn fram- leiddi einkum og sér í lagi kraftmikil mótorhjól, en hefur á seinni árum snúið sér að því að framleiða vandaða sport-fólksbíla. Dýrasta og kraftmesta gerðin frá BMW heitir 2800 CS, og er útbúin 6 strokka vél, 192 hestafla. Viðbragðið úr kyrrstöðu í 100 km hraða er hvorki meira né minna en 8,3 sek. og ef maður þarf að flýta sér verulega, þá á BMW 2800 CS að vera góður fyrir 204 km á klst. Ummæli um þennan bíl hafa alls staðar verið mjög á einn veg. Banda- ríska blaðið „Car and Driver“ sagði t.d.: „Það eru til fallegri bílar, það eru til fljótari bílar, en skemmtilegri bíll er ekki til“. Það verður að teljast þó nokkuð góð einkunn. Hætt er þó við að við fáum ekki að sjá marga slíka á vegunum hér, því verðið er liðlega 800 þús. krónur. Só dýrasti frá General Motors Cadillac er glansnúmerið hjá hinum stóru Generals Motors verksmiðjum, og hefur hann um alllangt skeið verið eins konar stöðutákn fyrir vestan og raun- ar hvar sem er í heiminum. Fyrir 10 eða 20 árum mátti einstöku sinnum sjá nýlegan Cadillac hér á götunum, en nú á síðari árum virðist Cadillac eklti hafa verið fluttur inn, hvorki nýr eða gamall og gömlu Kátiljákarnir eru orðnir ærið fo; nfálegir. En það er vissulega meira en að segja það að kaupa Cadillac; sam- kvæmt upplýsingum frá umfcoðinu, Véladeild SÍS, kostar ódýrasta gerðin, Cadil- lac Calais kr. 965 þúsund, «n dýrasta gerðin kostar um það bil helmingi meira, eða 1.895.000. Sá heitir Cadillac Fleedwood. Ódýrasta gerðin þykir annars sæmi- leg; hún er búin öllum hugsanlegum lúxus og standardútgáfan er búin 375 hest- afla vél, en hámarkshraðinn er 200 km á klst. En ugglaust er Cadillac til margs betri en til að leggia honum í þröng bílastæði, því lengdin ®r 6,20 metrar. Fyrir stór-f jölskylduna Þessi tilraun/abíll frá Ford er aðeinis litlu lengri en venjiuleg aimerísk fólks- bifreið. Hins vegar e.r rýmið mun betur nýtt, og í honum getur sex manna fjölskylda ferðazt mjög þægilega, eldað mat, sofið, horft á sjónvarp eða spilað. Okumaðurinn eða -mennirnir, því þeir geta verið tveir eins og í flugvélum, sitja i nakkurs konar útskoti þar sem þeir hafa mjög gott útsýni fram fyrir og til beggja 'hliða. Sjónvarpssikermur sýnir þeim hvernig umhorfs er fyrir aftan þá. Leikfang sem ekki er vegum ætlað Einhverjir sportlega sinnaðir Bandaríkjamenn byrjuðu að leika sér á eyði- merkuröldum með sérstök farartæki, sem að meginuppistöðu vöru Fólksvagn, en vélaraflið aukið til muna svo og hjólastærðin. Þess konar sporttæki voru kölluð Bugs, eða Dune-Bugs og þau fleyttu kerlingar með eigendur sína yfir hóla og hæðir á eyðimörkunum í Nevada og Arizona. Þessi sandbíll hefur nú fengið á sig nokkuð fast form og þetta er vinsælt sport, a.m.k. fyrir vestan. Hætt er þó við að náttúruverndarmönnum og landgræðslunni þætti tækið ekki fara sem bezt með gróðurinn ef einhver er, og ef tækið nýtur sín helzt í fínum, þurr- um sandi, eru heldur ekki margir staðir hér á íslandi, þar sem hægt væri að nota það. V olks wagen-Porche VW-Porche heitir hann þessi og eins og nafnið bendir til eru það Voltos wagen og Porche- verksim iðj un ar, sem framleiða tbann saman. Harnn kamur í tveimur gerðum, 914 og 914/6. 914 hefur 80 hestafla mótor, 1,7 lítra og rafmagns- stjórnaða bensíninnspýtingu. Hámarksihraði er sagður 177 kilómetrar. 914/6 er töluvert dýrari, enda með 6 strokka, 2ja lítra vél sem fram-leiðir 110 hestöfl og það gerir honum að sögn kleift að ná 200 km hraða. Báðar gerðirnar taka tvo farþega og hægt er að taka af þeim yfirbygginguna og geyma hana í skottinu ef veður er gott. Til að vernda háls og höfuð Höfuðpúðar eru hlutir, sem ekki sáust í bílum fyrir fáeinum árum, en nú koma ýmsar tegundir bíla með höfuðpúðum frá verksmiðjunni og svo er, eins og sést hér á myndinni, hægt að kaupa lausa höfuðpúða og setja á hvaða bíl- sæti sem er. En eru höfuðpúðar þá einungis fordild og stælar, eða er hugsan- legt að þeir hafi einhverja raunhæfa þýðingu? Þeirri spurningu verður að svara játandi. Höfuðbúðar eru einmitt þýðingarmikið öryggistæki til verndar þeim hluta líkamans, sem sízt má verða fyrir hnjaski: höfðinu. Höfuðpúðar koma einkum að gagni, ef svo hrapallega vill til, að ekið sé aftan á bílinn, en við það fær höfuð ökumanns og farþega á sig ákaflega harðan slink aftur á bak. Ef sá slinkur er verulega harður, getur hann valdið miklum óþægindum í hálsinn og höfði á eftir og hafa verið brögð að því, að fólki gengi illa að losna við verki og óþægindi, sem hlutust á þennan hátt. En sé höfuðpúði fyrir hendi í bílnum, lendir höfuðið á honum í stað þess að kastast aftur á bak og þessi sérstaka tegund af meiðslum kemur þá varla fyrir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.