Morgunblaðið - 07.05.1970, Blaðsíða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. MAÍ 1970
í hjarta sínu
styður konan
einstaklíngs -
hyggjuna...
hárliðun, sem á
við hana eina
'Jí-’íí- Hun velur
lokkalengd og
bylgjuvídd, sem
hæfa aðeins
hennHHfrHár-
greiðslustofan
GÍQJA leggur
áherzlu á ein-
staklingsþjón -
ustu -Íf-Stigahlíð
45 og síminn er
S442,0
Avaxta sparifé á vinsælan og
öruggan hátt. Upplýsingar kl.
11—12 f. h. og 8—9 e. h.
Margeir J. Magnússon
Miðstræti 3A.
Símar 22714 og 15385.
Bezta auglýsingablaðið
Málefnaleg barátta
1
— rætt við Jón Magnússon,
stud. jur., formann
Stúdentaráðs
NÝKJÖRINN formaður Stúd-
entaráðs er Jón Magnússon
stud. jur. Ef að líkum lætur,
mun verða all stormasamt í
stúdentalífinu á næstunni.
Það mun falla i hlut Jóns
Magnússonar að veita stúd-
entum forystu í hagsmuna-
málunum. Jón hefur þetta að
segja um næstu verkefni
ráðsins:
Lánamálin verða vissulega
eitt höfuðverkefnið. Við mun-
um að sjálfsögðu halda áfram
baráttunni fyrir því, að bil
það, sem umframfjárþörfin
spannar, verði brúað hið
fyrsta. Mín skoðun er sú, seg
ir Jón, að hluti aðstoðarinnar
verði að vera í formi styrkja.
Það mun ugglaust verða erf-
itt að greiða niður þungan
skuldabagga, þegar námi loks
lýkur. Það verður ærlegur
biti i háls fyrir margan náms-
manninn að gera bvort tveggja
í senn að greiða niður náms-
lánin og koma sér upp eigin
heimili, að námi loknu.
Það er markmið, sem allir
ættu að vera sammála um, að
námsimenn þurfi ekki að
hverfa frá námi vegna fjár-
skorts, svo og að námstíminn
lengist ekki óeðlilega vegna
þessa.
— Er hér um aðstöðumun
að ræða?
— Stúdentaráð hefur gert
tillögur um, að gerð verði
könnun á því úr hvaða stétt-
um menntamenn koma, og
hvað örvi menn til að leggja
fyrir sig langskólanám. Slík
könnun yrði það viðamikil,
að það yrði ekki á færi Stúd
entaráðs eins að framkvæma
hana. en við munum reyna að
fá fleiri aðili til að vinria að
þessu og gerum okkur vonir
um að þessi könnun verði
a.m.k. hafin á starfsárinu.
Það hlýtur að vera mjög
heppilegt frá sjónarhóli þjóð-
félagsins, að gera sér grein
fyrir þessum atriðum, bætir
Jón við. En áður en slík könn
un hefur farið fram, er ekki
hægt að gera sér fyllilega
grein fyrir því, hvort um að-
stöðumun er að ræða.
— Hvað um atvinnuhorfur
í sumar?
— Það er mikill vilji fyrir
því, að vinnumiðlun verði
starfrækt á vegum stúdenta.
Félagsstofnunin mun sjá um
þá framkvæmd. Það er svo,
að Félagsstofnunin sér um all
ar framkvaemdir á vegum
stúdenta. Stofnunin hefur nú
lýst vilja sínum að taka þetta
verkefni að sér. Engu að síð-
ur fellur allt undirbúnings-
starf undir Stúdentaráð. Erf-
iðast í þessu sambandi er, að
ekki er ljóst, hvernig atvinnu
ástand verður í sumar.
Hins vegar er áhugi fyrir
því, að vinnumiðlun verði
starfrækt allt árið. Þessi
vinnumiðlun. sem hér um
ræðir. er ef til vill fyrsti vís-
ir að því. segir Jón. A það er
einnig að líta, heldur hann
áfram. að þeim starfsmanni,
sem sjá á um vinnumiðlun-
ina, er einnig ætlað að athuga
möguleika á því að koma á
fót ferðaþjónustu stúdenta.
— Hvaða fyrirtæki er ferða
þjónustan?
— Stúdentar um allar\ heim
reka eigin ferðaþjónustur og
ferðast þannig ódýrt. Þetta
gæti komið hótelrekstrinucn
hér á Görðunum að góðu
haldi, ef erlendir stúdentar
vildu koma hingað.
— Mun eitthvað gerast frek
ar í innritunarmálum?
— Læknadeildarmálið svo-
nefnda, hleypti umræðum um
þetta af stað. Ég er því al-
gerlega mótfallinn að dyr Há-
skólans verði þrengdar. Við
teljum hins vegar, að eina
raunhæfa lausnin sé fjölgun
námsleiða. Við munum líka
vinna að því, að komið verði
á fleiri námsleiðum.
— Hefur eitthvað áunnizt í
þessum efnum?
— Jú, þegar er hafin
kennsla í náttúrufræðum og
félagsfræði, og verið er að
m
Jón Magnússon
kanna, hvort unnt verði að
hefja kennslu í sálarfræði.
— Hvað um stúdentspróf-
ið?
— Þær skoðanir hafa kom-
ið fram að afnema beri stúd-
entsprófið, sem inntökuskil-
yrði í háskóla. Háskólinn eigi
sjálfur að ákveða, hverjir fái
aðgang að skólanum, á grund
velli prófa innan skólans
sjálfs.
— Eitthvað um nýja kennslu
hætti að segja?
— Þar bíður Stúdentaráðs
það verkefni að taka þátt í
og reka á eftir endurskoðun
námsskipunar. Þessu máli hef
ur miðað nokkuð, en þó miklu
hægar en við myndum kjósa.
Annað mál, þessu ekki fjar-
skylt, er endurskoðun
kennsluhátta, sem miði að
sjálfstæðari vinnubrögðum
stúdenta við námið og myndi
leiða til aukningar samræðu-
og æfingakennslu á kostnað
fyrirlestrahalds.
— Hvað segir þú um gagn-
rýni þá, sem beint hefur ver-
ið að Háskólabíói?
— Stúdentaráð hefur falið
ákveðnum mönnum að gera
athugun á störfum og rekstri
bíósins. Sú hugmynd hefur
líka ko>mið fram, að stúdentar
fói ráðið einhverju um mynda
val bíósins.
— Hvaða baráttuaðferðum
hyggizt þið beita?
— Stúdentaráð hefur mark-
að sér þá stöðu að berjast á
málefnalegum grundvelli.
Það hefur verið stefna undan-
genginna Stúdentaráða . að
berjast þannig. Hins vegar
verður það að segjast sem er,
að gagni ekki þessar friðsaim-
legu aðgerðir, þá getur orðið
þörf á að grípa til annarra
úrræða.
— Ætlið þið að berjast fyr-
ir frekari áhrifum á stjórn
skólans?
— Það hafa verið uppi hug-
myndir meðal erlendra stúd-
enta, að hver maður sem starf
ar innan háskóla — stúdentar
sem prófessorar — fari með
eitt atkvæði. Þ.e.a.s. allir
jafn-réttháir. Aðrir stúdentar
eru þeirrar skoðunar, að
stúdentar eigi að ráða helm-
ing atkvæða á móti prófess-
oru.m um stjórn sikólanna.
íslenzkir stúdentar hafa
ekki verið jafn ákveðnir í sín
um kröfum. En samt hefur
báðar kenningarnar Skotið upp
kollinum hér. Tillögur af
þessu tagi hafa verið lagðar
fyrir Stúdentaráðsfund, en
fengust ekki samþykktar.
Stúdentar eru mjög skiptir í
þessu máli, og þess getur orð-
ið töluvert að bíða, að mörk-
uð verði ákveðin stefna þar
að lútandi.
Í.S.I. LAN[1SL1IKURINN K.S.Í.
ÍSLAND —BRETLAND
Verð aðgongumiða:
Stúkusæti kr. 200.00
Stæði kr. 100.00.
Barnamiðar kr. 50.00.
fer fram á íþróttaleikvanginum í Laugardal næst-
komandi sunnudag 10. maí og hefst kl. 17 e.h.
Dómari: Guðmundur Haraldsson.
Línuverðir: Hannes Þ. Sigurðsson og Magnús
Pétursson.
Lúðrasveitin „Svanur“ Ieikur frá kl. 14,15 e.h.
Sala aðgöngumiða hefst á morgun (föstudag)
kl. 3 e.h. úr sölutjaldi við Útvegshankann.
Forðist þrengsli og kaupið
miða tímanlega
ATHUCIÐ:
j
Leiknum verður ekki
útvarpað