Morgunblaðið - 07.05.1970, Page 17

Morgunblaðið - 07.05.1970, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. MAÍ 1970 17 Alþingi: Kambódía og lánamál námsmanna rædd NOKKRAR umræður urðu utan dagskrár í neðrideild Alþingis í gær, aðallega um lánamál stúdenta. Kvaddi Jónas Ámason sér fyrst hljóðs og gerði fyrir- spum til utanríkisráðherra um afstöðu íslands til atburðanna í Kambódíu. Svaraði Emil Jóns- son utanríkisráðheirra fyrirspurn þingmannsins á þá leið, að rík- isstjómin hefði ekki rætt þetta mál, né tekið afstöðu til þess, enda væru upplýsingar sem fyr- ir lægju engan veginn fullnægj andi. Jónas Árnason sagði að fyrr mætti nú vera, að ríkisstjómin skyldi ekki hafa fjiallað um þetta mál. Sagði hann, að tals- rnenn ótalinna rí'kiisstjórna hefðu látið til sín heyra um þau, og ærin ástæða væri fyrir íslend- iniga að taka ábyrga afetöðiu tál þessara mála. Sagði Jónas það koma betur í ljós, að Bainda- ríkj un.um væri stjómað af stór- hætftiulegium mönnum sem stöð- ugt mögnuðuist í ofstopa sínum og valdafýkn. Gerði þinigmaður- inn síðan fyrinspurn um það hvernig á því stæði að frumvarp um námslán til handa framhalds nemendum við Bændas'kóiainn á Hvanneyri hefði ekki verið af- gneitt á þinginu. Gylfi Þ. Gíslason menntamála ráðiherra sagði að komið hefðu fram breytingatillögur við frum varp þetta um að nemendiur tveggja annarra skóia fengju einnig aðgang að lánasjóðnum og hefði þurft að taka það tiil athugunar. Hins vegar myndi rik isstjórnin beita sér fyrir því að þeir fáu nemendur framhalds- deildar bændaskólans, sem ósk- uðu eftir þessum lánum fengj u þau. Urðu síðar. nokkrar almenn ar umræður um lánamáíl raárrts- manna sem þeir tóku þátt í auk menntamálaráðherra, Magnús Kjartansson, Villhjálmur Hjáim- arsson, Þórarin.n Þórarinsson og Lúðvík Jósefsson. Ásakaði Magn ús Kjartamsson ráðherrana fyrir að eiga upptök að sefjasýkisfull um árásum á stúdemtana. Sagði hann að afstaða almenndngs til námmsmanna hefðd gtöðugt verið að breytast þeim í vil nú 'að undanfömu. Mennitamálaráðherra vísaði ásökunum þingmannsins aigjör- lega á bug, og sagði að hann hefði iegið undir þungurh ásöik- unum fyrir það að taka of vægi- lega á lögbrotum náimsfólksins. Bnginn ráðherra ætti nokkra sök á þeirri óvild sem f.ram hefði komið á námsfólkmu, held ur hefði það sjálft skapað hana með óheppilegum aðigerðum sín um. Benti ráðherra t.d. á það að fjögur dagblöð af fimim hefðu fordæmt aðgerðir stúdentanna í Stodckhóimi og framkoma ungl- inganna í menntamála'ráðuneyt- inu á dögunium. Hins vegar sagði náðherrainn að Þjóðviljinin hefði ekki fordæmt þessar aðgerðir og viirtist hlakka í honum yfir þessu. Sagðist hann óska roál- stað stúdenta betra hlufekiptis en þess að láta æsa sig til óhappa venka sem væru til þess edns að spiila fyrir þeim og gera erfið- ara fyrir um aðstoð við þá. Sumarvinna skólafólks kom einnig til umræðu og sagðl menntamála'ráiðhierra í því sam- bandi að í fyrra hefðu verið uppi miklar hrakspár um sum- ^ratvinnu niámsmanna og sagt að þeir myndu ganga aitvinnulausir þúsu'ndium saman. Sagði ráð- hierra, að sem betur færi, hefðiu þessar spár ekki rætzt og rifjaði hann upp sfcuðning rikisvaldsins og samvinnu þess við sveitar- félögin til þess að greiða úr þessu máli. Sagði hamn að ríkis- stjórnin myndi fylgjast mjög ná ið með því hvort skólafólk fengi atvinnu, og ef þar yrðu erfið- leikar á ferð, mundi hún gera ráðsitafanir á svipaðan hátt og í fyrra. — Byggðarkjarni Framhald af bls. 5 kaupmannafjölskyldur æðsta sess, næstæðsta sess skipuðu embættismennimir, síðan komu verzlunarmenn, sem skiptust í þrjá flokka eftir mannvirðingum: bókhaldarar voru af fyrstu gráðu, síðan komu búðarþjónar, því næst pakkhúsmenn. Dug- andi iðnaðarmenn voru ekki sett ir skör lægra bókurum. Efnað- ir útgerðarmenn gátu haldið til jafns við miðlungi duglega iðn- aðarmenn. Lestina rak svo sauð- svartur almúginn." Eftirtektarvert er, að sam- kvæmt þessum tröppugangi hef- ur embættismönnum ekki verið skipað efst, heldur kaupmönn- um. Hafa hinir síðarnefndu þó hlotið að standa hinum fyrr- nefndu langt að' baki með hlið- sjón af bóklegri menntun. Hins vegar hafa kaupmenn haft tvennt í höndum fram yfir emb- ættismennina: 1) peningana og 2) þar með hið raunverulega vald yfir fólkinu. Vafalaust hafa þeir líka búið betur og borið á sér meiri hofmannsbrag; verið forframaðir í útlöndum; en embættismennirnir búrar, sumir hverjir. Eins og fyrr segir, er þessi bók aðeins fyrra bindi; hið seinna _er boðað á hausti kom- anda. Óvarlegt er að segja mik- ið um verkið, fyrr en það er allt komið fram í dagsljósið. Náttúr- lega hafa heimamenn fyrsta rétt til að dæma um, hvemig svona lagað verk hefur tekizt. Þeir vita bezt, hvað rétt er og rangt kann að vera. Fyrir ókunnugan hefur ritið hins vegar þann kost að vera læsilegt og skemmtilegt. Höfundur skrifar lipurlega; slær um sig með sjaldgæfum orðum og orðtökum; það er allt í lagi, ef hann hefur gaman af því sjálfur; en mest er um vert, að hann sýnist vinna þetta verk sitt af alúð og áhuga. Myndim- ar, sem margar eru í bókinni og vel prentaðar, hafa líka sitt gildi — og það ekki lítið. Erlendur Jónsson. Sölumannadeild V.R. Hádegisverðarfundur að Hótel Sögu laugardaginn 9. maí Átthaga- sal 1. hæð kl. 12,15. Fundarefni: VERÐLAGSMÁL OG FI/EIRA. Gestur fundarins verður hr. Eggert G. Þorsteinsson ráðherra. Allir sölumenn og gestir þeirra ásamt félögum í V.R. velkomnir á fundinn. Stjórn sölumannadeiidar V. R. 4 LESBÓK BARNANNA 11. Nautsauga ákvað að utanaðkomandi indíána- þjóðflokkar skyldu rekn- ir af veiðisvæðum Sieux- indíánanna. Hann skip- aði mönnum sínum að hefja stríð gegn hvítu mönnunum. En ef hvítu mennirnir hæfu árás ættu indíánamir að sjálf sögðu að verja sig. Nautsauga sat fundi með sendimönnum frá ríkisstjórn Bandaríkj- anna. Og hann fékk stjómina til þess að sam þykkja að iáta indíánun- um í té vesturhluta Suð- ur-Dakóta, sem friðunar- svæði. Enginn hvítur maður fékk að koma þangað, nema hann kæmi í firðsamlegum er- indagerðum. Nauts- auga 12. En það kom að því, að ríkisstjórn Bandaríkj- anna gekk á bak orða sinna. Hún sendi her- flokk inn á friðunar- svæði indíánanna og yfir maður eins þeirra, Cust- er hershöfðingi, fann þar gull. Fundir Nautsauga og sendimanna stjórnarinn- ar höfðu því borið góðan árangur. Og hélzt nú frið ur í mörg ár. Custer gortaði mjög af gullfundi sínum, þegar hann kom heim. Fréttin um gullið breiddist út og þúsundir hvítra ævin- týramanna tóku að streyma inn á landsvæði indíánanna. Nautsauga reyndi stöð- ugt að komast hjá striði. En að lokum sendi stjóm in þangað mikinn her sem hóf skothríð á ind- íánana — indíánarnir gátu ekki annað en varið sig. Stríð var hafið milli hvítu mannanna og indí- ánanna. 9 14. árg. Ritstjóri: Kristján J. Gunnarsson 7. maí. Ping-Wu og hundurinn í GAMLA, gamla daga átti heima í Kína maður, sem hét Ping-Wu. Á þessum tímum voru menn ekki enn farnir að hafa húsdýr. Þeir áttu hvorki hesta, kýr né sauð fé og ef þá langaði í kjötmeti, urðu þeir að fara á veiðar með boga og örvar og leita að ein- hverju villtu dýri, sem þeir gætu veitt sér til matar. Úti á gresjunum voru villtir hundar, og þeir veiddu einnig dýr, sér til rnatar. Þess vegna voru mennirnir og hund- arnir ekki góðir vinir — þá, en það var, eins og fyrr segir, fyrir langa, langa löngu. Meðal villbu hundanna var einn, sem kallaður var ,,lati hundurinn". Hann var nefnilega of latur til þess að fara á veiðar með hinum hund- unum. Hann beið alltaf þangað til hinir voru orðnir saddir, og þá át hann leifarnar. Hinir hundarnir urðu smám sannan leiðir á „lata hund inuim“, og loks vildu þeir ökkert hafa með hann að gera lengur. Hundaflokk urinn hljóp frá honum og skildi hann einan eft- ir. Á meðan hann sat þarna og hugsaði um það, að ef til vill yrði hann að reyna að vera litið eitt iðnari við veið- arnar, til þess að deyja ekki úr hungri, kom Ping-Wu framhjá. Hann hafði aldrei fyrr séð hund, og þar sem hann var kurteis, eins og allir Kínverjar, hneigði hann sig djúpt og sagði: „Sæll, ég heiti Ping-Wu. Hvað heitir þú?“ „Ghow-Chow“, sagði hundurinn, því hann gelti á kínversku, og gat

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.