Morgunblaðið - 07.05.1970, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 07.05.1970, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. MAÍ 1970 N ey tendasamtökin: Gera athugun á varahlutaþ j ónustu, tryggingum o.fl. Teikning af Elliheimilinu í Selkirk með viðbótarbyggin gunni V-í slendingar stækka elliheimilin tvö VESTUR íslendingar reka sem kunnugt er myndarleg elliheim- ili að Gimli og Selkirk við Winne pegvatn. Er unnið að þvi að staekka og bæta byggingamar á báðum stöðuim, og er skýrt frá því í blaðinu Lögbergi-Heims- kringlu. Á árinu 1969 til 1970 eru stækk unaráformin i þrennu lagi: 1. Viðbótarbygging við aðal- bygginguna að Gimli, 24x52 fet að stærð, og endurnýjum á eld- húsi, auk fleiri endurbóta. 2. Bygging byggingar með 11 smáíbúðum við First Avenue á Gimli, beint á móti Elliheimilinu þar. í hverri eru 3 herbergi, sameiginleg setustofa og þvotta hús með vélum. Vistmenn sjálf ir búa íbúðimar húsgögnum, en ísskápar og eldavélar fylgja. 3. Viðbót við Elliheimilið í Selkirk, sem rúmar 30 rúma deild fyrir aldraða, sem þurfa full- komna hjúkrun. Er viðbótarbygg ingirn tengd eldri byggingu með gangi, og er hún vönduð og sam kvæimt nýjustu kröfum. í húsinu verða 6 eins manns herbergi og 12 fámennisherbergi. Er þessi bygginig nú í gangi. Kostmaðlur við þessar þrjár byggingar eir áætlaður 450.000 $, sem verða fengmir með opinberu framlagi, með lánum og saimskot um. MEGINHLUTVERK neytenda- samtakanna er að efla þekkingu neytenda á þeirri vöru og þjón- ustu, sem á boðstólum er, gæta fyllsta hiutleysis og nákvæmni og draga því að engu leyti taum einstakra hagsmunahópa, stjórn arvalda eða stjórnmálaflokka, Markmið allrar neytendafræðslu er að veita kaupandanum svip- aða vöruþekkingu og seljandinn hefur og þannig skapa jafnrétti á markaðnum, þegar dæma á um gæði vöru eða þjónustu. Ýmis- legt er á döfinni í athugunum hjá samtökunum og nýverið hef ur blaði samtakanna verið gjör- breytt. f næsta tölublaði Neytenda- blaðsin,s er fyrirhugað að fjalla um sjálfvirkar þvottavélar. Einn ig er verið að framkvæma at- huganir á viðgerða- og varahluta þjónustu, tryggingaþjónusitu, fisk dreifingu, kjöti og sölufyrirkomu lagi þess, ferðaþjónustu, þjón- ustu pósts og síma, afborgunar- skilmálum o.fl. Skrifstofa Neytendasamtak- anna er nú flutt í rúmgott og vistlegt húsnæði að Stórholti 1. Hefur stjórn samtakanna að und anförnu -lagt mikla áherzlu á end urskipulagningu kvörtunarþjón- ustu skrifstofunnar svo að félags menn megi njóta bættrar aðstöðu á því sviði. Á þessu ári er ætl- unin að gera tilraun til að efla starfsemi Neytendasamtakanna úti á landi og verða opnaðar skrifstofur á vegum samtakanna á Akureyri, í Keflavík og Vest- mannaeyjum. Innheimta árgjalda fyrir árið 1970 er nú að hefjast. Fjárhag- ur samtakanna er fyrst og fremst kominn undir félagsmönn um þeirra, og fjárhagurinn er ör uggasti mælikvarðinn um það hversu öflugt baráttutæki Neyt- endasamtökin eru hverju sinni fyrir hag neytenda. Hafin verður bráðlega mikil sókn til að fjölga félagsmönnum Neytendasamtakanna, en í þeim eru nú skráðir 7000 meðlimir. IUóirgtiti&laííiíi Unglingspiltur óskast til sendiferða á ritstjórnarskrif- stofur Morgunblaðsins. Vinnutími kl. 6—11 e.h. 2 LESBÓKBARNANNA LESBÓKBARNANNA 3 ekki sagt voff-voff, eins og okkar hundar gera. „Þú ert grindíhoraður‘„ sagði Ping-Wu. Það er bezt að þú komir með mér heim og ég gefi þér eitthvað að borða, Chow- Chow. Hundurinn lét auðvit- að e'kki segja sér það tvis var. Hann fór heim með Ping-Wu og Ping-Wu gaf honum soðin hrís- grjón að borða. Chow- Chow fannst fyrst vera dálítið undarlegt bragð að hrísgrjónunum — en hann vandist bragðinu smám saman. í þaikklæt- isskyni sá hann um að enginn ókunnugur færi inn til Ping-Wu á meðan hann væri ekki heima. Þeir urðu innan skamms allra beztu vin- ir, og einn fagran dag fóru þeir á veiðar saman. Chow-Chow hjálpaði Ping-Wu að finna villi- dýrin og varð smátn sam an einstaklega góður veiðihundur. „Þú ert bezti vinur minn“, sagði Ping-Wu oft og klappaði Chow- Chow. Og Chow-Chow dillaði rófuunni. Á okkar dögum eru flestir hundar góðir vin- ir mannanna og þeir sýna vináttu sína með því að dilla rófunni, þeg ar þeim er klappað. En Ghow-Chow var fyrsti hundurinn, sem dillaði rófunni fyrir fólk. SKRÝTLUR Kona (stödd á brú með rnanni sínum og barni): — Ef brúin brotnaði, hvort myndir þú þá bjarga mér eða barninu? Maðurinn: — MÉR. — Hann fer ver með mig en hund. — Nú — hvernig þá? — Hann vill ekki einu sinni gefa mér hálsband. Anna: — Haldið þér, kæri læknir, að ég hefði slæmt af því að fara á dansleik? Læknirinn: — Já, þér hafið án efa illt af því. Þér verðið að hreyfa yð- ur dálítið. því þér hafið slæmt af þvi að sitja mik ið. Mamima: — Þú prjónar óvenjulega hratt núna, Sigga mín. Sigga: — Já, ég er að herða mig við að ljúka við peysuna áður en garnið er búið. Gömul kona (við lítinn dreng, sem er að gráta): — Ef ég væri þú, þá myndi ég ekki hrína svona hræðilega. — Drengurinn: — Þú getur grátið eins og þú vilt, en ég græt svona. Stína: — Það var reglu legia skemmtilegt i veizlunni hennar Lóu. Þar var maður, sem sleppti ekki af mér aug- unum allan veizlutím- ann. Oddný: — Hvemig leit hann út? Var hann stór, frekar ster'klegur með lítitð dökkt yfir- varaskcgg? Stína: — Rétt. Það var hann. Oddný: — Hamingjan góð. Það hefur verið einkanjósnarinn, sem var látinn vera í veizlunni, til þess að gæta þess, hvort nokkru yrði stol- ið. Ráðningar á þrautum SPÁNSKUR ÞJÓÐDANS (Ráðning úr 6. tbl.) Rlævængimir, sem dansmærin þarf að nota eru númer 5 og 10. ÓFRESKJAN (Ráðning úr 7. tbl.) Ófreskjan er samansett ir villisvini, zebradýri, úlfalda, fíl, gíraffa og tígrisdýri. Á þessari eyju faldi sjó ræningi nokkur fjársjóð sinn. Hann kom að landi i fjarðarbotninum, þar sem X er á kortinu. Það- an gekk hann í suðurátt, þangað til hann kom að krossmcrki. Nú breytti hann um stefnu og gekk 6 km í austur og kom þá að þéttu kjarri. Hann hjó sér braut gegnum það í norður og kom að stíg, sem lá út að ströndinni. Sjóræninginn hélt nú tii vinstri eftir stígnum, og þegar hann kom niður á ströndina beygði hann til hægri og gekk 5 km eftir henni. Þá hélt hann aft ur inn í land og stefndi í suður, þar til hann kom að hauskúpu. 4 km það- an í austurátt gróf hann fjársjóð sinn. Reyndu að finna fjár- sjóðinn, með því að fara cftir þessum leiðbeining- Athugið að kílómctra- mælirinn er fyrir neðan kortið og að W er vestur, S-suður, E-austur og N- norður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.