Morgunblaðið - 22.05.1970, Side 10

Morgunblaðið - 22.05.1970, Side 10
10 MORGUNKLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 1970 Tvær Phantom herþotur í flugt akL Ferðalangamir við Cessna vél Flugstöðvarinmar. Frá vinstri: Yngvi R. Grétarsson, aðstoðar- flugmaður, Elíesesr Jónsson, Matthildur Sigurjónsdóttir, og Skúli J. Sigurðarsonar. (Ljósm. Ól.K. M). í Björgvin er fólk í hátíða- skapi. Það er 8. maí, og 25 ár eru liðin síðan oki nasista var velt. Veðurguðirnir halda líka hátíð, það sér ekki ský á himni og það er^ komdð sumar í borg- inni sem Ólafur konungur kyrri stofnaði fyrir réttum 900 árum, borginni sem á vart sinn líka hvað fegurð snertir, í svona veðri. Raunar aegja nú innfædd ir að börnin í Björgvin fæðist með regnhlíf. Það er hátíð og í mörgu að snúast. Laugardaginn 9. maí á að halda flugsýningu, eða flugdag eins og það heitir heima, á Fles- land, flugvellinum við Björgvin. í Noregi er flugið mikilvægur þáttur í samgöngum, það tengir afskekkt byggðarlög alfaraleið, líkt og á Fróní. Flugdagurinn á að vera stórfenglegur. Trans Polar, umboðsmenn Cessna flug- vélaverksmiðjanna í Noregi, hugsa sér til hreyfings. Dóttur- félagið í Björgvin, „BAS“ (Berg en Air Service) sem rekur þar flugskóla, ákveður að sýna alla Cessna fjölskylduna: Cessna 421, 401, 310, 206, 185, 180, 172 og 150. Loks hefur náðst í alla meðlim- ina nema fegursta fuglinn Cessna 310, hana vantar. Nú er iUt í efni, aðeins tvær slíkar til í Noregi og hvorug er tiltæk. Allt í einu man einhver eftir íslenzku vélinni, vélinni sem hann Elli flaug heim tíl íslands í samfloti við þá, er þeir sóttu sína Cessna 402 til Wichita í Kansas. Þetta eru menn sem hugsa og framkvæma, síminn er gripinn og innan skamms er Elli á hin- um endanum. Getur hann kom- ið, og sýnt hina glæstu flugvél? Eftir stutt samtal, er ferðin ákveðin og talast svo til, að Elli komi utan aðfaranófct 9. maí. í Björgvin er að hefjast mik- ll veizla. Prúðbúið fólk streym- ir að Hákonarhöllinni. Hún er helgur staður. Hana reisti Hákon gamli og bjó hann þar löngum ásarnt syni sínum Mag- núsi lagabæti. Þrisvar hefur höil in brunnið en alltaf hafa vegg- irnir staðið og hún verið end- urbyggð. Nú er þar fagnað frels uninni 8. maí 1945. TF-ESS, Cessnan stendur ferð búin framan við heimahúsdn. Flugstöðina á Reykjavíkurflug- velli. Veðurfræðingurinn segir austan vinda á hafinu, Svo flug- ið til Björgvinjar reiknast 5V2 klst., en þar eð flugþolið er 6 klst., er ákveðið að lenda á Eg- ilsstöðúm og taba eldsneyti, þótt þannig yrði ferðin 1 sjómílu eða 20 sekúndum lengri, en ef lent væri á Hornafirði. Loks er langt af stað. Frammi í, við hlið flugmannsins Elíesers Jónssonar, er hann Yngvi R. Grétarsson. Hann er að ljúka flugnámi sínu og fær nú að fljúga þennan líka fína túrinn. svona í restina, undir leiðsögn Ella. Aftan við Ella situr hann Ólafur K. Magnússon, siem allir hafa heyrt nefndan og við hlið hans er hún Matthildur Sigur- jónsdóttir, konan hans Ella. í öftustu sætunum sit ég og hef björgunarbátinn við hlið mér. Ekki fer nú mikið fyrir honum, svona samanrúlluðum og loft- lausum. Þegar Flugturninn gef- ur okkur flugtaksheimildina get ur flugumferðarstjórinn ekki stillt sig um að grínast og segir: „Séra Sigurður, heimilt flug- tak sfcað þess að nota kallmerki okkar sem er „Sigurð- ur, Sigurður." Austan Þingvalla rofar dálít- ið til og það sést niður. Brátt sézst biksvartur geirinn norðvest ur frá Heklu gömlu. Stórfeng- leg sjón að sjá hin skörpu skil elds og ísa. Hekla er hulin leyndardómshjúpi og frá henni stíga bólstrar. Enginn skyldi treysta henni um of. Ekki grun- aði mig það í gær, er ég var þama niðri við Heklurætur að innan sólarhrings sviii ég hér yfir á leið til útlanda, en það ræður víst enginn sínum nætur- stað. Eftir 1 kdst, og 20 mín. flug, er lent á Egilsstöðum. Þar er dásamleg kvöldkyrrð. Ekki hreyfist hár á höfði og það er vor í lofti. Meðan bensíni er bætt á vél ina þá sitjum við uppi hjá Gunnari Egils-syni í flugturn- um og horfum með honum á „Mission impossible“ í sjónvarp inu. Ekki er nú hægt að segja. að þetta eigi við okkar ferð. Nú á tímum virðist ekkert ómögu- legt. Hugurinn leitar hátt og inn an skamms svífum við hátt yfir Seyðisfjörð. „Ef hann bróðir minn vissi nú að ég væri hér!“ segir Matthild- ur og horfir dreymandi niður á milli fjallanna. Hún er aust- firzk og sér nú æskustöðvarnar frá óvenjulegu sjónarhorni. Flugvélin þýtur áfram, í 3ja kílómetra hæð með 325 km. hraða á klst. Sólin er setzt að baki okkar Framundan er óravídd íslands- ála. Loftið er svo kyrrt að vél- in baggast ekki. Skyldi útgerðarmönnum hafa dottið þessi möguleiki í hug, til þess að færa heim varastykki í bilaða báta. Stykkið gæti legið á bryggjunni á Seyðisfirði eftir flugferð frá Noregi, þegar bátur inn kæmi að landi, norðan úr höfum. Það hlýtur að vera dýrt, að bíða marga daga í höfn, eftir að v-arastykkið komi ge-gnum hana Reykjavík frá útlandinu. Ég dotta, — Ólafur er með all- an hugann við himintunglin og stjórntæki farkostsins. Hann er mikill áhugam-aður um fkug. Allt í einu berst kaffiilmur um vél- ina. Það er ekki amale.gt að hafa forsjála fLugfreyju um borð. Ljósin í Færeyjum eru út við sjóndeildarhringinn í suðri. Það er annars ekki á hverjum degi. sem millilandaflug hefst á Egils- stöðum. Enn sem komið er, þurfa Austfirðingar að fara til Reykja víkur, jafnvel Keflavíkur til þess að skreppa út fyrir poll- inn. Ekki þyrfti nema 2 farþega til þess að svona ferð borgaði sig fyrir þá. Ekki veit ég fyrr en Ólafur tekur kipp og segist sjá strönd. Viti menn, nú er komið að skerjagarðinum. Þetta er eins og sýnikennsla í landafræði. Nú sjálst ljósin á Flesland, flugvellinum við Björgvin og svo rennur vélin mjúklega upp að flugstöðvarbyggingunni. Ekki er nú margbrotin toll- skoðun hér, bara spurt um það hvernig veðrið hafi verið og hvað flugtíminn frá fslandi hafi ver- ið langur, en það voru 4 tímat og 8 mínútur. Þarna koma vinir Ella frá Transpolar og BAS á Volkswagenrúgbrauði og það er gefið vel í á leiðinni inn í bæ, enda enginn á ferli. Þegar við komum að hóteli okkar, þá er það andspænis Hákonarhöllinni. Þar streymir út fólk klætt sam- kvæmisklæðnaði. Hætt er við að Hákon gamli hafi klætt sig öðru- vísi þegar hann hafði gl-eði í höU sinni. Á laugardagsmorguninn vor- um við snemma á fótum. Þarna stóð hún í morgunsólinni, höll- in. Þrisvar hafði hún brunnið, síðast 1944, en veggirnir höfðu alltaf staðið og hún verið endur byggð. Þetta var fyrsta konungs höll íslendinga. Það lágu marg- ar ástæður til þess að Norð- menn litu á þetta hús sem helg- an s-tað. Við röltum áfram. Stendur þarna ekki Snorri Sturluson á stalli sínum! í þessum bæ er eifct- hvað sem tengir frændsemis- böndin. Björgvin, sérkennileg borg, hefur jafnmarga íbúa og allt fs-land. Hún teygir sig yfir holt og hæðir og upp eftir fjalla hlíðum. Þarna var mikið aðsetur þýzkra Hansakaupmanna. Þeir verzluðu með skreið og seldu Norðmönnum krydd, m.a. pipar. Þeim var um tíma bannað að kvænast og voru kallaðir pipar- 3veinar, vegna piparsölunnar, síð ar hefur þetta heiti færzt yfir á ókvænta karlmienn. Þarna í Björgvin dvöldu forð- um meðal Noregskoniunga marg- ir íslenzkir höfðingjar og dóu þar sumir, svo sem Arnór Tuma- son og Jón murtur Snorrason Sturlusonar. Tíminn líður og við verðum að fara út á flugvöll, því þar stendur mikið til. í leið- Framhald á bls. 23

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.