Morgunblaðið - 29.08.1970, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 1970
ÓSKA HTIfi
að kaopa steyputwaeirivéf. —
Uppl. í síma 92-2134 m#li M.
7 og 10 e. tiL
SKÁKMENN
Nokikirair fágaetar skékbaeikur
fáamliegar. Uppl. í síma 42034
miiiMti H. 1 og 3.
Sveinn Kristinssoru
EINKAMÁL
Kona um sextuigt ósikiar eftir
a>ð kynmiaist regl'usöm'um
mamini á sviipu'ð'um arlidri. Tilb.
servdist Mbk. fyri'r mámu'dags-
kvötd 31. þ. m. metkt: „Heim
« 4032".
2JA—3JA HERB. iBÚÐ
óslkast með fnúisgögmum og
siíma, strax. Uppl. í síma
13421.
TAKIÐ EFTIR
Kas-t'isikápum bneytt í frysti-
skópa. Hfuti af skápnum hrað
frystiing.
Guðrti Eyjólfsson,
slimi 50777.
UNGUR PfLTUR
óskar eftir vinnu háifam dag-
inm, helzt á mongmana. Alft
kemur tfl greima. Símii 38058.
KARTÖFLUUPPTÖKUVÉL
sem pokar, er twl sölu. Uppl.
f síma 33833 eftir kl. 7 á
kvötd-im.
MAÐUR EÐA KONA
m'eð stúdents'próf, sem vi'lf
lesa með lamdsprófsn. í vetur
gietur femgið forstofuihetbergf
ésamt snyrtilher’b. til leigu.
Tifb. m.: „Beggja hagur 2798"
til afgr. Mbl. fynir 3. sept.
DRENGJA TERYLENE BUXUR,
eimmig telpna og dömubuxur.
Fna mieiðsluvenð.
Saumastofan, Barmahlið 34,
sími 14616.
MOSKWITCH '65
ti'l sölu og s ýrvis að Kl'epps-
vegi 40. Uppf. í síma 83979
fhá kl. 1—5 í dag.
HEIMAMYNDATÖKUR
Banna- og brúOkaupsmynda-
tökur í conrect col'oiur. —
Vönd'uð'ustu litmyn'dir á mark
aðnum. — Stjömuljósmyndir,
Flókagötu 45, sfmi 23414.
HÚSBYGGJENDUR
Ftamleiðum mi'lliveggjaplötur
5, 7, 10 sm immiþurrkaðet.
Nákvaem lögun og þykkt.
Góðar plötur spara múrtiúð-
un. Steypustöðin hf.
HÚSEIGENDUR
Þéttum steinsteypt þök, oak-
rennur, svafir o. fl. G tum
bindatvdi tifboð.
Verktakafélagið Aðstoð,
sfmi 40258.
MÚRARAR
Varntar múnara strax í útimúr-
venk á 200 fm búsi. Fast
trfcoð. Uppf. sendist tif MW.
metikt: „Hafnarfjönður 4102".
TLHMPÖKUfl TIL SÖLU
véfskomar, heimkeynt.
Sími 99-3713.
MESSUR Á MORGUN
Dómklrkjan
Messa kl. 11. Séra Óskar J.
Þorlák.sson.
Fríkirkjan í Hafnarfirði
Messa kl. 2. Séra Bragi Bene-
diktsson.
Eyrarbakkakirkja
Messa kl. 2. Minnzt 50 ára af
mælis Ungmennafélags Eyrar
bakka. Séra Eirikur J. Eiríks
son prédikar. Séra Magnús
Guðjónsson.
Ásprestakall
Messa í Laugarásbíói kl. 11.
Séra Grímur Grímsson.
Grindavíkurkirkja
Messa kl. 11. Séra Jón Ámi
Sigurðsson.
Neskirkja
Messa kl. 11. Séra Jón Thor-
arensen.
Innr i-N j arð víkurkirk j a
Messa kl. 2. Séra Bjöm Jóns-
son.
Útskálakirkja
Áður auglýst messa fellur nið
ur. Séra Bjöm Jónsson.
Laugarneskirkja
Messa kl. 11. Séra Garðar
Svavarsson.
Hallgrímskirkja i Saurbæ
Guðsþjónusta kl. 2. Héraðs-
fundur Borgarfjarðarprófasts-
dæmis verður haldinn eftir
messu. Séra Jón Einarsson.
Grensásprestakall
Messa í Safnaðarheimilinu í
Miðbæ kl. 11. Umsækjandi
prestakallsins séra Jónas
Gíslason messar.
Kópavogskirkja
Guðsþjónusta kl. 10.30. Sig-
ríður Magnúsdóttir syngur.
Séra Gunnar Ámason.
Bústaðaprestakall
Guðsþjónusta í Réttarholts
skóla kl. 11. Séra Ólafur
Skúlason.
Háteigskirkja
Lesmessa kl. 10. Séra Amgrím
ur Jónsson. Messa kl. 2. Séra
Jón Þorvarðarson.
F'rikirkjan í Beykjavík
Messa kl. 2. Séra Þorsteinn
Bjömsson.
Dómkirkja Krists konungs í
Landakoti
Lágmessa kl. 8.30 árdegis. Há
messa kl. 10.30 árdegis og
lágmessa kl. 2. síðdegis.
Kirkja Óháða safnaðarins
Messa kl. 2. Séra EmilBjörns
son.
Hallgrímskirkja
Messa kl. 11. Séra Ragnar Fjal
ar Lárusson.
Fíladelfía, Beykjavik
Guðsþjónusta kl. 8 síðdegis.
Hallgrímur Guðmannsson pré
dikar. Ásmundur Eiríksson.
DAGB0K
Blessaður er sá maður, sem reiðir sig á Drottin og lætur Drottin
vera atlivarf sitt. (Jerern. 17.7).
f dag er laugardagur 29. ágúst og er það 241. dagur ársins
1970. Eftir lifa 124 dagar. Höfuðdagur. Höggvinn Jóhannes skír-
ari. Árdegisháfiæði kl. 5.16. (Cr íslands atmanakinu.)
AA- samtökin.
''iðlalstím, er í Tjarnar£Ötu 3c &?la virka daga frá kl. 6—7 e.h. Síml
'«S373.
Almennar npplýsingar nm læknisþjónnstu i borginnl eru gefnar
simsvaia Lækn-Jelags Reykjavíkur, sima 18888. I-ækningastofur eru
iekaðar á laugardögum yfir sumarmánuðina. TckiS verður á móti
beiðnum um lyfseðla og þess háttar að Grjðastræti 13 Simi 16195,
frá kl. 9-11 á laugarda£sxncrgnuzu
Tannlæknavaktin
er i Heilsuverndarstöðinni, laugar-
daga og sunnudaga frá kl. 5—6.
Næturlæknir í KeflavTk
29.8. og 30.8. Kjartan Ólafsson.
31.8. Ambjörn Ólafsson.
Læknisþjónusta á stofu á laugar-
dögum sumarið 1970.
Suimarmámuðina (júní-júlí-ágúst-
sept.) eru læknastofur í Reykja-
vík lokaðar á laoigardögum, nema
læknzstofan í Garðastræti 14, sem
er opiin alla laugardaga í sumar
kl, 9—11 fyrir hádcgi, sími 16195.
Vitjanabeiðnir hjá læknavaktinni
simi 21230, fyrir kvöld- nætur- og
helgidagabeiðnir.
Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 74,
er opið alla daga, nema laugar-
daga, frá kl. 1.30—4. Aðgangur
ókeypis.
ÁRNAÐ HEILLA
yyji^Luís iarmdíi^
Ljóst er nú, að skarð er fyrir skildi,
og skaðsamlegt að höggva svona fast,
en fátt er hér um miskunn eða mildi
— og múrveggurinn fyrir norðan — brast!
Með vopn í höndum; — haka, axir, spaða
og höfuðverk af ást á móður jörð,
fór hópur manna; — herská bændavaða,
og hjó og reif í varnargarðinn — skörð.
Og Miðkvri lin — að morgni fór að buna
— og Missisippi Þingeyinga flaut,
og niðurgönguseiðin fengu funa
í frampartinn, — og héldu sina braut!!
Já, —• einnig hér; — á ísaköldu Fróni
er ættjarðar- og frelsisþráin heit
— I næturhúmi, — upp að Laxárlóni
læddist þingeysk skæruliðasveit!
Guðm. Valur Sigurðsson.
1 dag verða gefin saman í hjóna
band í Háteigskirkju af sr. Jóni
Þorvarðarsyni Hildur Eiriksdótt
ir kennari, Selvogsgrunni 23 og
Magnús Pétursson hagfræði-
nemi, Hrisateig 34.
í dag verða gefin saman í
hjónaband í Hallgrímskirkju af
séra Birni Jónssyni Guðrún S.
Norðfjörð Háaleitisbraut 17, R.
og Steinar V. Árnason, Túngötu
24, Vestmannaeyjum.
Átthagaljóð
I Arnarvatnsstíl hinum nýja
Lag: Biessuð sértu sveitin
mín.
Blessuð sértu bomban mín
barmafull af dynamiti.
Engin stíflan, áin fín,
öllu breytir sprengjan min.
Heillar mig nú heimsins grín,
hugsa ég af engu viti,
á meðan blessuð bomban mín
brýtur allt með dynamiti.
M.Ó.
Laugardaginn 29. ágúst verða
gefln saman í Selfosskirkju af
séra Garðari Þorsteinssyni pró
fasti ungfrú Benedikta Guðrún
Waage húsmæðrakennari ogHall
ur Árnason stýrimaður. Heimili
þeirra verður að Hraunbæ 12 a.
Reykjavík.
GAMALT
OG
GOTT
Lásagaldur
Blæs eg, svo bylur í lási,
og blístra af manns ístru,
fjandinn með fúlum anda
fast í lásinn blási;
tröll upp togi mellur,
taki á púkar allir;
fetti við fótarjárni,
fjandaris ósjúkir púkar.
Lyftið upp lásnum allir
lifandi fjandans andar.
Betra að kenna stúlkum en piltum
Á dögunum gengum við
fram á Þóri Hersveinsson lög
regluþjón og ökukennara,
þar sem hann var að kenna
nemanda sínum á bifreið, og
notuðum tækifærið til að
leggja fyrir hann nokkrar
spumingar um ökukennslu og
sittlivað fleira, sem viðkemur
henni.
Þórir hefur stundað öku-
kennslu um 8 ára skeið og
þar með kennt bæði á vinstri
og hægri umferð, svo að við
byrjurii með því að spyrja:
„Er auðveldara að kenna í
hægri umferð, Þórir?“
Þórir hugsar sig vel um
svarið. ,’,Ég get satt að segja
ekki séð, að það sé neitt auð-
veldara, en það er heldur
ekkert verra. Eiginlega er það
mjög líkt, og nemendur virð-
ast eiga jafn gott með að til-
einka sér hvort tveggja."
„Eru nokkrir sérstakir
staðir í borginni, sem reyn-
ast erfiðari nemendum en aðr
ir?“
„Auðvitað reynist þeim allt
af erfiðara að aka fyrst í stað
í miðborginni. Þar er umferð-
in meiri, hættumar meiri, og
þar leggjum við ökukennar-
amir áherzlu á að kenna nem
endunum að taka réttar beygj
ur og aka eftir akreinum, en
slíkt er mjög nauðsynlegt.*'
„Eru það einhverjar sér-
stakar götur, sem þið látið
nemendur aka?“
„Já, ekki er því að neita.
Við látum þá aka talsvert um
Þingholtin, þar er mikið um
krappar beygjur og mikið um
alls kyns umferðarmerki, sem
þeir verða að læra að þekkja
og virða."
„I mínu ungdæmi var Njarð
argatan oftast notuð til að
æfa akstur aftur á bak upp
brekku. Er hún ennþá notuð
til þess þarfa verks?"
„Já, blessaður vertu, hún
er notuð ennþá, hún er bæði
brött og þar er alltaf nokkur
umferð. Einnig er Bragagat-
an notuð, frá Laufásvegi."
„Hvort er nú betra að
kenna piltum eða stúlkum,
Þórir?"
„Tja, hvað skal segja. Ég
gæti trúað því, að betra væri
að kenna stúlkum. Þær hafa
minni tilhneigingu til að aka
hratt, og þær hafa miklu
sjaldnar vanið sig á slæmar
akstursvenjur, eins og piltarn
ir, sem þegar hafa kannski
ekið dráttarvélum. Líka get-
ur þetta álit mitt komið af
því, að svo hefur viljað til, að
ég hef kennt fleiri konum en
körlum. Þetta hefur nú orðið
svo.“
„Hvað skyldu margir fá
ökuskírteini á dag hérna í
Reykjavík?"
„Síðast þegar ég vissi voru
það um 30 ökuskírteini, sem
hér voru gefln út á dag. Eitt-
hvað um 100 kennslubílar eru
skráðir, en flestir ökukennar-
ar stunda þetta ekki að stað-
aldri. Við ökukennarar höf-
um með okkur félag, Öku-
Þórir Hersveínssson i bíl sínum mcð nemanda við stýrið.
kennarafélag Islands, og er
Guðjón Hansson núverandi
formaður þess. Eélagið rekur
fræðslunámskeið og ökuskóla
að Stigahlíð 45, og við mæl-
um með þvi, að nemendur
sæki þennan skóla. Þar er
þeim kennt hið bóklega. Sú
kennsla leysir okkur af sjálf
sögðu ekki undan því að
kenna hið bóklega, en hún
léttir óneitanlega mikið undir
með okkur.<Áuk þess sér skól
inn um útvegun sakavottorðs
fyrir nemendur, og þangað
kemur augnlæknir og ljós-
myndari, svo að skólinn spar
ar nemendum mörg sporin."
„Er mjög misjafnt, hvað
nemendur eru lengi við öku
nám?“
„Já, og það að vonum. Fólk
er misjafnlega fljótt að til-
einka sér leikni í akstri, og
hinir eidri eru lengur, en þó
er það ekki einhlítt."
Við vildum nú ekki tefja
Þóri lengur frá kennslunni,
kvöddum hann og nemand
ann og óskuðum þeim góðrar
ferðar út í umferðina í Reykja
vík, sem er svo sem enginn
barnaleikur. — Fr. S.
A
förnum
vegi