Morgunblaðið - 29.08.1970, Blaðsíða 7
MORCrUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 1970
i
Gídeonfélagið á íslandi 25 ára
„Já, það er rétt, Gideon-
félaR'sskapurinn á fslandi á
25 ára afmæli sunnudaRÍnn
30. ágúst, og minnist afnnelis
ins með samkomu í húsi
KFUM og K við Amtmanns-
stíg á afmæiisdaginn, og liefst
samkoman kl. 8.30“, sagði J»or
kell G. Sigurbjörnsson fyrsti
formaður Gideon á íslandi,
þegar við hittum hann að
máli til að fræðast um þenn-
an féiagsskap, sem nú hefur
starfað í aldarfjúrðimg á fs-
landi.
„Hver eru tildrögin að
stofnun Gideon, og hvar
varð þetta félag fyrst til?“
spyrjum við i upphafi.
„Rætur sínar rekur það
til Bandarikjanna, þegar 3
sölumenn kristnir bundust
samtökum um stofnun félags-
ins 1. júlí 1899 í borginni
Jamesville í Wisconsin. Brátt
jókst félagatalan og Gideon
breiddist út um öll Bandarík
in og Kanada, síðan hliðstæð
félög á Norðurlöndunum og
loks já Islandi, sem áður segir
1945, fyrir 25 árum. Nú eru
Gideonfélög í 87 þjóðlöndum í
öllum álfum heims.“
„Hver er svo tilgangur Gid
eonfélagsins ?“
„Hann er sá sami og tU-
gangur allra annarra sann-
kristinna samtaka að útbreiða
Guðs ríki, með því að vinna
menn til fylgdar við Jesúm
Krist, Guðs eingetinn son,
sem kom í heiminn til að
frelsa synduga menn, sbr. Jó
hannesarguðspjall 3 kapítula
16. versið, sem Lúther kallaði
„Litlu Bibliuna", vegna þess
að það felur i sér megin-
kjarna heilagrar ritningar:
,J*ví að svo elskaöi Guð heim
inn, að hann gaf son sinn ein
getinn til þess að hver sem á
hann trúir, glatist ekki, heW-
tir hafi eilíft líf.“
Tæki það, sem Gideonfélag
ar nota aðallega til að vinna
að þessu háleita markmiði er
sjálft Guðs orð, Biblían og
einstök rit hennar. Gideonfé-
lagar alls staðar í heiminum
dreifa Biblíum og Nýja testa
mentum á hótelherbergi, i far
þegaskip, sjúkrahús og meðal
skólabarna, og í tímariti fé-
lagsins „The Gideon Maga-
zine“ getur að líta frásagnir
um blessunarrikan árangur
þessa starfs“.
„Hverjir eru svo félagar I
þessum samtökum ?“
„Gideonfélagið er hvorki
söfnuður í eiginlegri merk-
ingu né sértrúarflokkur.
Þetta eru samtök kristinna
verzlunar- og kaupsýslu-
manna, svo og manna, sem
fást við stjórnun og önnur
störf við hvers konar fyrir-
tæki, bæði opinber og einka-
fyrirtæki. Prestar eru þó
ekki í félaginu, vegna þess,
að þetta er félag kristinna
leikmanna, en samvinna við
presta og söfnuði hefur víð-
ast hvar verið með ágæt-
um. Félagsmenn geta oft á tíð
um með starfi sínu að út-
breiðslu Ritningarinnar náð
til fólks, sem prestarnir ná
ekki til.“
„Hvernig hefur svo starfið
gengið og sérstaklega, hvern-
ig hefur gengið að dreifa Bibl
íum og Nýja testamentum?“
„Alls hafa alþjóðasamtök
Gideonfélaga frá upphafi
dreift rúmlega 10 milljónum
eintaka af Biblíum og um 80
milljón eintökum af Nýja
testamentinu. íslenzkir Gid-
eonfélagar hafa frá upphafi
starfs síns dreift 2275 Bibli-
um í gistihús, farþegaskip,
flugvélar, fangelsi og víðar,
2581 Nýja testamenti í sjúkra
hús, 940 Nýja testamentum
handa hjúkrunarkonum og
66,040 Nýja testamentum
handa skðlabörnum. Þannig
má ætla, að Nýja testamenti
frá Gideonfélaginu hafi kom
Ólafur kristniboði ávarpar börn í Laugarnesskóla við afhend-
ingu á Nýja testamentum.
hjá sér til að reyna að stofna
slíkt félag í ættlandi sínu.
Segir hann sjálfur frá þessu
á þessa leið:'
„Ef til vill gæti Guð þá not
að mig. Ég fór því til Islands
í ágúst 1945 í þeim tilgangi
að stofna Gideonfélag þar.
Þegar til íslands kom, komst
ég brátt að því, að ég hafði
nær gleymt islenzkunni. Ég
hafði varla heyrt eða talað is-
lenzku um fjörutíu ára skeið.
Á Islandi hitti ég kæran bróð
ur i Kristi, Ólaf Ólafsson.
Hann fékk áhuga á mér per-
sónulega en einkum þó starf
Þorkell G. Sigurbjörnsson, semi okkar. Ég var kynntur i
fyrsti formaður Gidconsfélags dagblöðunum. Sögð var sag-
ins á fslandi.
izt í hendur allra Islendinga
á aldrinum 11—27 ára, og bæt
ist einn árgangur við í haust,
þegar skólamir hef jast.
Stofnendur Gideonfélagsins
á íslandi voru 17. Nú eru
Gideonfélagar 97 í þremur fé-
lagsdeildum, 71 i Reykjavik,
10 á Akranesi og 16 á Akur-
eyri. Fyrstu stjóm félagsins
skipuðu Þorkell G. Sigur-
bjömsson formaður, Egill Th.
Sandholt, varaformaður, Frið
rik Vigfússon ritari, Ámi Sig
urjónsson gjaldkeri og Ólafur
Ólafsson kapilán. Þegar félag
ið varð 20 ára, var stofnað sér
stakt landssamband, og félags
deildir stofnaðar. Fyrsti for-
maður þess var Friðrik Vig-
fússon. Núverandi stjórn
landssambandsins skipa þeir
Sigurður Þ. Gústafsson for-
seti, Hilmar E. Guðjónsson
varaforseti, Guðmundur Agn
arsson gjaldkeri, Þorkell G.
Sigurbjömsson ritari og Frið
björn Agnarsson kapilán, en
meðstjórnendur þeir Egill Th.
Sandholt, Guðbjartur G. And
résson og Jón Viðar Guð-
laugsson. Helgi Elíasson er
nú formaður Reykjavíkurfé-
lagsins, Guðbjartur G. And-
résson formaður á Akranesi
og Jón Viðax Guðlaugsson á
Akureyri.
1 tilefni 25 ára afmælisins
héldu Gideonfélagar fyrsta
landsmót sitt á Akureyri dag
ana 8.—12. júli s.l. Auk fé-
laga frá hinum þremur félags
deildum tóku þátt í mótinu
eiginkonur félagsmanna og
nokkrir aðrir innlendir gest-
ir. Ennfremur voru fulltrúar
frá Bandaríkjunum, Noregi
og Svíþjóð. Var það einróma
álit þeirra sem þátt tóku i
móti þessu, að það hefði ver
ið til mikillar blessunar öU-
um þátttakendum og til efl-
ingar staríinu.“
„Var það ekki Vestur-ls-
lendingurinn Kristinn Guðna
son, sem var aðalhvatamaður
að stofnun Gideon á tslandi?"
„Jú, rétt er það, og saga
Kristins, frá því að hann hóf
starf sitt í Ameríku, bláfátæk
ur og þar til hann var orð-
inn stóriðjuhöldur er ævin-
týri líkust, og gefst e.t.v. sið-
ar tækifæri til að rifja hana
upp. Kristinn eignaðist lif-
andi trú á frelsarann, Drott-
inn Jesúm Krist, kynntist
starfsemi Gideonféiaganna,
gekk i félagið og starfaði í
því vestra, og fann löngun
Kristinn Guðnason, Vestur-ís
lendingurinn, frunikvöðiillinn
að stofnun Gideon á íslandi.
an af tökudrengnum, sem al-
inn var upp á íslandi í sárri
fátækt, og sem hafði komizt
vel áfram i Ameríku. Væri
hann nú kominn til ættlands
síns og talaði hér og þar á
vegum Gideonfélagsins í Am-
eriku. Ólafur sá svo um, að
samkomurnar væru auglýstar
í útvarpinu, þannig að við
fengum f jöldann allan af áheyr
endum og kristnir verzlunar
menn sýndu mikinn áhuga. Ég
las einn og sama textann á öll
um samkomunum, úr 1. Kor-
intubréfi, 2. kapitula 1.—3.
versi, en 2. versið er á þessa
leið: „Því að ég ásetti mér að
vita ekkert meðal yðar, nema
Jesúm Krist og hann kross-
festan."
17 kristnir verzlunarmenn,
sem Guð hafði snortið, mynd
uðu Gideonfélag á Islandi.
Þeir greiddu félagsgjaldið og
skutu saman á stofnfundin-
um nægilegu fé til kaupa á
200 Biblíum."
Kristinn Guðnason andaðist
rúmlega 75 ára gamall á Þor-
láksmessu 1958.
Og á afmælisdaginn 30.
ágúst, ætlum við svo eins og
áður segir að halda samkomu
í húsi KFUM og K kl. 8.30,
og eru allir þangað velkomn-
ir meðan húsrúm leyfir til að
kynnast starfsemi okkar,“
sagði Þorkell Gunnar Sigur-
bjömssyni að lokum, þegar við
kvöddum hann og óskuðum
Gideonféíaginu til hamingju
með afmælið og árangursríkt
starf i aldarf jórðung. — Fr. S.
OKKAR
A MILLI
SAGT
TIL SÖLU Scania Vabis L 56 er til söhi. Biliinn er árg. 1963, brfreiðin er á nýjum dekkjum og með 2j tomia kraoa. Uppl. gefur í síma 101, Fás’krúðsfirði. SJÓNVARP TH. SÖLU Sjónvarpttæki til sölu (Kupa Mrlanó). Nl sýnis og söki á Gnoðavogi 18, 2. hæð tH h
HÆNUR — HÆNUUNGAR Til sölu eru bæn'ur, sem verpt hafa tæpt ár um 250 st. á 125 kti og hærvuungar dags- gamlir og 2ja mánoða. Hreiður hf. Sími 12014. NAUTAKJÖT Nýslátrað úrvals nautakjöt í srvitsel, gúllas, rosbuff, hakk, grrllsteik, bógsteik, súpukjöt. Kjötbúðin, Laugavegi 32, Kjötmiðstöðin, Laugalaek.
VIL KAUPA SAAB V4 árg. '68—'70 eða Volvo fólkis bifreið '68—'70. Staðgreiðsla. Sími 82997. UNGHÆNUR Nýslátraðar úrvals unghærvur, sérstök gæða'vara, aðei'ns kr. 125 kg. Kjötbúðin, Laugavegi 32. Kjötmiðstöðin, Laugalæk.
LAMBASKROKKAR Seljum alla daga 1. og 2. verð ftokk af lambaikjöti, enmfrem- ur lambalæri, lambehryggi, lambasúpukijöt. Kjötbúðin, Laugavegi 32, Kjötmiðstöðin, Laiugalæk. ÓDÝR MATARKAUP Nýr lundi 20 kr. stik. Nýtt hvalkjöt kr. 60 kg. Ódýnair laimbal'ifrar 125 kr. Ódýru lambanýrun kr. 84,50. Kjöt- búðin, Laugavegi 32, Kjötmið stöðin, Laugaiiæk.
TAUNUS 12 M ÚTGERÐARMENN
tll sölu, vel með farrrrn. Uppl. mrffi kl. 7—10 e. h. — Simi 3550Z Óska eftir að fá keyptan fiskibát, 80—120 torvna. — Uppl. veittar í síma 98-1859.
KETIL VANTAR LAXVEIÐI
3 fm með tækjum. — Simi 32819 í hádegimj í dag. Ein störvg í 3 daga frá há- degi 31. ágúst í Þverá, rveðri hkrti. Uppl. í sima 16916.
Ibuð ÓSKAST 2ja tH 3ja herb, íbúð óSkest tif leigu sem næst Kenoara- Sk. Tvervrvt fuHorðið í tveimili, Regkis. og góð umg. Fynirfr.- greiðsla ef óskað er Vimsaml. hringið í s. 34673 eða 33033. TRÉSMIÐUR ÓSKAST Upplýsirvgar í síma 36502.
VW. ÓSKAST '63—'65 MODEL
BEZT að auglýsa í Morgunblaðinu Aðeins góður bHI kerrvur til greina. — UppL. f síma 83424 til kl. 3 í dag og eftir kl. 7 á kvöidin. Staðgreiðsla.
Blaðburðarbörn
óskast til að bera út í tvö hverfi hluta af
FLÖTUM og ARNARNESI.
Skrifstofustarf
Banki óskar að ráða mann eða konu, vana aimennum skrif-
stofustörfum, til starfa nú þegar eða sem aWra fyrst. Æskilegt
er, að viðkomandi hafi lokið stúdentsprófi eða prófi frá verzl-
unarskóla.
Eiginhandarumsóknir með upplýsingum um aldur, menntun
og fyrri störf óskast sendar í pósthólf 1405 fyrir 7. sept. n.k.
Lausar kemiorastöður
Laus kennarastaða við Gagnfræðaskólann á Isafirði.
Aðalkennslugreinar: Stærðfræði og eðlisfræði.
Ennfremur söngkennarastaða við Bama- og gagnfræðaskóla
Isafjarðar sameiginleg.
Umsóknarfrestur til og með 15. september n.k.
Upplýsingar gefur skólastjóri skólanna og Gunnar Jónsson
form. Fræðsluráðs.
fræðslurAð Isafjarðar.