Morgunblaðið - 04.09.1970, Side 12

Morgunblaðið - 04.09.1970, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1970 Bjarni Snæbjörnsson læknir - Minning ÞÁ VORU Sjálfstæðisimenin glaðir, þegar Bjami Sniæbjörns- son, læknir, vann sína glæsilegu kosniinigasigra í Haínarfirði. Þingsætið vanrvst, ef Bjarni gaf kost á fraimboði, og var þó við ramman reip að draga. Ég miininist þess nú, þótt langt sé um liðið, að sú spurning var efst í huga: Hvernig er þessi maður, sem nýtur svo mikils trausts? Ég átti eftir að eiga þess síðar kost, að kynnast Bjarna Snsebjörnssyni, meðal amnars vegna starfa hans í miðstjóm og þingflokki Sjálfstæðismanna. Hann var í mínium augum ákaflega sérstæður persónuleiki. Hann var mjög hávaxinn maður, en hreykti sér ekki. Gekk varfæmislega um, var svip- mikill en mildur að sjá. Hann var hægur í tali en rökfastur og tillögugóður. Bjami var læknir. Ef til vill var læknisstarfið í eiginlegri og óeiginlegri merkimigu ríkasti þátturinn í skaphöfn og per- sónuleika Bjaroa Snæbj ömssonar. Sá flokkur á miklu láni að fagna þar sem slíkir mienn skipa sér í fylkingu. Þess vil ég minmast að hafa orðið þess aðnjótandi a'ð vera á heimili Bjama Snæbjömasonar og hanis ágætu konu, frú Helgu Jónaadóttur, á liðnu ári, þegar Bjarni átti áttræðisaf- mæli. Yfir heimilimi var friður og ró, en virðinig, gleði og þakk- látsemi til öldumigsins og góðmeinnisins Bjama Snæbjörnissonar einkenndi hugblæinn þessa hátíðisstund. Nú kveðjum við samherjar og vinir göfugan marnn. Sjálf- stæðismenn um lamd allt senda eiginkonu og aðstaradendum hlýjar þakkir og samú'öa rkveðj u r í minnimgu Bjarna. Jóhann Hafstein. Bjarni Snæbjörnsson kom til Hafnarfjarðar og settist þar að sem læknir árið 1917. Það var mikið happ fyrir Hafnarfjörð að fá hingaS þennan unga og vel menntaða lækni, þvi strax árið eftir, haustið 1918 gekk hér yfir hin mikla og skæða sótt spánska veikin. Þá reyndi á dugnað og þrek hins unga og góða læknis. Margir hinna eldri minnast þessa tíma og starfa Bjarna læknis við að líkna sjúkum og hughreysta sorgmædda. Hróður Bjarna jókst stöðugt meðal hafnfirzkra borgara fyr ir fram úr skarandi skyldu- rækni í starfi sem læknir í rúma hálfa öld. Jafnframt læknisstörfunum gaf Bjarni sig mikið að félags- málum í bæjarfélagi sínu, m.a. var hann fyrsti þingmaður Hafn arfjarðar eftir að Hafnarfjörð- ur varð sérstakt kjördæmi og átti sæti i bæjarstjórn Hafnar- fjarðar í fimmtán ár. Öll þau miklu störf, sem á Bjarna lögðust, smá og stór, leysti hann af hendi með ein- stakri prýði og hlaut að laun- um óskorað traust, ást og virð- ingu bæjarbúa. Staðfesting á því hve mikils trausts og virðingar Bjarni naut hér í Hafnarfirði, er sú samþykkt er gerð var einróma í bæjarstjórn Hafnarfjarðar 27. febrúar 1968 um að gera Bjarna að heiðursborgara Hafnarfjarð- ar á afmælisdegi hans 8. marz 1968, og með því votta honum virðingu og þakklæti fyrir fimm tíu ára læknisstörf í þágu Hafn- firðinga. Þannig varð Bjarni fyrsti og eini heiðursborgari sem kosinn hefur verið í Hafnarfirði. Hann var kvæntur Helgu Jónsdóttur, mikilhæfri fyrir- myndarkonu, ættaðri frá Hnífs- dal og fylgdi ætíð mikil gæfa heimili þeirra hjóna, sem rómað hefir verið fyrir myndarbrag. Það hefir að sjálfsögðu reynt á dugnað hennar og myndarskap að sjá um læknisheimilið og koma upp stórum og mannvæn- legum barnahópi. Bjarni naut ásthyggju sinnar fjölskyldu, enda var hann um- hyggjusamur, ljúfur og góður heimilisfaðir. Hafnfirðingar færa í dag Bjarna lækni sínar hinztu kveðj ur og þakka gæfurík störf hans velvild og frábæra hjálpsemi. Þeir senda eiginkonu hans, börnum og öðrum ástvinum inni legar samúðarkveðjur. Kristinn Ó. Gnðmundsson. Þeir eru sjálfsagt fáir, sem þekkja eitthvað til í Hafnarfirði og ekki hafa heyrt Bjarna lækn is Snæbjömssonar getið. Svo mjög hefur hann komið við sögu Hafnarfjarðar s.l. hálfa öld að hann var kjörinn fyrsti og eini heiðursborgari Hafnar- fjarðar fyrir rúmum tveim ár- um. Eftir gifturíka starfsævi, hef- ur hann fengið hvíld og verð- ur í dag kvaddur af miklum fjölda fólks í Hafnarfirði og ná- grannabyggðum Hafnarfjarðar með þakklæti, en útför hans verður gerð frá Þjóðkirkjunni. Bjarni Snæbjörnsson var fæddur í Reykjavík 8. marz 1889. Voru foreldrar hans þau hjónin Málfríður Júlía Bjarna- dóttir og Snæbjörn Jakobsson verkamaður, kunnir vesturbæing ar, sem komin voru af traustu «g góðu fólki þar um slóðir. Ólst Bjarni upp í foreldrahús- um ásamt systur sinni Guðrúnu og tveimur fóstursystkinum Að- alsteini og Ólafíu. Bjarni Snæbjörnsson kynntist sem ungur drengur af eigin raun, hversu hörð lífsbaráttan hafði oft á tíðum verið og hon- um var kennt það á æskuheim- ili hans, hversu miklu fórnfýsi og hjálpsemi getur til leiðar komið hjá þeim sem bágstaddir eru. Tvímælalaust hefur það haft áhrif á hinn unga velgerða svein, þegar hann kaus að helga hinum sjúku krafta sína, og ákvað að gerast læknir. Af litlum efnum, en miklum vilja studdu foreldrar hans hann til náms. Hann varð stúd- ent 1909 og embættisprófi i læknisfræði lauk hann við Há- skóla íslands 1914. Að námí loknu gegndi hann um eins árs skeið héraðslæknis- störfum á Patreksfirði .en hélt síðan utan til Danmerkur til framhaldsnáms. Vorið 1917 kom hann heim frá námi og fluttist þá til Hafnar- fjarðar, þar sem starfsvettvang- ur hans átti eftir að verða í rúma hálfa öld. Bjami læknir hafði ekki lengi dvalizt í Hafnarfirði við læknis- störf áður en hans ágæti spurðist um nágrannabyggðirnar og hann varð fljótt jafn eftirsótt- ur til læknisstarfa, suður með sjó og upp í Kjós og í Hafnar- firði. Maðurinn var ósérhlifinn og viljugur til líknarstarfa og það kom sér líka vel, þegar hin mannskæða sótt Spánska veik- in gekk yfir veturinn 1918—19. Þá sýndi hinn ungi læknir hvað í hann var spunnið, hver mað- ur hann var. Hann líknaði sjúk- um, hughreysti sorgmædda og taldi kjark í þá sem voru að láta yfirbugast. Ekkert sýnir þó eins áþreif- anlega fórnfýsi og hjálpsemi Bjarna Snæbjörnssonar en um- hyggja hans fyrir Tomma. Þeg- ar fársjúk vanfær kona að Prestshúsum á Kjnlarnesi aftek ur að fara á sjúkrahús, býður Bjarni læknir henni að koma heim til móður sinnar, en ekkert gat bjargað. Þar andast hún skömmu síðar, frá nýfæddum syni sínum Tómasi Einarssyni, sem dvaldist með for eldrum Bjarna á meðan þau lifðu en síðar á heimili þeiri'a frú Helgu og Bjarna þar til hann andaðist. Þannig var Bjarni Snæbjörns son í rúma hálfa öld hinn far- sæli læknir og mikli mannvinur. Á fyrstu starfsárunum voru skilyrðin oft léleg en úr rætt- ist. St. Jósepssystur hófu bygg- ingu Sjúkrahúss í Hafnarfirði. Þær studdi Bjarni læknir með ráð um og dáð og gerðist yfirlækn- ir á sjúkrahúsi þeirra. Veit ég að samstarfs við Bjarna Snæ- björnsson minnast St. Jóseps- systur með mikilli virðingu og þökk. Það starf sem Bjarni Snæ- björnsson innti af hendi sem læknir, var ærið starf fyrir einn mann. En hann lét sér það ekki nægja. Slíkur starfsmaður var hann. Velferð samborgaranna, bæj- arfélagsins svo og þjóðfélagsins áttu einnig hug Bjarna. Honum vannst tími til að sinna fjölmörgum trúnaðarstörfum fyr ir samborgara sina, enda naut hann óskoraðs trausts þeirra. Hann varð þó eftir því sem læknisstarfið jókst að létta af sér ýmsu, sem hann gjarnan hefði viljað sinna, því læknir var hann fyrst og fremst. Bjarni Snæbjörnsson var kjör inn bæjarfulltrúi í Hafnarfirði 1923 og gegndi þeim störfum samtals i 15 ár. Átti hann þar þátt í lausn fjölmargra velferðar mála Hafnfirðinga. Þegar Hafnarfjörður var gerð ur að sérstöku kjördæmi 1931 og þá eflaust hugsað að Alþýðu- flokksmeirihlutinn þar fengi al- þingismann kosinn, völdu Sjálf- stæðismenn Bjarna lækni Snæ- björnsson sem sinn frambjóð- anda. Bar hann sigurorð af and- stæðing sínum og jafnan síðar er hann gaf kost á sér til þing- setu. Sat hann á Alþingi 1931— 34 og 1937—42 og gat sér þar sem annars staðar hinn bezta orðstír. Þegar Bjarni læknir hóf af- skipti af stjórnmálum var hann ósjálfrátt kominn í forystusveit flokks síns. Það gerði skarp- skyggni hans og glæsimennska. Hann var formaður fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í Hafnar- firði um margra ára bil og i mið stjórn Sjálfstæðisflokksins sat hann 1940—51. Auk þessa tók Bjarni virkan þátt i félagsmálum Hafnfirðinga. Var hann alls staðar eftirsótt- ur félagi, hvort heldur var i menningar- eða liknarfélögum. Formaður Hafnarfjarðardeild- ar R.l. frá stofnun 1941—48, for- maður Krabbameinsfélags Hafn- arfjarðar 1949—1963 og í stjórn Krabbameinsfélags Islands. Hann var áhugasamur félagsmaður málfundafélagsins „Magna“ og hlúði mjög að Hell- isgerði. Þá tók Bjarni þátt i starfsemi Karlakórsins Þrasta og söng með kórnum um tíma. Sparisjóður Hafnarfjarðar fór ekki varhluta af starfskröftum Bjarna Snæbjörnssonar. Þar sat hann í stjórn 1951 til 1965 þar af formaður frá 1958. 1 Landsbankanefnd sat Bjarni 1942- 1957. í einkalífi sínu var Bjarni mikill gæfumaður. Hann kvænt- ist 19. nóv. 1921 eftirlifandi konu sinni Helgu Jónasdóttur kaupmanns og útvegsbónda i Hnífsdal Þorvarðarsonar. Eignuð ust þau fimm börn, þrjá syni og tvær dætur sem öll eru gift og búsett í Hafnarfirði, Reykja- vík og Mosfellssveit. Frú Helga var manni sínum einstakur lífsförunautur. Hvenær sem til manns henn- ar var leitað, þá var hún ætíð boðin og búin til að aðstoða og hversu oft var ekki heimilið orðið að sjúkrastofu. Þegar Bjarni læknir var gerð- ur að heiðursborgara Hafnar- fjarðar sagði hann: að ætti hann þetta skilið þá væri það fyrst og fremst tveim konum að þakka — móður sinni og konu sinni. — Betur er ekki hægt að lýsa hug Bjarna til konu sinnar og móður, enda mat hann þær að verðleikum og lét ekki liggja í láginni að hefði hann ekki not- ið svo frábærrar aðstoðar og skilnings konu sinnar, þá hefði honum ekki tekizt að gera allt sem hann gat gert. Ég þekkti Bjarna lækni fyrst sem drengur, er hann var heim- ilislæknir foreldra minna og ágætur vinur föður míns. Ég átti síðar eftir að eiga samleið með Bjarna er ég fullorðnaðist og kynntist ég honum þá í nánu samstarfi. Mér eru í dag efst í huga þakkir til hans fyrir það sam- starf, sem einkenndist af dreng- skap hans og velvilja er mér var ómetanlegt og verður ógleyman- legt. Það var vissulega heilladrjúg ákvörðun fyrir Hafnfirðinga og nágrannabyggðirnar þegar hinn ungi læknir úr vesturbænum í Reykjavik tók þá áxvörðun á útmánuðum 1917 að flytjast til Hafnarfjarðar og setjast þar að. Ótrúlegur fjöldi fólks hefur notið líknar hans, hughreysti og aðstoðar í vandræðum sínum. Fjölmörgu góðu hefur hann til leiðar komið með fjölþættum fé- lagsmálastörfum sínum, sem verður allt skráð með gullnu letri á spjöldum sögu Hafnar- fjarðar. Þegar nú Bjarni læknir Snæ- björnsson er allur veit ég að hann er kvaddur af stórum hópi einstaklinga, fjölskyldna, félaga og stofnana með þakk- læti og virðingu og við biðjum þess að honum verði blessuð hinzta förin. Eiginkonu hans og fjölskyldu sendum við samúðarkveðjur og biðjum að frú Helga megi sem fyrst snúa heim, heil heilsu. Matthías Á. Mathiesen. Á KVEÐJUstund koma upp í 'huga samtíðarmanna og saim- borgara Bjama Snæbjörnssonar lækrais, mininingar um líf bans og starf. Þær verða ljóslifandi fyrir hugSkotssjónum ökkar, vegraa þess að flest erum við sjálf á einhvern hátt saimfléttuð þeim myndum sem birtast okkur. 50 ára iíknarstarf mikillhæfs læknis ,sem aldrei unni sér hvíld- ar, meðan uppi gat staðið og ein- hver þurfti á hjálp hans að halda, hlaut að skilja eftir spor, seim ðkfci mást meðan þeir ©nn eru ofar rnoldu, sem muna hversu mjög hann lagði að sér oft á tiðum í sjúkravitjunum, bæði innanbæjar og utan. Hver man ekiki Bjarna Snæbjörnsson ganigandi eða hjólandi með lækn- istösku í hendi, ýmist snemma á morgnania eða seint á kvöldin, já jafnvel á hvaða tíma sólar- hriragsins sem var og hvemig sem viðraði. Þeir urðu æði marg- i-r, sem nntu góðs af læknis- störfum Bjairraa Snæbjörnssonar, enda veit ég að hann hefur gegn- um árin öðlazt gildan sióð hlý- hngair og þakklætis mikils fjölda Hafnfirðinga og annairra, sem reynast mun gott vegamesti á þeim stigum, sem hann nú gerag- ur. Þótt efckert lægi eftir Bjarraa Snæbjömsson annað en læknis- störf hans, væri það ærið dags- ver'k. sem um langa.n aldur myndi halda nafni hans á loft. En sá ríki þáttur í eðlisfa-ri hans að láta gott af sér leiða, varð til þess að þrátt fyrir miklar annir ták hann einnig virkan þátt i félagsmálastarfi Haifnfirð- inga. M-eð þessum línum er ekki ætl- unin að rekja æviferil Bjama lælkraiis né öll þau margtháttuðu störf, sem han-n vanin á félags- málasviðinu. heidur eiga þær a-ð fíytja- þafcikir dkkair hafnfirzkra Sjálfstæðismanna fyrir öll þau' miklu og óeigingjörou störf. sem 'hamn vann þá áratugi, er hann stóð í fylkingarbrjósti í flokki okfca-r. Hann hafði al'la tíð bre-nn- andi áhuiga á stjómmálum og va r raunar undravert hversu mikið hann laigði á sig til að geta sinnt þeim af slúð. þegar það er haft í huga að 'ha.nm var yfirhlaðlnn öðrum verkefnum. Stjórnmálastörfin voru heldur engan veginn unnin af persórau- legri frama- eða va'lda-girnd. þ\’í allt slíkt tel ég að hafi verið fj-arlægt hugarfheimi hams. Bjar.ni va-r með afbrigðum stefnufastur rnaður og þe-gar ha-nn var einu sinni búinn að basla sér völl á stjórnmálasviS- inu og tilemka sér ákveðnar skoða-nir á möranum og málefn- um, þá fylgdi hann fast eftir og lá sanraai’lega efcki á liði sími, þvi undir niðird var hanra kapp- samur og fylginn sér, Sky'ldurnar við hina sjúku sátu þó ávallt í fyrirrúmi og ósjaldan var það við, er hann

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.