Morgunblaðið - 05.09.1970, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. SEGPTEMBER 1970
3
Framliald aí bls. 24
og með ljðjfan barðahatt á höfði,
en drottnirigin var í hvítri sum-
arkápu. Þegar þær mæðgur
Ingiríður og Margrét hittust,
kyssti dóttirin móður sina á
kinnina og bauð henni góðan
dag. Forsetahjónin og konungs-
fjölskyldan gengu svo inn í hin
miklu ver sjónvarpsins og gafst
m.a. kostur á að sjá litasjón-
varpssendingar og þegar verið
var að gera litsjónvarpsmynd af
óperettuflutningi. Var þetta af-
ar fróðlegt að sjá enda fór ekki
milli mála, að hinir tignu gestir
voru mjög undrandi á allri
þeirri miklu tækni og útbúnaði,
sem þarna var að sjá. T.d. var
gengið i gegnum „byggðasafn"
sjónvarpsins, þar sem geymd
eru öll hugsanleg húsgögn óg
húsmunir, ljósakrónur og ann-
að i stíl allt frá dögum Lúðviks
XIV og fram til vorra daga. Við
blaðamennirnir höfðum gaman
af því að sjá langa hillu af rit
Borgarráðsformaður Kaupmannahafnar, Egon Weidekamp, ávarpar forsetahjónin í hátíðasal RáS-
hússins í Kaupmannahöfn í gær. Undir kórónunni við veggteppið sitja þjóðhöfðingjarnir og konur
vélum af ölíum hugsanlegum ár- Þeirra f,a vinstri: Ingiríður Danadrottning, herra Kristján Eldjárn, Eriðrik IX Danakonungur og
gerðum. frú Halldóra Eldjárn.
Er gestir höfðu gengið undir
leiðsögn ráðamanna sjónvarps-
ins var boðið upp á kaffi og
kransaköku. Haakon Stangerup,
prófessor hafði orð fyrir heima-
mönnum, er hann ávarpaði gest-
ina og í ræðu sinni minnti hann
m.a. á samstarf danska og ís-
lenzka sjónvarpsins og sagðist
vilja hafa þá ánægju af því að
geta sagt forsetanum, herra
Kristjáni Eldjám frá, að danska
sjónvarpið hefði látið kanna
hversu margir hefðu horft og
hlýtt á ræðu hans í Fredens-
borgarhöll og hefði sú athugun
leitt í ljós, að áhorfendur hefðu
verið nærri 2 milljónir. Fór hann
síðan miklum lofsorðum um
þessa ræðu forsetans.
• ATHÖFN I RÁDHÚSI
KAUPMANNAHAFNAR
Frá sjónvarpsstöðinni í Glad-
sakse var ekið beinustu leið til
1 fyrrakvöld iiéldu forsetahjónin dönsku koniingshjóniiniim veizlu í Langeiinie-Pavillonen. Á mynd-
inni sést er herra Kristján Eldjárn og frú Halldóra bjóða Ingiríði drottningu og Friðrik konung vel-
komin til fagnaðarins framan við veitingastaðinn.
ráðhúss Kaupmannahafnar.
Framan við það hafa blakt stór
ir danskir og íslenzkir fánar og
íslenzkir fánaborðar allt frá þvi
er heimsóknin hófst. 1 dag var
svo festur yfir aðaldyrum ráð-
hússins stór islenzkur fáni.
Um klukkan 11 komu forseta-
hjónin að ráðhúsinu, en þar var
þá fyrir allmikill mannfjöldi, sem
fagnaði þjóðhöfðingjunum. Þeg-
ar þeir gengu inn í anddyri ráð-
hússins, sem er hið veglegasta
— hátt til lofts og vítt tii
veggja — stóðu fjórir lúðrablás-
arar uppi á svölum og blésu í
hornlúðra af sömu gerð og eru
i merki dönsku bændasamtak-
anna. Tóku ýmsir af forráða-
mönnum borgarinnar á móti
gestunum í anddyrinu, en fylgdu
þeim síðan i hátíðasal ráðhúss-
ins.
1 miðjum sal voru 4 stólar
undir skjaldarmerki Danmerkur
og Kaupmannahafnarborgar. Þar
tóku þjóðhöfðingjarnir sér sæti
ásamt konum sínum. Gegnt
þeim voru hin fornu skjaldar
merki ríkja innan hins danska
konungsríkis, er ráðhúsið var
reist 1903. íslandsfálkinn er
þeirra stærstur og fyrir miðju
en umhverfis hann eru svo
skjaidarmerki Færeyja, hinna
gömlu dönsku nýlendna í Vest
ur-Indíum, svo og Grænlands.
Formaður borgarráðs Kaup
Framhald á bls. 16
STAKSTEII\IAR
í»röngsýni
og afturhald
Nú nýverið er lokið leynilegri
atkvæðagreiðslu innan þing-
flokks sjálfstæðismanna, þar
sem þingflokkurinn útnefndi for
sætisráðherraefni. Að vonum hef
ur það vakið töluverða athygli,
að niðurstöður þessarar atkvæða
greiðslu voru birtar opinberlega.
Til þessa hefur starfsemi þing-
flokkanna farið fram með mik-
illi leynd og fátt hefur spurzt út
um það, sem þar hefur farið
fram. Þess vegna er eðlilegt, að
þessi nýbreytni þingmanna Sjálf
stæðisflokksins veki nokkurt um
tal.
Dagblaðið Þjóðviljinn fer um
þetta atvik nokkrum orðum og
segir í því tilviki m.a.: „Það er
einkennilegt tiltæki að hafa um
það skriflega atkvæðagreiðslu í
þingflokki Sjálfstæðisflokksins
hverjum fela skyldi að mynda
nýja stjórn, greina frá því opin-
berlega að atkvæðagreiðslan
stæði yfir og birta niðurstöður
hennar opinberlega. Ekki er
kunnugt að þetta hafi nokkurn
tima verið gert fyrr í nokkrum
fIokki“. Þessi ummæli Þjóðvilj-
ans eru enn eitt dæmi um það
steinrunna afturhald, sem ræður
ríkjum í herbúðum íslenzkra
kommúnista. Á sama tíma og nýr
hugsunarháttur er hvarvetna að
ryðja sér til rúms, þá heyrast
slíkar stunur í íslenzkum komm-
únistum.
Ný öfl hafa komið fram á sjón
arsviðið, sem vinna að því að
gera stjórnmálastarfið opnara
og frjálslegra; krafan um nútíma
vinnubrögð fær víðast hljóm-
grunn. En Þjóðviljinn telur slíkt
vera „einkennilegt tiltæki“ og
rökstuðningurinn er sá, að ekki
er vitað til þess, að starf þing-
flokka hafi „nokkurn tima í
nokkrum flokki“ farið fram
fyrir opnum tjöldum. Á berlegri
hátt verður afturhaldssemin tæp
ast opinberuð.
Reyndar er þessi birting á at-
kvæðatölum í þingflokki sjálf-
stæðismanna aðeins eitt lítið
dæmi af mörgum, sem gefa til
kynna að verið er að sveigja
stjórnmálastarfsemina inn á nýj
ar brautir. Afturhald Þjóðvilj-
ans fær ekki stöðvað slíka þró-
un; það er mjög almennur hug
ur fólksins, að áfram verði hald
ið á þessari braut.
Nútímaleg
vinnubrögð
Sjálfstæðismenn hafa yfirleitt
haft forgöngu fyrir nútímalegri
vinnubrögðum í stjórnmálastarf
inu. Reyndar er þetta svo eðli-
legt og sjálfsagt, að ekki ætti að
þurfa að fara um það mörgum
orðum hvað eftir annað. Enda
væri það ekki gert, ef ekki
kæmi til áköf andstaða aftur-
haldsafla í íslenzkum stjórnmál-
um með kommúnistana í Alþýðu
bandalaginu í fyrirsvari.
Þessi nýbreytni hefur einkum
miðazt að tvennu. í fyrsta lagi
hefur verið unnið að því að auka
hið beina vaid almennings. 1 því
tilviki eru prófkjörin tvimæla-
laust stærsta skrefið, sem stigið
hefur verið til þessa. í öðru lagi
má nefna viðleitni í þá átt að
gera allar stjórnmálaumræður
opinskáar og frjálslegri. Þetta
c gert í þeim tilgangi að fá
fram fleiri sjónarmið, svo að
stjórnmálaumræður geti orðið
uppbyggilegri og stuðli að al-
mennum áhuga.
Almenn þátttaka í stjórnmála
starfi og stjórnmálaumræðum
er hornsteinn lýðræðislegra
stjórnarhátta. f sjálfu sér er það
engin tilviljun, að megin and-
staðan gegn þessum umbótum
skuti einmitt koma frá komm-
únistunum í Alþýðubandalag-
inu.
— Forsetinn
v
/
*