Morgunblaðið - 05.09.1970, Side 4

Morgunblaðið - 05.09.1970, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1970 P V ► ■25555 •^"^ 14444 mmim BILALEIGA HVERFISGÖTU 103 VW Seafiferðabifrád-WH 5 manna-VWsvefnvagB VW 9manna-Landrover 7manna bilaleigan AKBRA UT w rental sermce r’ 8-23-47 sendum Bílaleigan UMFERÐ Sími 42104 SENDUM ÍBÚÐ TIL LEIGU í SAMBÝLISHÚSI fbúðm er ein stofa, eicfbús, bað og geymsla og afnot af sameig- iniegu þvottaihúsi. Tifboð menkt „Regiusemi 4212” ser>dist Morg- urtblaðiou fyrir rræstkomandi miðvikudagskvöld. SKÓLAVÖRUR SKÓLAFATNADUR Opið til kl. 4. Flestar gerðir húsgagna ávallt til. GAMLA KOMPANÍIO HF Srðumúla 33 simi 36500 - 36503. 0 Skyldi það hafa dreypt á? Freymóður Jóhannsson skrifar: „Velvakandi góður! f bréfi til þín, er birtist i Morgunblaðinu i dag, 2. sept., frá almennum borgara, um þef- ara og nafnskírteinasýningar, er kvartaö undan framkvæmd ákveðinna reglna á vínveitinga stað. Meðal annars er getið um lögregluþjóna og vineftirlits menn, er hafi verið „á þönum milli vínstúknanna með nefið niðri í hvers manns glasi.“ Rétt mælir þú, Velvakandi sæll, að ósköp er lýsingin leið- inleg. Ætli aumingja fólkið hafi, samt sem áður, drukkið úr glösunum? Hvað heldur þú? 0 Misjafnar eru mann- raunimar Mér finnst nú, að frásögn almenns borgara beri umrædd um veitingastað einmitt tiltölu- lega gott vitni um eftirlit það, sem nauðsynlegt hefur þótt á svona stöðum. Ég mundi hins vegar, þveröfugt við almennan borgara, hafa nafnskírteini mitt til reiðu eins oft og áberandi og tök væru á, til þess að vekja eftirtekt á persónuleika minum og löghlýðni og til þess að sýna að ég hafi engu að leyna. Ég geri þetta alltaf í „trygg- ingunum", — finnst svo gaman að þessu, þótt ég þurfi þess ekki. En misjafnar eru mann- raunimar. 0 Þurrkur beztur Annað mál er það, að til þess að losa svona almenna borgara við slxkan ófögnuð eins og sýn ingar á eigin nafnskírteinum og ókræsileg nef niðri í glösum sínum, væri áreiðanlega heppi- legast, ég tala nú ekki um holl- ustuna fyrir þjóðfélagið, að losa svona samkomur við þess- ar vínveitingar, — banna þar alla áfengisneyzlu, eins og vel hefur reynzt á útiskemmtunum um verzlunarmannahelgarnar undanfaxrin ár, því að allt mun brölt þetta vera vegna áfengis- veitinganna á umræddum stað. 2. september 1970, Freymóður Jóhannsson". 0 Ekki einu sinni ný- snýtt nef innan barma „Borgfirzk kona“ skrifar Vel vakanda svipað bréf. Segist hún ekki skilja, af hverju fólki sé illa við að tjá heimildir á sér með sýningu nafnskirteinis, sem sé ákaflega einfaldur hlut- ur og oft kærkomið tækifæri til þess að kynna nafn sitt, en aftur á móti kæri hún sig ekki um annarra manna nef innan barma á eigin glasi, „ekki einu sinni nýsnýtt lögreglumanns- nef.“ 0 Þjóðræknisfélag fsiendinga Helgi Vigfússon skrifar eftir- farandi bréf, og hefur hann sjálfur sett fyrirsagnir á und- an og I bréf sitt: 0 Hvað hefur orðið af? „1929 var stofnað Þjóð- ræknisfélag Islendinga. Höfuð- tilgangur félagsstofnunarinnar var sá að efla þjóðrækni og samvinnu Islendinga heima og erlendis. Mjög sjaldan þvi miður heyrist um lif og tilveru þessa félags, sem þó verðskuld- aði það, að almenningur vissi um, þvi að svo margir íslend- ingar eru áhugasamir um ætt- firæði og eru um leið ættrækn- ir. Félagið mun hafa verið stofn að með það fyrir augum, að í framtiðinni yrði það einn traustasti tengiliður milli ís- lendinga heima og erlendis. Þá sjaldan að Vestur-lslend ingar sameinast í eina flugvél til landsins, hefur þjóðræknis- félagið gestaboð fyrir þá, og er það vel. En aðeins einu sinni á ári, og þá á þeim tíma, sem sumar- leyfi standa sem hæst, er boð- að til fundar. Félagsmálastarfsemi tekur mikinn tima, og vafalaust eru forsvarsmenn félagsins önnum kafnir, en má ekki dreifa fé- lagsstarfinu á fleiri? Til þess þarf að sjálfsögðu að opna félagið betur fyilr al- menning. 0 Verðskuldar athygli: Varðhorg Norður á Akureyri starfar Hótel Varðborg. Hótelið hefir verið byggt upp og skipulagt undir frábæiri stjóm Stefáns Ágústs Kristjánssonar, for- stjóra Sjúkrasamlags Akureyr- ar, í umboði góðtemplara. Undir handleiðslu Stefáns hefir hótelið skipað veglegan sess hjá innlendum sem útlend- um gestum. Útlendingur, Banda rikjamaður, sagði mér, að hann skipaði þessu hóteli á bekk beztu hótela, sem hann hefði komið í, hvað allan útbúnað snerti. Er þetta skemmtilegur vitnis burður. Fyrst ég er svo á annað borð byrjaður á að tala um hótel- menningu, þá langar mig til þess að minnast á annað hótel á landinu og er það: 0 Hótel Höfn í Hornafirði I hinum fegursta fjallahring, á fögrum stað í Hornafirði, stendur eitt hinna reisulegustu hótela landsins. Heillandi af fegurð staðarins og töfrandi lit brigðum, nýtur maður á þessu hóteli skemmtilegrar þjónustu og frábæirar gestrisni hóteleig enda. 0 Séra Þorvaldur á Mel í Miðfirði Melur í Miðfirði var allt fram á þessa öld talið meðal eftirsóknarverðustu brauða landsins, að minnsta kosti norð an heiða. Um aldamótin 1600 sat stað- inn einn mesti lærdómsmaður sinnar samtíðar, Arngrímur hinn lærði. Hann gerði garðinn frægan, því að útlendingar veittu þvi athygli, að frá Mel voni send merk lærdómslistarit, skrifuð á latínu. Séra Axmgrímur sat stað inn í hálfa öld. Nokkrum öldum síðar, eða ár ið 1877 fékk séra Þorvaldur Bjarnason veitingu fyrir staðn um, og sat hann staðinn með reisn og virðingu í 29 ár. Lærður frá Kaupmannahafn arháskóla, áhugamaður á hin- um islenzku handritum í Áma- safni, og fékkst hann nokkuð við að skrifa upp handrit fyrir Jón forseta Sigurðsson og Árna safn. Hann gaf út t.d. Krókarefs- sögu 1866, og ennfremur má nefna „Leifar fornra kristinna fræða íslenzkra" 1878. Tungumálamaður var hann alveg sérstakur og eftirsóttur þýðandi. Bókasafn átti hann mjög stórt og vandað, eitt hið stærsta á sinni tíð. Framfara- maður var hann I landbúnaði. Séra Þorvaldur var gæfu- maður, kona hans var frænd- kona hans (bræðra- og systra- börn), maddama Sigríður Jóns- dóttir söðlasmiðs í Belgsholti í Melasveit i Borgarfirði, Bene- diktssonar; meðal systra Sigrið ar var frú Kristín kona Jóns frá Deildartungu Jónssonar, langamma Jóhannesar Helga og Magnúsar Ólafssonar yfiri. Prestshjónin á Mel eignuðust 5 böm, og út frá þeim er kom- irm stór og merkur ættbogi. Minníng hjónanna, sem sátu Mel á ánmum 1877—1906 hefir því miður ekki verið sýnd sem skyldi nægilega mikii virðing, sem þau verðskulda. Séra Þorvaldur var, eins og að framan er greint, einn mesti lærdómslistarmaður í klerka- stétt á Islandi á sinni tíð. Verð ugt verkefni væri það fyrir ungan menntamann að kynna sér líf og ævistörf prestshjón- anna að Mel í Miðfirði. Helgi Vigfússon" 0 Ættir og gistihús Nú, nú, í þessum dálkum má svo vart einum hæla, að ann- ar verði ekki afbrýðisamur. Velvakandi hefur gistingar- reynslu af þremur gistihúsum á Akureyri, þ.e. Hótel Akureyri, Hótel KEA og Varðborg. Þau eni öll ágæt, eins og reyndar Akureyri er ölL Þetta er eini bærinn á íslandi, þar sem Reykvíkingar geta leikið túr- ista, og ég held, að okkur væri skollans nær að fara oftar til Akureyrar en Mallorca, en stopp, stopp, nú tryllast ferða- skrifstofumar. Eins er það með ættarrakn- ingu bxréfritara. Nú fer fjöldi manns sjálfsagt í fýlu, af því að Helgi getur þeirra ekki í niðjatali þessara merku prests- hjóna. — En Velvakandi er svo sem vanur þvi, að til hans blási fúlur andi og um hann leiki þungt og þrútið loft úr nösum fýlupoka, sem skilja ekki, að útilokað er að geðjast öll- um. Samt reynir Velvakandi að opna glugga sína upp á gátt. 0 Júgóslavneskur maskínutæknistrákur Slavoljub Milosavljevich, Hajduk Veljka 7, Gor. Milan- ovac, Júgóslavíu, skrifar Vel- vakanda á þýzku og segist vilja skrifast á við íslending á þýzku eða „jugoslawischer Sprache", (hver skrambinn, sem það er nú, sennilega á hann við serbnesku). Hann er tvítugur að aldri og kveðst hafa mikla þörf og löngun til þess að skrifast á við jafn- aldra sína utan júgóslavnesku landamæranna. Hann er vél- fræðingur að atvinnu og hef- ur mikinn áhuga á íþróttum, tónlist, góðum bókum (einn af þeim), ferðalögum, leiklist, fri- merkjum og landslagspóstkort- um. Sölumaður algerlega reglusamur og heiðarlegur með eigin bíl (sendiferða- brl) óskar eftir að taka að sér söluferðir út á landi fyrir traust heildsölufyrirtæki eða framleiðanda. Tilboð vinsamlegast leggist inn á afgr. Mbl. sem fyrst merkt: .Söluferðir — 4059”. ÚTBOÐ Tilboð óskast í byggingu verksmiðjuhúss að Vatnagörðum 4. Útboðsgagna má vitja á skrifstofu vora, Sóleyjargötu 17, kl. 13—16, gegn kr. 5.000.— skilatryggingu. Tilboðsfrestur er til mánudags 14. sept. kl. 16.00. HF. ÚTBOÐ OC SAMNINGAR Stúlkur — bœkur Stúlkur (ekki yngri en 20 ára) óskast í bókaverzlun í Mið- borginni. Góð kunnátta í Norðurlandamálum nauðsynleg og helzt einhver kunnátta í þýzku, frönsku eða spönsku. Reynsla í afgreiðslustörfum nauðsynleg. Umsóknir er tilgreini aldur, menntun og fyrri störf sendist Morgunblaðinu merkt: „Áhugi — 4325".

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.