Morgunblaðið - 05.09.1970, Síða 10

Morgunblaðið - 05.09.1970, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. SBPTEMRKR 1970 Ég hef alltaf augun opin fyrir öllu sem fallegt er — segir Fúsi Halldórs í viðtali við Björn Bjarman VIÐ FÚSI sitjum heima í stofunni hans og spjöllum sam- an. Það' þekkja allir Fúsa Hall dórs eða Sigfús Halldórsson eins og hann heitir samkvæmt Þjóðskránni. Þó að Fúsi sé fyrst og fremst Austurbæingur og Valsmaður, þá býr hann nú með konu sinni og börnum í Kópavogi og nýtur þar róleg- he'tanna í sumar miili þess sem hann þýtur um með pens- ilinn og festir á léreft og blað hvað, sem fyrir verður. Og í dag ætlar Fúsi að opna mál- verkasýningu í Casa Nova eða nýbyggingu Menntaskólans í Reykjavík. Auk málverkasýningarinnar ketnur út þessa dagana laga- safn eftir Fúsa, en allt þetta brambolt á sér tilefni, sem er að Fúsi kall verðuir fimmtug- ur þann sjöunda þessa mánað- ar. Það eru máski fáir, sem trúa mér og þess vegna endurtek ég, samkvæmt kirkjubókum er Siigfús Halldórsson, tónskáld og lismálari fæddur 7. septem- ber 1920. í stofunni hjá Fúsa fer sam- an hvoru tveggja óvenjuleg hlýja og menningarbriagur: myndir á veggjum, bókahillur, stærðar flygill að ógleymdum hannyrðum, sem eru óvenju smekklegar og vel unnar. SPJALLAÐ UM SWEET NONSENSE í grein, sem Sigurður heit- inn Einarsson í Holti ritaði um Fúsa fyrir tíu árum segir:- „Einhvernveginn er því svo varið með suma menn — því miður aðeins' tiltölulega fáa — að það breytir alveg yfirsvip dag3ins og tóni, ef maður er svo heppinn að hitta þá. Dag- urinn getur verið einn af þess um fráleitu dögum, þegar allt snýzt öfugt gegn manni allt frá því að maður byrjaði á að raka sig að morgni og uppgötv ar að síðasta blaðið er ryðgað og skörðótt í vélinni — og til þess, að maður leggur sig að kveldi úrvinda eftir að hafa verið að bisa við stíflað frá- rennsli í þvottahúsinu. Ég efa ekki að þeir lesendur mínir, sem komnir eru til vits og ára, kanmast allir við slíka daga. Tilverunni þóknast stundum að gera úr þeim merkilegt píslar- tæki. Á milli þessara tveggja skauta, morguns og kvölds, tekst henni stundum að senda á veg manns alla þá smámuna- þrefara og leiðindapoka, sem hún á tiltæka í heilu lögsagnar umdæmi. Einhvem veginn hafa þeir allir átt erindi þenn an dag. Og svo hittir maður Sigfús Halidórsson. Það getur borið að með ýmsum hætti, Hann getur dottið inn úr dyrunum, eða maður mætir honum á göt unni og tyllir sér einhvers stað ar og fær sér kaffibolla. Það er alveg sama, hvemig það ber að. Maður er sloppiran úr klóm þeirrar óvættar, sem hefur of- sótt mann daglangt, leiðans, ergelsins, vonbrigðanna. Dag- urinn skiptir um yfirsvip og tón, fær ofurlitla hýru í yfir- bragðið, glettni í augnaráðið — annan málróm. Þetta upp- götvast ekki í djúpúðugum við ræðum, kannski aðallega í spjalli af þeirri tegund, sem enskir nefna Sweet nansense — eiskulegan hégóma. En er .af- bragðs holt fyrir sálina“. Þessi orð skáldsins sáluga í Holti höfum við formála fyrir spjalli okkar Fúsa. Við ætlum svo sem ekki að vera neitt stór gáfaðir eða sniðugir heldur láta móðann mása um myndir og lög og auðvitað er það Fúsi, sem á að hafa orðið. MENN HAFA EYÐILAGT EINU ÁLFABORGINA Á ÍSLANDI — í fyrstu klassísk spurning, Fúsi, hvenær eru myndirnar málaðar? — Þær eru alla leið aftur í 1947 og til dagsins í dag eða nokkurs konar þvensikurður en þó ekki heildansýning. — Hvað hefurðu oft sýnt hér í Reykjavík? — Ég held fjórum sinnum og að auki víða út um landið. Já, og þar fyrir utan hef ég tekið þátt í nokkrum samsýningum, sem ég man ekki hve margar eru. — Mótívin? — Undirstaða sýningarinnar er Reykjavík. Þetta er Reykja- víkursýning. Þarnia koma mannamyndir og landslags- myndir. Þetta er unnið bæði í- olíu, vatnslitum, pastel, svart- krít, brúnkrít og blýanti. — Eru ekki einhverjir skemmtilegir karakterar, sem þú hefur fest á léreftið? —•' Jú, jú, m.a. Guðmundur Hagalín, Vilhjálmur frá Ská- holti, Hafsteinn miðiil, Sveinn. Skorri og tengdafaðir minn Jón Andrésson o. fl. — Þið voruð miklir vinir þið Vilhjálmur frá Skáholti? — Já, það er rétt, og ég er reyndar að hugsa um að setja myndina af honum í heiðurs- sess. Mér er oft hugsað til hans Villa og þó aldrei meir en nú fyrir þessa sýningu, því enginn átti meiri þátt í að ég kom upp Reykj avíkursýningunni 1960 en eimmitt hanin. — Og þú hefur líka gert lög við ljóðin hans eða máski öf- ugt. — Já, ég gerði lög við ljóðiin en varla öfugt. — Kynni ykkar Vilhjálms voru mjög náin? — Veturinn 1959 kom Vil- hjálmur til mín næstum á hverju kvöidi og þá efldust kynnin og urðu að vináttu, sem entist til dánardægurs hans eða jafnvel lengur. Ann ars þekktumst við frá fyrstu byrjun eða frá því ég man eftir mér. Ég hef varla þekkt skemmti legri og elskulegri mann en hanin Villa frá Skáholti. Hann var fyrst og fremst fagurkeri og góðmenni. — Fúsi, þú hefur málað tala- vert af gömlum húsum er það ekki? — Jú, og hef haft mi'kla Sigfús við eitt málverka sinna. Þrír sjómenn og trillan Katrín GK. 90 flóa sagði Marikús, að hann vonaðist til að hið háa Al- þingi, sem nú kæmi saman, léti loka Faxaflóanum fyrir snurvoð, og vildi í því sam- bandi benda á, að allir þeir snurvoðarbátar, að undan- teknum nökkirum bátum frá Keflaivík, seim gerðir væru út frá Faxaflóahöfnum, stunduðu nú veiðair utatn Faxaiflóasvæð- isins, því þeir væru búnir að skrapa allam fisk upp á svæð- inu. Undir þetta tóiku hinir tveir. Mabkús er búinn að vera á togurum siíðan 1945 og starf- aði þá mikið sem lestarmaður og sigldi oft á því tísmabili. Á trillunni sinni notar hann þá aðferð að blóðga fiskinn beint ofan í plastkassa og gerir að honum þannig, að fisk urinn kemur aldrei við dekk. Út úr þessu segir hann að komi betri vara og meiri ÞEIR Markús Þorgeirsson, Kristján Guðmundsson og Sigurþór Sigfússon stóðu á bæjarbryggjunni í Hafnarfirði og ræddu landsins gagn og nauðsynjar og þá sérstaklega það sem snerti sjóinn, því sjávarútvegurinn snertir þá alla að meira eða minna leyti. Kristján vinnur á lagemum hjá Bæjarútgerð Hafnarfjarð- ar. Næg atvinna hefur verið þar að undanförnu og sagði hann, að starfsfólk Bæjarút- gerðarinnar saknaði þess að missa hinn ágæta forstjóra Sæmund Auðunsson, sem hef- ur verið ráðinn skipstjóri á rannsóknaskipið Bjarna Sæ- mundsson. Þeir Markús og Sigurþór róa báðir á trillu. Triiila Mairk- úsar, Katrín GK-90, er aðeins 4 mánaða gömul, srnáðuð hjá Bátalóni í IHafnarfirði. Er þetta allra snotrasta trilla og hafa þeir róið 2—3 á henni á handfæri í Faxaflóa. Hefur afliinn verið mieð betra móti þar sem meiri fiskur -virðist nú ganga á miðin en aður. Hefur báturinn aflað 80 tonn frá því um miðjan apríl. Þeir hafa rafmagnisrúllur um borð og sagði Markús að þær gerðu vinnuna léttari og aflinn yrði meiri. Varðandi snurvoðina í Faxa- Á bryggjunni í Hafnarfirði frá v. Markús, Kristján og Sigurþór. þyngd. Hamm var eindregið. þeirrar Skoðunar, að Sjó- maimasambandið ætti að stuðla að því, að fiskurinn verði ísaður í kassa og farið verði inn á þá braut að þeiim lögum verði komið á, að á rniilli löndunarstaða og fisk- vinnslulhúsa verði hráefnið flutt í Ikössum. Hann hafði séð þetta alls staðar gert er- lendis. og vildi benda á þá reynslu sem hann ihafði fengið af þessu. Um borð í Katrínu er góð- ur seglútbúnaður og vi'll Marfcús eirudregi® benda öll- um skipstjórnarmönnum á trillum og mimni bátum á, að þeir læri meðferð segla, en láti þau ekki fúna við mastrið Ljósm. H. Hall. eða niður við dekk. Það er af sam áður var, því nú er gert grín að mönnuim sem hafa uppi segl. En meðferð skips og vélar og líðan manna um borð er allt önnur þegar Skip er undir seglum við réttar að- stæður, auk þess sem góður seglaútbúnaður hefur bja-rgað mörgum mannislífum. Mankús hefur reynt það sjálfur hvað það getur komið sér vel að kunna að beita seglum, en hann lærði það af Færeying- um sam hann hafði uim borð hjlá sér. Það vair árið 1960 að hann var með Hrefnu AK-93, vélbilaða undir Öndveirðarnesi í 11—13 vindstigum af SA. Þegair vélin bilaði voru þeir staddir 1,5 sjómílur undan landi. Þeir beittu seglum og þegar varðslkipið Ma.ria Júl'ía kom þeim til hjálpar 9 tímum seinna, voru þeir ikomnir irúm- ar 4 sjóimiílur frá landi. Mairikús hefur þá hugmynd fram að færa, í samibandi við smábáta, að settar verði neyð- arbaujur á voga og vilk- ur meðfram strönd landsins þannig, að ef um minni háttar vélainbilun væri að ræða, þá gætu aðrar trillur hjálpað þeinri biluðu til þess að kcm- aist í baujuna auk þess sem það gæti verið mii'kil hjálp í vonduim veðrum, ef hægt væri að vinda sig í bauju. Eins og áður er getið er trilla Mairkúsair fjögurra mán- aða gömul. Hún er 10 tonn, og öll hin snotrasta bæði að in,n- an og utan. Fulitirúar sem voru hér á ráðstefnu F.A.O. komu og skoðuðu bátinn og urðu mjög hrifnir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.