Morgunblaðið - 12.09.1970, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. SEPT. 1970
19
Ingibjörg Sigríður
*
Jónasdóttir — Attræð
INGIBJÖRG frænka var áttræð
28. ágúst. Hún ber þó ekki ald-
urinin með sér, alltaf jafn kát og
skemmtileg, augun leiftrandi
fjörug og hjartagæzkan vermir
hvern þann, sem kemur í heim-
sófen.
Ingibjörg er fædd að Efrá-
Brunná í Saurbæ í Dalasýslu, en
fluttist tveggja ára með foreldr-
um sínum, Ingibjörgu Loftsdótt-
ur og Jónasi Jóniassyni, bónda og
smið, í Borgarfjörðinn, að Galtár
höfða í Sanddal í Norðurárdal.
Þar ólst hún upp, þangað til
fjölskyldan fluttist skömmu eft-
ir aldamótin að Litla Skarði í
Stafholtstungum. Ingibjörg var
þó aðeims tvö ár á Litla Skarði,
því að fjórtán ára byrjaði hún
að sjá fyrir sér sjálf, sem kaupa-
kona og vinnukona á ýmsum
bæjum í Borgarfiirði.
Árin kringum síðustu aldamót
yoru engin sæluár í þjóðlífssögu
íslendinga. Harðæri og náttúru-
hamfarir þrengdu mjög að þjóð-
inni og fjöldi fólks varð að flýja
land. Fjölskyldan í afdal Norð-
urárdalsins og í Stafholtstung-
unum var ekki undanþegin tíð-
arandanum. Jónas drýgði að
vísu afrakstur jarðarinnar með
smíðum fyrir sveitiraa, því að
hann var afburða smiður bæði á
tré og járn og orðlagður fyrir
hæfileika sína um allt héraðið.
Búskapurinn lenti því oft mikið
á móðurinni Ingibjörgu og elztu
systkinunum, og það kom fyrir
að legið hafi við örvsentingu um
viðurværið. Ekkert til á bsenum
nema mjólkursopi, sem ekki var
undirstöðumikill í vaxandi
barnahóp, þótt góður væri, og
veik von um að elzti bróðirinn,
Jóhannes, næði í nokknar rjúp-
ur eða aðra veiði, sem rættist
víst furðanlega oft, þótt hann
væri aðeins á unglingsaldri.
Hanin mun snemma hafa tamið
sér ábyrgðarhlutverk gagnvart
systkinum sínum og hafði þá
Inigibjörgu, sem var næstelzt,
með i ráðum.
Elztur s'ystkinanna er sem
sagt Jóhannes trésmiður hér í
Reykjavík. Þá kemur Ingibjörg,
síðan koma Ragnheiður og
Magnús, en þau eru bæði dáin,
Magnús dó nú í vetur sem leið.
Þá kemur Árni trésmiður í
Reykj avík og tvíburi hanis, sem
dó í fæðingu, og síðan yngstu
bræðurnir Sveinn og Karl, en
þeir eru báðiir dánir. Einnig er
uppeldissystir, Lilja Júlíusdótt-
ir.
Borgarfjörðurinn er fögur sveit
Efst gnæfir einbúinn mikli, minn
isvarði hreysti og hreirxskilni,
klappaður úr stuðluðu líf>a-
rítbergi. Birkikjarr eykur unað
hlíðardraga og árbakka og Hafn-
arfjali og Skarðsheiðin spegla
sig í sæbláum firðinum og logn-
sælum fj allavötnum. Allt hérað-
ið er vafið gróðri, lyngfléttum
og grasbreiðum, en yfir öllu hvíl
ir hiinn þrumgni máttur ískalds
Eiríksjökuls og hann „veit allt,
sem talað eir hér“, svo vitnað sé
í föðurnafna systkinainna.
Það er ekki í kot vísað að fá að
fæðast og alast upp í slíku um-
hverfi. Enda munu þeir feðgar
Kveldúlfur, Skalla-Grímur og
Egiill og síðar Snorri Sturluson
vel hafa vitað hvað þeir gei’ðu,
þegar þeir kusu þar hélzt að
búa.
En það ar viða fallegt á ís-
landi og hver er sá, sem ekki
þykir sín sveit fegunst? Það er
að minmsta kosti alveg öruggt,
að forfeður og frændur Ingi-
bjargar yrðu ekki á sama máli
um fegur'stu sveit landsios. Því
varla er ofmælt, þótt sagt sé, að
þeir séu um gjörvallt Vestur- og
Norðurland.
Foreldrar Ingibjargar eru eins
og áður segir Ingibjörg Lofts-
dóttir, fædd í Garpsdal í Gils-
firði, og Jónas Jónasson, fæddur
að Háreksstöðum í Noirðurár-
dal. Loftur faðir Ingibjargar dó
un.gur vimnumaður, en hainn var
sonur Jóns Jón®sonar bónda að
Víðivöllum í Steingrímsfirði og
var hans fólk bæði úr Stranda-
sýslu og Barðastrandasýslu.
Móðir Ingibjargar Loftsdóttur
var Sigríður Magnúsdóttir, Sig-
urðssonar bónda í Múla í Gils-
firði en kona Magnúsar var Imgi-
björg dóttir Jóns Jónssonar
hreppstjóra í Snartartungu á
Ströndum og konu hans Sigríðar
Sveimsdóttur bónda á Kleifum í
Gilsfirði, Sturlaugssoniar. Um
Jón i Snartartungu er þáttur í
Þjóðháttum Finns Jónssonar á
Kjöi'seyri og um Svein á Kleif-
um er þáttur í sagmaþáttum
Fjallkonunnar. Báðum er þeim
lýst mjög lofsamlega.
Fóstursonur Jóns og Sigríðar
og systurisonur hans og bróður-
somur hennar var séra Sveinn
Níelsson prófastur að Staðar-
stað, en hann var sem kunnugt
er faðir Hallgríms biskups,
Elísabetar móður Sveims Björns-
sonar forseta, og Sigríðar móður
Haraldar Níelssonar prófessors
og ömmu Dungals systkinannia.
Faðir Jónasar eða Jónas Jón-
asson eldri var fæddur í Bjarm-
arhöfn í Helgafellssveit á Snæ-
fellsnesi, en móðir hans var Ingi
björg Jónsdóttir, fædd á Bjarmar
stöðum í Dalasýslu og var henn
ar fólk Dalafólk í ættir fram.
Faðir Jómasar eldri var Jónas
Samisomarson hreppsstjóri í
Bjarmarhöfn, en kona var var
Sigríður Pálsdóttir prests á
Undonfeili í Húnaþingi, Bjarna-
sonar, en samtímaheimildir lýsa
honum sem góðum klerki, radd-
manni, skáldmæltum gáfumanni
og mjög vel látnum. Hamn var
sonur Bjarma Péturssomiar prests
á Melstað í Miðfirði, en Bjarni
var úr Mývatnssveit og víðar úr
Þingeyjarsýslu, og konu hana
Steinuninar Pálsdóttur prests á
Ufsum í Svarfaðardal, Bjama-
sonar. Hún var aftur á móti syst-
ir Bjarna Pálssomar landlæknis,
en Bjarni var svo sem kunmugt
er faðir Steinuramar móður
Bjarna Thorarensen, skálds og
amtmamns Norðlendinga.
Móðir Sigríðar Pálsdóttur var
Guðrún Bjamadóttir prests á
Mælifelli í Skagafirði, Jónsson-
ar, en móðir Guðrúraar var Sig-
ríður systir séra Einars á Sauða
nesi í V-Þimg., föður séra Stefáns
á Sáuðanesi föður Einiars á Reyn
istað, föður Katrínar móður Ein
ars Benediktssonar, skálds og
sýslumanins Rangæinga.
Foreldrar Jómasar Samsonar-
somar hreppstjória voru Samson
Sigurðsson, skáld og bóndi að
Klömbrum í Vesturhópi og Ingi-
björg Halldórsdóttir, Hallssonar,
prests á Breiðabólsstað í Vestur-
hópi. Sonur Halldórs var séra
Pétur á Tjöm á Vatnsnesi, faðir
Péturs prófasts á Víðivöllum í
Skagafirði, föður Péturs biskups,
Jóns dómsstjóra og Brynjólfs
Fjöinismanns. Jón var svo sem
kumnugt er afi Páls Zophamias-
sonar, búniaðarmálastjóra og al-
þingismanns og amnarra ágætra
marama.
Séra Halldór var sonur Halls
prófasts í Grímstungu í Húna-
þingi, Ólafssonar prófasts á
saima stað, en til er eftirfarandi
lýsiinig á Halldóri í samtímaheim
ildum: „Hann var hraustmenni
og taliinin með fríðustu mömnum,
málsnjall og raddmaður ágætur
enda kunni vel söng, kennimað-
ur góður, bar skyn á lækningar,
góður mimrii háttar mönmum, en
skapstór og harður í mannraun-
um.“
Faðiir Samsonar var svo Sig-
urður hreppstjóri í Vesturhópi,
Jónssonar, Sigurðssonar bónda
á Gröf á Vatnsnesi, Jómsisoniar.
Þessa tölu sagði mér Sigurgeir
Þorgrímsson, sá sem ég nú þekki
fróðastan um ættir íslendinga.
Vonandi verður það ekki tal-
in ætthreykni, þótt sagt sé, að
það sé gott að vera komin af
slíku fólki. Rammíslenzku af-
burða- og alþýðufólki, sem vissi
alltaf, þrátt fyrir oft á tíðum
fátækt og basl, áð Eldgamla
ísafold með drottniain'na norður-
ljósahásal að eldsbrumandi jökl-
unum, myndi sínum mögum kær
meðan að uppi er öll heimsins
tið.
Hvað er í rauninmi fátækt og
basl á móti því að eiga tindrandi
rómantík Bjaroa Thorarensen
eða leiftrandi andagift Eiinars
Benediktssonar? Enda hvarf fá-
tæktim og baslið eins og dögg
fyrir' sólu, þegar fólk með eymd
í arf varð umgborin tíð og lærði
að þekkja ástkæra fósturmold,
sótti þann gráa utar og virkjaði
tröllbrot fossanma. En umfram
allt skildi sinn eigin málstað og
reisti í verki viljams merki, því
vilji var allt sem þurfti til þess
að við íslendingar yrðum ein
auðugasta þjóð heimsins.
Ingibjörg man því, eios og
aldamótakymslóðin, tímana
tvenna og núna við þenman
áfaniga, þegar níundi áratugur-
inin hefst, horfir hún ánægð aft-
ur. Glöðu dagarnir í Borgarfirð-
inum urðu margir og fólkið gott.
Til dæmis varð henni dvölin hjá
því mikla öndvegisfólki, Ragn-
heiði og Hirti í Arnarholti
ógleymanleg. Einnig var hún
lengi á Hvanneyri, Ferjubakka
og í Borgamesi og aldrei brást
félagsskapur Borgfirðinganna.
Einu sinini heyrðist kveðið í
Borgarfirðinum: „Vögum vér og
vögum vér, með vora byrði
þunga. Upp er komið sem áður
var, í öld Sturlunga, í öld Sturl-
ungá.“ Ingibjörg gæti vafalaust
tekið undir fyrrihluta þessarar
fornu vésagnar, en samt er ég
viiss um, að öld Sturlunga yrði
henni kær, ef félagsskapur Borg
firðinga fylgdi með, því þá verð-
ur hún glöðust í bragði og augun
ljóma, þegar minnzt er á það
fagra hérað og þess góða fólk.
Árið 1930 fluttist hún til
Reykjavíkur og hefur búið hér
að mestu síðan. Til að byrja með
vann hún mest við húsaðstoð en
réði sig seimna til kexverksmiðj -
umnar Frón og var þar hjá hon-
um Ágústi sínum, sem hún kall-
ar jaf.nan svo, samfellt í sautján
ár eða þangað til hún varð að
hætta vegraa aldurs. Sýniir sá
starfstími hjá sama aðila glöggt
hvernig hennii likaði.
Hér í Reykjavík varð Ingi-
björg fyrir miklum harmi. Hún
trúlofaðist en lungnabólga varð
kærasta henrnar að bana. Um
þemnan atburð hefur aldrei ver-
ið talað en í slíka átt var ekki
aftur farið. Marglyndi eða fjöl-
lyndi er ekki öllum að skapi.
Ingibjörg dvelur nú á Sólvangi
í Hafnarfirði og er það mikið til
vegha gigtar, sem hún er að leita
sér læbniinga við. Líkar heruni
vel öll umönnun þar. Hefur hún
mikla trú á hljóðbylgjulækning-
um. Margir líta inn til hennar,
því skírt mega skatn-ar líta, að
þar héfur sú, sem glímdi við
Ása-Þór á sínum tíma, hitt fyrir
ofjarl siinin. Við systkinabörnin
höfum líka alltaf verið hænd að
hennd og viljum ekki missa fé-
lagsskapinn. Með henn.i hefur
alltaf samnazt, 'að við erum meira
en við sjálf.
Nýlega varð Ingibjörg fyrir
því mikla tjóni, að hús það„ sem
íbúð heninar var í, branm svo að
segja til grunna og allt innbú
hennar stónskemmdist í eldi og
vatni. Tryggingin mun hafa ver-
ið lág og bæturnar því litlar sem
engar. Má segja, að þar hafi far-
ið í eirnu vetfangi allt það, sem
henni hafði tekizt að eignast.
Mér fimns að lokum orð henm-
ar, þegar henni var sagt frá brun
anum, missi veraldlegra eigna
og ævistritið orðið að engu, lýsa
vel þessari áttræðu föðunsystur
minni. Hún sagði aðeins: „Það
var hægt að segja mér verri
fréttir“.
Guðlaugur Tryggvi Karlsson.
Kennarar
Kennara vantar að Gagnfræðaskólanum í Keflavík á kom-
andi vetri.
Upplýsingar gefur skólastjórinn i síma 92-1045 kl. 10—12 f.h.
Málarar
Tilboð óskast í að mála að utan húseign-
ina nr. 68 við Gnoðarvog.
Upplýsingar í síma 15536.
Ralmagnsveitur ríkisins
vilja ráða RAFMAGNSVERKFRÆÐING og RAFTÆKNIFRÆÐ-
ING til starfa hið fyrsta.
Aðalstarfssvið verða: Undirbúningsathuganir, hannanir og eftir-
lit með byggingu fjarstýrðra orkuvera og orkuflutningsvirkja,
kerfaathuganir, orkuöflunarspár og ýmiss konar önnur áhuga-
verð verkefni á þessum sviðum.
Umsækjendur hafi staðgóða þekkingu og helzt nokkra starfs-
reynslu.
Umsóknir sendist fyrir 17. þ.m. til Rafmagnsveitna ríkisins,
starfsmannadeild, laugavegi 116, Reykjavík.
Stocklets-
sokkahlífar
Alltaf renna STOCKLETS
sokkahlífarnar út.
Ný sending kemur á
mánudag.
Ekki missir sá er fyrstur fær.
= ÚTSÝNIÐ
5 AUGAÐ GLEÐUR
Veitingasalurinn efstu hæð opinn
allan daginn.
Matseðill dagsins
Úrval fjölbreyttra rétta.
ZZ Hjá okkur nj'ótið þér ekki aðeins úrvals veitinga, Barjnn opinn 12-14.30 og 19-23.30
» heldur einnig eins stórkostlegasta útsýnis, sem
ZZ völ er á í Reykjavík. Borðapantanir í síma 82200.
IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII11