Morgunblaðið - 17.10.1970, Page 23

Morgunblaðið - 17.10.1970, Page 23
MORGUNRLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 1970 23 hann hjá því fyrirtæki um aldar f jórðung. Er hann hætti þar störf um var Lýður ráðinn yfirfisk- matsmaður við hraðfrystihúsin hér á Akranesi og við Breiða- fjörð og gegndi hann því starfi um 15 ára skeið, eða þar til hann varð að hætta aldurs vegna. Þau Lýður og Mekkín eign- uðust 3 böm, eitt barna sinna, Ester misstu þau unga að árum, en þau sem upp komust eru Hulda ógift í heimahúsum og Hjálimar kvæntur Katrínu Karls dóttur. Kona Lýðs, Mekkín andaðist 12. nóv. ‘68, var hún sérstök gæðakona. Það sem einkenndi Lýð var sérstök snyrtimennska, glatt viðmót árveknd og dugn- aður, hann gekk ákveðinn að því verki, sem vinna þurfti því það sem gilti var að drífa hlutina áfram. Um langt árabil höfum við Lýð ur verið nábúar og hef ég ekki trú á að aðrir gerist þar betri. Nú um tæplega árs skeið hafði Lýður unni hjá fyrirtæki mínu, á skrifstofu og við verkstjórn i afleysingum. Þau verk vann hann öll af stakri prýði. Þegar ég kvaddi Lýð vin minn seinni- hluta föstudags glaðan og reifan að vanda hvarflaði það ekki að mér að næsta dag yrði hann all ur, en þetta er gangur lífsins og honum verður ekki breytt. Ég flyt ættingjum og aðstand- endum hins látna hjartanlegar samúðarkveðjur. Þórður Óskarsson. í DAG verður jarðsettur á Akra- nesi Lýður Jónsson fyrrvemndi yfirfiiskmatsmiaður, sem andað- ist þann 11. október sl. Ég kynntist Lýð Jónssyn' fyrst árið 1939 er ég vax starfs- maður hjá „Fiskimálanefnd“, en tildrög þeirra kynna voru að framieiða skyldi stórt sýni af frystum fiski fyrir Bandaríkja- markað. Hraðfrystihús H.B. og Co. á Akranesi varð fyrir val'inu um framl'eiðslu þessa sýnia, en Lýð- ur Jónsson var þá þar aðalverk- stjóri, og mér var falið af Fiski- málanefnd að sjá um ofan- greinda framleiðslu. Við þessu fyrstu kynni okkar Lýðs fór það ekki framhjá mér, að þar var maður er lagði mikla a'lúð í starf sritt á allan hátt, bæði hvað viðkom vöruvöndun, fmmkomu við verkafólkið og umönnun við það fyrirtæki er hann stjórnaði vinnslu fyrir. Það mun hafa verið um 1953, sem Lýður Jónsson gerðist yfir- fiskmatsmaður við Fiskmat rík- isins og vann síðan að því starfi af fórnfýsd, samvizkusemd og drengskap, en lét af því samkv. lögum um hámanksaldur emb- ættismanna árið 1969. Lýður Jónsson var maður glað lyndur og góðgjarn, ástundaði jafnan að leysa öll vandamál á sanngjarnan hátt. Það fer ekki míilli mála að hann var einn aif þeim fyrstu mönnu-m, sem við frumstæðar aðstæður eiga langan starfsdag að baki til viðgangs íslenzkri sj ávarútvegsframleiðslu og vissu lega verða þau störf seint full- þökkuð. Lýðuir Jónsson var giftur hinni ágætustu konu Mekkin Sigurðardóttur, sem nú er látin fyrir nokkrum árum. Minnist ég margra ánægjulegra stunda er ég átti á heimlili þeirra og þar var gott að koma. Þau eignuðust tvö mannvæn- leg börn, Huldu er bjó með föð- ur sínum og Hjálmar, sem er véistjóri, bæði nú til heimilis að Vitastíg 4, Akranesi. Um leið og ég sendi góðum saimstarfsmanni mínum og vini þessa hinztu kveðju fyrir mína hönd og fjölskyldu minniar, þori ég óhikað að gera það einnig í umboði allra er tkl hans þekktu af starfsfólki Fiskmats ríkdsins, ásarnt því að við samhryggjumst eftirlifandi atfkomendum hans. Lýður Jónsson hverfur nú úr orustu líflsina með hreinan og fágaðan skjöld, — en minningin um hann mun lifa. B. Á. Bergsteinsson. Sæmundur Sæmundsson fyrrv skólastjóri — Minning Engiin staðreynd er öruggari en sú, að „eitt sinn skal hver deyja". Þó hrekkur maður við hvert sinn er fregn berst um að fallinn sé I valinn gamall félagi og samverkamaður frá starfsár- unum horfnu. Og nú hefur Sæm- undur Sæmundsson hlýtt kallinu því. Fyrir tuttugu og einu ári tók ég við skólastjórastarfi við barnaskólann í Kópavogi, en kennsla var þá nýflutt úr leigu- húsnæði í fyrsta byggingar- áfanga Kópavogsskóla við Digranesveg. — Ég kom úr gjör ólíku umhverfi í strjálbýlli sveit, í mjög ört vaxandi þéttbýli við útjaðar höfuðstaðarins. Þar var ég öllu ókunnugur, íbúum jafnt sem málefnum byggðarinnar, sem um þessar mundir einkenndist nokkuð af hörðum deilum og pólitískum vaxtarverkjum. Ekki er þvi að leyna, að ég beiS með nokkurri eftirvæntingu fyrstu funda við væntanlga samstarfs menn mina, kennarana við skól- ann. Þeir voru í þennan tima 4 talsins. Einum þeirra hafði ég lít illega kynnst, hina þekkti ég ekkert. — Fljótlega þóttist ég sjá, að óþarfi væri að bera kvíð- boga fyrir samvinnunni við þetta starfslið. Árin, sem í hönd fóru staðfestu það hugtak, og á ég þessu góða fólki marga þakkar- skuld að gjalda, svo og öðrum þeim, er síðar bættust i kennara lið skólans. Einn þessa fjögurra var Sæm- undur Sæmundsson. Hann var þá fluttur til Reykjavíkur aust- an af Fjörðum fyrir einu ári, hafði verið skólastjóri barnaskól ans á Búðareyri við Reyðarfjörð um langt árabil auk ýmissa ann- arra trúnaðarstarfa, sem á hann hlóðust. —- Þannig lágu leiðir okkar saman í Kópavogsskólan- um um 10 ára skeið, unz hann lét af störfum fyrir aldurs sakir eftir óslitið kennslustarf frá 1916. Á efri árum, þegar kyrrist um og „austurfjöllin eru blá, orðin fyrir löngu“, gefst næði til að líta yfir farna leið, vega og meta verðmætin, sem lífið færði okkur, bera saman tap og gróða. Niðurstaðan verður eflaust með ýmsum hætti. En hvað sem þvi líður, hygg ég, að kynni okkar af mannkostum og drengskap í fari samferðafólksins verði drjúgur tekjuliður á þeim reikn ingi. Þar á Sæmundur Sæmunds- son hönk upp í bakið á mér. Hann var mannkostamaður, sem gott var að vinna með. Ég held ég hafi ekki þekkt ósérhlífnari mann né skylduræknari. Fram til síðasta árs féll aldrei niður Hj-artanis þaklklæti tii a,llra þeirra, isem glöddiu miig m,eð he'iimisókiniuim, gjöfum og Sbeytum á 70 ára atfmæli míniu, 5. október sl. Guð blieislsi ykkur öll. Þórunn Guðjónsdóttir, Skipasundi 26, Rvík. Mitt imnilegasta þaikiklæti færi ég þeim er glöddiu mig nveð igjöfum ag skeytum á 75 ára atflmiæili míniu iþainin 13. okt. sl. Guð blessi ykkiuir öll. lngimundur Guðmundsson, frá Birgisvík, Kambsvegi 3, Rvík. hjá honum kennsludagur, þótt hann byggi í Rvík og samgöng- ur heldur ógreiðar um Kópavog áður en strætisvagnar bæjarins komu til sögu. Ég minnist: dimmra vetrarmorgna með frosti og hríðarbyl. Uppfenntir krakk ar úr næstu húsum tínast inn á ganginn og stappa af sér snjó- inn. Allt að verða kolófært, er sagt, — Hafnarfjarðarvagnarnir í erfiðleikum. — En hvað um það. Hurðin er rösklega opnuð, inn snarast Sæmundur, búinn að kafa ófærðina neðan af Hafnar- fjarðarvegi og reiðubúinn að taka. til starfa á settum tíma. Þetta finnst mér þvi umtalsverð ara, að hann var allmikið bagað ur á fæti vegna slyss i barn- æsku. - Það var gott að eiga Sæmund að ráðgjafa vegna langrar reymsliu haims í Skólasta.rfi. Oa/nin var ætíð boðinn og búinn til að hlaupa í skarðið ef ljúka þurfti verki og hirti þá lítið um þótt farið væri yfir mörk lögboðins vinnutíma. Margan slíkan hjálp- artíma hafði hann með seinfær- um nemendum og lagði mikið kapp á að koma þeim áleiðis. Átti þetta ekki sízt við um reikn inginn, sem mun hafa verið hans kjörkennslugrein. Nemendur Sæmundar virtu kennara sinn og þótti væntu um hann. — Vissulega gat hann orð ið hvass í máli og snöggur upp á lagið, ef þvi var að skipta. En þá var alltaf jafnframt grunnt á brosi, yljuðu af góðvild og um- hyggju fyrir nemendum hans og námi þeirra. Nú að leiðarlokum kveðjum við, gamlir samstarfsmenn i Kópavogi, kalli vinar og félaga með þakklæti í huga. Eftir lifir minningin um góðan dreng. Ekkju hans og sonum sendum við hlýjar samúðarkveðjur. Sæmundur Sæmundsson fædd ist að Stóra-Sandfelli í Skriðu- dal austur, 4. nóv. 1988. HAnn lauk kennaraprófi 1916, gerðist sama ár kennari í Reyðarfjarðar skólahéraði og starfaði þar til 1919. Tók hann þá við stjórn barnaskólans á Búðareyri og gegndi þvi stárfi til ársins 1948. Jafnframt hafði hann þar bók- sölu á hendi ásamt ýmsum opin- berum trúnaðarstörfum. 1948 fluttist fjölskyldan til Reykja- víkur, en Sæmundur starfaði upp frá því við Kópavogsskól- ann eins og áður segir, til ársins 1959. Árið 1925 kvæntist Sæm- undur eftirlifandi konu sinni, Ingibjörgu Pálsdóttur frá Tungu í Fáskrúðsfirði. Þau eignuðust tvo sonu: Pál, tæknifræðing hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur og Guðlaug, fulltrúa hjá Landssím anum. Sæmundur Sæmundsson and- aðist að heimili sínu 10. október s.l. og skorti þá tæpan mánuð til að ná 82 ára aldri. Frímann Jónasson. Sæmuindur Sæmundsson var fæddur á Stóra-Sandfelli í Skriðudal 4. nóvember 1888. For eldrar hans voru hjónin Guðlaug Jónsdóttir og Sæmundur Jóns- son, hann var yngstur þriggja sySkina. Faðir hacns andaðist áðuir en hainn fæddist, óllsit hainin því upp með móður sinni sem dvaldist á Fljótsdalshéraði, mest hjá systur sinni, sem þá bjó á Hreinsstöðum í Hj altaista'ðalþing- há. Að lokinni fermingu var hann einn vetur í skóla á Breiða vaði við nám hjá fræðimannin- um Hákoni Finnssyni, sem síðar bjó á ArnhólsstöSum í Skriðudal og Borgum í Homafirði. Að á- eggjan Hiáikaniatr réðst haimi í að fara í Kennaraskóla íslands árið 1912 og lauk hann þaðan kenn- araprófi. Eftir að hann hafði lokið námi varð hann kennari á Reyðarfirði, og skólastjóri við barnaskólann þar frá 1919. Hann var skólastjóri við barnaskólann í samtals 29 ár, eða til ársins 1948, en það ár fluttist hann til Reykjavíkur. Eftir að hann flutt ist hingað suður fékkst hann um 10 ára skeið við kennslu við barnaskólann í Kópavogi, en hætti störfum um sjötugt, enda heilsan þá farin að bila. Sæmundur var meðal maður á vöxt fríður sýnum og prúður í framkomu. Sem bam, 4 ára að aldri, varð hann fyrir því óhappi að detta á svelli, þar sem hann var að leik, og fór úr mjaðmar- lið, en fékk ekki viðeigandi að- gerð, og olli slys þetta fötlun. Er kennslu lauk á vorin, var hann sístarfandi yfir sumarmán- uðina, enda var hann ósérhlíf- inn og duglegur við alla vinnu. Á Reyðarfirði kynntist ég Sæmundi. Ég var þar formaður skólanefndar, en hann skóla- stjóri. Samstarf okkar var því mikið og var ávallt með ágætum. Nokkur ár höfðum við þar vísi að unglingaskóla og störfuðum við við hann án nokkurs endur gjalds. Fyrir þá unglinga sem leituðu frekairi menntfuin‘air að loknu barnaprófi var þetta til góðs og til þess að örfa ungling- ana til frekari dáða. Vorið 1925 kvæntist Sæmund- ur Ingibjörgu systur minni, eign uðust þau tvo syni Pál og Guð- laug, sem báðir eru kvæntir. Páll er tæknifræðingur kvæntur Guðnýju Óskarsdóttur, en Guð- laiuguir viðsikiptafræðimguir, kvæn.t ur Ragmhildi Guðmundsdóttur. Eftir að Sæmundur hætti kenn arastörfum tók heilsu hans að hnigna og átti hann hin síðustu ár við milkla vainlheilsu að stríða, kom þá i ljós, að hann var vel kvæntur, því í veikindum hans, sem og ávallt áður, reyndist Ingi björg honum traustur lífsföru- nautur og annaðist hann með prýði þar til yfir lauk. Hann andaðist að heimili sínu Mjóu- hlíð 8 þann 10 þ.m. Sem kennari var Sæmundur óvenju laginn og náði góðum ár- angri i starfi. Nemendur hans elskuðu hann og virtu, en gerðu sér aldrei dælt við hann, óþægð eða þvermóðska kom ekki til greina. Eftir að hann kom hing- að suður fékk hann stundum baldna stráka í sinn bekk, en háj honum urðu þeir fljótt prúðir og áhugasamir nemendur. Hann þurfti ekki annað en að leggja hendina á kollinn á þeim og segja nokkur vingjarnleg orð við þá og ísinn var hræddur, þeir fengu traust á honum og jafnframt traust á sjálfum sér. — Til þessa kennara var gott að leita með óleystar ráðgátur. Að leiðarlokum er gott að minnast góðs drengs. Kona Kiín og synir taka undir þessi kveðju orð með mér og öll óskum við systur minni og fjölskyldu henn- ar Guðs blessunar um ókomin ár. Jón Pálsson. Við andlát Sæmundar Sæm undssonar, fyrrv. skólastjóra, hrannast minningarnar upp frá æskuárunum heima á Reyðar- firði. Það fer ekki hjá því, að skóla stjórinn setji svip á staðinn í daglegu lífi fólksins, enda var það svo með Sæmund Sæmunds- son. Mynd þessa gamla og góða kennara míns er dregin skýrum dráttum í minningunni. Hann var duglegur og ákveðinn kennari, stjórnsamur skólastjóri, kröfu harður við nemendur sína, en einnig við sjálfan sig. Skyldurækni hans í starfi var frábær og verður mér oft hugs- að til þeirra óbeinu, hollu á- hrifa, sem slíkir menn hafa á nemendur sína. Þau áhrif verða hvorki mæld né vegin. Sæmundur Sæmundsson var fæddur 4. vóv. 1888 á Stóra- Sandfelli í Skriðudal, S-Múl. Faðir hans drukknaði skömmu áður en sveininn sá dagsins ljós. Ungur fluttist hann með móður simmii að Hreimsstöðium í Hjalta- staðaþinghá. Með tilstyrk góðra manna fór Sæmundur í unglinga skólann á Breiðavaði í Eiðaþing há, en þar var þá skólastjóri Hákon Finnsson frá Borgum. Hvatti hann Sæmund til áfram haldandi skólagöngu og varð Kennaraskólnin fyrir valinu. Allt ber þetta ljósan vott um álit, er glöggskyggnir samferða- menn höfðu á honum, og einnig sýnir þetta framsækni Sæmund- ar og ódrepandi dugnað, sérstak lega þegar það er haft í hpga, að hann var fátækur á veraldar vísu og gekk ekki heill til skóg- ar. 4 ára gamall varð hann fyrir slysi, sem leiddi til þess, að hann var haltur alla ævi upp frá þvi. Kennaraprófi lauk Sæmundur árið 1916 og var farkennari næstu 3 árin í Reyðarfjarðar- hreppi. Árið 1919 er hann svo ráðinn skólastjóri við Barnaskóla Búð- areyrar og gegnir því embætti til ársins 1948, er hann fluttist til Reykjavíkur. Næstu 10 árin kennir hann við Bamaskóla Kópavogs og miumu aðrir geta starfs hans þar. Heima á Reyðarfirði gegndi Sæmundur fjölmörgum trúnaðar störfum samhliða skólastjórn- inni. Hann sat í hreppsnefnd og sóknarnefnd, var gjaldkeri Raf veitu Reyðarfjarðar, bóksali og bókavörður, svo eitthvað sé nefnt. Eitt af því, sem gleggstan vott ber um framtak og dugnað Sæm undar, er það, að strax árið 1925 reisir hann stórt og myndarlegt ibúðarhús á þeirra tíma mæli- kvarða. Nefndi hann það Odda, og stendur á fögrum stað. Fimm árum síðar reisti hann fjós og hlöðu, ræktaði tún, enda drýgði hann tekjur sínar sem títt var þá með því að hafa bæði kýr og kindur. Á sumrum vann hann oft X Kaupfélagi Héraðsbúa. Þannig var maðurinn, sístarfandi. Yndi hafði Sæmundur af söng, kenndi hann í skóla, söng í kirkjukórnum, var einn af sára- fáum hljóðfæraeigendum í kaup túninu. Minnist undirritaður þess, er hann, lítill hnokki, kom stundum í „betri stofuna" í Odda og fékk að virða fyrir sér þetta „galdra- verkfæri11, einkum ef húsbónd- inn var að leika á það. Mesta ánægju mun Sæmundur þó hafa haft af stærðfræði- kennslunni, enda kenndi hann langoftast stærðfræði, auk sögu, söngs og kristinfræði. 1 Kennaraskólanum naut hann líka handleiðslu hins frábæra stærðfræðikennara, Ólafs Daní- elssonar, sem hann mat mjög mikils. Árið 1925 kvæntist Sæmund- ur eftirlifandi konu sinni, Ingi- björgu Pálsdóttur frá Tungu í Fáskrúðsfirði, sem staðið hefur við hlið hans í blíðu og stríðu sem hinn holli og trúi lífsföru- nautur og eignuðust þau tvo drengi. Þessum góðu vinum mínum sem og öðrum aðstandendum sendi ég innilegar samúðarkveðj Framhald á bls. 24

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.