Morgunblaðið - 04.12.1970, Síða 30
30
MORGUNBIíAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1970
Sylvía Hallsteinsdóttir bar af og skoraði 11 mörk
FLEST bendir tll þess að róður
kvennaliðs Fram í aðra umferð
Evrópubikarkeppninnar í hand-
knattleik verði næsta auðveldur.
í fyrrakvöld lék liðið fyrri leik
sinn við ísraelsku meistarana
Maccabi, og vann stórsigur 19-11
og jafnvel þótt gestirnir verði
búnir að átta sig betur á aðstæð-
um ogr leiki betur í síðari leikn-
um, sem fram fer í kvöld, er það
næsta ótrúlegt að þeim takist að
sigra Fram með 9 marka mun.
Fram-liðið verður því annað
Norðurlandaliðið sem kemst í 2.
umferð, en nýlega hafa dönsku
HG-stúlkurnar tryggt sér áfram
haldandi keppnisrétt.
En hvort Fram á svo erindi í
2. umferð er annað mál. Þar verð
ur erfiðari keppinautum að mæta
en Maccabi, og til þess að eiga
þar minnstu möguleika þurfa
Fram-stúlkurnar að leika betri
handknattleik en í fyrrakvöld.
Það eiga þær líka að geta. Stór-
sigur sinn í leiknum við Macc-
abi, eiga Framstúlkumar mest
að þakka Sylvíu Hallsteinsdótt-
ur, sem sannarlega er ekki illa
í ætt skotið í handknattleiknum.
Sylvía var áberandi bezta leik-
kona vallarins, ákveðin, dugleg
og hugkvæm I leik sínum. Fór
hún hvað eftir annað illa með
vörn ísraelsku stúlknanna og
skoraði hvorki meira né minna
en 11 mörk — jafnmörg og
Maccabi stúlkurnar gerðu. Var
Leikurinn mun tvísýnni en sá fyrri
f KVÖLD fer fram síðari leikur
Fram og Maccabi frá fsrael í
Fvrópubikarkeppni kvenna. Svo
sem fjallað er um á öðrum stað
á síðunni, eru miklar líkur til
þess að Framstúlkurnar vinni
einnig þennan leik og alla vega
er mjög ótrúlegt að hann tapist
með það miklum mim að Fram
komist ekki áfram í keppninni.
Hvað þá tekur við, er ekki
gott um að segja, en víst er að
það verður fjárhagslegur baggi
fyrir Fram að halda áfram. Það
eru þeir þó staðráðnir í að gera.
— Stúlkurnar eiga það sannar-
lega skilið, og það hljóta að finn
ast ráð til þess að kljúfa kostn-
aðinn, sagði Ólafur Jónsson, for
maður handknattleiksdeildar
Fram í viðtali við Morgunblaðið
í gær.
Þótt Fram kæmist að fremur
hagstæðum samningum við ísra
elska liðið eru þó líkur á því að
tap verði á heimsókninni, nema
góð aðsókn verði að leiknum
KR-ingar
AÐALFUNDUR skíðadeildar KR
verður haldinn í kvöid (föstu-
dag) kA. 8.30 í Félagsiheimilimi.
i kvöld. Er ástæða til þess að
hvetja alla handknattleiksunnend
ur til að fjölmenna á leikinn,
og slá þar með þrjár flugur í
einu höggi. Horfa á skemmtileg-
an leik, styrkja Framstúlkurnar
til áframhaldandi keppni, og
hvetja þær duglega meðan í leikn
um stendur. Allt of oft láta
íslenzkir áhorfendur lítið til sín
heyra meðan keppni fer fram
milli islenzkra og erlendra liða.
Góð hvatningarhróp getur verið
það sem ræður baggamun í jöfn-
um leik.
Þingi
KSÍ
frestað
ÁRSÞINGI KSÍ, sem átti að
vena 11., 12. og 13. desemlber,
er frestað um óákveðinn tíma.
Þeir samibandsaðilar er ekki
hafa sent sambandin/u uppgjör
vegna landsmóta og Bikar-
keppni eru áminntir um a®
gera það nú þegar. — (Frá
KSÍ).
Framstúlka sleppur þarna framlijá vörn Maccabi og skorar
Fyrir leikinn voru Maccabi-stúlkunum gefnir uílartreflar með litum Fram
Stundum opnaðist vörn Fram illa og þarna á ein ísraelsku stúlknanna greiðan aðgang að markinu
það vonum seinna sem ísraelsku
stúlkurnar tóku hana úr umferð.
Framstúlkurnar höfðu yfir-
tökin í leiknum allt frá fyrstu
mínútu til siðustu. Þær skoruðu
þrjú fyrstu mörk leiksins og kom
ust síðan í 4:2 og 5:3 og var
það minnsti munurinn í hálf-
leiknum. Þegar leið á hálfleik-
inn höfðu Framstúlkurnar svo
yfirunnið taugaspennuna og
sigldu fram úr jafnt og þétt,
þannig að staðan í leikhléi var
10:5 og sigurinn þegar tryggður.
Siðari hálfleikur var betur leik
inn hjá báðum liðum, og einkum
náðu Framstúlkurnar góðum
leikkafla fyrri hluta hálfleiksins,
en þá skoruðu þær 8 mörk gegn
2 og staðan breyttist í 18:8. Und-
ir lok leiksins var svo Sylvía
tekin úr umferð, og skapaði það
upplausn í Framliðinu, þannig
að á lokaminútunum skoraði
Maccabi 3 mörk gegn 1 marki
Framstúlknanna. Má búast við
því að Maccabi muni þegar frá
upphafi leiksins í kvöld reyna
að taka Sylvíu úr umferð, og
takizt Framstúlkunum ekki að
finna betra svar en í fyrrakvöld,
er óséð um úrslitin.
kunnáttuna og útfæra hana.
Varnarleikur iiðsins var ákaflega
slappur, og einstaklingsframtak-
ið þar mestu ráðandi. Var þetta
til þess að liðið fékk dæmd á
sig vítaköst, sem Sylvía skoraði
svo úr. Undu ísraelsku stúlkurn-
ar þessum dómum illa og höfðu
í frammi mótmæli við dómar-
ana sem voru frá Noregi. Virt-
ust þeir vera nokkuð áhugalaus-
ir við störf sín og dæmdu engan
veginn vel. Svo kann lika vel að
vera að handknattleiksreglurnar
séu túlkaðar öðru vísi í Israel,
en hér á norðurhjaranum.
I liði Fram var Sylvía, sem
fyrr segir, framúrskarandi, en
einnig áttu báðir markverðir liðs
ins góðan leik, svo og Oddný Sig
steinsdóttir, sem er bráðefnileg
handknattleikskona.
Mörk Fram skoruðu: Sylvía
11, Oddný 3, Arnþrúður 1, Guð-
rún 1, Halldóra 1, Helga 1 og
Kristín 1.
Sem fyrr segir verður að telja
þennan leik fremur lélegan, þeg
ar á heildina er litið. Bæði liðin
náðu þó ágætum sprettum, og
virtust Maccabistúlkurnar kunna
töluvert fyrir sér í íþróttinni,
þótt illa tækist að notfæra sér
Auðveldur sigur Fram-
stúlknanna 19 gegn 11
Sigrar Fram
aftur í kvöld?
Fram vann 3. flokk
Fram — Pressuliðið
— forleikur fyrir Evrópu-
bikarleikinn í kvöld
1 FRÁSÖGN af úrslitum í
Reykjavíkurmeistaramótinu I
handknattleik, sem birtist í blað
inu í gær, var sú villa í frásögn
af úrslitum I 3. flokki karla, að
Vikingar voru sagðir sigurveg-
arar og Fram I öðru sæti með
jafnmörg stig.
Hið rétta er, að Fram sigraði
I flokknum og vann alla sína
leiki, sjö að tölu og var marka-
hlutfall þeirra 57:29. Víkingar
voru í öðru sæti með 12 stig.
Orsök þessarar villu mun vera,
að úrslit í leik Fram og iR snér
ust við, en Fram sigraði í þeim
leik með 11 mörkum gegn 5, og
hlutu ÍR-ingar því 4 sig I flokkn-
um, en ekki 6 eins og sagt var
frá í gær. Biðjum við hlutaðeig-
andi velvirðingar á þessum mis-
tökum.
FORLEIKUR fyrir leik Fram og
Maccabi í kvöld verður milli að-
alliðs Fram og liðs sem íþrótta-
fréttamenn hafa valið — pressu-
liðs. Hefst sá leikur kl. 20.30 og
ætti að geta orðið hinn skemmti
legasti.
Pressuliðið hefur verið ákveð-
ið og er þannig skipað:
Markverðir:
Ólafur Benediktsson, Val
Sigurgeir Sigurðsson, Haukum.
Aðrir leikmenn:
Ólafur Ólafsson, Haukum
Sigurður Jóakimsson, Haukum
Ólafur Jónsson, Val
Bergur Guðnason, Val
Stefán Gunnarsson, Val
Hermann Gunnarsson, Val
Guðjón Magnússon, Víking
Guðgeir Leifsson, Víking.