Morgunblaðið - 06.12.1970, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 06.12.1970, Blaðsíða 1
6. desember 1970 í gömlu borgarhverfunum gengur uppbygging mjög hægt, enda eigiiarlóðir margar og smáar og mörg bakhús, sem hverfa þurfa. Myndin sýnir inn í einn reit milli Grettisgötii og Njálsgötu. Borgaryfirvöld gera nú tilraun um samvinnu eigenda um éndurskipu- lagningu og uppbyggingu á einum bygginga rreit í gamla bænum. Birgir Isl. Gunnarsson, borgarfulltrúi; Hvað verður um gömlu borgarhverfin? Kaflar og úrdráttur úr erindi, sem flutt var á fundi hverfasamtaka Sjálfstæðismanna í Austurbæjarhverfi 25. nóvember sl. t>að er sú spurning, sem ég ætla að leitast við að svara með spjalli minu hér í kvðld. Þeirri spurningu verður þó aldrei svarað til fullnustu eða í eitt skipti fyrir öll. Við sem nú erum í blóma lífsins, ger- um okkar áætlanir og skipu- lag, miðað við okkar þarfir og reynum jafnframt að spá um barfir næstu kvnslóða. I>ær spár hljóta hins vegar fyrst og fremst að byggjast á þeim for- sendum, sem við þekkjum í dag. Hvort þær forsendur eiga eftir að breytast er erfitt að sjá fyrir. Tíminn hefur til- hneigingu til að breyta öltu og bylta og þvi er i sjálfu sér óliklegt, að þær hugmyndir, sem við í dag höfum um það, hvernig borg eigi að vera, standist að öllu leyti tímans tönn. ÞRÓUN BYGGÐARINNAR Áður en lengra er haldið held ég það geti orðið fróðlegt að skoða lítillega þróun byggð arinnar í Reykjavík. Saga byggðar í Reykjavík er orðin æði löng eða allt frá því að Ingólfur Arnarson reisti hér bæ sinn. Saga Reykjavíkur sem kaupstaðar er hins vegar mun styttri. I rúmlega sjö ald- ir var búskapur hér í Reykja- vík rekinn á svipaðan hátt og viða annars staðar á landinu. Það var fyrst 1752, þegar Skúli Magnússon landfógeti, hóf að reisa hér verksmiðjur sínar, að þeir atburðir gerðust, sem höfðu mikil áhrif á það, er sið Árið 1927 var gerður skipulagsuppdráttur fyrir Reyk javík, þar sem gert var ráð fyrir hringvegi í kringum aðalbyggðina (Hringbrautin). „Er það tilætlunin að fylgja honum eptirleiðis,“ segir Klemens Jónsson í Reykjavíkursögu sinni. Ilér er uppdrátturinn frá 19 27 prentaður á nýjan uppdrátt af Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.