Morgunblaðið - 06.12.1970, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 06.12.1970, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐEÐ, SUNNUÐAGTJR 6. DBSEMBBR 1970 41 Eins er haegt að búa til svona svuntu, haí« á henni stóran vasa, og setja í hann liti, vatns- liti, leir eða aðra þá hluti, sem börn hafa ánægju af. En þá er betra að hafa sterkt efni i svunt unni, sem gott er i þvotti. Við trúum ekki öðru en að þessi jólagjöf myndi gleðja bömin. Húfur, eins og sjást hér á myndinni, hétu „flugmannahúf- ur“ fyrir alllöngu, nú víst kall- aðar hjálmar. Þetta eru hin klæðilegustu höfuðföt og alis ekki svo erfitt að búa til og gefa í jólagjöf. f húfuna fer u.þ.b. 14 metri af 90 cm breiðu efni, smá- vegis af efni i öðrum lit, ef setja á skraut á. Það má sjálfsagt nota ýmsar tegundir af efnum, sem bera sig vel, en hér er gert ráð fyrir fiít efni. Húfan er sett saman úr tveimur hliðarstykkjum, annað er með höltubandi, hitt ekki, og svo miðstykki. Sniðið, sem sést hér á myndinni, er auðskilið, hver reitur er 214 cm. Hökuband ið þarf að vera tvöfalt og er stungiS í brúnina. Hliðarstykk- in eru saumuð við miðstykkið, saumarnir pressaðir út, brotið inn af brúnunum dg saumað. Smella sett á. Skreyta má svo húfuna, og stjarna og hringir á miðri mynd eru til þess, ef vill. fyrir börn Hér er herðatré, sem fjögurra barna móðir á hugmyndina að. Þetta er falleg gjöf, gaman að búa það til og láta þá auðvitað börnin hjálpa til við það eða búa til sjálf þau sem stærri eru. Fyrst er tekið vanalegt bama- herðatré og það málað í falleg um skasrum lit. Síðan er jámið skrúfað úr og því stungið í gegnum kúlu (t.d. af gardínu stöng), og skrúfað síðan aftur á tréð. t>á er andlit málað á kúl- una og útbúið eftir hugmynda- flugi hvers og eins, og notaðar tíl þess slaufur, efnisafgangar, og reynt að gera úr þessu allra skemmtilegustu myndir. Fuglar á jólatréö I fuglana er notað mislitt fílt, sem klippt er eftir mynztri (sjá mynd) með takkaskærum, ef til eru. Brúnírnar eru límdar sam- an nema á smáparti, þar sem hægt er að troða dálitlu stoppi af einhverri gerð (efnisafgang- ar, bómull, vatt eða annað). Gat- ið límt saman. Hægt er að skreyta fuglana með ýmsu móti með því að lima á þá annan lit af filtí. Each sq. — 1" sq. -JJD SMÁKÖKUR f STÓBAB, BRf N.AR PIPABHNETUR 250 gr smjör 2% dl sykur 1 matsk. siróp 2 tsk. natron N 1 egg 1 tsk. kanill 1 tsk. engifer 1 tsk. negull 614 dl hveiti Hrærið sykur, smjör og siróp. Natronið hrært út í eggið, bætt út í eggjahræruna ásamt hvexti og kryddi. Or deiginu búnar til litiar kúlur, á stærð við valhnet ur, settar á smurða plötu og bakaðar í 12— 15 mín. (við u.þ.b. 150 C). Verða um 75 stykki. BÓNÐAKÖKUB % bolli og 2 matsk. smjör % bolli og 2 matsk. sykur 1 matsk. síróp 14 bolli hnetur 1 tsk. natron 1 matsk. volgt vatn 3 bollar hveiti 14 tsk. salt Smjörlíkið hjrært, sykri bætt í smám saman ásamt sýrópi, hrærti þar tii það er Ijóst og létt. Hnet urnar settar út í, natronið hrært út í volgu vatni, hveiti og salti bætt i. Gerð rúlla úr deiginu, rúml. þumlungur í þvermál. Skornar sneíðar og bakaðar í meðalheitum ofni í 12—15 mín. KÓKOSMAKRÓNUR 3 egg 250 gr sykur 300 gr kókosmjöl Egg og sykur þeytt vel, kókós mjölið sett út í, blandað vel. Deigið sett í smátoppa á smurða plötu með hveiti á. Bak'að í 7—8 mín. Eiga að vera mjúkar áð inn an. SÆNSKAR HAFRAM.JÖLSKÖKUR V2 bolli smjörlíki % bolii sykur 1 egg, þeytt 1 bolli haframjöl 1 matsk. hveiti 1 tsk. ger Smjörííki og sykur hrært vel, eggi bætt í, haframjöli og svo hveiti og geri. Deigið sett á piötu með teskeið, þrýst á hverja köku, þannig' að hún fletjist út. Bakað við meðalhita í 10 min. Meðan kökumar eru enn heitar, er kökukeflið sett á þær augnablik. M HKI iADl HAFRAMJÖUSKÖKUR 1 bolli smjörliki % bolli sykur 1 egg, þeytt 3 matsk. kakó V2 bolli hveiti 2 Vi bolli hafraznjöl Smjörlíkið brætt og kælt, sykri bætt út i og hrært vel. Eggi, kakói, hveiti og haframjöli bætt út í. Deigið látið með te- sk.eið á plötu og bakað í u-þ.b. 12 mín. PEPITA HRINGIR kg hveiti 185 gr smjör eða smjörlíki 60 gr strásykur Punt: Egg, sykur, saxaðar möndlur og kirsuber. Hnoðað deig, sem gerðar eru úr lengjur. Hver kaka er svo búin til úr 10 cm af lengjunni, gerður hringur, sem difið er í egg og svo í blöndu af sykri, söxuðum cocktailberjum og möndlum. Bakað við góðan híta í u.þ.b. 10 min. LÍTIL JÓLABRÉF 125 gr smjöriiki 250 gr hveiti 100 gr sykur 1 eggjarauða, 2 matsk. koníak, romm eða sherrý. Nougat eða súkkulaði, rauð cocktailber. Deigið hnoðað, vínið notað til að væta í. Látið á kaldan stað í dálitla stund. Fiatt út og skornir ferningar með kleinu járni eða hnif. Lítill súkkulaði- biti eða nougat sett á hvern ferning, brotið yfir, svo kakan líti út eins og umslag, hálft cocktailber sett á samskeyt- in. Bakað í 10—12 mín. HNETLMARENGE 3 eggjahvítur 125 gr sykur 14 tsk. edik eða sítrónusafi 50 gr gróft saxaðar möndlur. Þeytið eggjahvítumar mjög stífar. Sykur og edik eða sltrónusafi sett út í, þeytt áfram. Marengsið sett með teskéið á smurða plötu með hveiti á, hnet- umim dreift yfir. Bakað við mjög vægan hita í um það bil 1 klst. Eiga að vera Ijósgular og losna auðveldlega af plötunni. BANANA- HAFRAMJÖLSKÖKUR 1 bolli sykur íí bolli rjómi þeytt saman Eitt egg þeytt og bætt út í I bolli stappaðír bananar 1*4 bolii haframjöl 1 bollí rúsinur sett út i 114 boiii hveiti 14 tsk. natron 1 tsk. salt Hrært vel. Sett með teskeið á ósmurða plötu og bakað í vel heitum ofni í 12 min. Kvennadálkar, framhald á næstu síðu FORELDRAR OG BÖRN eftir Dr. Haim G. Gínott í þýðingu Björns Jónssonar, skóiastjóra, meS formáia eftir Jónas Páisson, skóIasálfræSing. Höfundurinn er oft nefndur Dr. Spock, barnasáifræðinnar. Hann bendir á nýjar lausnir gamaila vandamáia. Bókin á erindi til allra: heimila, skóla og uppeldisstofnana, Þér munuð skilja barn yðar betur — og barnið yður. BÓKAÚTGÁFAN ÖRN OG ÖRLYGUR HF., GEFIÐ HEIMILINU GLEÐI — GEFIÐ BÓK SEM REYNIMEL 60, SÍWII 18660. STUÐLAR AÐ GLÖÐU OG GÓÐU HEIMILISLÍFI. uppeldis hand- hókin OKKAR BÆKUR ERU YKKAR BÆKUR.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.