Morgunblaðið - 06.12.1970, Síða 4

Morgunblaðið - 06.12.1970, Síða 4
36 MORGUNBLAÐIÐ. SUNNUDAGUR 6. DESEMBER I8T0 ökutækja. Aksturssambandií milli Lækjargötu og Austur strætis á að rjúfa I framtið innL Eitt þeirra vandamála, sem mjög hefur þurft að taka til- lit til við skipúlag gömlu borg arhverfanna er bílastæða- vandamálið. I áætlun aðalskipulagsins um enduruppbyggingu, er gert ráð fyrir, að í mesta lagi verði urínt að láta í té um 1200 bif- réiðastæði í Miðbænum og um 2200 stæði í Austurbænum, en það fullnægir alls ekki áætl- aðri þörf. Óráðlegt er talið að útvega rými með þvi að rjúfa skörð í samfelldar húsaraðir, heldur ætti að rífa skúra og bakhús svo og gera stór bif- reiðastæði og byggja bifreíða- geymsluhús í útjaðri hvers borgarhluta. í kjöllurum ný- bygginga og á annan hátt í tengslum við nýbyggingar ætti að vera unnt að koma fyrir all miklum fjölda bifreiðastæða. Samþykkt hefur verið sú regla, að því er Miðbæinn og Austurbæinn varðar, að krefj- ast eins bifreiðarstæðis fyrir hverja 50 gólfí'latarmetra at- vinnuhúsnæðis og eins bifreiða stæðis fyrir hverja ibúð. Það er ljóst að æskilegasta fjölda bifreiðastæða verður erf itt að uppfylla í gömlu borgar hverfunum í framtíðinni. mannastígur verði varðveittur í þeirri mynd, sem hann er nú. ÞÉTTLEIKI BYGGÐAR, HÆÐ IIÚSA OG YFIRBRAGÐ BORGAR Aðalskipulagið gerir ráð fyr ir talsvert strangari stefnu, en áður ríkti, um nýtingu lóða, þ.e. þéttleika byggðarinnar og hæð húsa. Nýtingarhlutfall nefnist hlut fallið milli samanlagðs gólfflat armáls á tilteknu landssvæði og flatarmáls landsvæðisins. Nýtingarhlutfallið í Miðbæn- um og Austurbænum i heild verður töluvert hærra skv. að alskipulaginu en í hverfunum í kring og talsvert miklu má bæta við núverandi húsrými. Þótt nýtingarhlutfall hafi þannig verið ákveðið, hefur það verið talið óhjákvæmilegt að ákveða hámarkshæð húsa á tilteknum svæðum í gömlu borgarhverfunum. Æskilegt þykir að borgin hafi skipulegt yfirbragð, að byggt sé upp í skörð í húsaröðum og að hin mörgu biíreiðastæði, sem gera þarf, skapi ekki ljótar eyður, þar sem byggð er annars sam- felld. Ennfremur er litið svo á, að ekki megi staðsetja áber- andi háhýsi, hvar sem verkast vill, heldur i samræmi við vel mótaðar skipulagshugmyndir. Samþykkt hefur verið að gera ráð fyrir byggingu þriggja nýrra háhýsa, 7 hæða, í verzlunarhverfinu við Aðal- stræti en Morgunblaðshúsið gnæfir þar nú eitt sér. Að öðru leyti er gert ráð fyrir, að umhverfis torgið, sem þarna myndast, verði einnar eða tveggja hæða hús með verzlunum. Torgið á að taka yfir það svæði, sem nú er Hót el íslands lóðin og Steindórs lóðin. Fjögurra hæða hús eru nú einkum í Miðbænum við Aust- urvöll, Hafnarstræti og Tryggvagötu og í Austurbæn- um við Bankastræti og Lauga- veg. Talið er æskilegast að húsaröðin á þessum slóðum verði heilsteypt, með þvi, að í stað lágra, gamalla húsa, sem nú eru inn á milli, komi fjög- urra hæða hús i réttum götu- línum, viðast með verzlanir á götuhæð og skrifstofur á efri hæðunum eða aðra starfsemi, sem hentar í miðbæjarbyggð. Ég hef hér að framan í stór- um dráttum gert grein fyrir hugmyndum aðalskipulags Revkjavíkur um uppbyggingu gömlu borgarhverfanna. Eins og ég sagði í upphafi, er aðal- skipulagið fyrst og fremst áætl un, sem byggir á ákveðnum forsendum og forspám. Þvi er nauðsynlegt að taka það til endurskoðunar á vissu ára bili, kanna hvort forsendur þær, sem byggt var á, hafi raskazt og breyta forspám í samræmi við það. Þegar hafa fartð fram ýmsar athugandr á þáttum, sem aðalskipulagið var byggt á. Nefna má sem dæmi mannfjölgunarspá. Mannfjölg- un hefur orðið hægari en gert var ráð fyrir. Nýjar upplýs- ingar hafa birzt með fasteigna- matinu nýja um ástand og notk un fasteigna í borginni. Ýms- ar athuganir hafa verið gerð- ar í verzlunarmálum. Umferðar kannanir hafa átt sér stað og þá einkum i sambandi við leiðakerfi S.V.R. Ýmsar fleiri at huganir þarf þó að gera og falla þær inn í form aðals'kipu lagsáætlunarinnar. Það er nú í meðferð hjá borgaryfirvöldum, hvernig bezt verður að því verki staðið og í því efni þarf FABLON klaðningin er sjálflímandi Sparið peninga og tíma og skreytið sjálf heimili yðar með FABLON Þér þurfið FABLON og skœri annað ekki FABLON - FABLON Heildsölubirgðir: Duvíð S. Jónsson og Co. hf. Sími 24-333. FABLON - FABLON Ný munstur tilvalin til skreytinga t.d. í eldhús, böð, forsfofur og skápa. Ennfremur viðarlíkingar í úrvali Útsölustaðir: Brynja, verzlun Laugavegi 29 Klæðning h.fLaugavegi 164. Málarabúðin, Vesturgötu 21. Málningarverzl. Péturs Hjaltested, Suðurlandsbr. 12. Skiltagerðin, Skólavörðustíg. J. Þorláksson & Norðmann. K. R.O.N. byggingavöruverzlun, Hverfisgötu, K.E.A, byggingavöruverzlun, Akureyri. Haraldur Böðvarsson & Co. h.f., Akranesi. Kf. Hafnfirðinga, Hafnarfirði. Kf. Suðurnesja, Keflavík. Stapafell, verzlun Keflavík. Kf. Árnesinga, Selfossi Kf. Borgfirðinga, Borgarnesi. Kf. ísfirðinga, Isafirði. Byggingavöruverzlun Ársæls Sveinssonar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.