Morgunblaðið - 06.12.1970, Page 13
45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. DGfiSEMBER 1970
GUÐM.G.
- magalín
Guðmundur Gíslason Hagalín: Sfurla í Vogum
' Hin sígflda og rammislenzka hetjusaga.
i„Heilddráhrif þessarar sögu eru mikil og sterk;
hver eirlasta jjersóna er Ijóslifartdi og sérstaklég;
eðli þeirrd, kjör og örlög í stefku og fostu sam-
i < ■ ' rœmi." — Helgi Hjörvar rithöfundur.
„Sturla í Vogum er þróttmikið verk, sem unun er að kynnast. Bókin .
kemur með sólskin og vorblœ upp í fangið á lesandanum.'r — Sveinn
Sigurðsson ritstjóri. - - -
„Þetta er ótvírœtt bezta rit, sem fram að þessu liggur eftir Hagah'n,
það rit, sem stenzt venjulega bókmenntaalin frábœrlega og þarf ekki
að spanna til þess að standist mál." — Guðbrandur Jónsson prófessor..
I»a<> Mtrnrtl vt‘i
IpÍj|
Gunnar H. Magnúss: Það voraði vel 1904
Gengið gegnum eitt ár íslandssögunnar og
atburðir þess raktir frá degi til dags.
Árið 1904 er stjórnarfarslegt timamótaár. En það
markar einnig tímamót á fleiri sviðum. Hér er sagt
frá ýmsu, smáu og stóru, sem einkennir þetta ár
öðru fremur. M. a. er fjallað um: Landshöfðingja-
ísland fœr innlendan ráðherra — símamálið — varð-
skiþ ög erlenda veiðiþjófa — leynilegar kosningar í fyrsta sinn— mennt-
'únárásfánd þjóðarinnar — iðnskóli tekur til starfa — samþykkt laga-
skpla — fyrstu raflýsingu kaupstaðar — upphaf togaraútgerðar —
fyrsta skipbrotsmannaskýlið — sundnám kvenna — róstur i Lœrða
skólanum — listir og listamenn, sem þá koma fram, og margt fleira.
tímabili iýkur
Jakobína Sigurðardóttir:
Sjö vindur gréar
Hér er bók, sem vekja mun
verðskuldaða athygli allra
góðra bókamanna. Hún
ber öll beztu einkenni. höf-,
undarins;. ríka frásagnar- ,
gleði, glöggskyggni á
mannlegar veilur og raun-
ar kosti líka. I augum
Jakobínu er allt betra en
hrœsnin og lífslýgirr. Sögur eins og Elías Elías-
son og Mammon í gœttinni spegla þetta við-
' Korf hennar og munu báðar þessar sögur
verða lesendum œrið minnisstœðar.
j ofiuaiH't
iMp
Jóhannes Helgh
Svipir sækja þing
Mergjaðar svipmyndir úr is-
lenzku mannlífi og atvik úr lífi
höfundar hér heima og erlendis.
Einnig skemmtilegar mannlýs-
ingar, svo sem svipmyndir af
Ff,Jónasi frá Hriflu, Ragngri í
;:; Smára, þjóðkunnum listmálara,
- -r’ nóbelsskáldi og mörgum fleiri
kunnum mönnum, sem ekki eru nafngreindir, en
lesendur munu strax kannast við. — Það er til-
breytni að því, þegar höfundar koma glaðbeittir
til dyranna ó morgunskóm, eins og hér hefur gerzt.
| Jón Helgason:
Maðkar í mysunni
: Fagur og mikilúðlegur
, r skáldskapur og svo lifs-
I IVIVSUNNI ',r“r' »3 Ó;.honn Slœr °ft
svipmoti sogu, sem gerzt
hefur í raun og veru.
Lesendur óg aðdáendur
P Maðkar
SSSfcSS: r -.
I. mannlífsþátta Jóns Helga-
sonar vita, að hann skrif-
ar fagurt mál og snjallan
stíl og frásagnarlist hans bregzt ekki, hann
segir aldrei leiðinlega sögu. Þessar sögur
hans munu verða taldar til bókmenntavið-
burða þessa árs.
Oscar Cíausen: Aftur í aldir
í þessu nýja sagnabindi eru m. a. þessir þœttir:
Gullsmiðurinn í Æðey, Frásagnir af Thor Jensen,
Galdramál í Arnarfirði, Tveir sýslumenn Skagfirð-
inga drukkna, Hrakningar hvalveiðimanna í Norð-
urhöfum, Yfirgangur útlendra sjómanna á Langa-
nesi, Um Einarslón, Natan trúlofast undir Jökli, Ing-
unn skyggna á Skeggjastöðum, Ferð séra Friðriks
Eggerz í skóla, Seljalandsfeðgar berjast við Dani
— og margir fleiri fróðlegir og skemmtilegir þœttir
víðsvegar að af landinu.
Jakob Kristinsson: Vaxfarvonir
Áhrif Jakobs Kristinssonar fyrrum frceðslumála-
stjóra og skólastjóra alþýðuskólans að Eiðum, sem
rœðumanns og fyrirlesara, voru svo sterk, að hann
mun á stundum hafa unnið meira gagn með ein-
um fyrirlestri en aðrir með tíu. Bók þessi, sem hefur
að geyma úrval úr rœðum hans og ritgerðum, er
lítið sýnishorn af því margþœtta efni, sem hann
fjallaði um í rœðu og riti og gerði hann að einum
eftirminnilegasta rteðu- og ritsnillingi samtiðar
- Lr 4 *
’ Theresa Charles: Draumahöllin hennar
Fögur og spennandi ástarsaga.
Dena var alltaf heilluð af hinum rómantísku
sögum, sem frœndi hennar sagði henni frá
d'Arvanehöllinni. Og nú höfðu örlögin hagað
því svo, að hún var gést-
ur í þessari draumahöll.
En gat hún treyst hjarta
sínu, þegar hún þuVfti að
velja á milli brœðranna,
sem bjuggu þar? Hún var
á báðum áttum, — en þá
tóku örlögin í taumana
og áhrifamiklir atburðir
gerðust, — og hún varð
að taka ákvörðun.
iimixvívr
Paul Marttin: Hjariablóð
Eftirsóttasta lœknaskáldsaga síðari ára, skrifuð af
þekktum amerískum skurðlcekni, sem vel kann til
verka bceði á sviði hjartasjúkdóma og á ritvelli. —
Bókin er öðruvísi en allar lceknaskáldsögur, sem
hér hafa komið út. Hún er trúverðug lýsing á lcekna-
og sjúkrahúslífi, eins og það gerist á stóru amerísku
sjúkrahúsi og lýsing höfundar á hjartasjúkdóma-
frceðingnum Matthew Kraft er með miklum snilld-
arbrag. Ferill hins snjalla og
einþykka lceknis er rakinn frá
|fyrstu skrefum hans á Iceknis-
: brautinni og þar til hann stend-
ur á hátindi frcegðar sinnar,
— þar til hann sjálfur fcer
hjartatilfelli og gerir aðstoðar-
lcekni sínum fáheyrt tilboð. —
Hjartablóð er óvenjuleg bók,
öðruvísi en venjulegar lcekna-
skáldsögur og geysilega spenn-
andi.
?aul Mtax'ttiia
Kenneth Cooke: Hetjur í hafsnauð
Hrikaleg og spennandi hrakningasaga.
Þetta er hreinskilnisleg frásögn af þrautseigju
og þolgceði, sjálfsaga og viljastyrk. — Tveir
úttaugaðir, skinhoraðir sjómenn bjargast eftir
i að hafa háð ofurmann'-
lega baráttu við ógnir og
óblíð öfl og hrakizt í
| fimmtru sólarhringa á
‘ timburfleka um úfið haf
og undir brennandi geisl-
um hitabeltissólar. Þetta
er hrikaleg og spennandi
hrakningasaga, þýdd af
Jónasi St. Lúðvíkssyni. k
Þorsteinn Antonsson: Innflytjandinn
Á hótelherbergi í Reykjavik fer fram leynileg samn-
ingagerð milli háttsetts embaettismanns og fulltrúa
erlends ríkis. Hvorugum er Ijóst, að fylgzt er með
gerðum þeirra utan úr náttmyrkrinu, og þar með
er hafin spennandi atburðarás þessarar óvenju-
legu skáldsögu. — Spurningin er: Geta þeir atburðir,
sem hér er lýst, raunverulega gerzt?
Sigurður Hreiðar: Gótan ráðin
Hér eru rakin nokkur dómsmál, sakamál, sem öll
vöktu á sínum tima heimsathygli, og hvernig þessi
mál voru leyst á vísindalegan hátt. Þetta er fróð-
leg og spennandi bók, umfram allt spennandi, því
óhœtt er að fullyrða, að enginn höfundur hefur enn
náð að flétta saman efni á svo spennandi eða
dularfullan hátt, að það taki fram þeim örlögum,
sem lífið sjálft hefur búið sumum mönnum.
Elínborg Lárusdóttir: Hverl liggur leiðin!
Nýtt og áður óprentað efni um fjóra landskunna
miðla og samstarf höfundar við þá.
Elínborg Lárusdóttir segir hér nýjar
sögur af samstarfi og kynnum við
miðlana Hafstein Björnsson, Mar-
grétu frá Oxnafelli, Kristínu Kristjáns-
son og Andrés Böðvarsson. Auk þess
eru frásagnir fjölda nafngreindra og
kunnra manna, þar sem þeir geta
eigin reynslu í dulrœnum efnum, og
eru þœr margar hverjar vottfestar.
HÉR ER
BÓKIN
SKUGGSJÁ
Sími 50045
Strandgölu 31 — Hafnarfirði
íslendingasögur með nútíma sfafsetningu
Það er 25% ódýrara að vera áskrifandi
að þessari heildarútgáfu.
Það finna allir, hve miklu auðveld-
ara er að lesa og njóta íslendinga-
sagna með þeirri stafsetningu, sem
menn eru vanastir. Árlega koma út
tvö bindi af þessbri vönduðu heild-
arútgáfu. í ár koma út 4. og 5. bindið,
en alls verður þessi útgáfa níu bindi.
íslendingasögur með nútíma stafsetn-
ingu eru öndvegisrit, sem skipa eiga
heiðurssess í bókaskáp hvers einasta
■slendings.