Morgunblaðið - 12.01.1971, Side 7
MORGUNBLAÐH), ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1971
7
Þannig komast handritin heim
Nýr klukkustrengur með myndum úr Grettis-
sögu frá Þórunni Franz
„Ég hef alltaf stefnt að því,
að reyna að framleiða þjóð-
lega klukkustrengi og aðra
muni, sem konur fást við að
hannyrða, og tel það þjóni
margþættum tilgangi," sagði
hin þekkta hannyrðakona,
l>órunn Franz, þegar við hitt
um hana á förnum vegi á laug
ardaginn, og spurðum, hvort
ekki væri eitthvað nýtt á
döfinni hjá henni.
„Jú, óhætt er að segja það,
nýlega er koomið út mynstr-
ið af sögustaðastrengnum, en
á honum eru myndir frá Þing
völlum, Skálholti 1651, Hól-
um og Viðey. Hjá hverjum er
svo mynd áf konu i hinum
ýmsu gerðum hins íslenzka
kvenbúnings, og neðst is-
lenzka skjaldarmerkið.
Klukkustrengur þessi hefur
þótt vinsæll. En ég hef ný-
lokið við nýjan klukkustreng
sem ég held, að hljóti líka
vinsæidir. Á honum eru
myndir úr Grettissögu. Mér
finnst endilega, að hann geti
haft áhrif til góðs. Þegar
börnin sjá hann á heimilinu
sjá mömmu vera að sauma
hann út, þá fer varla hjá
því, að ýmsar spurningar
vakni í huga þeirra skapist
löngun til þess að lesa sög-
una, vita meira um atburðina.
Þannig má segja, að strengur
inn þjóni fyrst og fremst því
hlutverki, að skapa konum
skemmtilegt viðfangsefni, og
þá ekki síður því hiutverki
að vekja áhuga yngri kynslóð
arinnar á Islendingasögunum,
og mætti segja, að þannig
kæmust eiginlega „handritin
heim“ í raun og sannleika."
„Hvernig varð þessi
klukkustrengur til, Þórunn?“
„Það var maðurinn minn,
Hallgrímur Jónsson, sem
valdi myndefnið úr Grettis-
sögu, þá staði í sögunni, sem
myndirnar skyldu fjalla um,
og siðan gerði Hringur Jó-
hannesson „skizur" af mynd-
unum með penna, og þá valdi
ég litina og útfærði þær til
saumaskapar i klukkustrengn
um, og hér getur þú svo séð
árangurinn, strenginn fullbú-
inn. Og væntanlega kemur
hann á markaðinn mjög fljót
lega.“
„Geturðu lýst þessum
myndum fyrir mér, Þórunn?"
„Já, það ætti að vera auð-
velt, og til þæginda fyrir les
endur, skal ég um leið nefna
blaðsíðutölin úr Grettlu, sem
við eiga, og miða þá við út-
gáfu íslendingasagnaútgáf-
unnar. Fyrsta myndin er frá
því, þegar Gréttir kveður
móður sina Ásdísi á Bjargi
(bls. 44—45) og hún réttir
honum sverð að gjöf, sverðið
Jökulsnaut. Á annarri mynd-
inni segir frá viðureign Grett
is við híðbjörninn (bls.
72—-73).
Þriðja myndin sýnir glím-
una við drauginn Glám (bls.
115—120) En sá atburður
gerðist að Þórhallsstöðum í
Forsæludal, sem er innar af
Vatnsdal í Húnavatnssýslu.
Við hjónin gerðum okkur
ferð þangað i sumar, til að
sjá umhverfið með eigin aug-
um. Bærinn er nú löngu kom
inn í eyði. Svo þykir Hall-
grími manni mínum vænt um
kvæði Gríms um glímuna, en
hann er fæddur á Bessastöð-
um, eins og Grímur Thomsen.
VISUKORN
Sagna gpullið.
Ása-kynin aldrei gleymdu
ættarhlyn, þó misstu völd.
Islands synir sömdu og geymdu
sögu-vin á myrkri öld.
St. D.
Þórunn Franz
Auk þess orti Matthías Joch-
umsson um glímu þessa, svo
að margt er upp að rifja við
þessa mynd á strengnum.
Fjórða myndin á að minna
á vetrarvist Grettis á Reyk-
hólum, en þá voru þar sam-
tíða honum þeir fóstbræðurn-
ir Þormóður Kolbrúnarskáld
og Þorgeir Hávarsson, sem
kunnir eru úr Fóstbræðra-
sögu og þá ekki síður úr
Gerplu Laxness. Segir frá för
þeirra út til Ólafseyjar til að
sækja naut bóndans á Reyk-
hólum, og þegar í land var
komið, skiptu þeir með sér
verkum, skyldu fóstbræður
setja bátinn, en Grettir koma
nautinu heim, og sýnir mynd
in þann atburð. (Bls.
159—163).
Fimmta myndin sýnir glím-
una á Hegranesþingi, þegar
Grettir glímdi við tvo sterk-
ustú menn í Skagafirði, þá
Þórðana frá Breiðá í Sléttu
hlið.
Sjötta myndin er af Drang-
eyjarsundi (bls. 239—242).
Það var mi'kið þrekvirki, um
hávetur, og þá var enginn
bátur með i för, eða sundmað
ur smurður. Enda bar brýna
nauðsyn til sundsins, því að
eldur hafði slokknað hjá
þeim bræðrum í eynni. Nokkr
ir hafa synt Drangeyjarsund
siðan, en við ólík skilyrði, og
eru það þessir: Erlingur Páls
son, Pétur Eiríksson, Haukur
Einarsson, Eyjólfur Jónsson
og Axel Kvaran.
Sjöunda og siðasta myndin
sýnir fall Grettis í Drangey,
þegar Þorbjörn öngull og
menn hans unnu á Gretti.
(bls. 260—267) Og vegna
al'lra þessara mörgu mynda
er strengurinn nokkuð lang-
ur.“
„Hvernig er það, Þórunn,
er nokkur von um útflutning
á þessum varningi?"
„Já, vel mætti hugsa sér
það, einkanlega til íslendinga
byggða í Vesturheimi, og
einnig til þeirra landa, þar
sem Islendingar dveljast. Mér
finnst ánægja að vinna að
þessum þjóðlegu klukku-
strengjum, en auðvitað ligg-
ur talsverð vinna í að teikna
þá svo, að þeir verði aðgengi
legir íslenzkum hannyrðakon
um, en vonandi hefur mér svo
tekizt að telja út munstrið,
að verkið reynist þeim létt
og skemmtilegt."
„Ég þakka þér, Þórunn, fyr
ir þessar upplýsingar, og ég
er ekki í vafa um, að þú
vinnur þarft verk með þess-
um strengjum. Þetta eru sann
arlega menningarsögulegir
strengir, sem geta stuðlað
mjög að því, að unga fólkið
kynnist Islandi og menningu
þess, og vona bara, að þú fá-
ir erfiðið borgað, bæði með
gleðinni við að vinna gott
verk, og svo eitthvað fyrir
snúð þinn.“ Og með það
skildu leiðir, og við vorum
ekki svo litlu fróðari um
Grettissögu en áður, og sjálf
sagt fer svo fleirum. — Fr.S.
Klukkustrengurinn með <•••
myndum úr Grettissögu. IOlIllini
Ljósm. Mbl. Kr. Ben. tók •
myndirnar. ’ úgl
SA NÆST BEZTI
Kunningjahjón Möttu og Bjarna, voru flutt í nýja ítoúð, gasa-
lega móderni, hús með flötu þaki. Nú var haldið boð með gleði,
allt 1 einu dundi rigning úti. Opnaði þá húsbóndinn stóran skáp
á veggnum og úthlutaði öllum gestum regnhlífum, og sagði síðan:
„Skál, svona á þetta að vera í nýjum húsum."
REGLUSAMUR, UNGUR maóur með teoidspróf óstkar efrfiiir aitvimnu. Heifir bflpróf. Tillboð scndi'st afgr. Mlbl. merkt „6637." BROTAMÁLMUR Kaupi allan brotamálm lang- hæsta verði, staðgreiðsla. Nóatún 27, sími 2-58-91.
TIL LEIGU tvö Ikija'Waraihe'nbergi, 31 fm, ( stieiinlhiúsi i gamta Vestiur- toæmium eru til leigiu, sem geymsluir. Tiilboð semidist Mbl. mienkt „Geymisla 6636." IBUÐASKIPTI Tvegg'ja benb. íbúð óskast í sik'tpturn f. 3ja 'benb. íbúð í mýrri blokk við Kle-ppsveg. Ti'llboð sendiist Mtof. f. fimimtu dagsikvöld menkt „6538."
SNIÐKENNSLA Námisikeið í ikjólasmiiði hefst 15. jamúar. Daig- og kvöld- timar. Sigrún Á. Sigurðardóttir Dnápiulhlíð 48, 2. h„ s. 19178. KEFLAVlK — IÐNNÁM Nemi getur komizt að í Ijós- imynduin, nú þegar eða eft'ir samikioimu'tegi. Uppl. í s. 1890. Ljósmyndastofa Suðurnesja Túngötu 22.
STÚLKA EÐA ELDRI KONA óskast í vist á fámiemmt heim- iIL Upplýs'imgair í s. 99-5189 eftir kl. 7 á 'kvöldim. FIAT 850 Óska eftir að kau>pa motaðan Fiat 850. Tiltooð semdist Mtof. menkt „6610."
INNRÉTTINGAR Vamti yður vamdaðar immrétt- imgar í 'hýbýli yðar, þá leitið fynst titboða hijá oklkur. — Tréstn. Kvistur, Súöavogi 42, simar 33177 og 36699. TÉSMIÐIR meistarar - sveinar - nemar. Skékmeistaraikeppmi S.B T.R. hefst miðvikud. 13. 1. M. 20.15 að Laufásiviegi 8, mieðstu hœð. Stjómfn.
HÁSETI óskast á góðam tóm>u- og netatoót. Upplýs'imgar í síma 30505 og 34349. SNIÐSKÓLI Bergljótar Olafsdóttur Smiiðkeinnsla, kvöldnámskeið. Kennsla hefst 14. þ. m. ínmiriitum i síma 34730.
usm JHorjjimblntnb DRGLECn KLÆÐI OG GERI VIÐ ból'Struð húsgögn. Húsgagnabólstrunin, Garða- stræti 16. — Agnar Ivars. Heimasími í hádeginu og á kvöidim 14213.
Brauðhús — steikhús
Veizlubrauð, Kaffisnittur,
Coctailsnittur, Brauðtertur,
hálfar og heilar brauðsneiðar,
heitar og kaldar samlokur.
Laugavegi 126
við Hlernmtorg.
Sími 24631.
Grilleraðir kjúklingar,
Glóðarsteikur, enskt buff,
Buff Tartar, Djúpsteiktur
fiskur, Ommelettur, Ham-
borgarar,.
Ekta franskar kartöflur o. fl.
Sendum heim.
Opið klukkan 8,30—11,30
Brauðhúsið við Hlemmtorg
BRAUÐHUSIÐ
er annað kvöld að Hótel Sögu, Súlnasal, og heíst með borð-
haldi kl. 19.30.
Stúlkurnar, sem til greina koma í kepnina „Miss International"
og „Fulltrúi ungu kynslóðarinnar "71" verða kynntar í byrjun
dagskrár.
Miðapantanir afgreiddar í dag í and-
dyri Súlnasals Hótel Sögu kl. 4—7.
Miðar sem ekki verða sóttir fyrir kl.
7 verða seldir öðrum.
Karnabær, tízkuverzlun unga fólksins,
Snyrti- og tízkuskólinn.