Morgunblaðið - 03.02.1971, Síða 2

Morgunblaðið - 03.02.1971, Síða 2
f 2 MOGRUNBLAÐLÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1971 Færeyingar vilja Flugfélagið I SÍÐASTA sunnudag-sblaði danska blaðsins Jyllandsposten, er frétt um farþegaflug til Fær- eyja. 1 henni segir m.a. að um mið.jan febrúar hefjist i Kaup- mannahöfn fundir milli Dana og Færeyinga um þetta mál, þar sem framtið flugsins verður rædd. í skýrslu sem lögð verð- ur fyrir dönsk yfirvöld, er lát- ið í ljós það álit að þessi þjón- usta verði bezt veitt með sam- vinnu milli SAS, Flugféiags ís- lands og Flogsambandsins, fær- eyska. Er lagt til að þessu samstarfi verði haldið áfram a.m.k. næstu fimm árin, meðan fundin er end- anleg lausn. f fréttinni er tekið fram að samningum Flogsam- bandsins við SAS og Flugfélag fslands sé lokið í bili, án þess að árangUT hefði náðst. f>á er einnig getið um samninga um að danska flugfélagið Damair taki að sér Færeyjaflug, en Dan- air stundar innanlandsflug í Danmörku. Eru Færeyingar mjög á móti því fyrirkomulagi. Morgunblaðið hafði að þessu tilefni samband við Öm O. John- son, forstjóra Flugfélagsins, og sagði hann að Flugfélagið ætti engan fulltrúa á fyrmefndum fundi, enda félagið ekki verið til hans boðað. Þegar hefði verið tek in ákvörðun um að hætta flugi milli Færeyja og Danmerkur um næstu mánaðamót, og yrði henni tæplega breytt. Hins vegar yrði haldið áfram flugi milli Færeyja og Islands. 60 tónleikar á 7 vikum t»orkeli boðið með tónlist sína til Svíþjóðar STOFNUN í Svíþjóð, sem köll- uð er Sænsku ríkistónleikarnir, bauð Þorkeli Sigurbjörnssyni, tónskáldi, að koma til Sviþjóð- ar til að kynna sína tónlist og er Þorkell nú á tónleikaferð um Svíþjóð með trió frá Islandi. Þorkell Sigurbjörnsson. Munu þeir leika 60 sinnum á 7 vikum víðs vegar um Svíþjóð. Þorkell leikur sjálfur á píanó, Ingvar Jónasson á fiðlu og Gunnar Egiisson á klarinett en Þorkell samdi sérstakt verk fyr- ir þessa tónleikaför, sem þeir flytja. Nefnist það „Kisum“. Sænsku ríkistónleikarnir, sem svo nefnast, bjóða árlega einu norrænu tónskáldi til Svíþjóðar Blaðaskákin TA - TR SVART. Taflfélag Reykjavíkur, Jón Kristinsson og Stefán Þormar Guðmunðsson HVÍTT: Skákfélag Akureyrar, Guðmundur Búason og Hreinn Hrafnsson 10. a2—a4, c5xd4. og kynna þá verk þess. f fyrra var norska tónskáldinu Ame Nordheim boðið. Flytja gestim- ir tónlist sína í framhaldsskól- um og víðar í Svíþjóð. íslenzka trióið fór héðan 23. janúar, en áður en tónlistarförin um Svíþjóð hæfist, áttu þeir að halda tónleika í Hasselbyhöll. Þar ætluðu þeir að leika tónlist eftir Jón Þórarinsson, Gunnar Reyni Sveinsson og Þorkel Sig- urbjörnsson. Uppselt á tvær fyrstu danssýning- arnar AÐGÖNGUMIÐASALA hófst í gær í Þjóðleikhúsinu að tveim- ur fyrstu listdanissýndingum Helga Tómassonar og fleiri dansara. Voru seldir miðar að sýningunum á föstudag og laug- ardag í næstu viku og seldust þeir upp á skömmum tíma. Síðar verða seldiir aðgöngu- miðar að öðrum tveimur liírt- danssýningum, sem verða í Þjóðleikhúsá'nu 14. og 15. febr- úar n.k. Fundur á Brún BORGFIRZKIR sjálfstæðis- men/n þinga á Brún, í Bæjar- sveit laugardagin’n 6. febrúar klukkan 14. Ræðumenn verða Jón Ámason, alþingismaður og Magnús Jónsson, fjármálaráð- herra. Sjálfstæðismenn í Borgar fjarðar- og Mýrasýslu eru vel- komnár á fundinn. Að umræðu- fundinum loknum verður hald- inn aðalfundur sjálfstæðisféiags ins og þar verða kosnir fulltrú- ar á landsfund flokksins á vori komanda. — Aflinn Framhald af bls. 28 þarna róa, að aflinn væri um og yfir 100 tonin eftir 10—11 lagn- ir. Sagði skipstjórinn ennfrem- ur að engar verulegar frátafir hefðu verið þar undanfarið af völdum veðra. „Örninn á í vök að verjast”: 67 ernir í landinu — sex ungar komust upp 1970 EINS og undanfarin ár, var á vegum Fuglavemdarfélags- ins og Náttúrufræðistofnunar innar haft nákvæmt eftirlit með hafarnarstofninum 1970. Á árinu komust upp 6 ungar úr 5 hreiðrum. Sumarið 1970 var auk þess vitað um 19 hjón, sem héldu sig við varp- svæði og af þeim gerðu 11 tilraun til varps, sem mis- fórst af ýmsum orsökum. Á íslandi er nú 51 fullorð- inn öm, 10 ungir emir auk 6, sem upp komust 1970; — talan er því alls 67 emir. Reynslan hefur sýnt að haföminn er með viðkvæm- ustu varpfuglum Islands. Varp heppnast því aðeins að fuglinn verði ekki fyrir neinu ónæði og að alls ekki sé komið inn á varpsvæði fyrr en í júnímánuð, en þá fer eftirlit fram. Síðan 1964 hafa komizt upp 70 amarungar, flestir 1967, þá 17. Dr. Fiinnur Guðmundsson, forstöðumaður Dýrafræði- deildar Náttúrufræðistofnun- arinnar, hefur lokið ýtarlegri skýrslu um dauða erni, sem borizt hafa síðan 1940. Það ár voru á safniinu 2 ernir, sem báðir voru skotn- ir 1897, annar uppi í Mosfells sveit, hinn við Klöpp í Reykjavik og keypti safnið þá á fimm krónur hvorn. Frá 1940 til 1970 hafa borizt 25 arnarhræ. Um öruggar dánarorsakir er þetta að segja: 1 fónst í umferðarslysi, 1 flaug á háspennulínu, 1 flaug á símalíniu, 5 fundust dauðir við eitrað hræ. 1 var skotinn. Var ham.n sendur til Bretlands til rannsóknar þar eð hann var nýdauður er kom á safnið. Hafði hann verið skotinin með riffli cal. 22. Hafði kúlan farið gegn- um kviðarhol fuglains og valdið miklum ininvortis blæðingum frá lifrinni. Það vakti athygli að minna magn var af skordýraeitri í fuglin um, heldur en í nokkrum þeirra ránfugla, sem rann- sakaðir hafa verið hjá brezka Náttúruverndarráðinu. Sá, sem ber ábyrgð á dauða þess fugls er ófundinn. Málið var rannsakað af viðkomandi sýslumanni, en ömiinm famnst við alfaraleið. Líklegar dán- arorsakir: 4 hreiðurungar dóu af vosbúð vegna trufl- ana af mannavöldum. 1 lenti í olíu eða grút í fjöru, 1 var líklega skotinn. Erfitt var að greina dánarorsök hinna, þar eð oft var um sjórekin hræ að ræða eða langt um liðið gíðan fuglinn drapst. Af 20 fuglum er aldursgreining þessi: 8 kynþroska fullorðn- ir. 6 ungir ókynþroska, en eldni en 1 árs. 5 ungfuglar á fyrsta ári. 1 ógreindur. Auk þess er vitað um 1 fullorðinn örn, sem fórst í dýraboga, en hræið týndist. 2 fuglum var hins vegar bjárgað ósködduðum úr boga. Næstu áratugi verður reynt eftir megni að hefta alla um- ferð um varpsvæði arna og það opinbera má ekki leyfa útburð eiturs af neinni teg- und, en aðeins með ströng- ustu friðunaraðgerðum mun hafarnarstofninum takast að komast úr þeirri lægð, sem hann hefur verið í síðan eitrunarherferð var hafin gegn honum á árunum 1880 ti'l 1910 eða reyndar til 1964. (Frá Fuglaverndunarfélagi íslands). Fullvaxinn arnarungi 240 bandarísk- ir stúdentar — hefja Hafnarnám hérlendis — I»jóðhátíð Framhald af bls. 28 son, prófessor; Kristján Karis- son, bófcmenintafiræðiingur; dr. Steirngríimiuir J. Þorstemsson. pró- dflessor, og Sveinn Skorri Fösk- uildsson, próftessor. í dómnefnd um Mjómsveitar- verkið siltja: Dr. PáM ísói.fsson; Ámi Kristjánisson, tónlistaristjóri útvaxpsims; Björn Ólafsso'n, konis ertm’eistari; dr. Róbert A. Ottós- son, söngmélastjóri, og píanó- lieikarimn Viliadrmiir Ashkenazy. í nóimniefínd uim hátíðarmerkið og myndskreytimgairnar eru: Bing ir Filninisson, forsoti Samiednaðs Aíþirugis; Haralidur Hanmes- son, skjalavörður Seðliabankans; Heiga B. Sveinb j omisdóttir, teiknari; Hörður Ágús'tsson, áklólastjóri, og Steimþór Sigurðs- son, liistmálari. Skilaáresitur á handritum að þjóðhátíðarljóði og hljómisveitar- verki er till 1. marz 1973 og á til- löguim að Þjóðhát'áðarmerki og smyndskreytimguffn til 1. nóvem- ber 1971. Efnt verður til sýning- ar á tililögum að mierkí og mynd- gkreytiniguim, áður en þær verða endurseind.ar höfundum ÁÆTLUNARVÉL Loftleiða frá Bandaríkjunum, Snorri Þorfinns- son, var væntanlegur á Kefla- víkurflugvöll í morgun með 240 bandariska stúdenta, sem hafa hér tveggja daga viðdvöl áður en ferðinni er haldið áfram til Kanp mannahafnar. Þar munu þeir sækja sérstakt námskeið, sem haldið er við Hafnarháskóla frá 5. febrúar til 6. júní. Námsgrein- ar eru fjölmargar, m. a. norræn saga og bókmenntir. Stúden'tarnir eru aH's 240, þar af 170 stúlkuir og 70 piitar frá 74 háskóliuim og m'enotaskó.lium. Hefur Háskólii íslands að nokkru gkipulagt dvöl þeinra hér. Þann- ig hefuir vorniámskeið þetta við Hafnarháakóla verið iemgt og fs- landskynningu 'oætt við. í kvöld hefst dagskráin í Há- gkóla íslands með ávarpi er Há- skólaneikitor, prófeigsor Magnús Már Lánusson, fflytiur. Því næ«t fflytur dr. Þórir Kr. Þórðarson erindi uim ÍSland, og loks blanda bandarígkir stúdentar gieði við ígienzka háakó’astúden.ta og ræða áhugam'ál sín. Fyrir hádegi næsta dag veirð- ur farið í kymnisför um Reykja- víkurborg og eftir hádegi til Hveragerðis. Um kvöldið ki. 8 heflst svo „ske,m(mtidagdkrá“ að Hótel Loftfleiðum, þar sem stúd- emtarnÍT búa. Koma stúdentannir þar fram og sýna listir stns heiimalands í söng og lleik.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.