Morgunblaðið - 03.02.1971, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 03.02.1971, Blaðsíða 14
14 MOGRUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1911 Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraidur Sveinsson. Rítstjórar Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Aðstoðarritstjóri Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn og afgreiðsla Aðalstræti 6, sími 10-100 Auglýsingar Aðalstræti 6, sími 22-4-80. Áskriftargjald 196,00 kr. á mánuði innanlands. i lausasölu 12,00 kr. eintakið. SKINHELGI T grein, sem einn af ritstjór- *■ um Þjóðviljans ritar í blað sitt í gær, kvartar hann undan því, að Morgunblaðið hafi í hálfan annan áratug a.m.k. reynt að sverta Þjóð- viljann og beitt vísvitandi ósannindum í þeirri baráttu. Nefnir hann sem dærni skrif Morgunblaðsins um afstöðu Þjóðviljans til innrásarinnar í Ungverjaland 1956, í Tékkó- slóvakíu 1968 og til dauða- dómanna yfir Gyðingunum í Leníngrad 1970. Morgunblaðið hefur í þess- um efnum ekki sagt annað en það, sem satt er og rétt. Að þessu sinni verður það ekki rifjað upp, heldur skal annar maður leiddur fram til svara, en það er fyrrverandi tónlistargagnrýnandi Þjóð- viljans, Leifur Þórarinsson, tónskáld. Tíminn skýrir frá því í gær, að Leifur Þórar- insson hafi tekið að sér að skrifa umsagnir um tónlist í það blað og birtir stutt viðtal við hinn nýja tónlistargagn- rýnanda, þar sem hann gerir grein fyrir því, hvers vegna hann hafi horfið frá störfum fyrir Þjóðviljann. í viðtali þessu segir Leifur Þórarins- son m.a.: „Mér er þó engin launung á því, að mér féll æ ver að skrifa í Þjóðviljann vegna af- stöðu hans til ýmissa þjóð- mála og sérlega þeirrar skin- helgi, sem gætir í skrifum hans um ástandið í hinum svokölluðu sósíalistísku lönd- um, sérstaklega Sovétríkj- unum. Ég býst við, að mælir- inn hafi endanlega orðið fullur við Solsjenitsyn-málið og þegar ég frétti, að Evgeníu Ginsburg hefði verið stungið í fangelsið aftur. En endur- minningar hennar úr hreins- ununum á Stalínstímanum er ein þeirra bóka, sem mest áhrif hefur haft á mig, bæði frá bókmenntalegu sjónar- miði og sem persónuleg harmsaga. Afstaða Þjóðvilj- ans, blaðs, sem kennir sig við sósíalisma, verkalýðshreyf- ingu og þjóðfrelsi, hefur ver- ið það hikandi, ef ekki bein- línis það afsakandi, að ég get ekki skrifað fyrir það blað lengur.“ Þessi ummæli Leifs Þórar- inssonar hljóta að vekja mikla athygli. Þetta er að vísu ekki í fyrsta sinn, sem listamaður hverfur frá störf- um fyrir Þjóðviljann eða þann flokk, sem stendur að útgáfu hans. En orð Leifs Þórarinssonar eru ekki sízt athyglisverð einmitt nú vegna þess, að Þjóðviljinn og Alþýðubandalagið hafa reynt að halda því fram, að þessir aðilar væru horfnir frá fyrri þjónkun við kommúnistarík- in í austri. Hver er betur dómbær um það að svo er ekki, en sá maður, sem starf- að hefur í tengslum við Þjóð- viljann? í raun og veru er niður- staða Morgunblaðsins og Leifs Þórarinssonar hin sarna um afstöðu Þjóðviljans til þess sem gerist í Austur- Evrópuríkjunum, þótt ein- hver blæmunur kunni að vera þar á. Þess vegna eru ummæli Leifs Þórarinssonar bezta svarið við skrifum Þjóðviljans í gær, þótt ein- kennilegt sé, að þau skuli bera upp á sa-ma dag. Ef til vi-11 hefur ritstjóri Þjóðvilj- ans rennt grun í hvað í vændum va-r og þess vegna setzt niður til þess að bera blak af afstöðu Þjóðviljans ti'l ofbeldisverknaða austan járntjalds. Rannsóknir á mengunarhættu Oíkisstjórnin hefur nú til athugunar tillögur um samræmingu rannsókna á sviði mengunarmála. Tillögur þessar eru samdar af fram- kvæmdanefnd Rannsóknar- ráðs ríkisins og er þar m.a. lagt til, að komið verði á fót nefnd til þess að hafa þessa samræmingu með höndum. Slík mengunarnefnd mundi í fyrsta lagi verða tengiliður milli heilbrigðisyfirvalda og rannsóknarstarfsemi varð- andi mengunarmál. í öðru lagi yrði verkefni nefndar- innar að fylgjast vandlega með öllum rannsóknum, sem fram fara hér á landi á sviði mengunar, vera til ráðuneyt- is og gera tillögur um breyt- ingar, ný svið eða eflingu rannsó-kna. í þriðja lagi mundi þessi nefnd láta heil- brigðisyfirvöldum í té sér- fræðile-ga umsögn um meng- unarhættu í sambandi við fyrirhugaðar framkvæmdir. f fréttatilkynningu, sem menntamálaráðuneytið hefur birt um þetta mál, kemur fram, að nú er unnið að samnin-gu frumvarps til laga um mengunarmál. Það er vissulega orðið tímabært að koma föstu formi á rann- sóknir á sviði mengunarmála og samræma það starf, sem vinna verður á þeim vett- vangi. Þess vegna er það T j or ven-bí llinn — hjálpartæki fatlaðra HVERNIG er hægt að létta fötluðu fólki lífið? Með heppilegri tilhögun íbúðar- húsnæðis er því gert kleift að lifa eðli- legu heimilislífi. Með endurhæfingu undir læknishendi er því gert kleift að vinna ýmiss kon-ar störf. En eitt vanda- mál hefur reynzt sérlega erfitt viður- eign-ar: Að finna heppilegt farartæki handa fötluðu fólki, svo að það geti ferðazt að vild utan dyra. Venjulegir fólksbflar duga skammt, því fatlað fólk, sem er bundið hjóla- stólnum, getur ekki ekið hei-m. Með -séristökum lagfæringum og breytingum hafa þó margir bíl-ar ko-mið fötluðu fólki að gagni, þ.e. því fólki, sem hefur nægan handstyrk til að færa si-g sj álft úr hjólastólnum í ökumannssætið. En hinum, sem ekki hafla þenn-an hand-styrk, hafa verið slíkar bjargir bannaðar nema með aðstoð annarra. I Svíþjóð hafa undanfarin þrjú ár staðið yfir tilraunir með bíl, sem er meðfærilegur fyrir hjóla-stólsbundið fólk, og þarf það við notkun han-s aldrei að fara úr stólnum. Bíllinn, sem hér um ræðir, Tjörven, er framleiddur í borginni Kalm-ar í Sví- þjóð. Hann er að mestu úr plasti og eru plasthlutarnir fr-amleiddir í Kalmar, en undirvagninn og vélin koma frá holl- enzku DAF-verksmiðjunum. Þessi bíll er sénstaklega hannaður fyrir sæn-sku póstþjónustun-a og hefur hann reynzt svo vel, að danska póstþjónustan hefur nú tekið hann í notkun. Á vegum endurhæfingardeildar Mið- sjúkrahússins í Kalmar hafa síðan ver- ið gerðar ýmsar breytingar og lagfær- ingar á einurn slíkum bíl, þannig að hann mætti vera sem rneðfærilega-stur fyrir fatlað fólk. Hurðirnar hafa verið stækkaðar og se-t-t-ur við þær ratfmagns- búnaður, þan-nig að einungis þarf að ýta á hnapp til að opna þær og loka. Sérstökum lyftibúnaði hefur verið kom ið fyrir í bilnum, svo að hjóla3tól hins fatlaða er lyft inn í bílinn á nokkrum sekúndum, þar sem hann gegnir síðan hlutverki ökumannssætis. Þessi lyftu- bún-aður er sérsmíðaður fyri-r hvern hjólastól. Hægt er að nota rafknúinn hjólastól í sambandi við þennan bíl. Hleðst þá naf- geymir stólsin-s upp á meðan á akstri bílsins stendur. Bíllinn er mun hærri en venjulegi-r fólksbílar, dyrnar og gluggar sérlega stórir, þannig að hinum fatlað-a er mjög auðvelt að komast inn í bílinn og út- sýni er gott til allra hliða. Þá er bíll- inn mjög meðfærilegur í akstri, léttur í stýri og sjálfskiptur. Stýrisútbún-aður- inn er auk þess sti'llanlegur eftir þörf- um hvers og ein-s. Hér sést lyftibúnaðurinn með stjórn- arminum til hægri. Einnig sést stýris- búnaðurinn vel. Þen-nan bíl má einnig nota fyrir fatl- að fólk, sem ekki getur sjálft ekið bíl. Lyftibúnaðurinn er þá notaður til að lyfta hjóla-stól þess inn í bílinn og sit- ur það frammi í bílnum við hlið öku- mann-s. Er það mikil breyting frá því, sem áður var, þegar fatlað fólk var jafn- an látið sitja í aftursæti bílsins og sá því mun verr út en æskilegt hefði ver- ið. En með þessari breytingu getur fatl- að fólk nú notið útsýnisins mun betur en áður. Ef áhugi reynist nægilegu-r, verður hafin framleiðsla í smáum -stíl þó, á þessum bíl fyrir fatlaða. Verð hans er áætlað um 200—230 þúsund krónu-r. All- ar upplýsingar veita Endurhæfingar- deild Miðsjúkrahússins í Kalmar og Kal-mar Verkstads AB, Kalmar, Svíþjóð. Lyftibúnaður lyfir hjólast ólnum inn og út úr bíinum. fagnaðarefni, að ríkiss-tjó-rnin vinnur nú að tillögugerð til Alþingis. ísland er eitt þeirra landa í heiminum, sem enn hefur ekki crðið óþyrmilega fyrir barðinu á mengun. En til þess að svo megi verða í framtíðinni er n-a-uðsynlegt, að me-ngunarmálin verði tek- in föstum tökuim nú þegar og að því er nú unnið af hálfu ríki-sst j órnarinmar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.