Morgunblaðið - 03.02.1971, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 03.02.1971, Qupperneq 15
MOGRU NBLA.ÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1971 15 'i 'í inga og ná til þeirra, sem ekki hafa verið í sambandi við landa sína lengi, Ekki eru það bara aldrað- ir, sem virðast hverfa í stór- borgarlífið. Presturinn hafði til dæmis um nokkurn tíma verið að reyna að hafa upp á ungum pilti, að beiðni fjöl skyldunnar heima. Hann hafði fundizt um síðir og hef ur presturinin nú auga með honum. Sr. Hreinn sagði, að sér líkaði mjög vel í Kaupmanna höfn. Mjög gott reynist að starfa með fólkinu í íslend- — Hér í húsinu hefur Al- þingi látið okkur í té bóka- safnssal, sagði Júlíus. Hann er á hæðinni, þar sem minn ingarsafnið um Jón Sigurðs son á að vera. Til er vísir að bókasafni frá gömlum tíma, og danska menntamálaráðu neytið gaf okkur danskar handbækur að verðmæti 12 þúsund d. kr. Þegar ég var heima í jólafríi leitaði ég svo hófanna hjá útgefendum á ís landi og fór fram á að þeir gæfu íslenzkar bækur í safnið og var því vel tekið. Vonum við því að bókasafnið muni mjög eflast og að við getum opnað það á þessum vetri. Nú hefur starfsemi íslend ingafélagsins aukizt svo, að 700 manns eru á félagaskrá og greiða félagsgjöld. Ef til vill draga íslandsferðimar á vegum félagsins nokkuð að, en það gengst fyrir hópferð um heim um jólin og á miðju sumri. Á sl. ári fóru um 400 manns til íslands á vegum fé lagsins. Þetta er mjög vin- sæl't og he'fur einimMt náðst samband við ýmsa íslendinga gegnum slíkar ferðir, sem nýtist vel Áform um skóla, bókasafn o.fl. ingafélögunum og í sendiráð- inu. Eina, sem ekki er sem ánægjulegast, eru heimsókn- ir frá þessum ágætu löndum, sem koma til að slá um pen inga. Það eru yfirleitt ekki unglingarniir eða búsetta fólk ið í Höfn, heldur íslending- ar nýkomnir að heiman og búnir að eyða á skömmum tíma öllum farareyri sínum, og koma gjarnan í leigubif- reið, sem þeir ekki eiga fyr- ir. Mikið var um slíkar heim- sóknir um hátíðarnar. Presturinn hefur aðsetur í íslandshúsinu, býr á efstu hæðinni, og mun fá skrif- stofu og viðtalsherbergi á minningarhæð Jóns Sigurðs- sonar þar fyrir neðan. Júlíus Sólnes, formaður fs lendingafélagsins, segir að fs lendingar í Höfn séu mjög ánægðir með prestinn og einnig með aðstöðuna í þessu húsi, þar sem íslendingafé- lagið og Félag íslenzkra náms manna hafa umráð yfir stór um sal á stofuhæð, sem þeim var afhentur í haust undir starfsemina. Júlíus sagði, að starfsemi þessara félaga hefði færzt mjög í aukana og breytzt nokkuð. Á föstudagskvöldum er t.d. opið hús þarna til blaðalesturs o. fl. á vegum námsmannafélagsins. í desem ber bauð íslendingafélagið eldri félögum sérstaklega í félagsheimilið og komu 60 manns. Margir í þeim hópi höfðu verið í Kaupmanna- höfn í 40—60 ár. Og þama náðist til fólks, sem ekki hafði haft samband við ís- lendinga lengi. Var aldraða fólkið mjög ánægt og er ákveðið að endurtaka slíka samkomu. Þá hafa verið bridgekvöld, félagsvist, tafl kvöld og margs konar um- ræðufundir á vegum félag- anna. Og í október kom góð heimsókn, þegar Bjöm Ólafs son kom með kvartett frá ís landi og efnt var til tónleika í félagsheimilinu. Ýmislegt er þó ekki hægt að gera, sem félagsmenn hafa hug á, því enn vantar ýmiss konar tæki. Heimilið hefur verið búið nauðsyniegustu hús gögnum, en fleira vantar. Og nú eru gamlir Hafnar-íslend ingar að fara af stað með söfnun á íslandi svo hægt verði að kaupa píanó, segul- bönd, sjónvarp o. fl. sem kæmi sér vel fyrir félagsstarf semi. Presturinn og fjölskylda hans í Kaupmannahöfn. Frá vinstri Steinunn, sr. Hreinn með Hall- dór, Sigrún, Hjörtur og Jóhanna SJÖTÍU manns voru við ís- ienzka messu í St. Pauls- kirkjunni í Kaupmannahöfn sunnudaginn 24. janúar sl. — Eftir messu söfnuðust kirkju gestir saman og fengu sér kaífisopa að góðum og göml- um íslenzkum sið. Með til- komu féiagsheimilis í minn- ingarhúsi Jóns Sigurðssonar hafa íslendingafélögin ólíkt betri aðstöðu til að halda uppi félagslífi. En þar rakst fréttamaður Mbl. einmitt á þennan prúðbúna hóp kirkju- gesta. íslendingafélagið hafði útbúið kaffi og kökur og seidi til ágóða fyrir starfsemi sína. Þarna var að sjálfsögðu Júl sem ekki hefur lengi haft samband við ættingja og unglingum, sem ekki láta frá sér heyra. T.d. fan,n hann um jólin í sjúkrahúsi 85 ára gaml an mann, sem hafði verið í Kaupmannahöfn í 65 ár. Ætt ingjar höfðu beðið um að reynt yrði að hafa upp á gamla manninum. Hann hafði búið einn og dottið og fótbrotnað sögðu nágrannar, ■—- og hafði verið fluttur í eitthvert sjúkrahús. Hann var fjarska glaður, þegar ís- lenzkur prestur kom. Hann talaði enn íslenzku furðu vel. En sr. Hreimn sagði, að ætl- unin væri einmitt að reyna að heimsækja aldraða íslend Minningarhús Jóns Sigurðssonar í Kaupmannahöfn Sr. Hreinn og Júlíus Sólnes, formaður íslendingafélagsins í félagsheimilinu. íus Sólnes, formaður íslend- ingafélagsins, og sendiráðs- presturinn, sr. Hreinn Hjart arson, sem býr með fjöl- skyldu sinni á efstu hæðinni. Því var sjálfsagt að nota tækifærið til að ræða við þá um þessa starfsemi, breytta starfsaðstöðu og íslendinga í Kaupmannahöfn yfirleitt. Sr. Hreinin tók við starfi í Kaupmannahöfn sl. haiist og hefur sýnilega næg verkefni. Hanin messar a.m.k. einu sinni í mánuði í St. Pauls- kirkjunni, sem er þama skammt frá. Þar er fengin góð aðstaða og rómaði sr. Hreinn mjög hve vel sóknar presturinn í hverfinu og söfn uðurinn hefðii tekið fslend- ingúm. Hafði sóknarnefndin t.d. látið skreyta alla kirkjuna með blómum, þegar íslenzki biskupinn, sr. Sigurbjörin Ein arsson, setti hann iimn í emb- ættið. Og hann getur hve- nær sem er komizt þarna að með skírnir og giftingar, sem alltaf er talsvert af. Við ræddum um ömnur störf prestsins. Hann fer dag lega í sjúkrahúsin, þar sem íslendimgar liggja. Dagana á undan hafði hann t.d. verið að taka á móti tveimur ung- börnum, sem komu með flug vélum frá íslandi og koma þeim í sjúkrahús. Daginn eft ir ætlaði hann svo tll Malmö til að búa sex íslenzk börn undir fermingu, en þau ætlar hann að ferma í vor í Malmö eða í sinni kirkju í Kaup- mannahöfn. Oft er presturimn beðinn um að reyna að hafa upp á íslenzku fólki, gömiu fólki ekki hafa haft samskipti fyrr við aðra íslendinga. íslendinganýlendan í Kaup maninahöfn er býsna stór, og Júlíus kveðst telja mikla nauðsyn að koma upp skóla fyrir islenzk börn. Sagði hann að áformað væri að byrja á því að koma einmitt upp slíkum skóla í húsi Jóns Sigurðssonar. Þar mundu börnin mæta í skóla einu sinini í viku til að læra íslenzku. Yngri börnin læra íslenzka rétt- ritun og málfræði, en þeir sem eru eldri en 12 ára fengju þá meiri bókmewnta- kennslu. — Með þessu vinnst það, að börn fslendinga, sem hér búa, missa ekki mál sitt og glatast Íslendingum er þau verða dönsk, sagði Júlíus. Yf Meitt er ekki svo mikil hætta á að fullorðnir týni málinu, en börnin vilja glatast þjóð- inni. — Við reiknum með að fá núna 50 börn, og er það vafa laust lágt reiknað, hélt Júlí- us áfram. Nú fyrst, eftir að þetta hús er komið í gagnið, er þetta hægt. Við höfum hús næði og kennara. Sr. Hreinn mun kenna og við munum leita til Vésteins Ólafssonar, lektors hér. — Já, það er nóg með þetta hús að gera, sagði sr. Hreinn, og nýting á því verður mjög góð. Nú er verið að vinna að því að búa minningarherberg in um Jón Sigurðsson grip- um, bókum og fleiru og verð ur hæðin opin sem safn. Á neðstu hæðinni er svo fræði- mannsíbúðin, sem unnið er við að semja reglugerð um og á síðan að aug- lýsa til afnota fyrir ís- lendinga, sem hér eru við rannsóknir og fræðistörf í skamman tíma. Er ætlunin að búa hana húsgögnum og geta menn þá búið þar í nokkra mánuði eða upp undir ár. Mun hússtjórnin, sem Sig urður Bj annason, sendiherra, er formaður í, hafa sent frá sér tillögur um þetta. Á með an er íbúðin notuð af íslenzk um vísindamanni Jónasi Elías syn.:, sem er við rannsókn.ir við verkfræðiháskólann og fjölskyldu hans. íslandshúsið

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.