Morgunblaðið - 23.02.1971, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 23.02.1971, Blaðsíða 2
MORQUNBLAeiÐ, ÞRIÐJUÐAGUR 23. FEBRÚAR 1971 Rithöfundar fagna höfundalagafrv. - og hvetja ríkisstjórnir Norðurlanda til að koma á fót norrænni þýðingamiðstöð STJÖRN Rithöfundasam- bands íslands hefur lýst fylgi sínu við frumvarp ríkisstjórn arinnar til höfundalaga, sem nú liggur fyrir Alþingi. Kem- ur þetta fram í fréttatilkynn- ingu, sem Morgunblaðinu hefur borizt frá Rithöfunda- sambandinu. Þá hefur stjórn Rithöfundasambandsins fagn- að afgreiðslu Norðurlanda- ráðs á tillögu íslenzkra rit- höfunda um norræna þýð- ingamiðstöð og beint þeirri áskorun til ríkisstjórna Norð- urlandanna, að þær sjái til þess að málið nái sem fyrst fram að ganga. Fréttatilkynn ingin frá Rithöfundasamband inu fer hér á eftir: „í tileíni af því að lagí hefur verið fram á Alþingi frumvarp til nýrra höfundalaga, gerði stjóm Ritiiöf UTidasambaTids ís- lands eftirfarandi samþykkt á fundi sinum 20 febrúar sl.: „Stjóm Rithöfundasambands Islands fagnar því að lagt hefur verið fram á Alþtogi frumvarp til höfundalaga. Beinir sam- bandsstjómin þeirri áskorun til alþingismanna, að þeir veiti höf- undalagafrumvarpinu það braut- argengi er þeir mega. Vakin er sérstaklega athygli á því, að núgildandi höfundalög eru að stofni til frá árinu 1905, og eru því fyrir löragu orðin úr- elt og veita höfundum ekki þá réttarvemd, sem lágmarkskröf- ur eru gerðar um meðal menn- ingarþjóða í dag. Stjómin telur vansæmandi fyrir höfunda og r Blindar konur rændar IRÁÐIZT var á tvær rosknar | konur, er báðar eru blindar, er þær voru á gangi í Ing- [ólfsstræti í fyrrinótt um kl. 01. Var handtaska annarrar I I konunnar tekin og hljóp árás 1 armaðurinn með hana á hrott. | . Konurnar voru á leið í Körfu gerðina, er þær heyrðu menn I konia aðvífandi og gátu þær I enga björg sér veitt. I veski konunnar voru um eitt þúsund krónur, skilríki og ' I sérstakt spjald, er blindir nota | til þess að greina smámynt. , Málið er í rannsókn. Rlaðaskákin TA - TR SVART. Taflfélag Reykjavíkur, Jón Kristinsson og Stefán Þormar Guðmundsson abcdefgh HVÍTT: Skákfélag Akureyrar, Guðmundur Búason og Hreinn Hrafnsson 19. Be2-f3 þjóðina í heild að búa við af- garrala höfuindatl'öggjöf, sem jafn- vel vanþróuðoiatiu þjóðir í menm- ingarefnum myndu fyrirverða ság fyrir. Höfundalög hverrar þjóðar eru mælikvarði á menn- ingarstig hennar og virðihigu fyrir andílegum verðmætum og mannréttindum. Bókin er helg- asti dómur IsJanda og skyldur við hana eiga að sitja í fyrir- rúmi á Alþingi Islendinga." A sama fundi vair eftirfarandi á'lyktun gerð: „Stjóm Rithöfundasambands Islands fagnar afgreiðsiu Norð- urlandaráðs x Kaupmannahöfn 1971 á tillögu islenzkra ritihöf- unda um norræna þýðingamið- stöð. Jafnframt þakkar stjómin Ey- steini Jónssyni, fuWitrúa íslands í norrænu menningarmálanefnd- inni, fyrir skelegga baráttu hans fyrir framgangi málsiras, svo og raefndmná í heild. Ritíiöfundasamband Islands beinir þeim eindregnu tilmaedum tril rikisstjóma Norðurlanda, sem nú hafa fengið máiið til endan- legrar afgreiðslu, að þær beiti sér fyrir því að það nái sem allra fyrst fram að ganga, enda hefur sú ósk komið fram á árs- fundi Norræna riithöfundaráðs- ins í júní 1970, boriin fram af öllum norrænu rithöfundafélög- unum.“ Ibúðarhúsið varð alelda á öf .skammri stund. Miklar skemmdir á Fögrubrekku í eldi MIKILL eldur kom upp í öðr- um enda íbúðarhússins að Fögru brekku við Suðurlandsveg síð- degis á laugardaginn. Eldurinn kom upp í einnar hæðar timbur húsi með risi, sem er áfast við steinhús, og var það alelda þegar slökkviliðið kom að. Litlu tökst að bjarga af innbúi húss ins. — Timburhúsið brann að mestu leyti, og steinhúsið er einnig mikið skemmt af vatni og reyk. Sex manna fjölskylda bjó í húsinu og brenndist tvennt lítilsháttar. Eldurinn kom upp kl. 18,40 á laugardaginn í húsinu að Fögru brekku við Suðurlandsveg, en þar býr Hjálmar Axel Jónsson ásamt konu sinni, tveimur börn um og eldri hjónum. Varð húsið alelda á svipstundu og stóðu logarnir út um glugga þess, þegar slökkviliðið kom á stað- inn. Var allt heimilisfólkið kom ið út úr húsinu þegar slökkvi liðið kom að, en eldri hjónin höfðu brennzt eitthvað lítila háttax og voru flutt á Siysavarð stofuna. Slökkviliðið hafði 3 bíla á staðnum og gekk vel að ráða niðurlögum eldsins. Eins og áð- (Iijósm.' Mbl.v Sv. ■ Þorm.) ur segir gaús eklurinn upp mjög skyndilega og tókst því að bjarga liitiiu sem engu af irananstokks- munum, en þeir munu hafa verið vátryggðir. Timburhúsið brann að mestu, en féll þó ekki, og steinhúsið skemmdist einnig nokkuð vegna reyks og vatns og auk þesa skemmdist þak þess eitthvaði af eldinum. Slökkvistarfinu lauk á tveimur tímum. Eldsupptök eru ekki kunn. Mótmæla nýrri vinnulöggjöf London 22. febrúar AP—NTB. BREZKA verkalýðssambandið efndi til mótmælag-öngu í Lund- únum í gær, til að mótmæla hinni nýju vinnulöggjöf stjórn- arinnar, sem miðar að því að draga úr hinum tíðu skæruverk- föllum, sem tröllriðið hafa Morðmálið í Hæstarétti: Fjölrituð málsskjöl og gögn fylla 1518 síður MUNNLEGUE málflutningur í máli ákæruvaldsins gegn Svein- birni Gíslasyni liófst fyrir Hæsta rétti í gærmorgun, en nú er rétt röskt ár siðan Sveinbjörn var í imdirrétti sýknaður af ákærum um manndráp eða hlutdeild í dauða Gunnars S. Tryggvasonar, leigubílstjóra, sem fannst myrt- ur í bíl sínum á Eaugalæk að morgni 18. janúar 1968. Af hálfu ákæruvaldsins flytur málið í Hæstarétti Valdimar Stefáns- son, saksóknari ríkisins, og gat hann þess í upphafi máls síns í gærmorgun, að þetta væri orð- ið eitt umfangsmesta mál emb- ættisins á síðari árum; — t.d. fylla fjölrituð málsskjöl og gögn nú 1518 síður. Verjandi Svein- b.jörns er Bjöm Sveinbjömsson, hrl. 1 ræðu snksóknara í gær kom fram, að síðan undirréttardóm- urinn féll, hefur saksóknara- embættið leitað til enskrar vopnasérfræðistofn'unar. Rann- sókn þar leiddi í Ijós, að bæði kúlan, sem fannst í höfði Gunn- ars heitins og skothylkið, sem fannst á gölfinu í bíi haras, eru úr byssunni, sem fanrast svo í fórum Sveinbjörns Gíslasonar. Sem kurarauigt er, var sairas konar Minningarathöfn um Pál Ólafsson í DAG fór fram í Kaupmanna höfn minningarathöfn um Pál Ólafsson, fyrrverandi ræðismann frá Hjarðarholti. Séra Hreinn Hjartarsson, flutti minningar- ræðu og mælti á íslenzku, en séra Finnur Tulinius flutti ræðu á dönsku. Athöfnin fór fram í St. Pauls-kirkju, sem íslenzki söfnuðurinn hefur afnot af. Sungnir voru sálmarnir Kall ið er komið, Lýs milda ljós og Allt eins og blómstrið eina. Erl ihg Blöndal Bengtson lék einleik á selló og Axel Arnfjörð organ leikari lék Föðurbæn eftir Pál Ólaísson. Að lokum söng is- lenzki kirkjukóiinn Þjóðsönginn. Margt manna var við minning arathöfnina. 280 þús. komin til RKI — 1 póstávísunum rannsókn gerð hjá F.B.I. i Bandaríkjuraum og fullyrtu sér- fræðingar þair, að skothylkið væri úr byssunrai, en treystu sér ekki til að fullyrða um kúluna. Saksóknari rakti í ræðu sinrai í gær sögu málsins og gang þess. Haran sagði nær fullvíst, að Guran ar heitkira hefði verið í leigu- akstri með farþega einhvern tíma á sjötta tímanum að morgni 18. janúar 1968. AlJt bendir tii, að Guraraari hafi svo skyndi- lega verið skipað að raema stað- ar og bendir staða bílsins, þegar hann fannst, til þess, að horaum hafi rétt gefizt tími til að ví'kja bíinum að gangstélt frá götu- miðju, þegar morðinginn hleypti af byssiu sirani í höfuð haraum. Ummerki sýna, að morðvopninu hefur verið haldið þétt að hnakka fórraariambsins, þegar skotið reið af. Saksólonari kvað fáar ályktanir vera unnt að draga af stað þeim, sem morðið var framið á, aðrar era þær, að hugur morðinigjans hetfði verið ráðiran og hanra því viijað leita á afvikiran sfað. Ýmislegt benti til, að morðið hefði verið vand- lega undirbúið. Þá þykir og full- víst, að Gunnar heitinn hafi verið ræradur seðflavesiki, sem L’ramli. á bls. 14 brezku atvinnulífi á undanförn- um árum. Tugþúsundir tóku þátt í göng- unni, sem var margra kílómetra löng. Meðal þátttakenda voru póstmenn, starfsmenn Rölls Royce, námaverkamenn frá S- Wales, járnbrautarstarfsmenn, rikisstarfsmenn og fl. Brezka lög reglan hafði gert miklar varúð- arráðstafanir við stjórnarráðið í Whitehall og fyrir utan bústað forsætisráðherrans í Downing Street 10. Mótmælagangan fór friðsamlega fram og lauk með útifundi við Trafalgartorg, þar sem ríkisstjórnin sætti harðri gagnrýni. — Stórtjón Framhald af bls. 1 þar var eldurinn mestur. — Sveinbjörn sagði, aið verst væri að fá svo mikinn vatns- flaum yfir vélarnar og allann vélasalinn. í Ofnasmiðjnnni starfa nú um 40 manns, og varð Sveinbimi að orði, er hann hitti einn starfsmann- anna: „Jæja, þá fáum við víst hvíldina fram á vorið.“ Runólfur Pétursson ÞAÐ sem af er árimu 1971 hafa Rauða krossinum bor- izt um 280 þúsund krónur í póstávísunum af dagatali sem Rauði krossinn lét útbúa og dreifa í mjög stóru upp- lagi. Er þar sérstakt póstávís anaeyðublað fyrir hvérn mánuð og sögðu þeir Eggert Asgeirsson framkv.stj. og Davíð Sch. Thorsteirasson, for maður RKÍ fréttamönnum, að allmargir myndu að líkind um senda reglulega til félags ins. Talsvert hefur verið um að hópar og bekkjardeildir í skólum hafi tekið sig saman og sent nokkra upphæð á þennan hátt tii Rauða kross- Stjórnin endur- kosin i Iðju STJÓRNARKJÖR fór fraim í Iðju, félagi verksmiðjufólks, uim helgiraia. Listi stjónnar og tirúnað- arráðs var endurkjöri'nin og hlaut 626 atkvæði. Bar hairun bókstaif- iiran B. D-liistinm hlaut hinis veg- ar 254 atkvaeði, en 13 seðkur voru auð'ir og einn ógilduir. Svo sem aj á má af þesaum fcöl- um, sem mefndar haifa veiriið, voru greidd atkvæði tæplega 900. Er það ákaflega lítil kjörsókn, þair sem yfir 1950 voru á kjör- skrá. Formaður Iðju er Rumótóur Péturasion. *

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.