Morgunblaðið - 27.02.1971, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1971
Ólafur Gíslason stór-
kaupmaður - Minning
Fæddur 19. ágúst 1888
Dáinn 21. febrúar 1971
ólafur tengdafaðir mtnn er
látinn. Með homrni er genginn
merkur maður og gegn.
Manndómur hans, drenglund og
heiðarleikur brást aldrei.
Fáa giftu getur meiri, en að
kynnast slíkum mönnum, njóta
trygglyndis þeirra, góðvilja og
vinarþels.
Slíkir menn hljóta ávallt og
ævinlega að hafa mannbæt-
andi áhrif á samtíð sína, á alla,
sem kynnast þeim, alla, sem með
einum eða öðrum hætti njóta
þeirra og samvista við þá.
„Þar sem góðir menn fara, þar
eru Guðs vegir."
Af hjartans þökk þakka ég
Ólafi Gíslasyni allt, sem hann
var mér og mínum.
Minningin, sem við eigum um
hann, verður okkur leiðarljós.
Gunnar Gíslason.
1 dag kveður verzlunarstéttin
einn af sínum traustustu og virt-
ustu fulltrúum, er Ólafur A.
Gíslason, stórkaupmaður verður
til moldar borinn.
Ólafur helgaði svo að segja
alla sína löngu ævi verzlunar-
málum lands síns frá þvl hann
hóf verzlunarstörf hjá Lefoliis á
á æskustöðvum sínum Eyrar-
bakka, um fermingu árið
1902 og allt til hinztu stundar.
Tæp 70 ár eru langur tími á
þessari öld hinna miklu og öru
breytinga. Ólafur var sá gæfu-
maður að fá að fylgjast með og
stuðla að þeirri gjörbyltingu í
verzíun íslendinga sem átt hef-
ur sér stað á þessu tímabili, allt
frá þvl hún var svo að segja
öll í höndum útlend'inga og þar
til Islendingar voru að fullu
búnir að heimta aHa verzl-
un í eigin hendur og margfalda
hana, auka verzlunarfrelsið,
stofna eigin skipafélög, flug-
félög, Verzlunarskóla Islands
o.fl. o.fl.
Ekki er svo að skilja
að Ólafur hafi eingöngu verið
áhorfandi og njótandi þessara
gleðilegu þjóðþrifa breytinga,
heldur var hann beinn hvata-
maður þeirra, oft brautryðjandi
og ævarandi forsvarsmaður alls
þess stóra hóps sem kýs að
vinna að heUl samborgaranna í
kyrrþey og telur farsæl
málalok ærna umbun en krefst
ekki að sviðsljósum sé að sér
beint.
Ólafur A. Gíslason var einn
af stofnendum Félags íslenzkra
stórkaupmanna árið 1928, I skóla
nefnd Verzlunarskóla Islands
frá 1938. 1 stjóm Félags isi.
stórkaupmanna árin 1945-1949.
Fulltrúi þess félags i stjórn
Verzlunarráðs Islands 1946-
1949. Fjölmörgum öðrum trúnað-
arstörfum í þágu verzlunar
gegndi hann. Fyrir störf sín í
þágu verdunar- og félagsmála
gerðu íslenzkir stórkaupmenn
Óláf A. Gíslason að heiðursfé-
laga Félags ísl. stórkaupmanna
árið 1967.
Árið 1923 stofnaði Ólafur
Gíslason, ásamt Einari heitnum
Péturssyni, fyrirtækið Ólafur
Gíslason & Co. og stuðlaði að
framgangi þess tU dauðadags.
Einar Pétursson var hetja allra
Islendinga er hann 12. júní
1913 sigldi undir íslenzkum fána
gegn erlendu banni.
Oft hefir islenzk verzlun mætt
andstreymi innan lands sem ut-
an, af skilningsleysi og enn eru
þeir allt of margir, sem raun-
verulega óska þess að verzlun-
in megi ekki losna úr viðjum
hafta.
Það hefir verið lán islenzkrar
verzlunarstéttar að hún hef-
ir jafnan haft glæsilegum fána-
beítxih á að skipa, en nú eru þeir
einum færri við andlát Ólafs A.
Gíslasonar, stórkaupmanns.
Kveðja frá
Félagi ísl. stórkaupmanna.
f DAG verður til moldair boriinn
frá dómkirkjurmi í Reykjavík,
Ókufúr Á. Gíslason, stórkaup-
maður.
MSeð fáum kveðj uiorðum, vilj-
um við þaikka fyrir þau ár sem
við urðum þess aðnjótandi að
starfa með og undir stjórn hans
í fyrirtækinu Ólafur Gíslason &
Co h.f., sem hann stofnaði 1923
og stjórnaði til dauðadags. Hann
var stórbrotinn persónuleiki,
sem hafði ávaUt heiðarleika og
mannkærleika að leiðarljósi og
ávann með þvi, sér og fyrirtæk-
inu trausts og virðingar hvar-
vetna. Sem stjómandi sýndi
hann starfsfólki sínu tíllitssemi
og þakklæti fyrir það sem vel
var gert, en reyndist ávaHt heH-
steyptur, þegar tíl hans var leit-
að í vanda. Fyrirtækinu og starfs
fólki þess er þvi mikiU missir
við fráfall hans. Það er þvi með
miklum söknuði, sem við minn
umst og kveðjum Ólaf og þökk-
um traust það, sem hann ávallt
sýndi okkur, ekki hvað sizt núna
síðasta árið, sem meðeigendum
hans í fyrirtækinu. Hvatningar-
orð hans og það sem við höfum
numið af honum mun ávaHt
verða okkur styrkur og dýrmætt
vegamesti.
Fyrir hönd starfsfólksins vott
um við eftirlifandi konu hans,
Margréti Magnúsdóttur og öðr-
um vandamönnum dýpstu sam-
úð.
Sigurður G. Sigurðsson.
Richard Hannesson.
Til sölu
Willys árgerð ’64, lítið keyrður og mjög vel útlitandi.
Til sýnis laugardag og sunnudag að Gnoðarvogi 84.
Stefnumót
vid vorid
VORFERD M.S. GULLFOSS
EIMSKIP
Allar nánari upplýsingar veitlr
FARÞEGADEILD EIMSKIPS
Sfmi 21460
Notið fegursta tfma irsins til að ferðast. Skoðunar-
og skemmtifeiðir f hverri viðkomuhðfn.
Verð farmiða frá kr. 17.400,00. Fæði og
þjónustugjald innifalið.
Frá Reykjavfk ..................... 10. mal
Til Osió .......................... 13. mal
Frá Osló .......................... 15. maí
Til Kaupmannaliafnar ............ 16. mal
Frá Kaupmannahðfn ................. 18. maf
Til Hamborgar ..................... 19. mal
Frá Hamborg ...................... 20. ma(
Til Amsterdam .................... 21. mal
Ftá Amsterdam ..................... 22. mat
Til Lcith ......................... 24. mal
Frá I.eith ....................... 24. maf
Til Reykjavfkur ............ 27. maí
Bókhaldsvél
Sænsk ADDO, 2 samlagningarvélar, önnur
með Grand Total til sölu strax.
Til sýnis að Laugavegi 103 í Skóbúðinni.
Hornsófasett
Seljum næstu daga gfæstleg og ódýr HORNSÓFASETT úr
EIK. TEAK og PALISANDER. Úrval áklæða.
HORNSÓFASETTIN eru líka fáanleg í hvaða stærð sem er,
eins og bezt hentar í stofur yðar.
TRÉTÆKNI,
Súðarvogi 28, 3. hæð, sími 85770.
Tilboð óskast
í jeppa og nokkrar fólksbifreiðar er verða sýndar að Grensás-
vegi 9 miðvikudaginn 3. marz kl. 12—3.00.
Tilboðin verða opnuð í skrifstofu vorri kl. 5.00.
Sölunefnd varnarliðseigna.
HÚSNÆÐISMÁLASTOFNUN
ríkisins m§mm
Þeim einstaklingum, sem hyggjast nú sækja um lán frá Hús-
næðismálastofnuninni til kaupa á eldri íbúðum, er hér með bent
á, að slíkar umsóknir þurfa að berast stofnuninni með öllum
tilskildum gögnum fyrir 1. apríl n.k. síðari eindagi á þessu
ári vegna sömu lána er 1. okt. n.k.
Heimild til lána þessara er bundin við íbúðir, sem keyptar
eru eftir 12. maí 1970 og skal umsókn berast eigi síðar en
12 mánuðum eftir að kaupunum hefur verið þinglýst.
Umsóknareyðublöð eru afhent í stofnuninni og á skrifstof-
um bæjar- og sveitarfélaga.
HLISNÆÐISMÁLASTOFNUN RÍKISINS
LAUGAVEGI77, SÍMI22453
Brauðhúsið
BRAUÐHÚS — STEIKHÚS
Laugavegi 126 við Hlemmtorg.
Veizlubrauð nautafilet
Kaffisnittur roastbeef
coctailsnittur enskt buff
brauðtertur svínakótelettur
heitar og kaldar lambakótelettur
samlokur hamborgarar
síldarréttir fish and chips
smáréttir ekta franskar kartöfkir
köld veizluborð súpur
grilleraðir kjúklingar
Einnig 6dýr og góður hádegisverður daglena.
Kaffi, öl, gosdrykkir, heimabakaðar kökur, heitar pylsur.
ís O. m. fl.
Takið með yður heim eða við sendum. Fljót og góð afgreiðsla.
Opið frá kl. 7—11,30 sími 24631.