Morgunblaðið - 27.02.1971, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1971
25
Framkvæmdir
við Vogaskóla
Athugasemd verktaka og
umsögn borgarendurskoðenda
MORGUNBLADINU hefur bor-
Izt athugrasemd frá forsvarsmönn
um Bygrglng-avers h.f., sem er
verkfcaki við 4. áfanga Vogaskóia
vegna umræðna á fundi borgar-
stjórnar 18. febrúar sl. og frá-
sagnar í Morgunblaðinu af ræðu
borgarstjóra á þeim fundi. Birt-
ist athugasemd þessi hér á eft-
ir ásamt timsögn Helga V. Jóns-
sonar, borgarendurskoðanda uni
þessa athugasemd.
ATHUGASEMD
BVGGINGAVERS H.F.
„Samkvæmt skrifum Morgun-
blaðsins og Tímans varðandi af-
hendingu 4. áfanga Vogaskóla,
verður ekki annað séð en að
borgarstjórinn í Reykjavík hafi
gefið borgarstjóm þær upplýs-
ingar á borgarstjórnarfundi
þann 18. febr. sl. að dráttur á
að Ijúka framkVcBmdum stafaði
af vanefndum verktakans Bygg-
ingavers h.f.
Dagblöðin gátu þess ekki að
borgarstjórinn hefði látið fylgja
þessum ummælum sínum neina
frekari greinargerð. Með þvi að
hér er vafalaust um að ræða
vangá af hendi borgarstjóra, þvi
ekki þarf að efa að hann vilji í
hverju máli hafa það er sann-
ara reynist, þá langar okkur til
að koma á framfæri örfáum orð
um til uppfyllingar og skýring-
ar á ummælum hans.
Samningar okkar um bygg-
ingu Vogaskóla 4. áfariga er frá
7. nóv. 1967. 1 4. grein samnings
ins er ákvæði um að samnings-
verðið skuli miðað við bygginga
vísitölu Hagstofu Islands til
hækkunar eða lækkunar á samn
ingsverðinu. En verði hins veg-
ar um snöggar verðbreytingar
á samningstímabilinu að ræða
er heimilt að endurskoða þessa
aðferð við útreikninga verðbreyt
inga til að réttari útkoma fáist.
Nokkrum dögum eftir undir-
skrift samningsins varð gengis-
felling sem orsakaði hækkun á
erlendu efni um rúm 30%. Við
hófum þá þegar viðræður við
starfsmenn borgarinnar um end
urskoðun á samningnum með
það fyrir augum að fá leiðrétt-
ingar á greiðslum fyrir verkið mið
að við þessi ákvæði um snöggar
verðbreytingar. Þessar viðræður
stóðu án afláts og reyndar ár-
angurs í heilt ár, en þá skall á
önriur gengisfelling, sem hafði
í för með sér yfir 50% hækk-
un miðað við Bandaríkjadollar.
Eftir þessa seinni holskeflu
hefði mátt ætla að borgarsjóður
væri til viðtals um endurskoðun
á verksamningum en allar við-
ræður urðu án árangurs, þrátt
fyrir það, að við fullyrðum að
starfsmenn Innkaupastofnunar
borgarinnar höfðu fullan skiln-
ing á réttmæti krafna okkar um
endurskoðun á verksamningn-
um. En Innkaupastofnunin hef-
ur tvímælalaust hæfustu starfs
mönnum brgarinnar á að skipa
á þessu sviði.
Á þessu tímabiii hefur Bygg-
Sngaver h.f. sem aðalverktaki
við Vogaskóla margsinnis stað-
ið frammi fyrir því að undir-
verktakar hafa stöðvað verkið.
■Og tveir undirverktakar hafa
bréflega hótað algjörri stöðvun
á verkinu með lögbanni vegna
meintra samningsrofa hvað
snertir verðbætur af hendi borg-
arsjóðs. Og í dag stendur verk-
ið þannig að einn meistari við
bygginguna hefur ekki sætt sig
við að fá ekki fulluppgerðar verð
bsetur áður en hann skilar sínu
verki við skólann, svo það er
énnþá allt í fullkominni óvissu
um lok verksins.
Varðandi þau ummæli borgar-
stjóra að við hefðum lofað að
ljúka verkinu á einhverjum
ákveðnum tíma, þá er það sagt
algjörlega út í bláinn.
Borgarstjóra er fullkunnugt
um það að sú ákvörðun borg-
arytfirvalda að láta okkur sækja
þetta verðbótamál fyrir dóm-
stólum, leiðir það óhjákvæmilega
af sér að við sem aðalverktak-
ar svo og allfiestir undirverk-
takar verða að leggja fram marg
ar milljónir umfram þær greiðsl
ur sem borgarsjóður greiðir fyr-
ir verkið. Þetta fé liggur ekki
á lausu.
Við höfum ekki beðið borg-
arstjórann að gefa okkur gjaf-
ir. Við höfum aðeins óskað þess
að hann standi við gerða samn-
inga fyrir hönd borgarsjóðs. Við
höfum boðið honum að leggja
málið í gerð óvilhallra manna,
við höfum einnig farið fram á
að fá málið afgreitt fyrir gerð-
ardómi VerkfræðingafélagS Is-
'lands, sem ætti að vera öllum
dómstólum færari um að meta
þetta mál rétt.
Gengisfellingarnar eru atvik
sem bieyta algjörlega þeirri und
irstöðu sem samningurinn bygg-
ir á og er jafnframt atvik sem
hvorugur samningsaðili getur
haft áhrif á. Þvi þá ekki að láta
óvilhalla aðila dæma, sem einn-
ig hafði aðstöðu til að ljúka
málinu fljótt til að forða óþæg-
indum af drætti málsins.
I örstuttu máli er þessi saga
þannig að borgarstjórinn hefur
ekki staðið við gerðan samning
hvað snertir verðbætur. Hann
hefur í viðskiptum sínum við
okkur ekki viljað taka til gieina
ákvæði samningsins sem eiga
að tryggja okkur fyrir eigna-
upptöku, sem gengisfeliingar
eru.
I stað þess að láta starfsmenn
sma segja þetta hreint og beint
á fyrsta fundi með okkur þá hef
ur hann látið þá sitja með okk-
ur í mlsmunandi stórum hóp-
um, á endalausum fundum þar
sem við höfum lagt fram út-
reikninga sérfræðinga sem svo
er ekkert gert með. Þessa millu
hefur borgarstjórinn teflt við okk
ur í rúm þrjú ár þegar hann sér
ástæðu til að loka og vísa okk-
ur á að sækja málið fyrir dóm-
stólum.
Þrátt fyrir þessar aðstæður
höfum við skilað einstaka bygg-
ingaáföngum fyrr en samning-
ar segja til um, en þess gat
borgarstjóri ekki í ræðu sinni
í borgarstjórn.
Við látum þetta nægja í bili,
en vonandi verða mál verktaka
og samskipti þeirra við borgar-
sjóð meira á dagskrá á næst-
unni og ,þá gefst borgarstjóra
e.t.v. fleiri tækifæri til að kynna
borgarfulltrúum einstaka þætti
þessara mála og viðhorfin í
heild.
Reykjavík, 25. febr. 1971
I stjóm Byggingavers h.f.
Guðni Daníelsson,
Jónas Jónsson,
Sigurður B. Magnússon.
ATHUGASEMD BORGAR-
ENDURSKODANDA
í ofanritaðri grein vill fyrir-
tækið Byggingaver h.f. kenna
drætti á byggingu Vogaskóla því,
að borgarsjóður hafi sjálfur van
efnt verksamninginn með því að
greiða ekki fullar verðbætur.
Vísar fyrirtækið í þvi sambandi
til 2. mgr. 4. gr. verksamnings-
Ins, sem hljóðar svo: „Verði um
snögga verðbreytingu að ræða á
samningstímabilin, sem að dóini
beggja aðila kæmi of seint fram
í þessari visitölu, er heimilt að
endurskoða þessa aðferð við út-
reikning verðbreytinga tíi að
réttari útkorna fáiist.“
Hefur verktakinn margoft
kvartað yfir því að byggingar-
vísitala Hagstofu Islands hafi
ekki sýnt rétta mynd af verð-
hækkunum, en ekki hafa borg-
aryfirvöld fengið um það full-
nægjandi sannanir að mati mínu
og byggingardeildar Reykjavík-
urborgar, en of langt mál er að
fara út í það á hverju sú skoðun
okkar byggist.
Þar sem báðir aðilar eru ekki
sammála um hærri verðbætur
sbr. áðurgreinda 4. gr., getur
verktakinn skv. 13. gr. samnings
ins, að loknum sáttaumleitunum,
rekið málið fyrir bæjarþingi
Reykjavíkur. Önnur málsmeð-
ferð er þvi ekki í samræmi við
samninginn.
Að mínu áliti er þessi deila
um verðbætur óháð afhendingu
verksins, enda nefnir verktak-
inn ekki það atriði í bréfi, þar
sem hann lofar afhendingu verks
ins í siðasta lagi 1. febrúar 1971.
Samkvæmt verksamningnum
átti verkinu að ljúka upphaflega
1. ágúst 1970, en vegna tafa,
sem urðu af völdum veðráttu,
verkfalla o.fl., framlengdust
þessi tímamörk til 22. nóvember
1970. Á fundi, sem haldinn var 2.
nóv. 1970 lofaði verktakinn að
ljúka öllu verkinu fyrir 1. febrú
ar 1971 með fyrirvara um loft-
ræstitæki. Þannig:
1. Kennslueldhús 30.11. 1970.
Með fyrirvara um að málum
verði lokið 9. nóv. n.k.
2. Húsnæði læknaþjónustu o.fl. á
1. hæð lokið 7. des. 1970.
3. Iþróttahús og tilheyrandi böð
og búningsklefar 31.12. 1970.
4. Aðalanddyri, fatageymslur og
lokafrágangur 1. febr. 1971.
F.h. Byggingavers h.f.
Guttormur Sigurbjörnsson.
F.h. byggingadeildar borgar-
verkfræðings
Bergþór Ólafsson,
Jón G. K. Jónsson.
Þetta hefur verktakinn enn
ekki staðið við.
- Gjöf
Framh. af bls. 3
segja að sogi blóðsýnin hvert af
öðru inn um arman endann og
skili niðurstöðunni með sjáiifrit-
andi penna á hinn endann.
Þessi AUTOANALYZER með
sjálfvirkni til svo fjölbreyttra
rannsókna, hefir margra, aug-
ljósa kosti, má t.d. nefna að:
1. SjáMvirknin auðveidar að
frannfylgja ströngum kröfum
uim nákvæmni ranmsöknanna.
2. Útgjöld vegna glervöru
iækka verutega.
3. Afkaistagetan hefir í för með
sér veruiegan vinniuspamað,
sem verður þeim mun meiri,
sem rannisóknafjöl’dinn vex.
AfleiðLngin verð'ur því að með
sMku'm tækjuim er lengur hægt
að mæta sivaxandi á'lagi án hiliut-
fallslegrar fjölgunar starfsfóiks
og aukniingar húspláss.
Ég vona að þetta sýni að
nokkru hve ómetanleg þesisi gjöf
er fyrir áframhaildandi þróun
læknisþjónusitu Landákotsspít-
ala, þar sem á Ftanirts óknadeild
er fengizt við ört vaxandi fjölda
rannsókna, í mjög takmörkuðu
húspdássi.
Það er flestum kunniugt, að
nýiega var lausn fengin á dag-
gjaldamál spítalans. Hitt vita
færri, að ennþá l’iiggja ekki fyrir
nein opinber framlög til brýnna
tæfkjiakaupa á öTlum deildum.
Þar veltur allit á hve mikið St.
Jósefssyst/ur geta gefið af tak-
mörkuðum launum fyrir þrot-
lausa vinnu. Þeir eiga þvi skilið
mikla þökk, sem leggja hönd
að verki við þessa uppbygigingu.
Það þarf ekki milljón til að vera
mikil gjöf þar sem þörfin er
brýn, en fé skortir.
Við erum aðeins fá, sem fær-
um ykkur þakkir í dag, en tug-
þúsundir raunu njóta gjafar
ykkar á komandi áruim.
Megi eimnig þakklæti þeirra
verða Oddifeliliowstúku ykkar,
HALLVEIGU, styrkur um aila
framitíð.“
STAPI
Gömlu- og nýju dansamir í kvöld kl. 9.
^ Tvær góðar hljómsveitir.
* GOSAR
★ B. J. og MJÖLL HÓLM.
STAPI.
ÍR-ingar — skiðafólk
Dvalið verður í skála fé-
lagsins um helgina. Farið
verður frá Umferðamið-
stöðinni kl. 2 og 6 e.h.
laugardag og kl. 10 f.h.
sunnudag. Keppendur at-
hugið æfing verður kl. 3
laugardag og kl. 10 sunnu-
dag.
Stjórnin.
Sunnukonnr Hafnarfirði
Munið aðalfundinn í Góð-
templarahúsinu 2. marz kl.
8.30.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Herdís sýnir myndir m.a.
úr orlofi. Kaffi.
Stjórnin.
Hjálpræðisherinn
Sunnudag kl. 11. Helgunar
samkoma. Kl. 2. Sunnudaga
skóli. Kl. 8.30 Hjálpræðis-
samkoma. Einsöngur, tvi-
söngur og ræða.
Allir velkomnir.
Konnr frá Stykkishólnii
Skemmtifundur verður
haldinn í Tjarnarbúð mið-
vikudaginn 3. marz kl. 8.30.
Fjölmennið
Nefndin.
Fundarboð
Aðalfundur i Bræðrafélagi
Nessóknar verður haldinn í
félagsheimili Neskirkju
sunnudaginn 28. febrúar
1971 og hefst kl. 3 e.h. að
lokinni messu.
Fundarefni:
1. Formaður flytur skýrslu
um störf félagsins.
2. Endurskoðaðir reikning-
ar lagðir fram til sam-
þykktar.
3. Stjómarkosning
Kosin stjóm, varastjórn
og endurskoðendur.
4. Önnur mál, er upp kunna
að verða borin.
Félagsmenn eru hvattir til
þess að sækja fundinn og
taka virkan þátt í allri
starfsemi félagsins.
Fíladelfía
Almenn samkoma I kvöld
kl. 8.30. Aðkomnir ræðu-
menn tala.
Allir velkomnir.
Bræðraborgarstígur 34
Kristileg samkoma annað
kvöld kl. 8.30. Sunnudags-
skóli kl. 11.00 f.h.
I.O.O.F. 3 = 1522274% s H.F.
Heimatrúboðið
Almenn samkoma að Óðins-
götu 6a í kvöld kl. 20.30.
Séra Frank Halldórsson
prédikar.
Allir velkomnir.
K.F.ILM.
I dag
Kl. 8.30 e.h. er síðasta sam
koma unglingadeildavik-
unnar í hús félaganna við
Holtaveg.
Á niorgun
Kl. 10.30 f.h. Sunnudaga-.
skólinn við Amtmannsstíg.
Drengjadeildirnar Kirkju-
teigi 33, Langagerði 1 og í
Félagsheimilinu við Hlað-
bæ í Árbæjarhverfi. —
Barnasamkoma i barnaskól-
anum við Skálaheiði í Kópa
vogi og vinnuskála F.B. við
Þórufell í Breiðholtshverfi.
(Bíll frá barnaskólanum kl
10.15).
Kl. 1.30 e.h. Drengjadeild-
irnar við Amtmannsstíg og
drengjadeildin við Holta-
veg.
Kl. 8.30 e.h. Almenn sam-
koma í húsi félagsins við
Amtmannsstíg i umsjá ungl
ingadeildarsveitarstjóra.
Árni Sigurjónsson, fulltrúi
talar. U.D.—félagi segir
nokkur orð. — Ungmenna-
söngur og hljóðfærasláttur.
Allir velkomnir, en ungl-
ingum sérstaklega boðið.
Ármenningar og annað
skíðafólk
Skíðaferð I Jósepsdal á
laugardag kl. 2 og sunnu-
dag kl. 10 frá Umferðamið-
stöðinni. Gisting og veiting
ar í skálanum.
Bænastaðurinn Fálkagötu 10
Kristileg samkoma sunnu-
daginn 28. febrúar kl. 10.
Sunnudagaskóli kl. 11 f.h.
Bænastund virka daga kl.
7 e.h. Allir velkomnir.
K.F.U.M. og K.F.U.K.
Hafnarfirði
Sunnudaginn 28. febrúar
kl. 10.30 f.h. sunjiudagaskól
inn. Kl. 8.30 Almenn sam-
koma. Ræðumaður Gu'nnar
Sigurjónsson guðfræðingur.
Mánudagskvöldið 1. marz,
fundur í unglingadeildinni
kl. 8.
BEZT ú auglýsa í Morgunblaðinu