Morgunblaðið - 11.03.1971, Side 7

Morgunblaðið - 11.03.1971, Side 7
MORGUNBLAÐLÐ, FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1971 7__j „Náttúran hefur verið mér aflgjafi til margra hluta“ Spjallað við Steinþór Marinó Gunnarsson um málverk, hjásetu og fleira Nei, ég stæli ekld náttúr- una í þeim skilningi, sem flest ir ieggja i það hugtak, heid- ur leitast ég við að mála sam band mitt við hana, og nátt- úran hefur verið mér aflgjafi til margra hluta, gegnum hana hef ég séð margt í öðru ljósi, hún hefur vikkað sjón- deildarhring minn, stýrt hendi minni oft á tíðum til betri og fullkomnari verka, en annars hefði verið mögulegt," sagði Steinþór Marínó Gunnarsson málari við mig, þegar ég heim sótti hann á vinnustofuna hans í kjallaranum að Heiðar gerði 48. Tileíni heimsóknarinnar var væntanleg málverkasýn- ing hans I Bogasal Þjóðminja safnsins, sem hefst nú um næstu helgi. Ég hafði að visu kynnzt Steinlþóri lítillega, þeg ar hann fyrir tveimur árum sýndi á Mokka, leizt þá mæta vel á myndir hans, og sá strax í honum eittíhvað, sem löngum hefur fylgt þeim mönnum, sem kunna að fara með liti og léreft. Auk þess er það nú eigin- lega heimsfrétt, að Steinþór Marínó er einn 5 bræðra af 7, og það albræðra, sem mála, og hafa haldið málverkasýn- ingar, hinir eru Veturliði, Benedikt, Guðbjartur og Elís. Siðast, þegar ég hitti Stein þór að máli, sagði ég að svona lagað hlyti að liggja í blóðinu, og það var orð að sönnu, því að faðir þeirra hafði meira en föndrað við listræna hluti, hann var sjálf ur listamaður. Hún lætur ekki að sér hæða erfðafræð- in. „Ertu enn við það sama hey garðshornið, Steinþór, að mála við músík?“ „Þó að nú væri, annað hvort væri, og ég skal segja þér, að mér falla nú orðið bezt i geð óperurnar, þá er ég einna helzt i essinu mínu, þegar ég heyri fagrar raddir syngja fagran söng.“ „Finnst þér máski eins og mér Maria Callas hafa einna sérstakasta rödd?“ „Ekki er ég nú strax til- búinn að svara því, en sjálf- sagt væri Onassis á öðru máli, en mér finnst ég sjá svo oft meira til að mála, þegar ég hugsa mér sviðsetningar í óperum um leið. Annars er fjaran mitt uppá hald, liklega eins og þitt. Ég var um daginn suður við Lónakot. Það var stórkostlegt að sjá sæbarða steinana i fjörunni, sjá þessar holur, þessi form, jafnvel frekar en litina. Það var svolítið norð- an kul á, og ég verð að játa eitt fyrir þér, að mér finnst snöggtum meira varið I það að sjá fjöruna i norðanátt, en suðvestanibrælu, eitthvað hressilegra. Raunar var f jar- an og sandurinn aðalleikvöll urinn okkar þama vestra, þeir voru þá ekki farnir að byggja leikvelli. Já, það var í Súgandafirði, þar á Suður eyri, sem ég sleit þessum svo kölluðu barnsskóm. Og svo var maður sendur í sveit smá pjakkur, 6 ára og annar álíka forframaður að aldri, og við lögðum land undir fót sam an, því að ekki var rútubíl- unum fyrir að fara, við tveir 6 ára snáðar vorum sendir af stað út með firði fyrst, Litli Kútur og Labbakútur, og síðan var lagt i eitt f jalla skarð, og þá var komið ofan í Önundarfjörð, en þegar við höfðum gengið inn með firð- inum, þá kom minn ágæti hús bóndi á bát til að sækja mig yfir fjörðinn þveran, því að ferðinni var heitið að Dals- húsum i Valþjófsdal." ★ „Og hvað kom til, að þú varst svo barnungur sendur i sveit?" „Jú, sjáðu, foreldrar mínir og blessuð hjónin á bænum voru vinafólk, auk þess hafði Halldór bróðir verið þar í sveit á undan mér, og þar á ofan var ég heitinn í höfuðið á foreldrum bóndans, sem hétu Steinþór og Margrét. En þau reyndust mér vel, eins og beztu foreldrar, og þannig held ég reyndar, að sveita- fólk á Islandi hafi löngum reynzt þeim börnum, sem það hafði í fóstri. Snemma fékk ég að sitja yf ir fé. Fjallið upp af bænum hét Stakkur, þar gekk ég til kinda, litill polli, þar voru þrjár kindagötur milli skriða og hengiflug á milli, og voru þær kallaðar efsti gangur, miðgangur og neðsti gangur. Á þessum syllum hljóp ég, og ef ég missti féð frammi á dal, þá var það þegar rokið út í Mosdal. Þarna er líka fjall rétt hjá, sem blasir við þorpinu á Flateyri, sem kall- ast Þorfinnur, þar var sögð gullkista uppá eftir þjóð- trúnni." „Segðu mér, Steinþór, svo við víkjum aftur að sýning- unni þarna i Bogasalnum, eru þetta allt nýjar myndir." „Nei, langt þvi frá, þetta eru myndir, sem ég heí málað undanfarin 6 ár, og sjálfur held ég, að ég sé svcdítið að breytast i stílnum, þannig að ég er að færast út i „Relief" — málverk, ef svo má kalla þau." ★ Og við skoðuðum málverk Steinþórs, þar sem þau lágu upp við kjallaravegginn, mál verkin, sem eiga eftir að prýða Bogasalinn innan stundar. Víst voru þau mis- jöfn. Hvenær er listamönnum ekki mislagðar hendur? Veit nokkur eittihvert dæmi? Bezt þóttu mér tvö, en það er sjálf sagt mitt sérálit, og veit ég þó fyrirfram, að ég á mér skoðanasystkin ófá. Hið fyrra nefnir Steinþór Sjávar- löður, rétt eins og sjórinn sé að flæða á land, upp í fjör- una, — og þess utan einn rauður depill í miðjunni. „Til hvers þessd rauði dep- ill?“ „Það er von þú spyrjir, hann er bara til þess að vekja athygli á þungamiðju verks ins,“ svaraði Steinþór, og brúnu augun hans brostu, eins og bræðra hans. „Jú, sjáðu til, ég hef horft svo mik ið á sjó, sjávarflóð og fjöru um ævina, þetta eru áhrif frá leikjum bernsku og æsku, og gæti minnt á þá staðreynd, að uppeldið ræður geysilegu um framvindu mála í lifi manns. Og þó sérðu t.d. á þessu málverki, sem ég kalla júlí- dag, að ég get vel brugðið mér upp úr fjörunni og haft gaman að glettast við gras og mosató, minnast þess, að marg ir Öku í gamla daga framhjá mosabrekkunni efst í Skógar- brekkunum, þegar hallaði nið ur í Breiðdal, þar sem Ólafur Kárason Ljósvikingur einu sinni dvaldist, en liturinn á þeim mosa, Ijósgulur, kemur máski listalönguninni mest upp í manni." Og með það kvaddi ég Steinþór Marínó Gunnarsson, og hlakka til að koma í Boga salinn um helgina, raunar alla næstu viku. Skyldu þeir að lokum ekki sæma þessa málarabræður orðu ? — Fr.S. OKKAR Á MILLI SAGT Steinþór hjá myndinni af sjá varlöðrinu. (Sv. Þorm. tók myndina.) KEFLAVlK Ungt Sjálfstæðisfólk munið fundir.n í kvöld. Ólafur G, Einarsson mætSr sem gestur. Heimir F.U.S. 1 BROTAMALMUR Kaupi allan brotamálm lang- hæsta verði, staðgreiðsla. Nóatún 27, sími 2-58-9L KONA ÓSKAST tíl matreiðsfu- og innanhús- starfa út á tand, Tiltooð merkt „Borgarfjörður 6448" sendist afgr, MorgunbPaðsíns fyiflr 15. marz. INNRÉTTINGAR Vanti yður vandaðar innrétt- ingar í hýbýlt yðar, þá leitið fyrst tilboða hjá okkur, — Trésm. Kvistur, Súðavogi 42, símar 33177 og 36699. NÝTT AKRANES 136 fm einbýliishús ásamt MIFskúr t'nl sölu l Vogum á Vatnsfeysuströnd. Upplýsing ar í síma 92-6640. Rússa jeppi '59 til sölu, gott hús, nýleg dekk að framan. Upplýsingar í síma 93-1463, ARSHATlÐ Átthagafélags Inggjaldssands verður haldin f Domus I Medica laugardaginn 13. marz. Fjötmennið. Nefndin, KONAN I ALFTAMÝRI sem hringdí í síma 19713 6t af týndum ketbi, er vinsam- lega beðin að hringja f sama númer aftur, NOKKRAR STÚLKUR vanrtar í frýstihús. Uppfýs- Ingar 5 síma 34736. KEFLAVlK Bröndóttur köttur f óskilum merktur um hálsinn með grænu ullarbandi. Upplýsing- ar í síma 1040. TIL SÖLU TIL SÖLU Sindra sturtur af Benz. — Upplýsingar í síma 50661. er níu tonna bátur og fjög- urra tonna bátur. Sími 20289 á kvöldin. KEFLAVlK HARGREIÐSLUSVEINN óskast Eitt herbergi óskast til teigu. Upplýsingar í síma 1835, Upplýsingar í síma 31160 í dag og á morgun. BEZI ú auglýsa í Morgunblaðinu Til sölu i Hafnarfirði nýlenduvöru- og kjötverzlun í fullum gangi. Tilboð leggist inn á afgreiðslu blaðsins merkt: „Verzlun”, Hestamannaíélogið FflKUR Aðalfundur félagsins verður haldinn miðvikudaginn 24. marz og hefst kl. 20,30. Venjuleg aðalfundarstörf. Námskeið verður í hlíðnis- og fimisþjálfun hesta dagana 29. marz — 6. apríl, við hesthús Fálks Selási. Leiðbeinendur verða Walter Feldmann eldri og yngri. Nánari upplýsingar á skrifstofu félagsins. SKEMMTIFUNDUR verður í félagsheimilinu laugardaginn 13. marz og hefst kl. 9 með myndasýningu frá Landsmóti Hestamanna 1970. - Þorkell Bjarnason ráðunautur skýrir myndina. Dansað til kl. 2. FÉLACSKONUR sjá um kaffisölu í félagsheimili Fáks sunnudaginn 14. marz. Húsið opnað kl. 2. — Hlaðborð. Komið og drekkið kaffi hjá félagskonunum. Allir velkomnir. STJÓRNIN.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.