Morgunblaðið - 11.03.1971, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 11.03.1971, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1971 17 4 Ummæli Nixons um landhelgi og úthöf Bandaríkin vilja takmarka landhelgi við 12 mílur, en tillit verði tekið til sér- stakra hags- muna strand- ríkja varðandi fiskstofna úthafsins ÞANN 25. febrúar sl. flutti Richard M. Nixon, Banda- ríkjaforseti, skýrslu sína til Bandaríkjaþings um utanríkismál. Einn kafli skýrslu forsetans fjallaði um landhelgismál og rétt- indi þjóða til nýtingar á hafinu, hafsbotninn o. fl. Morgunblaðinu þykir rétt að gefa lesendum sínum kost á að kynna sér þann kafla ræðu Bandaríkjafor- seta, sem um þessi mál fjallaði, og fer hann hér á eftir. „Úthöfin hylja tvo þriðju yfirborðs jarðar. Breytingar eru nú að verða á nýtingu mannsins á þessum sameigin- lega sjóði hans. Ný tækni er þegar fyrir hendi, eða í mót- un, sem leiða mun til gífur- legrar aukningar á nýtingu efna og lífefna hafsins, þar á meðal náttúruauðæfi þau, sem finnast á botni heimshaf anna. 1 fullri hreinskilni er það enn ekki ljóst hvort þessi staðreynd mun reynast mannkyninu blessun. Eins og nú háttar er ekkert það vald til, alþjóðlegt eða af öðrum toga spunnið, sem tryggt getur skipulega og skynsamlega nýtingu þessara auðæfa. Sú staðreynd, að því viðbættu um hve mikil auð- æfi hér er að tefla, er full- komin ástæða til þess að menn hafi af þessu áhyggjur. Allur heimurinn á hér ljós- legra hagsmuna að gæta, og sú staðreynd blasir greini- lega við, að nema því aðeins að gripið verði í taumana í tíma, verði þessir hagsmun- ir fyrir borð bornir í skipu- lagsleysi taumlausrar verzl- unar- og þjóðasamkeppni. Hið aldagamla frelsi til frjálsra siglinga á hafinu er vandamál nátengt þessu. Hefð og gildandi alþjóðalög hafa ekki reynzt nægilegur þröskuldur í vegi kröfu- gerða, sem verða til þess að auka á alþjóðlega spennu og stofna réttindum allra til notkunar á úthöfunum í hættu. Kröfugerð sumra þjóða í þessum efnum nær 200 mílur á haf út. Freist- ingin til þess að halda slík- um kröfum til streitu og verja þær getur aðeins vax- ið er tæknin skapar nýja möguleika á þvi að hagnast af einkarétti á yfirborði hafs ins. Á undangengnu ári hafa Bandaríkin átt frumkvæðið að því að reyna að fá lönd heimsins til að fallast á sann gjarna lausn á þessum tveim- ur vandamálum, á meðan enn er hægt að leysa þau. Þann 3. maí lagði ég fram stefnuskrá varðandi heims höfin, þar sem bæði var lagt tii að á fót yrði komið kerfi alþjóðlegra reglugerða um nýtingu hafsbotnsins á djúp sævi og nýr sáttmáli yrði gerður um stærð landhelgi ríkja. Tillögur okkar varð- andi hafsbotninn myndu skipta honum i tvo megin- flokka: — Strandríki myndu halda rétti sínum til náttúruauðæfa hafsbotnsins allt að 200 metra dýptarlínu. — Hafsbotninn umfram það yrði undir alþjóðlegri stjórn. Engu að síður myndu strandriki veita leyfi til rannsókna og vinnslu auð- æfa á hafsbotninum umfram 200 metra dýptarlinuna allt til marka landgrunnsins, sem sérstakir umboðsaðilar al- þjóðlegrar stofnunar. Svo sem ég sagði á sínum tíma: „Yfirstjórn (þessara mála) mundi sjá um inn- heimtu verulegra greiðslna vegna efnavinnslu til alþjóð legrar og félagslegrar notk- unar, einkum til greiðslu efnahagsaðstoðar við þróun- arlöndin. Hún ætti einnig að setja almennar reglur til þess að koma í veg fyrir að önn- ur nýting hafsins biði ekki ósanngjarnt tjón af, reglur til að vernda hafið gegn mengun og um að tryggja heiðarleika þeirrar fjárfest- ingar, sem gera yrði vegna slíkrar nýtingar, og reglur sem gera ráð fyrir að skylt verði að setja niður deilur á friðsaman hátt.“ 1 ágúst lagði stjórn vor uppkast að samningi fyrir Sameinuðu þjóðirnar, þar sem tillögur eru gerðar i smá atriðum um hversu slíkt kerfi gæti verið. Vér leitum kerf- is, sem tryggir að fullu hags- muni þá, sem hin vanþróaðri ríki eiga að gæta varðandi auðæfi hafsins, jafnt og það Hvemig fer Gierek að því að halda trausti? Erfitt að samræma kröfur verkamanna flokkskerfinu og pólskir verkamenn eru ekki lengur þægir í taumi „Verkamennirnir hafa það á tilfinningunni að Gierek þekki þá og skilji vandamál þeirra, og þetta er eina von okkar,“ sagði pólskur emb- ættismaðiir eftir að hinn nýi ieiðtogi Kommúnistaflolíks- ins kom rauðeygður lit eftir næturlangan fund með verka mönmim í skipasmíðastöðun- um í Gdansk og Szczecin ný- verið. „Við trúum þér. Við viljum, að þú stjórnir vel,“ var svar verkamannanna á fiindinum, sömu manna og fyrr kveiktu í öllu þvrí, sem til náðist, og minnti á flokk- inn og rikisvaidið. Þessa byrjun á gagnkvæm- um skilningi milli Edward Giereks, fyrrum kolanámu- manns, og verkamannana, verður að fara um mjúkum höndum. Á fundi miðstjómar flokksins fyrir skemmstu skýrði Gierek verkamönn- um umbúðalaust frá því, að ekki yrði um að ræða neinar skjótar framfarir og umbæt- ur í efnahagsmálum, og var- aði þá við þvl að setja fram óraunhæfar kröfur. Spurn- ingin er hins vegar sú, hverj- ar af þeim kröfum, sem verkamenn frá borgum á strönd Eystrasalts lögðu fyrir Gierek, verða tald- ar óraunhæfar. Verkamennirnir kröfð- ust meiri áhrifa í verkalýðs- samtökum og málefnum þeirra, og þess að „blýanta- yddurum" yrði stórlega fækkað í stjórn flokks- ins. Þeir kröfðust þess, að óþörf embætti og störf innan verkalýðssamtakanna yrðu lögð niður, og að þeir menn, sem þannig yrðu leystir frá störfum, yrðu látnir vinna við framleiðsluna sjálfa þar sem þeir myndu kynn- ast vandamálum verka- mannanna, sem þeir hafa ver- ið svo einangraðir frá. Gierek brást við kröf- um verkamannanna á þann hátt, að hann vék úr starfi hinum hataða yfirmanni Sam- bands verkalýðsfélaga, Ign- acy Loga Sowinski, og vék að auki til hliðar mörgum hátt- settum mönnum í flokknum, sem höfðu fengið á sig orð fyrir að hafa verið viðriðnir hin „alvarlegu mistök" stjórnar Gomulka. Fremstur í flokki þessara manna er Stanislaw Kociolek, hinn ungi efnahagssérfræðingur Stjórnmálanefndarinnar, en það var að hans undirlagi að hinar miklu verðhækkanir á matvælum voru gerðar, sem urðu til þess að verkamenn í borgum á Eystrasaltsströndinni gerðu uppreisn og til blóðugra átaka kom þar í desember s.l. (Tilkynnt hefur verið að verð matvæla verði aftur lækkað í það, sem var fyrir hækkanirnar, og kom verð- breytingin til framkvæmda 1. marz). Kociolek, sem fyrir fáum mánuðum var jafnvel talinn líklegur eftirmaður Gomulka, sem nú er í ónáð fallinn, hafði og það sér til ágætis að vera yngsti maður- Nixon tryggir rétt þeirra þjóða, sem þegar hafa á að skipa þeirri tækni, sem þarf til þess að nýta hafið. Slík skip an mála er bæði sanngjörn og skynsamleg, því auðæfi þessi eru sameiginlegur arf- ur mannkyns, og hagnaður- inn af honum á að koma öll- um til góða. Og það er ólík- legt að heimurinn leggi bless un sína yfir einhverja þá skipan mála, sem ekki trygg- ir að allir fái hlutdeild i þess um hagnaði. Greiðslur vegna námuvinnslu á hafsbotni munu, er tímar líða, verða mjög háar. Ef þeim verður þegar í stað ætlað að verða notaðar í alþjóðlegum til- gangi, sérstaklega til þróun- ar hinum fátækari þjóðum, mundi það geta orðið gríðar- mikið skref í áttina til lausn ar eins alvarlegasta vanda- máls heimsins. Varðandi landhelgismáiin sjálf, höfum vér lagrt til að sett verði alþjóðalög, sem gera myndu ráð fyrir 12 mílna takmörkun á landlielgi strandríkja og gerðu ráð fyrir að öllum yrði frjálst að sigia um alþjóðleg sund. Þessi alþjóðlegu lög myndu taka til varðveizlu sjávarlífs á úthafinu og viðurkenna hina sérstöku liagsnuini, sem strandríki eiga að gæta varð andi þá hlið málsins. Þessar hugmyndir voru mikið ræddar hjá SÞ á sl. hausti. Frumkvæði Banda- ríkjanna var almennt fagnað sem skrefi í þá átt að skipu- leggja hina nauðsynlegu, ai- þjóðlegu samningaviðræð- ur. 1 desembermánuði sam- þykkti Allsherjarþing SÞ margar gagnlegar ályktunar tillögur varðandi úthöfin. En það sem mest er um vert er að Allsherjarþingið sam- þykkti að efna til alþjóðlegr ar ráðstefnu um lög á úthaf- inu, sem halda á 1973. Á þeirri ráðstefnu mun heimurinn hafa í hendi sér sögulegt tækifæri. Hægt verð ur að setja auðlindir, sem hafa gífurlega þýðingu, und- ir alþjóðlega stjórn, sem nota mun þær til hagsbóta fyrir allt mannkyn. Og hægt verð- ur að leysa þrjú vandamál,' sem öll bera í sér hugsan- lega árekstra þjóða í milli, mismunandi kröfur þjóða til yfirráða á yfirborði hafsins, hafsbotnsins og fiskveiðirétt- inda — á þann hátt að allir hagnist af. Vér gerum oss grein fyr- ir því, að hér er um erfið og flókin vandamál að etja, en vér erum staðráðnir í því, að gera allt sem hægt er til þess að tryggja að Hafráðstefnan 1973 geti orðið hagnýt. Verði jákvæður árangur af þe'rri ráðstefnu verður það nierk- ur sigur fyrir hagsmuni heimsbyggðarinnar, og sönn- un þess, að heimurinn getur mætt sameiginlegum vanda- málum sínurn." inn, sem sæti átti í stjórn- málanefndinni, en hann er aðeins 37 ára gamall. Gierek hefur hins vegar aðeins yppt öxlum varðandi hina umdeildari kröfur verka manna, og sagt að á undan- förnum árum hafi verið graf- ið undan félagslegum aga og valdi flokkksins svo hættu- legt sé, og að mikil nauðsyn sé á að leiðrétta þetta. Hann hefur enga dul dregið á að mikil nauðsyn sé á að leið- rétta þetta. Hann hefur enga dul dregið á, að hin nýja for- ysta flokksins muni einmitt framkvæma þetta. „Glos Szczecinski", mál- gagn flokksdeildarinnar í Szczecin hefur ráðizt harka- lega að „pólitískum fjár- hættuspilurum", sem blað- ið segir að sé að reyna að fá verkamenn til þess að líkja eftir „Vorinu í Prag“ 1968. Aðalmálgagu pólska Komm únistaflokksins, blaðið „Try- buna Ludu“, svaraði bréfi frá lesanda, sem spurði hvort nokkur trygging væri fyrir þvi að flokkurinn mundi ekki neyðast til að fara að fyrir- mælum hinna nýju leiðtoga, þó það kæmi síðar á daginn að þeir hefðu haft á röngu að standa. Spurningin er, sagði blað- ið í ritstjórnargrein, hvort meginreglur flokksins, forsjá hans varðandi samstöðu og aga, séu réttar, og hvort engra spurninga eigi að spyrja eftir það, sem gerzt hafi á undanförnum árum. Edward Gierek kvæini þráður. — liinn við- Svarið kom kunnuglega fyrir sjónir. Flokkurinn getur ekki slakað á varðandi sam- stöðuna og agann án þess að vega að sjáifum grundvelli sósíalismans varðandi stjórn- mál og skipúlagsmálefni. Svo virðist sem litið sé á óskir verkamanna um beina þátttöku í stefnumótun og ákvörðunum sem endur- skoðunarstefnu af hálfu hins nýja leiðtoga, og að þessu leyti er hann sömu skoðun- ar og forveri hans. En verka- mennirnir spyrja, hvernig hægt sé að framkvæma um- bætur þær, sem lofað hefur verið varðandi hin stein- Framh. á bls. 18

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.