Morgunblaðið - 11.03.1971, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 11.03.1971, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1971 Hrúturlnn, 21. marz — 19. aprU. Eljusemi þín ber mjög takmarkaðan ávöxt um þcssar mundir. Nautið, 20. april — 20. maí. Gott er að vera notalegur við sjálfan sig. En beina mætti því að öðrum líka. Tvíburarnir, 21. »naí — 20. júní. Gætni er lofsverð, en of mikil varúð borgar sig sjaldnast. Krabbinn, 21. júní — 22. júlí. Hroki og sjálfsánægja er áberandi í fari þínu á stundum. Reyndu að halda því nokkuð í skefjum, Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst. Nú er allra veðra von og þú gætir átt á hættu að lenda í deil- um við ættingja ef þú gáir ekki að. Meyjan, 23. áffúst — 22. september. Þolinmæði er einkunnarorð dagsins. Vogin, 23. september — 22. október. Dómharka er sjaldan vænleg til árangurs. Sporðdrekinn, 23. októbeT *— 21. nóvember. Farðu að öllu með fyllstu gætni í dag og flanaðu ekki að neinu, Bogmaðurinn, 22. nóvember — 21. desember. Hvað sem öllum áhyggjum líður, skaltu rcyna að taka lífinu ekki svona þunglega. Steingeitin, 22. desember — 19. janúar. Vertu ekki of kröfuharður við nákomna vini í dag. Vatnsberinn, 20. janúar — 18. febrúar. Trúlegt er að einhverjar breytingar verði á högum þínum á næstunni. Fiskarnir, 19. febrúar — 20. marz. Tillitsleysi við aðra hefur ekki verið þín sterka hlið undanfarið. • • 33 • • þér vilduð gera það, sagði Priestley. En nú erum við víst komnir langt burt frá atvikun- um að glæpnum, sem þér lýstuð fyrir okkur. Yðar skoðun er sú, skilst mér, að eitt af skothylkj- unum, sem Caleb voru send hafi verið þannig útbúið, að byssan hefur sprungið? — Ég get nú varla kallað það mína kenningu, sagði Jimmy hógværlega. — Heldur virtist það bein ályktun af því sem hr. Newsham, byssu- smiðurinn þarna í Lyden- bridge, sagði okkur Appleyard. Og þetta virðist staðfest af kunnáttumönnunum hjá Scot- land Yard sem hafa athugað sprungna hlaupið og óhreinind- in innan í því. Þeir telja, að hlaupið beri þess öll merki að hafa sprungið vegna þess, að það hafi verið hlaðið sterku sprengiefni. Þeir segja líka, að í óhreinindunum sé mikiu meira af kolefni en á að koma úr venjulegu reyklausu púðri. — Nefnduð þér við fagmenn- ina að hleðslan hefði getað verið acidum picricum? — Það gerði ég, en ekki fyrr en eftir að mér hafði borizt skýrslan. Ég vildi ekki hafa nein áhrif á skoðun þeirra. Og þeir sögðu, að samkvæmt þeirra rannsókn, gæti þetta vel staðið heima. — Þér hafið sýnt okkur bréf- snifsið, sem fannst í skothylkja- keissanum og hafið sagt okkur skýringu ungfrú Blackbrook á uppruna þess. Hafið þér gert nokkrar frekari athuganir því viðvíkjandi? — Já. Ég fékk einn skrifar- ann hjá skipafélaginu til að gefa mér örk af sama pappír og notaður er á skipum þess. Og pappírinn kemur alveg heim og saman við blaðið, sem á var letrað „Good sport." Mér var líka sýnd skýrsla með rithönd Benjamíns Glapthorne, og hún kemur alveg heim við hina á mið anum. Mér er nú mikil forvitni að vita, hvað Benjamín hefur að segja um þetta, þegar ég hitti hann á morgun. Enn sem komið er hefur ekkert einkaskeyti verið sent til skipsins, og held- ur ekki hefur neitt verið minnzt á málið í neinum fréttadálki, svo að sennilega er hann alls ekki farinn að frétta dauða bróður síns. — Yður hefur sjálfsagt ekki sézt yfir það, að hafnsögumað- urinn á ánni, sem fer um borð í Gravesend, tekur oft með sér bréf til skipanna? — Já, það er mér vel ljóst. Slík bréf eru send til skipafél- aganna og svo þaðan aftur til hafnsöguskrifstofunnar. Ég hef komið því í kring, að öll bréf til Benjamms verði kyrrsett. Priestley kinkaði kolli. — Þér hafið sýnilega gert allar varúð- arráðstafanir. En nú finnst mér, að við lausn þessa máls ætti fremur að ganga að því frá sjónarmiði tækifæris en til- gangs. Hafið þér athugað það sjónarmið? — Það hef ég og hef kom- izt að niðurstöðu sem hér seg- ir, sagði Jimmy. Við skul- um byria á Nimrod-skotunum. Ég hef með fyrirspurnum kom- izt að því, að þau eru hrein- asti óhófsvarningur, og yfir- leitt ekki til sölu i smábæjum eins og Lydenbridge. En það er auðvelt að fá þau í London og stærri borgunum og víða erlend is. Þannig hafa fjölmargir menn möguleika á því að fá keypt Nimrodskot. — Svo fékk ég aðra hug- dettu viðvíkjandi uppruna þessa serstaka kassa. Arthur Black- brook sagði mér, að faðir sinn hefði verið vanur að kaupa Nim rodskot, og hann heldur, að eitt hvað hafi verið eftir af þeim, þegar faðir hans dó. Þetta benti til þess, að einhver í Lyden- bridge hefði getað keypt kassa á uppboðinu og geymt hann þang að til hann þurfti á honum að halda. En nú hef ég verið i sam bandi við framleiðendurna og þeir tjá mér, að þessi kassi hafi ekki verið afgreiddur fyrr en um mitt síðasta ár. Og þeir geta þvi miður ekki gefið mér upp nafn smásalans, sem fékk kass- ann. — Næsta spurning, sem ég hef lagt fyrir mig er þessi: Ef gengið er út frá því, að sprengi efnið, sem ég nefndi áður hafi verið notað, hver gat þá útveg- að sér það? Og ég komst fljótt að þvi, að af öllum sprengiefn- um er þetta það auðveldasta að ná í. Margir lyfsalar hafa það til sölu, eða þá sambönd, sem hægt er a ð vinna það úr með lítilli fyrirhöfn. Yfirleitt held ég, að auðveldara sé að útvega sér það en nokkurn tima Nimr- odskotin. Hanslet skríkti. — Það er hætt við, að þér verði leitun á þessu Jimmy, sagði hann. — Já, þvi miður, sagði Jimmy dauflega. En nú komum við að þessum bréfmiða og hann finnst mér geti þrengt leitarsvæðið talsvert. Mig minnir ég segja yð ur, að Appleyard hafi fundið hann í kassanum eftir að hafa tæmt hann, til að telj a skotin en það sýnir aftur, að hann hefur verið lagður á botninn i kass- anum, en ekki ofan á. Nú er það svo, að ef einhver sendir ein- hverjum gjöf ásamt kveðjubréfi, þá er það sett efst svo að við takandi finni það strax þegar hann opnar böggulinn. —- Vel athugað, sagði Hanslet. — En hvað ráðið þér af þessu. — Það, að þessi skilaboð, voru ekki fyrst og fremst ætluð Cal- eb heldur þeim, sem kynni að rannsaka dauða hans. Pörulaust Ali Bacon Við skerum pöruna frá fyrir yður. Þoð er yðar hagur. Biðjið því kaupmann yðar aðeins um ALI BACOIM. SÍLD&FISKUR NYR MOSKVICH 80 HESTÖFL Bifreiðar & Landbúnaðarvélar hf. Suðuriandsbraut 14 - Reykjavik - Simi 38(500 LJOMA VÍTAMÍN SMJÖRLÍKl a pönnuna/ [•] smjörlíki hf. Osta- og smjörsalan auglýsir Margrét Kristinsdóttir, húsmæðrakennari kynnir nýja og spennandi smjör og ostarétti í verzlun vorri að Snorrabraut 54 í dag og á morgun föstudag kl. 2 — 6. Komið, fáið leiðbeiningar og ókeypis úrvalsuppskriftir. Osta- og smjörsalan

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.