Morgunblaðið - 21.03.1971, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. MARZ 1971
27
Reiddist þegar
strákpollinn
náði fráköstunum
Rætt við Jón Sigurðsson,
körfuknattleiksmann
JÓN Sigurðsson er aðeins
tvítugur að aldri. Hann er
samt sem áður nú þegar orð
inn einn af okkar allra beztu
körfuknattleiksmönnum,. og á
eflaust eftir að verða enn
betri á næstu árum. Jón hef
ur leikið með Ármanni í
mörg ár, eða allt frá því að
hann hóf sinn körfuboltaferil
í 4. fl. Jón er mjög ósérhlíf
inn leikmaður, margri vöm-
inni hefur hann komið í vand
ræði með sínum mikla hraða
og tæknin hjá Jóni með bolt
ann er oft á tíðum undra-
verð. Það kom engum á óvart
sem með körfubolta hefur
fylgzt undanfarin ár, að leik
menn í 1. deild skyldu kjósa
hann bezta leikmann íslands-
mótsins sl. ár. Jón varð fús-
lega við þeirri ósk Mbl. að
svara nokkmm spumingum.
Hvenær byrjaðir þú að æfa
og keppa í körfubolta?
„Ég byrjaði að fikta við að
æfa körfubolta þegar ég var
8 ára, og lék þá með skóla-
liði. En síðan gekk ég í Ár-
mann, og byrjaði að leika
með Ármanni 12 ára gamall.
Varð síðan íslandsmeistari í
4., 3. og 2. fl. og Reykjavíkur
meistari í 3. og 2. fl.“
Hvenær hófst þú að leika
með meistaraflokki?
„Það var strax fyrra árið
sern ég var í 2. fl„ en þá var
ég 16 ára gamali. Það var
mikið álag á mér þann vet-
ur, því ég var í fjórum lið-
um þ.e. 2. fl„ m.fl. og svo
æfði ég bæði með A-landslið
inu og U-landliðinu.“
Svo kemur að fyrsta lands
leiknum, hvenær var það?
„Það var á Polar Cup í
Reykjavík 1968, gegn Sví-
um.“
Síðan hefur þú verið fast
ur maður í íslenzka landslið-
inu, og þú lékst einnig tvo
unglingalandsleiki. Hvaða
leikir em þér minnisstæð-
astir?
„Ég hef leikið 15 lands-
leiki, og tvo U-landsleiki. Það
eru aðallega tveir leikir sem
mér eru minnisstæðastir. f
fyrsta lagi fyrri leikurinn
með U-liðinu gegn Dönum
1969. Þann leik unnum við
með yfirburðum, eða 78 stig
um gegn 67, og skoraði ég
þá 29 stig. Einnig er mér allt
af mjög minnisstæður leikur
inn gegn Svíum í Evrópu-
keppninni sama ár. Sá leik-
ur var mjög jafn framan af,
t.d. var staðan í hálfleik 30:
28. í þessum leik gerðist það,
að ég tók frákast af sænska
risanum Albertson, og undi
hann því mjög illa. Hánn
var að keppa að því að vinna
styttu þá sem veitt var fyrir
flest fráköst tekin í mótinu,
og var því að vonum reiður
yfir því að strákpolli frá ís-
landi tæki fráköstin af sér.
Nú rétt eftir að þetta gerðist
og Albertson var orðinn reið-
ur, þá réðst hann á mig og
sló mig niður. Hann braut
í mér framtönn, og ég var
mjög vankaður eftir höggið
og gat ekki leikið meira í
það skipti.“
„Ég gæti nefnt fleiri leiki
sem eru mér minnisstæðir,
t.d. fyrri leikurihn gegn Skot
um sem leikinn var á íþrótta
hátiðinni."
Nú hefur árangur Ármanns
í vetur verið dálítið undar-
legur. Þið sigrið KR í fyrri
umferð íslandsmótsins, og
einnig HSK fyrir austan. En
svo farið þið verr út úr við-
ureignum ykkar við neðstu
liðin. Rétt merjið sigur gegn
Val og tapið fyrir IIMFN. Nú
svo kemur það oft fyrir, að
þið eruð með unninn leik í
höndunum, en tapið öllu nið-
ur t.d. gegn ÍR. Hvað telur
þú að valdi þessu?
„Ég veit nú varla hvað skal
segja. Ég held þó, að t.d. eins
og kom fyrir í leiknum á
móti ÍR þar sem við vorum
með unninn leik en misstum
allt niður, það stafi af því að
þegar við erum búnir að
setja hraðann upp, og ná for-
skoti, þá á al'lt í einu að fara
að „slappa af“ og þá fer allt
í handaskolum. Annars er
ekki gott fyrir mig sem
leikmann að segja til um
þetta. Það er frekar á færi
einhverra sem horfa á liðið í
leik.“
Hverjir eru skemmtileg-
ustu leikmenn, sem þú hefur
leikið með og á móti?
„Af þeim mönnum, sem ég
hef leikið gegn er Pilkevaare
hinn finnski án alls efa lang
beztur. Og það er mjög gam-
an að sjá hann leika. Þor-
steinn Hallgrímsson er
skemmtilegasti samherjinn.
Það er gaman að leika með
honum. Hann er frábær
stjórnandi, og útsjónarsamur.
Og svo er það „óskaliðið“
Jón?
Mitt óskalið yrði skipað
þessum mönnUm: Bakverðir:
Þorsteinn Hallgrimsson,
Gunnar Gunnarsson, mið-
herji Einar Bollason og fram
herjar Birgir Jakobsson og
Anton Bjarnason.“
Mbl. þakkar Jóni fyrir sam
talið og vonar að þessi ungi
og góði leikmaður megi
vinna marga sigra í íþrótt
sinni á komandi árum.
G. K.
Skíðamót á ísafirði
— með þátttöku flestra beztu
skíðamanna landsins
UM UNDANFARNAR helgar
hafa verið haldin skiðamót á
ísafirði, og þar bæði keppt í
alpagreinum og göngu. Hafa
sum móta þessa verið punkta-
mót, og meðal keppenda í þeim
hafa verið flestir af beztu skíða
Árni Óðinsson
mönnum landsins. Þorramótið
var haldið á Seljalandsdal 6.
marz og var þar keppt í stórsvigi,
svigi og göngu. Daginn eftir fór
svo fram Harðargangan, og var
þar keppt í fjórum flokkum.
ÞORRAMÓTIÐ
í svigkeppni þorramótsins
voru 20 keppendur mættir til
leiks og luku 19 þeirra keppni.
Lengdir brauta voru 500 metr-
ar, fallhæð 250 metrar og hlið
60. Hörð keppni var milli
þriggja manna í sviginu, þeirra
Hafsteins Sigurðssonar, ísa-
firði, Samúels Gústafssonar, ísa-
firði og Árna Óðinsson frá Akur
eyri. Náði Samúel beztum braút
artíma í fyrri umferðinni, 55.20
sek., en í síðari umferð náði
Hafsteinn beztum tíma, 50.53
sek., á móti 52.83 sek. hjá Sam-
úel og sigraði þar með í keppn-
inni. Röð 6 fyrstu manna var
annars þessi: Sek.
Hafsteinn Sigurðss., ísaf. 106.66
Samúel Gústafsson, ísaf. 108.03
Árni Óðinsson, Akureyri, 109.00
Björn Haraldsson, Húsav. 110.49
Hákon Ólafsson, Sigluf. 111.45
Yngvi Óðinss., Akureyri, 113,34
I stórsviginu snerist dæmið
Trausti Sveinsson
hirws vegar við á þann hátt að
Árni Óðinsson sigraði örugglega
en Hafsteinn varð í 2. sæti.
Helztu úrslit urðu þessi:
Mín.
Árni Óðinsson, Akureyri, 1:23,10
Hafsteinn Sigurðss. ísaf. 1:25,11
Björn Haraldsson. Húsav. 1:25,15
Yngvi Óðinsson, Ak. 1:25,77
Hákon Ólafsson, Sigluf. 1:27,12
Samúel Gústafss. ísaf. 1:27,31
Úrslit í alpatvíkeppni Stig
Árni Óðinsson, Akureyri 11.86
Hafsteinn Sigurðsson, ísaf. 15.67
Björn Haraldsson, Húsav. 33.62
Samúel Gústafss. ísaf. 39.08
Hákon Ólafsson, Sigluf. 47,15
í göngukeppninni sigraði hinn
gamalkunni göngugarpur úr
Fljótum, Trausti Sveinsson,
en hann hefur orðið margfaldur
íslandsmeistari í göngu, og virð
ist í hinni ágætustu æfingu nú.
Helztu úrslit í göngunni, sem
var 15 km urðu þessii:
Mín.
Trausti Sveinsson, Fljótum 50.15
Frím. Ásmundsson, Ólafsf. 51.24
Kristján Guðmundss. ísaf. 52.38
Sigurður Gunnarss., ísaf., 53.40
Halldór Matthíass., Ak. 53.55
Viðar Thoreid, Noregi, 58.26
í göngu 17-19 ára, sem var 10
km, voru keppendur aðeins
tveir. Magnús Eiríksson, Fljóta-
maður, sigraði á 33.30 mín., og
Kristján Guðmundsson frá ísa-
firði gekk á 38.31 min.
HARÐARGANGAN
Harðargangan fór svo fram
daginn eftir 7. marz, og var þá
keppt í fjórum flokkum. Helztu
úrslit urðu þessi:
5 km ganga (13-14 ára) Mín.
Jónas Gunnlaugsson, ísaf. 22.19
Ármann Sverrisson, Ak. 23.09
Elías Oddsson, ísafirði, 23.22
Halldór Þorgeirsson, ísaf. 30.42
7.5 km ganga (15-16 ára) Mín.
Reynir Sveinss., Fljótum 27,59
Kristján Vilhelmss. Ak. 31.06
Gísli Gunnlaugss., ísaf. 35.15
Eggert Jónsson, ísaf. 42.50
10 km ganga (17-19 ára) Mín.
Magnús Eiríksson, Fljótum 42.04
Kristján B. Guðmundss. í. 48.28
15 km ganga fullorðinna Mín.
Trausti Sveinss. Fljótum 60.56
Halldór Matthíass. Ak. 63.42
Frímann Ásmundss. Ólafsf. 63.45
Kristj. B. Guðmundss. ís. 65.06
Sigurður Gunnarsson, ísaf. 68,31
Guðjón Höskuldss. ísaf. 72.47
Svindlaði
Ellefsater?
Eins og frá hefur verið skýrt
hér á íþróttasíðunni sigraði
Norðmaðurinh Ole Ellefsáter í
hinni frægu Vasa skíðagöngu í
Svíþjóð. Skömmu eftir keppnina
birti sænska Aftonblaðið mynd
af Ellefsáter, þar sem hann
stendur hjá öðrum keppanda I
göngunni, Svíanum, Janne Stef-
ansson, og segir blaðið að Stef-
ansson hafi þarna verið að að-
stoða Ellefsáter við að smyrja
áburði á skíði hans, en ólöglegt
er að þiggja slika aðstoð meðan
á keppninni stendur. Sjálfur seg
ir Ellefsáter frásögn blaðsins
vera rógburð — hann hafi sjálf
ur smurt sín skíði, og myndin
sanni ekki neitt. Hins vegar eni
taldar miklar líkur á því að
keppnin verði kærð og verð-
launin tekin af Norðmanninum.