Morgunblaðið - 21.03.1971, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 21.03.1971, Blaðsíða 17
MORGUNBLA.ÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. MARZ 1971 17 takmarkað aí þeim atriðum, sem finna má í 14. grein stjórn arskrár ríkjasam'bandsins: Mið- stjómin skal rtáða varðandi stríð og frið, fara með utan- ríkismál, vamarmál, utanríkis- verríun, öryggi ríkisins, reglur um innbyrðis landamæri, skipu lagningu efnahagsmála, lána- og peningakerfið og mennta- mál. -Lýðveldi ríkjasambands- ins hafa ekki einu sinni papp- írseignarétt á koia-, olíu- og kopamámum þeim, sem þar finnast. Smáþjóðirnar hafa tiltðlu lega lítil fdirif í hinu svokall- aða æðsta ríkisvaldi, Æðsta ráði Sovétríkjanna (Sambands þinginu). Fulltrúar eru í ráð- inu í réttu hlutfalli við mann- fjölda. Óréttlætið, sem smáþjóð tmar verða fyrir vegna þess- arar skipanar mála, á að vega upp með svonefndu Þjóðarráði sem sagt er að eigi að hafa jafn mikil völd og sambands- ráðtð. En Conquest segir að ákveðinnar misréttistilhneiging ar gæti einnig I Þjóðaráðinu, Þrátt fyrir að stjómarskrárlög in frá 1923 mæli svo fyrir, að í Þjóðaráðinu skuli sitja fimm fulltrúar frá hverju „lýðveldi", Skipa það nú frá 11 og upp í 25 fulltrúar frá hverju þeirra. Þá á það sér einnig stað t.d. I Bashkira, að af 20 fulltrúum í báðum ráðum eru aðeins átta Bashkirar eða Tatarar. Kosn- ingabarátta er óþekkt hugtak, og aðeins þeir, sem hinn mið- stýrði Kommúnistaflokkur hef- ur samþykkt, eru kjörgengir. HI.V.Y AILVALDI FLOKKI R Það, sem hins vegar hefur allt að segja varðandi kosti þess að hafa fulltrúa í Æðsta ráðlnu er að sjálfsögðu hin eiginlegu völd þess. Á N'ikita Krúsjeff. pappírnum er ráðið æðsta vald ríkisins, en það er engu að síð ur Flokkurinn, og þó heldur í reynd Flokksstjórnin, sem ræð ur öllu. Tilskipun frá ríkis- stjóminni þarfnast þannig und irskrifta bæði Ráðherranefnd- arinnar og Miðstjómar flokks- ins, og Conquest bendir á að á Síðari árum hafi þróunin verið sú, að undirskrift Flokksins komi á undan undirskrift stjörnarinnar. Ríkisstjórnin gerir þvi lílið annað en að skreyta ákvarðanir fiokksins með undirskrlft sinni. Þannig ganga málin fyrir sig, og það hefur aldrei gerzt, að Æðsta ráðið hafi fellt tillögu frá For- sætisnefndinni, sem fer með vötd ráðsins mestan. hluta árs- ins, þvi það sjálft kemur ekki saman nema nokkra daga ár- lega. Niðurstöður Robert Conqu- ests varðandi þetta er að ákvæðum stjórnarskrárinnar hafi verið vikið til hiiðar. Af þeirri ástæðu verður að leita þess, sem stjórnar stefnu Sov- étríkjanna gagnvart minni- hlutahópunum, annars staðar. Þar sem Kommúnistaflokkur- in*n er sá aðili, sem í reynd ræð ur öltu, getum við fundið helztu undirstöðu þessarar stefnu hjá þeim, sem lögðu grundvöllinn að honum — nefnilega Marx og Lenín. Kenningar þeirra gera í stuttu máli ráð fyrir þvi, að þjóðleg málefni hafi fremur litla þýð- ingu, og að þjóðlegum hagsmun um verði að fórna í þágu hags muna byltingar öreigalýðsins. ENDURTEKUR SAGAY SIG? Leiti maður einhverra her- kænskuorsaka til þess að Stal- ín flutti eina og hálfa milljón manna nauðungarflutningum, kemst maður að þvi að einu svæðin, sem einhverja hemað- arlega þýðingu hafa eru Krím og Meskhetia. Taki menn svo eftir því, að þar bjuggu tvær af þeim þremur þjóðum, sem enn hefur ekki tekizt að fá fyrrum lýðveldi sin endurreist, geta málin litið svo út að Krús- jeff og samstarfsmenn hans á árunum 1955 og 1956 hafi ekki fordæmt aðgerðir Stalíns í grundvallaratriðum, heldur hafi þeir aðeins haft aðrar skoð anir en Stalín á þvi hvaða landssvæði væru hernaðarlega mikilvæg. Ef þessu er svo far- ið, er allur skiiningur Stalíns og síðar Krúsjeffs grundvallað ur á hernaðarlegum staðreynd- um, sem ekki eru óumbreytan legar, og hérnaðarlegu mati, sem getur breytzt. Þannig er ekki hægt að tryiggja, að það mat, sem Staiín lagði á herr.að armikilvægi í norðurhluta Kaukasus og steppunum þar fyrir norðan geti ekki aftur skotið upp kollinum meðal ráða manna Sovétríkjanna, og þá mun það örugglega verða af- drifaríkt fyrir aðrar óánægðar þjóðir. Því er svo farið, eins og Con quest segir í sambandi við þetta, að enda þótt Krúsjeff hafi fordæmt stefnu þá, sem Stalín rak i þessum málum, hef ur hann á engan hátt fordæmt hið sovézka valdakerfi, sem gerði og gerir enn slíkar ákvarðanir mögulegar og framkvæmanlegar. Það er vissulega áhyggjuefni að þeir skuli yfirleitt hafa verið I þeirri aðstöðu, Erfitt er að sjá að þjóðirnar innan sovézka sam veldisins hafi yfirleitt nokkur áhrif eða réttindi, á meðan ein ákvörðun í Moskvu getur sett völd og ákvarðanir úr jafn- vægi. Nú sem fyrr eru þjóða- brotin í Sovétríkjunum ofur- seld pólitískum aðgerðum, sem ákvarðanir eru teknar um án samráðs við þau, jafnvel þótt um líf þeirra sjálfra eða dauða sé að tefla. Hin endanlega endurreisn Krím-Tataranna 1967 átti ekki eftir að verða síðasti kaflinn í þessari sögu. Síðan hafa Krím- Tatarar rekið ákafa baráttu fyrir því, að fá að snúa aftur til fyrri heimkynna sinna, og í baráttu sinni hafa þeir fengið umtalsverðan stuðning þeirrar hreyiingar menntamanna í Moskvu, sem andsnúin er stjórninni. Og Meskheti-þjóðin sem menn á Vesturlöndum vissu efckert um fyrr en 1969, hefur enn ekki gefizt upp. Enda þórí hin nýja bók Ro berts Conquest Þjóðamorðingj- arnir fjalii mestmegnis um þjóðabrot og minndhlutahópa og vandamál þeirra í Sovétríkj unum og aðaláherzlan sé lögð á nauðungarflutningana, þá verður mat hans á stjórnmála- kerfi Sovétríkjanna tilefni til umhugsunar, og hann afhjúpar meginreglur, sem gott er að hafa í huga er aðrar hliðar þess arar þjóðfélagsskipunar eru vegnar og metnar. —Tromd Andersen. ,Iint Averill, Elíeser -lónsson og Hans Vanderflugt, fyrir franian véiarnar tvær. 2 nýjar flugvélar FLUGSTÖÐIN hefur aukið fiugvélaflota sinn um tvær einshreyfils vélar af Piper gerð, Cherokee 140 og Arrow. Báðar eru fjögurra sæta og sú siðarnefnda hefur uppdrag anlegan hjólabúnað, sem eyk ur m.a. flughraða hennar tölu vert. Elíeser Jónsson, hjá Flug stöðinni sagði að þessar véi- ar yrðu notaðar jöfnum hönd um til kennslu og leiguflugs. Hingað til lands komu vélarn ar frá Florida í Bandaríkjun- um, og það voru tveir ferju- flugTTienn, Jim Averill og Hans Vanderflugt, sem flugu þeim þessa löngu leið. Þeir lentu að sjálfsögðu nokkrum sinn- urn á leiðinni, en höfðu þá troðið svo miklum bensín- geymum í vélarnar, að þær höfðu um 14 tima flugþol. Tíðindi Hólastiftis Akureyri, 20. miarz. TÍÐINDI Prestaiféliaigs Hóla- stiiftis, 3. hefti, er nýkoimið út. Riltaeifnd slkipa séra Gís! i Kol- beimz, séra Jón Kr. Isfeld, séra Kriistjám Róbertsson, séra Pétur Sigurgeirsisoin, viigstubilskup og séra Þórhafllliur Höskuldsson. Efni ritsins er aifar fjölbreytt, en nrneðiaíl annars má mefna frá- sögn af biskupsvíigsilu séra Pét- urs Sigurgeirssonar í Hóladóm- kirkju þann 24. ágúsf 1969 og ræður Siigurbjamair Einarssoriar, biskups og vigsluþega við þaS tækiifæri, tvo þýdda siáikna eftir Sigurbjörn Einarsson, biskup og sálm eftir frú Emrmu Hansen við lag eftir Jón Bjömsison, greinar efitir séra Giisla Kol- beinz, séra Pétur Sigurgeirsson, syisitur Unni Haíldónsdóttur, séra Þóri Stefenssen, séra BirgL Snæ björnsson, séra Jón Kr. Isfeld, Brynjóllf Sveinisison »g séra Pét- ur Þ. Ingjallidisson. Margar myndir prýða þetta hefti, en káputeikning er eftir BöJla Gústafisson. Prentverk Odds Björnssonar h.f. annaðiist prenitun og eir fráganigur alluir hinn vandaðasti. — Sv. P. — Kópavogs vaka Aðalfundur BI AÐALFUNDUR Blaðamannafé- lags Islands verður haidinn nætst komandi sunnudag, 28. marz. — Fundurinn verður að Hótel Sögu (Mímisbar) og hefist kl, 2 e,h. Franuii, af bls. 2 marssonar. Flytjendur Guðrún Tómaisdóttir og Ólafur Vignir Albertisison. Þá verða umræður um nútímabókmenntir og eiga þátt í þeim Andrés Kristjánason, Jón Böðvarsson, Stefán Júlíus- son, Sveinn Skorri Höskuldsson og Vilborg Dagbjartsdóttir. Mánudaginn 22. marz verður særuska kvikmyndin Persona sýnd kl. 21,00. Leikstjóri er Ing mar Bergmann — Forspjall flyt ur Þórhallur Sigurðsson leikari. Þriðjudag 23. marz kl. 21,00 er dagskrá í umsjá Tónlistarfé lags Kópavogs. — Frumflutt verða tónverk eftir Þorkel Sig urbjömsson og Sveinbjörn Sveinbjörnsson — ennfremur verða flutt verk eftir Fjölni Stef ánsson. Fiytjendur eru: Gunnar Egilsson, Ingvar Jónasson, Þor- kell Sigurbjörnsson, Rut Ingólfs dóttir, Páll Gröndal, Guðrún Kristinsdóttir, Elísabet Erlings dóttir, Kristinn Gestsson. Miðvikudag 24. marz kl. 21,00 verður frumsýnd pólska kvik- myndin Allt er falt, leikstjóri er Andrzej Wajda. Fimmtudag 25. marz kl. 21,00 er dagskrá Leikfélags Kópavogs. Fluttir verða tveir leikþættir. Fjölnismenn eftir Gunnar M, Magnúss, Leikstjóri Gunnvör Braga Sigurðardóttir. Leikendur: Bergsveinn Auð- unsson, Björn Einarsson, Björn Magnúsison og Guðmundur Ein arsson. Þáttur úr Lénharði fógeta eft ir Einar H. Kvarao. Flytjendur: Loftur Ámunda- son, Gestur Gíslason og Sigrún Gestdóttir. Lög eftir Skúla Halldórs- son, Þórarin Guðmundsisoin og Sigfús Halldórsson syngur Guð- rún Huida Guðmundsdóttir við undirleik Martins Hungers. — Rabb um Stein Steinar og leat- ur úr ljóðum hans fiytur Hjálm ar Ólafsison, Auðunn Bragi Sveinsson les úr verkum sínum og Sigfús Halldórsson flytur tón verk sín. — Hjörtur Hjartarson syngur einsöng. Föstudag 26. marz kl. 21,00 verður sýnd japanska kvikmynd in Hefnd leikara, í fyrsta sinn hérlendis. Leikstjóri er Lon Ichikarva. — Myndin verður kynnt í upphafi sýningar. Laugardagur 27. marz kl. 20,00 verður æskulýðsskemmtun í samkomusal Víghólaskóla í um sjá Amhildar Jónsdóttur leik- konu. — Þar verður fluttur leik þátturinn Jóðlíf eftir Odd Björns son. Leikstjóri er Sigrún Björns dóttir. — Þá verða danssýning ar undir stjóm Heiðars Ástvalds sonar. — Ungtemplarar og skát ar skemmta. — Hljómsveitin Æv intýri leikur fyrir damsi. Kl. 21,00 á laugardagskvöld verður sýndur í kvikmyndasal félagsheimilisins gestaleikur Umf. Dagsbrúnar á Rangárvöll- um — Syndir annarra, eftir Ein ar H. Kvaran. Leikstjóri er Ey- vindur Erlendsson. Leikendur: Ragnar Böðvarsson, Jóhanna Ax elsdóttir, Stefán Jón Jónsson, Gerður S. Elimars, Ingibjörg Marmundsdóttir, Margrét H. Högnadóttir, Jóna K. Guðmunds dóttir, Sigmar Ólafsson, Hall- grímur Sígurðsson, Lilja Sig- urðardóttir, Auður Sigurðardótt ir og Jón Einarsson. Sunnudag 28. marz kl. 15,00 verður barnaskemmtun í kvik myndasal félagsheimilis Kópa- vogs. Endurtekin dagskrá í um sjá Jónínu Herborgar Jónsdótt- ur leikkonu úr verkum Stefána Jónssonar rithöfundar. Á sunnudagskvöld kl. 21,00 er lokadagskrá Kópavogsvöku í kvikmyndasal félagsheimilisms: — Göethekvöld — Ævar R. Kvaran flytur erindi um Fást og Goethe — Elísabet Erlingsdóttir syngur lög þekktra tónskálda við ljóð Goe the3, við hljóðfærið er > Hanna Guðjónsdóttir. Félagsheimili Seitjaraamess FÉLAGSHEIMILI Seltjarnar- ness verður formlega opnað laug ardaginn 20. marz n.k. kl. 14,30. Á dagskrá opmunarinnar er: Leitk ur lúðrasveitar, hiúsinu lýst, opn- unarræða, ávörp fiélaga og gesta og söngur. — Iðnaðarsvæði Framh. af bls. 2 væri því séð fyrir útsýniisað- stöðu fyrir þá er gæfu sér tíma til þess. íbúarnir fengju hins vegar útsýni yfir skemmurnar. Geir Hallgrímsson, borgar- stjóri, sagði að upphaf Sunda- hafnar hefði verið víðtæk rannsókn á hafrt argerð í Reykja vík. Sundahöfn hefði verið val- in á grundvelli þessarar grein- argerðar. Síðan hefði verið haf- izt handa ura hönnun á svæðinu og hún sett inn í aðalskipulag Reykjavíkur, og þess vegna væri það alrangt að hún hefði verið sett niður eftir misteikningu. * — Irland Framhald af bls. 1 hans riðar nú til falls vegna gagnrýni frá mótmælendum, s@m vilja láta ganga mdli bols og höfuðs á samtökum kaþóiskra manna. Talið var, að framangreindlr tveir menn flyttu þau skiiaboð firá Edward Heath forsætisráð- herra, að brezkt herlið myndi nú bregðast af enn meiri hörku og einbeitni en áður gegn öfgasirtm- uim, sem hefðu í frammi ofbéid- isaðgerðir. Hjartan'lega þakka ég otlum þeim mörgu sem giöddiu mig á afmælisdegi mínum 9. rnarz á alllan hátt og gerðu mér diaginm ógleymanilegan. Guð blesai ykkur öll, Ragnheiður S. Erlendisdöttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.